Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1997, Síða 17
MÁNUDAGUR 10. MARS 1997
17
Fréttir
Verkafólki á Ólafsfirði ætlað sækja vinnu til Dalvikur:
Utið á okkur sem
annars flokks fólk
- erum bálreiðar, segja tvær verkakonur á Ólafsfirði
Dy Ólafsfirði:
„Við erum bálreiðar. Það er litið
á okkur sem annars flokks fólk,“
segja þær Guðný Ágústsdóttir og
Guðrún Jakobsdóttir, verkakonur á
Ólafsfirði. Mikil reiði ríkir hér
vegna reynslu nokkurra verka-
kvenna af Verkalýðsfél. Einingu
Akureyri, Vinnumiðlun bæjarins og
Atvinnuleysistryggingasjóði.
Sjö konur á Ólafsfirði missa bæt-
ur fyrir að þiggja ekki vinnu á Dal-
vík, þrátt fyrir mismunandi per-
sónulegar ástæður. Á sama tíma
halda sjö aðrar konur hér bótum.
Þurfa ekki að gera grein fyrir sín-
um málum og margar konur hér
eru á atvinnuleysisskrá og ekki
skikkaðar í vinnu.
Tildrögin eru að um áramót hætti
Hraðfrystihús Ólafsfjarðar starf-
semi. Við það fór verkafólk á at-
vinnuleysisbætur. Skömmu síðar
voru þvi boðin 10 stöðugildi við
frystihúsið á Dalvík. Haldinn var
fundur á Ólafsfirði 12. jan. með
verkakonunum. Þar mættu Rúnar
Guðlaugsson, forstöðumaður Vin-
numiðlunar á Ólafsfirði, Bjöm Snæ-
björnsson, formaður Einingar
Akureyri, og fulltrúi Einingar í út-
hlutunarnefnd atvinnuleysisbóta,
Guðjón Jónsson.
Á fundinum var konunum tjáð að
þeim stæði vinna til boða á Dalvík
en yrðu að gefa ástæður fyrir þvi ef
þær gætu ekki tekið vinnuna. Þeim
var lofað að tekið yrði tillit til heim-.
ilis- og fjölskylduaðstæðna. Úthlut-
unarnefnd atvinnuleysisbóta á
Akureyri skar úr um að konurnar 7
skyldu missa bætur í 40 daga. Þær
kærðu til Atvinnuleysistrygginga-
sjóðs. Úrskurður hans barst 4. mars.
Ekki heimangengt
Guðrún Jakobsdóttir er ein
þeirra sem missa bætur. Hún taldi
sig ekki geta þegið vinnu á Dalvík
þar sem hún ætti ekki heimangengt.
Maður hennar er algjör öryrki og
hefur verið mjög veikur undanfama
mánuði. Sjálf er Guðrún 65% ör-
yrki, sem vegna erfiðrar fjárhags-
stöðu hefði pínt sig til að vinna 50%
starf hjá Hraðfrystihúsi Ólafsfjarð-
ar.
„Mér finnst einkennilegt að ekk-
ert tillit skuli tekið til persónulegra
aðstæðna eins og okkur var lofað á
fundinum. Það var ekki okkar sök
að frystihúsið hætti. Við sögðum
ekki upp. Við misstum vinnuna. Og
nú á að skikka okkur til að vinna í
öðru byggðarlagi. Okkur er refsað
fyrir að vinna ekki í öðru byggðar-
lagi. Þama er verið að ragla saman
vinnusvæði og félagssvæði Eining-
ar,“ segir Guðrún. Hún er 59 ára.
Þrettán konur frá Ólafsfirði fengu
vinnu á Dalvík. Þær era ánægðar
með vinnuna en það hefur gengið á
ýmsu við að komast á milli bæja en
ófærð hefur verið mikil. Spurning
um rétt þeirra hefur vaknað, t.d. í
sumar þegar skólafólk vill vinnu. Er
þá pláss fyrir Ólafsfirðinga á Dal-
vík?
„Það er stórfurðulegt að þeir í út-
hlutimamefnd atvinnuleysisbóta og
Atvinnuleysistryggingasjóði eru
ekki tilbúnir að endurskoða hug
sinn, þrátt fyrir að meiri og ítar-
legri upplýsingar hafi borist. Stóri
dómur þeirra féll með bréfi 28. febr-
úar. Okkur finnst líka að stuðning-
ur verkalýðsfélagsins við okkur sé
nánast enginn. Eining hefur ekkert
gert fyrir okkur. Starfsmaður Ein-
ingar hér í bæ hefur reynt sitt en
hann fær bara skammir fyrir. Ég
hélt að þetta lið á Akureyri væri að
vinna fyrir okkur verkafólkið, en
þeir láta starfsmann Vinnumiðlun-
ar hér vinna skítverkin fyrir sig,“
segir Guðný, fertug þriggja bama
móðir.
Fréttamaður DV hafði samband
við Ágúst Sigurlaugsson, starfs-
mann Einingar á Ólafsfirði, en
hann vildi ekkert um málið segja.
DV hefur heimildir fyrir að ekki
hafi verið algjör samstaða innan At-
vinnuleysistryggingasjóðs þegar
mál verkakvennanna á Ólafsfirði
var tekið fyrir. Þær fengu staðlað,
ópersónulegt bréf með tilvitnun í
lagabókstafi, lagabókstafi sem voru
þá túlkaðir á annan hátt en á fund-
inum 12. janúar. -HJ
Guðný Ágústsdóttir og Guörún Jakobsdóttir. DV-mynd Helgi
PÁSKA
FASTA
Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir, M.N.I.M.H., diploma í phytotherapy, mun
aðstoða gesti við að hreinsa líkamann með jurtum, föstu og ristilskolunum.
Fastað verður í sjö daga, fimm daga eða þrjá daga á söfum úr Iffrænt ræktuðu
grænmeti, ávaxtasafa, hrísgrjónum eða soðsúpu. Allt eftir persónulegum þörfum
hvers og eins. Safarnir eru pressaðir á staðnum. Fylgst er með blóðþrýstingi
gesta og haldin fræósluerindi um gildi föstu fyrir sálina og líkamann.
Hugleiðslur, jóga, dans og gönguferðir um Ásbyrgi og fleiri náttúruperlur staðarins.
Skráið ykkur sem fyrst hjá Ásu í síma 465 2334 eftir kl. 17.00
eða Kolbrúnu 5521103 á daginn.
Guðmundur Þorvaldsson í nýju
versluninni Handraðanum.
DV mynd Daníel.
Hannyrðaverslun á Akranesi:
Eigandinn
verðlaunað-
ur hann-
yrðamaður
DV, Akranesi:
Nýverið opnaði Guðmundur Þor-
valdsson verslunina Handraðinn
við Kirkjubraut á Akranesi. Hand-
raðinn sérhæfir sig í Rowan og
Dalagarni auk annarar handavinnu.
Handraðinn er eina verslunin á
landsbyggðinni sem að er með Row-
an-gam á boðstólnum.
Eigandinn Guðmundur er kunn-
ur sem mikill og snjall prjóna- og
hannyrðamaður. Hann vann meðal
annars verðlaun sem nefnist Gull-
prjónninn fyrir skímarkjól sem að
hann prjónaði á dóttur sína og
marga aðra, fallega hluti hefur Guð-
mundur prjónað. Gefur kvenfólkinu
ekkert éftir nema síður sé og hefur
mjög gott auga fyrir litum. -DVÓ
Ericsson GH 388 er einn minnsti GSM
handsíminn á markaðnum og vegur aðeins
170 9 með rafhlöðunni sem fylgir.
Rafhlaða endist í 1 klst. og 55 mín. í
stöðugu tali eða 33 klst. í biðstöðu.
Sendistyrkur er 2 W
99 nöfn í skammvalsminni
■ 10 númera endurvalsminni
- Innbyggð klukka, vekjari
og reiknivél 4
— Möguleiki á tengingu við
l tölvu og faxtæki en til þess þarf
| aukabúnað (PCMCIA kort).
Ericsson 388 er
einnig til með flipa
Þetta er
raunstærð!
Hann er ekki
stærri en þetta.
ERICSSON
Ericsson GH 388
POSTUR OG SIMI HF
Einn nettur
Söludeild Ármúla 27, sími 550 7800 • Söludeild Kringlunni, sími 550 6690 Þjónustumiðstöð í Kirkjustræti, sími 800 7000 og á póst- og símstöðvum um land allt.