Þjóðviljinn - 13.07.1984, Page 24
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsfmi: 81663.
Föstudagur 13. júlí 1984 155. tölublað 49. örgangur
DJÚÐVIUINN
Ársreikningar borgarinnar
Skuldað á skrítnum stöðum
Sigurjón Pétursson: Borgarsjóður hefur tekið stórlán úr rekstri borgarfyrirtœkja
í ræðu sinni benti Sigurjón á, að hluti af stjórahefðikomiðframaðStöðumælasjóð- „óhjákvæmilegt" að taka lán upp á 39.2
lánum borgarinnar hefði verið tekinn þar urhefðiekkinægilegtfétilaðbætatjónsem miljónir króna. Samt sem áður kæmi fram í
sem síst sk-yldi, úr rekstri ýmissa fyrirtækja orðið hefði á stöðumælum undanfarna ársreikningunum að Rafmagnsveitan ætti
borgarinnar. Þannig skuldaði borgin nú mánuði. Hins vegar komi fram í ársreikn- inni hjá borgarsjóði heilar 15.5 miljónir
Húsatryggingum 68.7 miljónir, Vélamið- ingum borgarinnar að Stöðumælasjóður króna. „Með öðrum orðum“, sagði Sigur-
stöðinni 15.4 miljónir, og Malbiksstöð, ættieigiaðsíðurinnihjáborginni 1.2. milj- jón, „helmingurinn af láninu sem Raf-
grjótnámi eg pípugerð 25 miljónir. ónir og hefði bætt stöðu sína gagnvart henni magnsveitan verður „óhjákvæmilega" að
um 2.7 miljónir á árinu! taka, er notaður til að fjármagna fjárhags-
Sigurjón tók dæmi af Stöðumælasjóði til AnnaðdæmisemSigurjóntókvaraf Raf- óreiðu Borgarsjóðs. Er þetta ekki hálfund-
að skýra hversu undarleg vinnubrögð væru magnsveitu Reykjavíkur en borgarstjóri arleg fjármálastjórn?"
viðhöfð. Hann benti á að í ræðu borgar- tók fram í ræðu sinni að henni hefði reynst _ ÖS
Borgarsjóður hefur stóraukið skuldir
sínar við ýmis fyrirtæki borgarinnar,
eða úr 48 miljónum í rúmar 140 miljónir.
Þetta er langt umfram það sem áætlað var,
að því er Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi
sagði við umræður í borgarstjórn um
ársreikninga borgarinnar fyrir 1983.
Einsog áður hefur komið fram hér í Þjóð-
viljanum stórversnaði skuldastaða borgar-
innar á árinu 1983, og fór 357 miljónum
fram úr áætlun.
Listabolti!
„Listabolti“ (artist ball) nefnist
fyrirbærið sem pilturinn á mynd-
inni hér að ofan leikur listir sínar
með. í fyrradag var hafin dreifing
á boltanum hér á landi og mark-
miðið er að hann verði seldur í
sportvöruverslunum. Hér er um
að ræða gúmmíbolta með
teygjanlegu bandi sem hægt er að
leika sér með á margvíslegan
hátt. Þetta er einmenningsíþrótt
og kosturinn við boltann er sá að
hann kemur ávallt til baka, sama
hversu fast er spyrnt, skallað eða
grýtt. „Listaboltinn" ætti að vera
ákjósanleg afþreying og leiktæki
fyrir fólk á öllum aldri og ætti
ekki síst að vera fötluðum fagn-
aðarefni. Boltinn kemur frá Dan-
mörku og þekktur læknir þar í
landi, Knud Lundberg, hefur
mælt með honum sem alhliða
trimmtæki og bendir einnig á að
hann nýtist einnig þeim sem vilji
bæta knattmeðferð sína, .t.d. í
knattspyrnu, handknattleik og
blaki. Aætlað verð útúr búð hér á
landi er nálægt 350 krónum.
- VS
„Listaboltinn“ í notkun. Mynd: Loftur..
Öryrkjar og aldraðir
Tekjutrygging hækkar ekki!
Samt er hún stœrsti hlutinn af ráðstöfunarfé margra öryrkja og aldraðra,
sem sumir þurfa að lifa á minna en tíu þúsundum á mánuði
r
Oneitanlega finnst mér að tekj-
utryggingin hefði átt að
hækka líka því þetta er stærsti
hlutinn af ráðstöfunarfé margra
öryrkja og aldraðra.
Þetta sagði Ásgerður Ingvars-
dóttir, deildarstjóri hjá Öryrkja-
“bandalaginu, þegar Þjóðviljinn
spurði hana álits á nýlegri reglu-
gerð heilbrigðisráðuneytisins,
þarsem grunnlífeyrir elli- og ör-
orkubóta er hækkaður um tvö
prósent til samræmis við al-
mennar launahækkanir. Hins
vegar er sérstaklega tekið fram í
reglugerðinni að tekjutryggingin,
heimilisuppbætur og feðra- og
mæðrastyrkur séu undanþegnar
hækkuninni.
Þeim sem njóta tekjutrygging-
ar er hins vegar mikilvægt að fá
líka prósentuhækkunina á hana,
þarsem hún er orðinn stærsti
hlutinn af þeim bótum sem sumir
aldraðir og öryrkjar fá. Þess skal
þó getið að einungis 75 prósent
öryrkjar og meira eiga kost henn-
ar.
Að sögn Ásgerðar ei tekju-
tryggingin nú orðin 4.728 krónur
en grunnlífeyririnn _öllu lægri,
eða 3.512 krónur eftir hækkun-
ina. Þeir sem búa einir eiga svo
kost á heimilisuppbót sem nemur
1.422 krónum og sumir sem þurfa
á miklum lyfjum að halda geta
fengið lyfjauppbót sem er frá 300
til 800 krónum á mánuði. Þannig
að ráðstöfunarfé margra öryrkja
og aldraðra, sem ekki njóta tekna
af starfi, getur rétt losað tíu þús-
und krónur. Þess vegna er mjög
mikilvægt fyrir þá að geta fengið
hækkunina líka ofaná tekjutrygg-
inguna.
Jón Ingimarsson skrifstofu-
stjóri heilbrigðisráðuneytisins,
sagði að tekjutryggingin hefði
ekki verið hækkuð vegna þess að
fyrir skömmu hefði tekjumarkið,
sem ákvarðar þær tekjur sem má
vinna inn áður en tryggingin
skerðist, verið hækkað. Hann
féllst þó á að það kæmi þeim ekki
til góða sem ekki geta unnið og
eru háðir tekjutryggingunni.
-ÖS
Vagnstjóramálið
Er
engin
skýrsla
til?
Davíð segist
enga skýrslu
hafa lagt fram
í borgarráði
en viðstaddir
borgarfulltrúar
segja annað
Davíð Oddsson borgarstjóri
segir í bréfi til lögfræðings Magn-
úsar Skarphéðinssonar vagn-
stjóra, að engin skýrsia hafi verið
lögð fram á fundi borgarráðs 3.
júll sl., - og að Magnús eigi engan
rétt á frekari skýringum um upp-
sögn sína.
„Mín vegna mætti hann auðvit-
að sjá skýrsluna og mín vegna
gæti hann auðvitað fengið miklu
ýtarlegri upplýsingar eftir því
sem þær eru fyrir hendi,“ sagði
Sigurður E. Guðmundsson í við-
tali við Þjóðviljann 3. júlí eftir að
hafa setið á borgarráðsfundi þar
sem Davíð las uppúr skýrslu um
málið.
Á borgarráðsfundinum fór Da-
víð borgarstjóri fram á trúnað
borgarráðsmanna um skýrsluna,
en þau Sigurjón Pétursson og
Guðrún Jónsdóttir neituðu að
undirgangast slíkan trúnað nema
Magnús fengi einnig að sjá skýrsl-
una, og gengu af fundi.
í framhaldi af upplestri þessar-
ar trúnaðarskýrslu ritaði lögmað-
ur Magnúsar borgarstjóranum
bréf og vefengdi lagalegan rétt til
þessarar málsmeðferðar. Enn
fremur mótmælti hann lokuðum
fundum um málið og krafðist um-
ræddrar skýrslu fyrir hönd um-
bjóðanda síns. í svarbréfi borgar-
stjóra .sggir að ekki verði „orðið
við kröfu yðar um afhendingu á
skýrslu sem ekki var lögð fram“.
-óg