Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1999, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 1999
15
í tónlistarnámi
Á fimmta hundrað nem-
endur stunda tónlistarnám
við Tónlistarskólann á Ak-
ureyri og njóta tilsagnar á
fiórða tug kennara. Skólan-
um er skipt niður í 8 deildir
en auk þess starfar kór við
skólann og Sinfóníuhljóm-
sveit Norðurlands starfar í
nánum tengslum við skól-
ann. Tilveran hitti þrjá
nemendur við skólann að
máli ísíðustu viku.
Vilhjálmur Hilmar Sigurðarson er
einn af nemendum við slagverks-
deild Tónlistarskólans á Akureyri.
Hann er 12 ára og hefur lagt stund á nám
í spilverki á marinba sem er tréverks-
hljóðfæri og víbrafón sem er sömuleið-
is tréverkshljóðfæri en á bæði hljóð-
færin er spilað með litlum „kjuð-
um“.
„Ég er búinn að vera að læra síð-
an ég var 6 ára. Fyrst spilaði ég
mest á sílófón en valdi síðan hin hljóð-
færin tvö vegna þess að mér leist best á
þau. Marinba og víbrafónn eru mest not-
uð í jass og blústónlist og ég er t.d í tveim-
ur hjómsveitum núna sem eru í samstarfi
við Tónlistarskólann, en við leikum
reyndar alls konar tónlist, m.a. rokk og
bítlatónlist. Ég er alveg ákveðinn í að
halda áfram að læra eins lengi og ég get
og hef gaman af þessu,“ sagði Vilhjálmur
Hilmar. -gk
DV-mynd gk
þeir virðingu fyrir hljóðfærinu.
„Þegar ég kynntist fiðlunni og
klassískri tónlist opnuðust fyrir
mér dyr og ég hafði fundið þá tón-
list sem mig langaði til að spila.
Ég er á sjöunda stigi af átta sem
eru hér við skólann og á tónlistar-
braut við Menntaskólann. Ég veit
ekki hvort ég fer í frekara tónlist-
amám þegar ég lýk náminu hér,
en það er alveg öruggt að ég ætla
aldrei að hætta að spila," sagði
Kristín Þóra. -gk
- segir Kristín Þóra Haraldsdóttir
Gerir lífið skemmtilegra
— - segir Hulda Björk Snæbjörnsdóttir
g er búin að vera í
námi í fiðluleik
síðan
var
segn
ar,
Kristin Þóra
Haraldsdóttir sem
stundar nám undir stjóm Önnu
Podhajsku frá Póllandi.
„Ég átti heima í Svíþjóð þegar
ég fékk áhuga á fiðlunni, en í Sví-
þjóð var vinsælt að spila þjóðlög á
fiðlu. Ég komst þó ekki í nám þar
úti en byrjaði að læra þegar
fjölskyldan fluttist aftur
heim til Akureyrar," seg-
ir Kristín Þóra.
Hún segist ekki hafa orð-
ið vör við það að jafnaldr-
ar hennar líti niður á fiðluna
sem hljóðfæri, þvert á móti beri
vildi gera líf mitt skemmti-
legra.
Amma min, sem á heima í
Reykjavík, kom með píanó
norður til Akureyrar og
óskaði þess að eitthvert okk-
ar barnabama hennar lærði
að spila. Bróðir minn spilaði
svolítið og svo ákvað ég að
læra að spila líka. Ég ætla að
halda áfram í átta ár til við-
bótar,“ sagði Hulda Björk,
ákveðin í ná langt á tónlist-
arbrautinni.
Hulda Björk
Snæbjörns-
dóttir er 9
ára hnáta sem hef-
u r
stundað tónlistarnám frá 5
ára aldri. Fyrstu tvö árin var
hún í svokölluðum forskóla
en nú er hún á þriðja ári við
píanónám.
Hún var ekki feimin, sú
stutta þegar Tilveran
hitti hana í Tónlist-
arskólanum og spil-
aði af krafti fyrir
blaðamann. Að því
loknu orðaði hún
það svo skemmti-
lega að ástæðan
53 ára
Tónlistarskólinn á Akureyri
var stofnaður 20. janúar árið
1946 og er hann einn af elstu tón-
listarskólum landsins. Fyrsta
veturinn vora nemendur 27 tals-
ins og lögðu allir stund á píanó-
nám. í upphafi yfirstandandi
skólaárs voru nemendur 420
talsins og kennarar í vetur em
32. í skólanum er boðið upp á
kennslu fyrir alla aldurshópa,
en auk þess kenna kennarar
skólans nemendum tónlistarfor-
skóla í öllum grunnskólum bæj-
arins. Núverandi skólastjóri er
Atli Guðlaugsson.
Átta deildir
Skólanum er skipt í 8 deildir
en þær eru: alþýðutónlistar-
deild, blásaradeild, gítardeild,
píanódeild, slagverksdeild,
strengjadeild, söngdeild og tón-
fræðadeild.
Tónlist sem valgrein
Tónlistarskólinn og Mennta-
skólinn á Akureyri starfrækja í
sameiningu tónlistarbraut sem
brautskráir stúdenta samkvæmt
námskrá menntamálaráðuneyt-
isins. Hljóðfæranám og nám í
öðrum tónlistargreinum fer
fram í Tónlistarskólanum en
annað bóklegt nám í Mennta-
skólanum. Tónlistarnemendur
geta hafið nám á tónlistarbraut
um leið og þeir byrja í Mennta-
skólanum.
Námsskipan
Við Tónlistarskólann á Akur-
eyri er kennt á flest hljóðfæri
klassískrar tónlistar og alþýðu-
tónlistar. Jafnhliða námi í hljóð-
færaleik og söng býðst nemend-
um nám í ýmsum tónfræða-
greinum. Auk þess er mikil
áhersla lögð á samspil og hljóm-
sveitarleik.
Kórstjórn
Haustið 1997 var tekin upp
kennsla í kórstjóm við skólann.
Nemendur í kórstjóm þurfa að
hafa lokið hljómfræði 2 eða hafa
reynslu í kórstjóm. Öllum er
velkomiö að taka þátt í þessum
tímum sem kórsöngvarar.
Ætla aldrei að hætta að spila
Vilhjálmur Hilmar við víbrafóninn. DV-mynd gk
Spila í tveimur
hljómsveitum
- segir Vilhjálmur Hilmar Sigurðarson