Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1997, Síða 12
12
Spurningin
MÁNUDAGUR 10. MARS 1997
Fara mánudagar
í taugarnará þér?
Kristmundur Þorsteinsson mál-
ari: Já, þá er ég oft þunnur.
Jón Gunnar Guðjónsson nemi:
Nei, ekkert sérstaklega.
Guðrún Helga Högnadóttir nemi:
Nei, þeir eru alveg ágætir.
Rakel Lúðvíksdóttir nemi: Nei,
nei. Mánudagar eru ágætir.
Arna Sigurðardóttir nemi: Já, al-
veg rosalega.
Þröstur Reynisson matvælafræð-
ingur: Nei, alls ekki. Þetta eru
ágætis dagar.
Lesendur
Goöærið
landið er
liðið,
sviðið
Pílárar þjóðfélagsins hafa flutt út mikla fjármuni, segir bréfritari m.a.
Tryggvi Bjarnason skrifar:
Búið er að hækka laun hjá topp-
unum (hjá ríkinu) og ekkert er eftir
handa launþegunum sem urðu að
fóma miklu í þjóðarsátt. Aðeins
launamanneskjan hefur þurft að
greiða fyrir þjóðarsáttina, og svo
hirðir hálaunað ríkisstarfsfólk arð-
inn. - Þetta kallar forsætisráðherra
góðæri, því þeir sem mest hafa og
mest eiga eru búnir að fá sitt. Ríkis-
stjómir núverandi forsætisráðherra
hafa hrifsað frá skattgreiðandanum
6% í skatt til að rétta við fyrirtækin
í landinu, allt frá árinu 1991.
Minnisstætt er viðtal viö forsæt-
isráðherra og Jón Baldvin í beinni
útsendingu á RÚV, er þeir báðir við-
urkenndu að hækkun skatts um 2%
væri mistök, en þetta hefði þurft að
gera vegna niðurfellingu aðstöðu-
gjalds á fyrirtækin. - En hvenær á
að skila þessum skatti? Margt hefur
eflaust verið skrýtið í stjómarsam-
starfinu þá, og ekki að undra þótt
Jóhanna gengi út úr samstarfinu.
Pílárar þjóðfélagsins hafa flutt úr
landi mikla ijármuni síðan einka-
væðingin reið í hlað áriö 1991. Um
27 milljarðar voru farnir úr landi í
nóvember 1994 og er ekki ólíklegt að
áætla að nú séu þeir orðnir um 200
milljarðar króna. Þessu hafa stjórn-
völd ekki áhuga á. En hvers vegna?
Er hugsanlegt að þau stjómi ekki
þegar allt kemur til alls? Heldur
fjármálaveldið?
Útflutningur peninga („peninga-
þvottur") líkt og gerist í sumum
löndum er víðast talinn glæpur. I
Bandaríkjunum eru mjög ströng
viðurlög við peningaþvætti. Margir
standa þó í þess konar framkvæmd-
um, og hingað til lands er hægt að
koma meö peninga og fara með þá
margfalda til baka, og leggja þá svo
inn á leynireikninga erlendis. Upp-
byggingin héðan ytra er sönnun á
þessu, og hef ég sjálfur séð það með
eigin augum. Fyrirtækin, atvinnan
er flutt úr landi og störf em flutt úr
landi með glansmyndafréttum, hrá-
efni er flutt út, og unnið þar í
neyslupakkningar sem síðan eru
seldar hér heima. - Hvernig ætti
svo að geta verið umhorfs Hér öðru-
vísi en raun ber vitni? - Allt í kalda-
koli og erlendar skuldir í bak og fyr-
ir?
Ég spái því að á haustmánuðum
verði komið mjög alvarlegt ástand í
þjóðarbúinu vegna glannalegrar
kaupstefnuáráttu, erlendra skulda
og lélegrar stjómunar. Álver eða
einhverjar aðrar verksmiðjur - til
að gera bara eitthvað - eru bráða-
birgðaúrræði til að fela ósómann.
Raunhæfar aðgerðir til bjargar em
ekki í augsýn eins og málin horfa
við. Þetta er nú öllum loks að verða
ljóst.
Þjóðviljinn á Netinu
Ólafur Ámason skrifar:
Ég var ánægður að heyra að Þjóð-
viljinn væri kominn út á nýjan leik.
Alþýðubandalagið gafst upp á útgáf-
unni fyrir nokkrum ámm og hefur
reynt að þvo hendur sínar af fortíð-
inni, sem er alls ekki svo slæm þótt
áróður sé uppi um annað. Þjóðvilj-
inn var alltaf mitt eftirlætisblað,
enda hvergi gefið eftir í kröfunni
um réttlátt sósíaiiskt þjóðfélag.
Mér brá hins vegar í brún þegar i
ljós kom að það er eitthvert stutt-
buxnalið sem stendur að útgáfunni
á Veraldarvefnum. Þegar betur er
að gáð boðar nýi Þjóðviljinn stæka
frjálshyggju sem á ekkert skylt við
boðskap gamla Þjóðviljans. Einka-
væðing, skattalækkanir fyrir auð-
valdið, gagnrýni á samtök launa-
fólks, minni innflutningsvernd
gagnvart erlendum landbúnaðaraf-
urðum, afnám banns á áfengisaug-
lýsingum, niðurskurður í velferðar-
þjónustu og annað stjómleysi em
þeirra ær og kýr.
Mér sýnist blaðið líka tala af al-
gjöm viröingarleysi um allt og alla,
jafnt stjórnmálamenn, embættis-
menn og verkalýðsforustuna. Þama
era t.d. vammir og skammir um for-
seta lýðveldisins, Ólaf Ragnar
Grímsson, sem mikill meirihluti
þjóðarinnar hefur lýst sig ánægðan
með í skoðanakönnunum. - Þeim er
greinilega ekkert heilagt.
Ég veit ekki hvort það lýsir betur
ósvífni frjálshyggjumanna eða dug-
leysi vinstri forystunnsir, að Þjóð-
viljinn hefur fallið í skaut þessum
aðilum. Er það ekki algjör fallein-
kunn fyrir forystumenn Alþýðu-
bandalagsins, að nýfrjálshyggju-
menn taki Þjóðviljann, eina alvöra
málgagn sósíalisma og verkalýðs-
baráttu fyrr og síðar, þessu kverka-
taki?
Eru segl öryggi á vélskipum?
Hannes skrifar:
Ég horfði á þátt Stöðvar 2 eftir
síðari fréttir stöðvarinnar kl. 22:45
sl. miðvikudagskvöld. Þar ræddi Ei-
ríkur Jónsson við mann einn sem
kom fram með tvær hugmyndir.
Önnur var um að vélskip, stór og
smá, væra betur búin öryggi en nú
er væru þau með seglútbúnað sem
gæti komið að notum þegar skip
verður vélarvana. Hin hugmynd
mannsins snerist um að koma fyrir
endurskinsbúnaði úti í geimnum,
Strandiö viö Pjórsárósa. - Heföi seglbúnaöur komiö aö notum?
þaðan sem mætti varpa sólarljósi til
jarðar eftir pöntun. Skemmtileg
hugmynd og stórhuga. Eitthvað fyr-
ir þá hjá NASA að framkvæma.
Fyrri hugmyndin, um segl sem
öryggisbúnað á vélskipum sem
verða vélarvana, sló mig illilega og
minntist ég strax stóra leiguskips
Eimskipafélagsins sem fréttir sögðu
að væri að reka upp við Þjórsárósa
einmitt í þessum töluðu orðum.
Já, hvernig hefði því skipi reitt af
ef þar hefði verið um borð tölvu-
stýrður seglbúnaður sem hefði svo
gert skipinu kleift að sigla beitivind
frá landi? Er hér ekki komið eitt-
hvað fyrir sjófarendur að hugsa um
og láta fullkanna þessa hugmynd?
DV
ísland og lce-
land sitt hvað?
Ragnar skrifar:
í viðtalsþætti Jóns Baldvins
Hannibalssonar á Stöð 2 sl.
þriðjudag ræddi Jón við Gunnar
Dal, rithöfund og heimspeking,
um nafnið ísland. Gunnar lýsti
nafhinu og útskýrði mjög á ann-
an veg en maöur hefur heyrt til
þessa. Nefnilega að Island þýddi
„land guðs“. Þýðingin „Iceland"
er auðvitað þýðing á nafhinu ís-
land, og fáir utanaðkomandi vita
annað en hér sé um að ræða land
íss og kulda. - Hvers vegna þá
ekki að umskýra landið til hags-
bóta fyrir land og þjóð - og vænt-
anlega ferðamenn sem sæktu
hingað i mun meiri mæli væri
nafhið á landinu hlýlegra? Hvað
segja menn um Guðsland?
Kannski einum of upphafið. En
eitthvað annað en Island.
Vikartindur -
dularfullt skips-
nafn
Ámi Ólafsson skrifar:
Við voram nokkrir kunningjar
sem sátum og horfðum á sjónvarps-
fréttir af strandi Vikartinds við
Þjórsárósa, hvaðan þetta nafn, Vik-
artindur, væri runnið. Þetta er
fremur óvenjulegt nafri á þýsku
skipL Einhver benti á að nafnið
væri alls ekki þýskt, heldur fær-
eyskt. Það fannst sumum okkar þó
1 hæsta máta dularfuilt - að skýra
þýskt skip færeysku nafiii. En hvað
um það. Vissulega væri fróðlegt að
heyra eitthvað meira um þetta Vik-
artindsnaih á þessu umtalaða en
ógæfusama skipi sem nú ber senn
beinin við íslandsstrendur.
Erlend lán upp í
eldri lán
Guðjón Magnússon skrifar:
Enn er rikissjóður á ferðinni í
útlöndum til að taka lán. Nú eru
það litlir 6,3 milljarðar. Og til
hvers? Ekki í framkvæmdir,
heldur til að greiða upp eldri lán
og vexti af þeim. Þetta er oröin
endalaus hít. Jafnvel enn verra
en hjá heimilunum. Hvað getur
þessi óráðsía í ríkisrekstrinum
gengið lengi?
Engar múslíma-
moskur á íslandi
Kristján Sig. skrifar:
Ég og margir aðrir sem ég hef
rætt við (t.d. á mínum vinnu-
stað) era mjög á móti því að
múslímar fái að reisa hér mosk-
ur. Ef þetta er svona trúað fólk,
sem ég dreg þó mjög í efa, ætti
það að geta iðkað trú sína á
heimilunum t.d., eða þá í sínu
upprunalega umhverfi. Moska
íslams á Islandi myndi laða að
trúarofstækismenn eins t.d. frá
Alsír og Egyptalandi. Öfgamenn
i þessum löndum myrða saklaust
fólk, jafnvel smáböm, svo fara
þeir í moskumar og fá ímyndaöa
fyrirgefningu gjörða sinna. Eng-
in ástæða er til að sýna þessu
fólki umburðarlyndi hér á landi.
Ég skora á stjómvöld að aftur-
kalla og hafna hugmyndum um
íslams-moskur hér á landi.
Úttekt á vinnu-
löggjöfinni
Kristján S. Kjartanss. skrifar:
Rétt er að fram fari úttekt á
lögmæti vinnulöggjafarinnar
sem sett var á með lögum, án
samvinnu við verkalýðshreyf-
inguna. Einnig hvort myndast
kunni grunnur að eignarrétti í
fiskinum við íslandsstrendur
með setningu laga um veðsetn-
ingu til handa útgerðarmönnum,
og þá hefð fyrir varanlegri eign -
með tilliti til veðsetningar og
kvóta til útgerðarinnar.