Þjóðviljinn - 14.03.1987, Qupperneq 3
Þýsk-íslenska
Skattsvikin
til ríkis-
saksóknara
Rannsóknarlögregla ríkisins
hefur lokið rannsókn sinni á
meintum skattsvikum fyrirtækis-
ins Þýsk-íslenska og sent málið til
rfldssaksóknara til frekari um-
ijöllunar.
Skattsvikamál Þýsk-íslenska
var vísað til rannsóknariögregl-
unnar af skattyfirvöldum eftir að
skattarannsóknadeild ríkisskatt-
stjóraembættisins hafði lokið at-
hugun sinni og sektað fyrirtækið
um rúmar 50 miljónir fyrir van-
goldinn skatt, einkum söluskatt.
Athugun rannssóknalögreglunn-
ar náði til hugsanlegra lögbrota
við skattsvikin en forstjóri Þýsk-
íslenska hefur borið því við að
vanskilin hafi stafað af vand-
ræðum með tölvuvætt bókhald
fyrirtækisins. - Ig
Landverndaráœtlun
Uppgræðsla
og landbrots-
varnir
Meðal nœstu verkefna:
Uppgræðsla
Mýrdalssands,
Skógeyjar og sandsvœða
í Þingeyjarsýslum.
Varnargarðar við 100
vatnsföll. Stórauka þarf
fjárframlög
Eitt þeirra mála, sem Alþingi
sendi Búnaðarþingi til umsagnar,
var landgræðslu- og landvernd-
aráætlun fyrir árin 1987-1991.
Lagði Búnaðarþing til að áætlun-
in yrði samþykkt en benti jafn-
framt á, að auka þyrfti til mikilla
muna íjárframlög til hennar, eigi
hún að geta sinnt þeim verkefnum
á áætlunartímabilinu, sem ráð er
fyrir gert.
Meðal þeirra verkefna eru:
uppgræðsla Mýrdalssands, Skóg-
eyjar í Hornafirði og sandsvæð-
anna í Þingeyjarsýslum. Þá eru
og nefnd 100 vatnsföll, þar sem
þörf er á varnargörðum vegna
landbrots. Allt eru þetta mjög
stór og fjárfrek verkefni.
Með hliðsjón af þessum við-
fangsefnum og öðrum, sem hér
eru ekki nefnd, skorar Búnaðar-
þing á Alþingi að auka fjárveit-
ingar til verkefna Landgræðsl-
unnar um 40 milj. kr. árlega
næstu 5 ár.
-mhg
FRÉTTIR
Hrannar B. Arnarsson, formaður Félags framhaldsskóla með undirskriftalistann á tali við þá Þorstein Pálsson fjármálaráðherra og Indriða Þorlákssonar, form.
samninganefndarinnar. Mynd E.ÓI.
Félag framhaldsskóla
Stuðningur við kennara
Fjármálaráðherra og menntamálaráðherra afhentar yfir 4500 undirskriftir með
áskorun um að gengið verði að kröfum kennara og verkfalli afstýrt.
Indriði Þorláksson: Enn ber mikið í milli
Félag framhaldsskólanna af-
henti Þorsteini Pálssyni fjár-
málaráðherra og Sverri Her-
mannssyni menntamálaráðherra
undirskriftir 4585 framhalds-
skólanema úr 14 skólum í gær
ásamt yfirlýsingu þess efnis að
ríkisvaldið semji sem fyrst við
HÍK og afstýri þannig yfírvofandi
verkfalli kennara. Fulltrúar 9.
bekkjar grunnskólanna afhentu
ráðherrunum einnig undirskrift-
ir af sama tilefni.
„Félag framhaldsskóla lýsir
yfir fullum stuðningi við kröfur
kennara," sagði Hrannar B. Arn-
arsson, formaður félagsins, þegar
hann afhenti undirskriftirnar.
Ráðherrarnir fögnuðu áhuga
nemenda á samningamálunum
og kváðust vona að úr deilunni
leystist sem fyrst. Indriði Þor-
láksson, formaður samninga-
nefndar ríkisins, rakti fyrir hópi
nemenda, sem viðstaddir voru,
gang samningaviðræðna og sagði
að samkvæmt útreikningum
nefndarinnar hefðu kennarar
ekki dregist aftur úr öðrum stétt-
um. „Kennarar kynntu okkur
gagntilboð sitt í gær og því miður
er ansi langt á milli ennþá,“ sagði
Indriði."
Hann sagðist telja að ef gengið
yrði að kröfum kennara myndi
það þýða 50-60% hækkun á
launum þeirra og 15-18 miljarða
útgjaldaaukningu fyrir ríkissjóð.
„Við komum okkur saman um
það í morgun um að standa ekki í
fjölmiðlakarpi á meðan von er á
einhverju samkomulagi og þetta
er brot á því,“ sagði Heimir Páls-
son, varaformaður HÍK, þegar
hann var inntur álits á orðum Ind-
riða. „Varðandi þær tölur sem
hann nefnir get ég vitnað í fræga
setningu um lygina: „Það er til
þrenns konar lygi: Lygi, helvítis
lygi og statistik."
Næsti fundur samninganefnda
hefur ekki verið boðaður en
áfram verður fundað yfir helgina.
Stjórn svæðisfélaga HlK í
Reykjavík og á Reykjanesi hefur
boðað til almenns fundar kl. 15 í
Menntaskólanum við Hamrahlíð
á morgun, og annað kvöld heldur
Félag framhaldsskóla baráttu-
fund á Lækjartorgi kl. 21 til að
knýja á um lausn deilunnar - vd
Flugleiðir
434 miljónir í hagnað
Eigið fé fyrirtœkisins yfir 800 miljónir
Hagnaður af rekstri Flugleiða á
sl. ári nam 434 miljónum, eða
6.7% af rekstrartekjum félags-
ins. Hagnaður fyrir ijármagns-
kostnað var 350 miljónir en var
rúmar 200 miljónir árið 1985.
Reikningar félagsins voru sam-
þykktir á stjórnarfundi í gær en
aðalfundur félagsins verður hald-
inn n.k. föstudag.
Eiginfjárstaða Flugleiða hefur
batnað verulega á síðustu árum
og er eigið fé nú bókfært uppá 801
miljón, þar af er hlutafé 105 milj-
ónir. Á aðalfundinum verður lagt
til að þrefalda hlutaféð og eins
leggur stjórnin til að greiddur
verði 10% arður fyrir sl. ár.
Á sl. ári störfuðu að meðaltali
1.611 starfsmenn hjá Flugleiðum
en félagið átti í árslok sjö þotur
og fimm skrúfuþotur.
-*g
Málþing
Málþing um menningaimál
Nógir eru andskotans peningarnir-Eiga stjórnmálaflokkar að móta
sér menningarstefnu?
Um næstu helgi verður haldið á
Hótel Sögu opið málþing um
menningarmál á vegum Alþýðu-
bandalagsins. Þar verður leitast
við að svara spurningum af þessu
tagi hér: Nauðsyn listar, eða hver
hefur beðið um list? Níska og ör-
læti samfélagsins og hvernig er
skynsamlegt að ráðstafa því fé
sem til lista og annarrar menning-
arstarfsemi er veitt? Og einnig er
spurt að því, hvort stjórnmála-
flokkur eigi að móta sér menning-
arstefnu.
Málþing af þessu tagi hefur
verið alllengi í bígerð, og tengist
nú meðal annars við þau nýmæli,
að á nýlegum miðstjórnarfundi
sínum gaf Alþýðubandalagið þau
fyrirheit, að í valdastöðu mundi
flokkurinn beita sér fyrir tvöföld-
un opinberra framlaga til menn-
ingarmála.
Flutt verða stutt framsöguer-
indi, þar sem talsmenn einstakra
listgreina og menningarstofnana
gera grein fyrir því, hvernig þeir
telji þann vanda sem á þeirra
menningarsviði brennur best
leystan. Meðal frummælenda eru
Þorsteinn Gylfason lektor, Mark-
ús Örn Antonsson útvarpsstjóri,
Einar Kárason rithöfundur, Jón-
as Kristjánsson, forstöðumaður
Árnastofnunar, Halldór Björn
Runólfsson listfræðingur, Jón
Óttar Ragnarsson stjónvarps-
stjóri, Viðar Eggertsson leikari
og Kolbeinn Bjarnason tónlistar-
maður. Seinni hluta málþings
þessa fara fram frjálsar umræður.
Málþinginu stýri þau Guðrún
Helgadóttir alþingismaður og
Mörður Arnason blaðamaður.
Það hefst kl. 13 annan sunnudag
22. mars í Átthagasal Hótel Sögu
og er öllu áhugafóiki heimil þátt-
taka sem fyrr segir.
Sjónvarpið
Fimmtu-
dagskvöld
í athugun
Á útvarpsráðsfundi í gær var
samþykkt tillaga frá Eiði Guðna-
syni um að hefja undirbúning að
sjónvarpssendingum á fímmtu-
dögum með því að kanna kostnað
og önnur umsvif.
Tillagan var samþykkt með
fimm atkvæðum. María Jóhanna
Lárusdóttir sat hjá og Árni
Björnsson var á móti, meðal ann-
ars á þeim forsendum að eðli - lg
væri að bæta dagskrána áður en
farið væri að lengja hans.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3