Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1999, Side 40
_ , .. ... i Titff- II
V í K I N G
gm
. iíA •
Halldór Blöndal.
■rt-a vintfai
tmær^
fýrirkl 17 ájnorgun |_
Ferðamálaráðstefna:
Blöndal hittir
jólasveininn
Halldór Blöndal samgönguráðherra
situr þessa dagana ráðstefnu í
Rovaniemi í Finnlandi þar sem fjallað
er um ferðamennsku að vetri til og
ráðstafanir til að
auka hana. Hér á
landi hefur ferða-
mennska að vetri til
aukist á síðustu
árum án þess að mik-
ið hafi verið gert til
þess. Jólasveinabær-
inn í Lapplandi er í
einu úthverfa
Rovaniemi og þar eru jólin allt árið og
trekkja að ferðafólk allt árið. Hafa
Finnar markaðssett sveinka um heim
allan og hafa miklar tekjur af. -JBP
D-listinn í Reykjavík:
Vinnu hraðað
Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík kemur saman annað kvöld
til að staðfesta að í 9. og 10. sæti lista
flokksins fyrir þingkosningar muni
sitja þau Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
og Hanna Birna Kristjánsdóttir en
eins og DV greindi frá í gær sigraði
Vilhjálmur í atkvæðagreiðslu milli
þeirra á fundi á sunnudag. Þá er
einnig búið að ákveða að allir þing-
menn flokksins færist upp um eitt
sæti og mun þá Bjöm Bjamason að
öllum líkindum skipa annað sætið og
Geir H. Haarde þriðja. Skv. upplýs-
ingum DV var upphaflega áætlað að
ákveða framboðslistann fyrir lands-
fúnd flokksins sem haldinn verður
aðra helgi í mars en nú lítur allt út
fyrir að reynt verði að hraða vinn-
unni sem mest og ákvörðun jafnvel
tekin fyrir landsfund.
Enn eitt hassmálið
DV, Akureyri:
Rannsóknarlögreglan á Akureyri
upplýsti í gær þriðja hassmáhð i bæn-
um á jafnmörgum dögum. Þá vora 7
ungmenni á aldrinum 15-17 ára tekin
til yfirheyrslu og játuðu þau neyslu
auk þess sem einn úr hópnum játaði
dreifmgu.
Almenna lögreglan á Akureyri hafði
hins vegar í nógu að snúast í gær
vegna umferðarinnar, en þá urðu 7
árekstrar í bænum með mjög miklu
eignartjóni. í einu tilfellinu var um
meiðsli að ræða en þau vora ekki tal-
in alvarleg. -gk
Loðnu mokað upp
DV, Akureyri:
Mjög mikil loðnuveiði hefur verið
síðustu sólarhringana og virðist ekk-
ert lát á. Löndunarbið er í þeim höfn-
um sem næstar era miðunum en
veiðisvæðið þessar stundimar er
reyndar með fram allri suðurströnd-
inni og jafnvel vestur fyrir land. -gk
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 1999
Nokkuð eru menn á öndverðum meiði um ágæti þess að leyft var að brugga og selja sterkan bjór á íslandi fyrir rúmum áratug. í áratugi hafði bjórinn verið
bannaður á íslandi, en var þó til á öðru hverju heimili - oftar en ekki smygiaður. Templarar halda því fram að bjórinn hafi leitt hörmungar yfir unga fólkið í
landinu, en meðmælendur bjórsins segja að áfengismenning landsmanna sé öll betri í dag en á dögum sterku drykkjanna. í gærkvöldi var bjórfrelsi í tíu ár
fagnað á öldurhúsum borgarinnar. Hér eru nokkrir ungir menn á Gauki á Stöng sem áttu góða stund saman. DV-mynd Teitur
^ Hellu- og rörakaup borgarinnar án útboös:
Olesinn borgarfulltrúi
hallar réttu máli
- segir Víglundur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri BM Vallár
Borgarfulltrúinn Eyþór Amalds fór
ólesinn í fiölmiðla og fór með rangt
mál. Annaðhvort var hann óupplýst-
ur, sem ég vil ætla honum frekar en
að hann hafi vísvitandi hallað réttu
máli,“ segir Víglundur Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri BM Vallár, í tilefni
af frétt DV um viðskipti borgarinnar
og fyrirtækis hans án útboðs.
Víglundur segir að í gildi séu tveir
samningar milli BM Vallár og Reykja-
víkurborgar um hellukaup. Stærri
samningurinn er um eigin fram-
leiðslu BM Vallár á vörum sem BM
Vallá á eitt framleiðslurétt á og eng-
inn annar. Sá samningur heíði verið
gerður árið 1991, að ósk þáverandi
borgarstjómarmeirihluta Sjálfstæðis-
flokks. Samningurinn snýst um að
Reykjavíkurborg kaupir þessa sér-
vöra fyrirtækisins og nýtur bestu-
kjaraafsláttar. Borgin er því ekki háð
því að fyrirtækið geti nánast ráðið
verðinu á hveijum tíma. Allt tal um
útboð á þessum viðskiptum sé einfald-
lega bamalegt því að enginn annar
aðili hafi getað
selt borginni
þessa vöru. Eng-
inn annar fram-
leiði hana. „Svo
einfalt er það og
þetta átti Eyþór
Amalds að vita,“
segir Víglundur.
Þá segir
Víglundur að í
öðra lagi sé það
Víglundur
Þorsteinsson.
Eyþór
Arnalds.
ári. Hundrað
milljóna sé fjarri
öllu lagi.
Áður en þessi
sala fór fram seg-
ir Víglundur að
Pipugerðin hafi
verið búin að
lækka mikið verð
á þessum við-
haldsheflum til
borgarinnar og
ekki rétt að BM Vallá eigi pípugerð.
Fyrirtækið framleiði engin rör. Allt
tal um hundraða milljóna viðskipti án
útboðs sé því rugl.
í þriðja lagi segir Víglundur að BM
Vallá hafi keypt helluframleiðsludeild
Pípugerðar Reykjavíkurborgar. Pipu-
gerð Reykjavíkur hafði fram til þess
tíma verið lægstbjóðandi í framleiðslu
á svokölluðum hellum til viðhalds og
viðgerða. Það séu gamlar hellugerðir
af t.d. stærðinni 50x50 sm. Verðmæti
þess viðhaldssamnings segir Viglund-
ur vera í kringum fimm milljónir á
þar hafi hreinlega ekki verið feitan
gölt að flá og einmitt þess vegna hafi
af hálfu borgarinnar verið lagt á það
ofúrkapp, þegar BM Vallá keypti
tækjabúnað Pípugerðarinnar til
helluframleiðslu, að fyrirtækið und-
irgengist það að framleiða upp í viö-
haldssamninginn á því verði sem
Pípugerðin hafði áður boðið borg-
inni. Það hafi síðan orðið niðurstað-
an.
„Síðan gatnamálastjóri náöi hin-
um hagstæðu bestukjarasamningum
fyrir hönd borgarinnar árið 1991 og
síðar að fá okkur til að yfirtaka við-
haldssamninginn upp á 5 milljónir á
ári hefúr hann alltaf þrýst því í gegn
í endumýjun samninganna að við
gengjumst undir það, jafiihliða því
sem við vorum að endumýja og end-
urskoða hann - og stundum að auka
afslætti á stóra samningnum frá 1991
til hans - að við kyngdum viðhalds-
samningnum samhliða. Þetta er
veruleikinn í málinu. í stað 400 millj-
óna þá hefúr viðhaldssamningurinn
verið í kringum 5-7 milljónir á ári og
hvað varðar sérvöruviðskipti BM
Vallár og borgarinnar þá era þau
20-28 milljónir á ári. Hins vegar, eins
og borgarfulltrúinn á að vita, þá seldi
Reykjavíkurborg Pípugerðina til
annarra aðila en okkar. Henni fylgdi
framleiðslusamningur fyrir borgina
á rörum um tiltekinn tíma en það
mál er BM Vallá óviðkomandi. Ég
skora á Eyþór Amalds borgarfull-
trúa að leiðrétta mistök sín og rang-
færslur sínar og biðjast afsökunar á
þeim. -SÁ
VAR ÞETTA ÆTTAR-
MÓT í LAPPLANDI?
Veörið á morgun:
Él fyrir
norðan
A morgun verður norðankaldi
og él um norðanvert landið, en
skýjað með köflum og þurrt
sunnan til. Frost verður á bilinu
0 til 8 stig.
Veðrið í dag er á bls. 37.
brother PT-550 ný vél
tengjanleg við tölvu
8 leturgerðir,
8 stærðir, 15 leturútlit
úrval strikamerkja
6 til 36 mm boröar
prentar í 7 línur
Nýbýlavegi 28 Slml 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport