Þjóðviljinn - 14.03.1987, Qupperneq 13
HEIMURINN
Frakkland
„Sambúð“
Mitterrands
og Chiracs
ársgömul
✓
A ýmsu hefurgengið hjáforseta og
forsœtisráðherra. Vinsældir Chiracs dvína en
Mitterrand heldur sínu
Nú er brátt liðið ár frá sigri
hægri manna í þingkosningum
í Frakkiandi sem skóp nýjar
aðstæður í frönskum stjórn-
málum, stjórnarmynstur sem
ekki átti sér fordæmi frá því de
Gaulle stofnaði fimmta lýð-
veldið árið 1953.
De Gaulle gekk út frá því sem
gefnu að forseti styddist við
meirihluta á þingi og skipaði ein-
hvern gæðinga sinna í embætti
forsætisráðherra. Sá var gangur
mála á valdatíð hans.
En það er vitaskuld ekki sjálf-
sagður hlutur að þannig sé mál-
um farið í landi þar sem forseta-
kosningar og þingkjör fara fram
hvort í sínu lagi. Það sætir því
nokkurri furðu að þær aðstæður
skyldu ekki hafa komið upp fyrr
að forseti og þingmeirihluti væru
á öndverðum meiði.
í upphafi voru Frakkar næsta
ánægðir með að sósíalistinn
Mitterrapd og ný-gaullistinn
Chirac skyldu þurfa að stýra
þjóðarskiitunni í sameiningu,
nauðugir viljugir. En nú, ári síð-
ar, er komið annað hljóð í strokk-
inn.
Það hefur hallað á Chirac.
Skoðanakannanir sýna að
fimmtíu og fimm prósent kjós-
enda hafa orðið fyrir vonbrigðum
með hann en einungis tuttugu og
fjögur prósent eru ánægðir. Hins-
vegar hefur forsetanum vaxið ás-
megin.
A þessu eru eðlilegar skýring-
ar. Eining hefur nkt með þeim í
helstu atriðum er varða utanríkis-
mál, en í þeim málaflokki hefur
Mitterrand verið mun meira
áberandi, einkum sem fulltrúi
þjóðarinnar gagnvart umheimin-
um. Á meðan hefur forsætisráð-
herrann reynt að einbeita sér að
innanríkismálum en þar hafa
honum verið mislagðar hendur
svo ekki sé meira sagt.
Chirac hefur aldrei farið dult
með þann ásetning sinn að verða
eftirmaður Mitterrands. Þegar
hann tók við embætti forsætisráð-
herra voru aðeins tvö ár til stefnu
uns forsetakosningar skyldu fara
fram. Tíminn var því naumur
fyrir Chirac til að láta að sér
kveða og sýna kjósendum að
hann væri karl í krapinu. Hann
ákvað því að hafa hraðar hendur
og kýla sem flest af dekurmálum
hægri manna í gegnum þingið.
Eftir að hafa fengið margar
veigamiklar breytingar í
efnahags- og félagsmálum sam-
þykktar á franska þinginu fyrstu
níu mánuði af starfstíma stjórnar-
innar kom loks að því að Chirac
rann á rassinn.
í desember gerðu námsmenn
uppreisn gegn áætlun stjórnar-
innar um að neyða þá til að
þreyta inntökupróf í háskóla
Sovétríkin
Krúsjof fær uppreisn æm
Yfirmaður Marx-Lenín stofnunarinnar hœlir Krúsjofí Prövdu án þess
að nefna hann á nafn. Telur allt valdaskeið Brésnefs hnignunartíma
I gær birtist grein í Pravda
eftir Georgy Smirnof, nýskip-
aðan yfirmann Marx-Lenín
stofnunarinnar í Moskvu og
samverkamann Gorbatsjofs,
þar sem lofsamlegum orðum
er farið um ýmsar umbótatil-
raunir sem gerðar voru á
valdatíma Nikíta Krúsjofs.
Meðal þess sem Smirnof nefnir
sem dæmi um jákvæða nýsköpun
á Krúsjofstímanum er skipting
efnahagsnefndar kommúnista-
flokksins í tvennt, annarsvegar
landbúnaðardeild og hinsvegar
iðnaðardeild. Ennfremur nefnir
hann það virðingarverða framtak
að skikka háttsetta embættis-
menn til að víkja fyrir nýjum
mönnum er þeir höfðu gegnt
starfi um ákveðinn tíma.
Þótt Krúsjof hafi ekki verið
nefndur á nafn í greininni þá er
vitaskuld ljóst hver á hrósið. Krú-
sjof var sviptur völdum árið 1964
og lést í ónáð ráðamanna árið
1971.
Það fer heldur ekki á milli mála
hver það er sem Smirnof beinir
spjótum sínum að er hann lætur
eftirfarandi orð falla um eftir-
menn Krúsjofs:
„Forysta flokksins beindi geiri
sínum einkum að lýðræðisþróun-
inni sem komin var á nokkurn
rekspöl...í flokknum og ríkis-
kerfinu." Brésnefklíkan hafði á
orði að Krúsjof hefði verið ævin-
Krúsjof á hátindi valdaferils síns.
Honum var sungið lof f Prövdu í gær.
týramaður og sakaði hann um
fífldirfsku í áætlanagerð en
kvaðst sjálf hafa í frammi „vís-
indaleg vinnubrögð.“
Gorbatsjof hefur fram til þessa
látið nægja að hallmæla síðustu
valdaárum Brésnefs sem tímabili
stöðnunar og spillingar en í grein
Smirnofs kveður við annan tón.
Hann rekur rætur vandans allt
aftur til ársins 1964 þegar brés-
nefistarnir rifu til sín völdin:
„Þeir juku miðstýringu á öllum
sviðum þjóðlífsins, guldu varhug
við öllum breytingum, hversu
smávægilegar sem þær voru, og
vörðu óbreytt ástand með oddi
og egg.“
Á Brésneftímanum vænkaðist
hagur háttsettra embættismanna
og flokksforkólfa mjög, manna
sem nutu gífurlegra fríðinda og
valda í hinu þunglamalega skrif-
stofubákni. Slíkir einstaklingar
gengu undirheitinu „Nomenklat-
ura“ sem upphaflega var listi yfir
feit embætti ætluð flokksgæðing-
um.
Það hefur engin farið í graf-
götur um það að megin andspyrn-
an við nýsköpunina í Sovétríkj-
unum kemur frá þessum forrétt-
indaaðli. Smirnof nefnir ekki
orðið „Nomenklatura“ fremur en
nöfn Krúsjofs og Brésnefs en það
er engum vafa undirorpið hvert
hann stefnir orðum sínum þegar
hann talar um að íhaldssemi og
sérhagsmunahyggja óhæfra
framámanna hafi leikið þjóðfé-
lagið grátt allar götur frá árinu
1964.
Georgy Smirnof er náinn ráð-
gjafi Gorbatsjofs og auk þess að
vera yfirmaður Marx-Lenín
stofnunarinnar er hann ritstjóri
nýrrar sögu Kommúnistaflokks
Sovétríkjanna. Það verk verður
forvitnilegt aflestrar ef öll fortíð
flokksins verður tekin til jafn
rækilegrar endurskoðunar og
valdaskeið Krúsjofs og Brésnefs í
greininni í Pravda í gær.
-ks.
landsins. Allt fór í bál og brand
en málum lyktaði, sem kunnugt
er, með sigri námsmanna eftir að
einn úr þeirra hópi hafði verið
myrtur af fautum úr
slagsmálasveitum lögreglunnar.
Athygli vakti heimsókn Mitterr-
ands til ættingja hins vegna og
fullvíst er talið að hann hafi bók-
staflega skipað forsætisráðherr-
anum að jarða háskólafrumvarp-
ið.
fmynd Chiracs sem „húsbónda
á sínu heimili" beið mikinn
hnekki og hann varð að söðla um
í fleiri málum; reynslunni ríkari
leitar hann nú samráðs við
hagsmunaaðila áður en hann
rennir málum í gegnum þingið.
Á þessum hrakförum forsætis-
ráðherrans hefur helsti keppi-
nautur hans á hægri væng
stjórnmálanna, Raymond Barre,
fitnað einsog púkinn á fjósbitan-
um. Hann leggur nú nótt við dag
og ferðast vítt og breitt um
Frakkland í því augnamiði að búa
í haginn fyrir forsetakosningarn-
ar að ári en skoðanakannanir
hafa sýnt að hann er manna lík-
legastur til að skjóta Chirac ref
fyrir rass og verða mótframbjóð-
andi Mitterrands ef sá gamli gef-
ur kost á sér að nýju. -ks.
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK Bakaradeild Dagana 17., 18. og 19. mars kl. 14-20 veröa haldin námskeiö í hátíðarbakstri úr marsipani. Kennarar eru frá Danmörku. Þátttökugjald er kr. 500. Þátttaka tilkynnist í síma 26240 á skrifstofu- tíma.
Matráðsmaður Staöa yfirmatráösmanns viö Fjórðungssjúkra- húsið Neskaupstað er laus til umsóknar. Starfið veitist frá 1. júní 1987. Laun samkvæmt samningi starfsmannafélags Neskaupstaöar og bæjarsjóðs Neskaupstaðar. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf berist skrifstofu Fjóröungssjúkrahúss- ins Neskaupstaö fyrir 15. apríl 1987 sem gefur nánari upplýsingar. Framkvæmdastjóri.
m EINKASÍMSTÖÐ FYRIR RÍKISSPÍTALA Óskað ertilboða í stafræna einkasímstöð (PABX) fyrir Ríkis- spítala. Stærð 900 númer, stækkanleg ía.m.k. 2000 60 línur með beinu innvali, stækkanleg ía.m.k. 100 60 úthringingarlínur, stækkanleg í a.m.k. 100 4 skiptiborð, stækkanleg í a.m.k. 8 Útboðsgögn eru seld á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, á kr. 1.000.-, frá og með þriðjudeginum 17.mars 1987. Tilboð verða opnuð á sama stað, föstudaginn 22. maí 1987 kl. 11:00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Borgartuni 7, sími 26844
Laugardagur 14. mars 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13