Þjóðviljinn - 13.07.1984, Side 8
Landnytjar eftir Lísu K. Guðjónsdóttur
Mosfellssveit:
Grafíkmyndir
Lísu K. Guðjónsdóttur
Héraðsbókasafnið í Mosfells-
sveit hefur tekið upp þá nýbreytni
að undanförnu að hafa standandi
myndlistarsýningar í húsakynn-
um sínum en þau eru við hliðina á
Pósti og síma í Mosfellssveit.
Nú stendur yfir sýning á grafík-
myndum Lísu K. Guðjónsdóttur
og er hún opin alla virka daga kl.
13-20.
Lísa lauk prófi úr grafíkdeild
Myndlista- og handíðaskólans
árið 1976 og hefur tekið þátt í
mörgum samsýningum heima og
erlendis síðan. Á þessu ári hefur
hún svo haldið þrjár einkasýning-
ar, ef þessi er talin með. Sú fyrsta
var í bókasafninu á ísafirði, þá
önnur í matsal fjármálaráðuneyt-
isins. Sýningin í Mosfellssveit
stendur til 10. ágúst.
-GFr.
Árbæjarsafn:
Færeysk sýning
Nú um helgina verður opnuð
sýning í Eimreiðarsalnum í Ár-
bæjarsafni og er hún frá Fær-
eyjum. Nefnist hún Fiskafólk og
fjallar um líf og störf fólks í Fær-
eyjum á árabilinu 1920-1940. Ár-
bæjarsafn er opið kl. 13.30-18
alla daga nema mánudaga.
Á morgun, laugardag, kl.
15.30 leika Keltar þjóðlagatónlist
og á sunnudag koma norrænir
þjóðdansahópar og dansa á tún-
inu kl. 15 ef veður leyfir. Dillons-
hús hefur nú verið opnað á ný
eftir viðgerðir og eru kaffiveiting-
ar í því. -GFr
Dillonshús hefur nú verið opnað á ný eftir viðgerð og þar eru kaffiveitingar.
UM HELGINA
Náttúruverndarfélag Suðvesturlands:
Skoðunarferð um
nágrenni Grindavíkur
Náttúruverndarfélag Suðvest-
urlands fer í náttúrskoðunar- og
söguferð um nágrenni Grindavík-
ur laugardaginn 14. júlí kl. 13.30
frá Norræna húsinu og kl. 14.30
frá Festi, Grindavík. Þar sem
Grindvíkingar sem áhuga hafa á
ferðinni geta komið í bílinn.
Áætlað er að ferðinni Ijúki milli
kl. 19.00 og 20.00. Fargjald er
200 kr., frítt fyrir börn í fylgd
fullorðinna. Allir eru velkomnir.
Leiðsögumenn verða Jón Jóns-
son jarðfræðingur er fer yfir jarð-
fræði svæðisins og nýtingu jarð-
varmans. Líffræðingarnir Björn
Gunnlaugsson og Eva Þorvalds-
dóttir fræða okkur um gróðurfar
og dýralíf almennt. Sögu og ör-
nefnafróðir menn verða með í
ferðinni. Auk þessa fáum við
gesti í bílinn til okkar.
Ekið verður í gegnum Grinda-
víkurkaupstað austur Þorkötlu-
staðanes en þar eru óvenju fjöl-
breyttar minjar frá fyrstu árum
vélbátaútgerðarinnar í Grinda-
vík. Frá Nesinu er einnig mjög
gott útsýni yfir Hraunsvíkina og
strandlengjuna frá Festarfjalli
(Siglubergsfjalli) austur á Krýsu-
víkurberg. Frá Þorkötlustaðanesi
verður ekið vestur á Gerðis-
tanga, þar skoðaðar merkilegar
bæjarrústir frá síðustu öld. Síðan
verða rifjuð upp örnefni við
Arfadalsvík frá tímum einokun-
arverslunar. Því næst komið við í
Einisdal, fallegri hraunkvos með
lítilli tjörn. Þaðan gengið að
Gerðavallabrunnum og sérstætt
lífríki skoðað í Rásinni. Þar er
einnig að finna ævagamlar rústir
en á sjávarkambinum þar suður
af eru sérkennilegir lágbarnir
steinar sem nefndir eru Hást-
einar.
Þar næst verður haldið upp á
Baðsvelli og í Selskog. Bláa lónið
og Orkuver Suðurnesja heim-
sótt. Farið verður síðan út í Eld-
vörp að næst kraftmestu borholu
heims, og litið á flóruna þar í
kring en ferðinni líkur með stuttri
gönguferð að merkilegum rúst-
um eftir útilegumenn, sem fund-
ust um miðja síðustu öld og engar
sagnir eru um. Litið verður á um-
hverfi tveggja fyrirtækja þar sem
umgengni er til fyrirmyndar.
Einnig verður gengið um svæði er
nýiega voru framin náttúruspjöll
af gáleysi en lagfæring er þegar í
undirbúningi.
Grindavík hefur upp á margt
merkilegt að bjóða. Strand-
lengjusvæðið er með fjölbreyttu
lífríki sem lítið hefur verið kann-
að. Þá virðast hverfin vera
óvenju rik af ýmiskonar
mannvistarminjum sem einnig
Barokk í
Að venju verða haldnir
„Sumartónleikar í Skálholts-
kirkju“ fjórar hclgar í júlí og ág-
úst. Fyrsta tónleikahelgin að
þessu sinni verður n.k. laugardag
og sunnudag 14. og 15. júlí.
Þetta er tíunda sumarið sem
efnt er til „Sumartónleika í
Skálholtskirkju.“ Tónleikarnir
standa yfir í um 45-50 mínútur og
eru ætlaðir ferðalöngum er dvelj-
ast vilja um stund í kirkjunni og
njóta hljómburðar hennar.
Að þessu sinni verður leikið á
blokkflautu, barokkfiðlu, trom-
pet, gítar, lútu, viola da gamba,
sembal og orgel í kirkjunni og er
ný efnisskrá um hverja helgi.
Næstkomandi tónleikahelgi
verða flytjendur Camilla Söder-
berg blokkflautuleikari, Snorri
hafa verið lítt kannaðar og er
brýn nauðsyn að vernda þær þar
til það hefur verið gert. Svo má
ekki gleyma fegurð hraunanna og
mosaþembunnar sem klæðir þau.
Náttúrufræðisafn til kynningar á
jarðfræði og lífríki svæðisins er
ekki fyrir hendi, byggðasafn ekki
heldur, en áhugamenn hafa safn-
að hlutum frá fyrri tíð. Elsta hús
byggðarinnar frá 1868 er enn
hægt að varðveita. Áhugamaður
í Alþýðubankanum á Akureyri
stendur nú yfir kynning á verkum
eftir Örlyg Kristfinnsson og er
kynningin haldin í samráði við
Menningarsamtök Norðlend-
inga.
Skálholti
Örn Snorrason lútuleikari og
Ólöf Sesselja Óskarsdóttir er
leikur á viola da gamba. Munu
þau leika einleiks- og kammer-
verk frá barokktímanum.
Að loknum Skálholtstón-
leikum leggja þau upp í tónleika-
för til Svíþjóðar og Áusturríkis.
Flytjendur auk ofangreindra á
Skálholtstónleikunum í sumar
verða Ásgeir H. Steingrímsson
trompetleikari, Michael Shelton
fiðluleikari, Pétur Jónasson gít-
arleikari, Roy Wheldon, gömbu-
leikari, Helga Ingólfsdóttir sem-
balleikari og Orthulf Prunner
orgelleikari.
Eins og fyrr segir hefjast tón-
leikarnir kl. 16 og er aðgangur
ókeypis.
hefur síðastliðin tíu ar tekið upp
viðtöl við ýmsa eldri Grindvík-
inga um fyrri tíð og þar með
bjargað mjög merkilegu efni.
Sérstakt félag áhugamanna um
náttúru- og umhverfisvernd er
ekki starfandi á svæðinu.
Rétt er að geta þess að Ferða-
félag íslands kynnir svæðið vest-
an Grindavíkur með tveimur
gönguferðum á sunnudag. Þá
verður m.a. farið út á Reykjanes.
Örlygur Kristfinnsson er
Siglfirðingur, hann stundaði nám
við Myndlista- og handíðaskóla
íslands 1969-1973. Örlygur hefur
haldið fjórar einkasýningar,
þrjár á Siglufirði og eina í
Reykjavík, einnig hefur hann
tekið þátt í samsýningum, á
Húsavík, Akureyri, Blönduósi
og í Finnlandi. Kynningin á verk-
um Örlygs stendur í tvo mánuði.
Óperan:
Söngdagskrá
í kvöld
í kvöld kl. 21.00 verður ís-
lenska óperan í annað skipti í
sumar með svokallað sumarpró-
gram á fjölunum.
Þar er um að ræða söngdagskrá
með íslenskum þjóðlögum og
ættjarðarlögum ásamt atriðum úr
óperum og óperettum. Meðal
einsöngvara í kvöld eru Ólöf K.
Harðardóttir og Kristín S. Sig-
tryggsdóttir en auk þeirra kemur
fram kór íslensku óperunnar.
Stjórnandi er Garðar Cortes og
undirleikari Þóra Fríða Sæm-
undsdóttir.
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 12. júlí 1984
Sumartónleikar:
örlygur Kristfinnsson við eitt verka sinna.
Örlygur í Alþýðubanka