Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1999, Page 12
12
MÁNUDAGUR 31. MAÍ 1999
Spurningin
Hvaða mynd sástu síðast í
kvikmyndahúsi?
David Winnie fótboltakappi: Arl-
ington Road.
Kristján Hannesson nuddari: Ég
sá There’s Something about Mary
og mér fannst hún frábær.
Ásgeir Hannesson nemi: There’s
Something about Mary.
Kristrún Guðmundsdóttir: Ég
man það ekki.
Eyþór Gunnarsson, 14 ára: True
Crime. Mér fannst hún leiðinleg.
Sævar Alexandersson, 14 ára: Ég
man það ekki.
Lesendur
Dómsmál:
Siðblint embættis-
mannakerfi
„íslendingar geta lært mikið af Bretum því þeir búa við lýðræði í flestum grein-
um.“ - Lögregla að störfum í London.
Skarphéðinn Einarsson skrifar:
Síðastliðna 3 vetur hef ég dvalið í
aBretlandi. Ég hef
miðlum og einnig
í blöðum. Frétta-
málum. Flest blöð-
in hafa t.d. þann háttinn á að birta
nöfn afbrotamanna, aldur og fyrri
dóma sé um þá að ræða. Allt frá
búðarþjófnuðum upp í morð. Barna-
níðingar eru eltir á röndum af lög-
reglu og almennum borgurum og
birtar eru myndir af slíkum afbrota-
mönnum í blöðum. Gildir þá einu
úr hvaða stétt þeir koma. Sumir
þeirra eru meira að segja látnir
bera hálsfesti útbúna sendi þannig
að götulögreglan geti fylgst með
þeim.
Lögreglan sjálf er ekki nein und-
antekning. í þeirri stétt eru líka
svartir sauðir líkt og hér á landi.
Munurinn er sá að í Bretlandi era
þeir dæmdir og reknir úr starfi og
að auki sviptir eftirlaunum.
Mér er minnisstætt eitt tilfelli frá
Skotlandi. - Lögreglustjóri í Aber-
deen var sakaður um að menn hans
hefðu stungið undir stól gögnum í
máli ungs drengs sem var myrtur.
Þetta komst upp nokkrum árum síð-
ar en lögreglustjórinn átti þá stutt
eftir í eftirlaun. Það var fróðlegt að
fylgjast með þessu máli í blöðunum.
Fyrst birtist lítil mynd af lögreglu-
stjóranum í blöðunum en síðan
stærri og stærri. Síðast átti hann
forsíður margra blaða sem kröfðust
afsagnar hans.
Lögreglustjórinn þráaðist við og
þar kom að Skotlandsmálaráðherra
kom fram í sjónvarpi og sagðist
myndi víkja stjóra úr starfi segði
hann ekki af sér. Þetta gekk eftir.
Maðurinn fór frá með skömm og
með honum nokkrir undirmenn
hans og allir voru þeir sviptir eftir-
launum. Þetta er bara eitt dæmið af
mörgum. Blöðin hafa ógnarvald og
ganga hart fram í málum af þessu
tagi.
Mér varð hugsað heim til íslands.
Barnaníðingi margdæmdum mætir
maður í sundlaug, þangað sem
mörg börn koma. - Lögreglustjórinn
í Reykjavík var settur í fri á fullum
launum vegna mjög alvarlegs máls.
Honum átti að sjálfsögðu að vísa úr
starfi. Það mál var ekki rétt afgreitt.
Ef litið er lengra aftur í tímann
þá kemur upp í hugann svonefnt
„Batta-mál“ í Keflavík. Þar var ekki
gengið nógu langt í réttri afgreiðslu
því fleiri áttu að vikja frá störfum,
þ.á m. sýslumaðurinn í Keflavík.
Eða þá Geirfmnsmálið sem enn er
ekki að fullu afgreitt að margra
mati. - íslendingar geta lært mikið
af Bretum því þeir búa við lýðræði
í flestum greinum.
Hækkun bifreiðatrygginga
Sigfús Jónsson skrifar:
Manni verður ekki rótt þessa dag-
ana þegar allt í senn era boðaðar
vaxtahækkanir, hugsanlegar skatta-
hækkanir og hækkun á tryggingum
bifreiða. Ég lét verða af því að end-
urnýja bifreið á síðasta ári með
þeim greiðslukjörum sem þá voru
boðin. Maður á fullt í fangi með að
inna af hendi umsamdar greiðslur
en verra verður ef bæði vextir
hækka og einnig ábyrgðartrygging
af bílnum. Satt að segja er ekki auð-
velt að lifa í slíku landi þar sem
aldrei er á vísan að róa hvað næstu
mánuðir bera í skauti sér. Útgjöld
vegna daglegrar neyslu eru þar efst
á blaði ásamt lögboðnum gjöldum
sem fara alltaf hækkandi en standa
ekki í stað og hvað þá lækka.
Hvað sem tryggingafélögin segja
um lækkun á ábyrgðartryggingum
í svo sem einn mánuð einhvem
tíma á árinu 1996 eða ‘97 kemur
hækkun á tryggingum afar illa við
flesta bifreiðaeigendur nú. Og þeg-
ar vaxtahækkun bætist ofan á í lífs-
baráttunni vaknar stór spurning
um hvers vegna maður er að strita
fyrir þessum lífsgæðum sem svo
kosta stundum heilsutjón eða ör-
vilnun. Það má víðar lifa en á ís-
landi.
Allt of stór risi í matvörunum
Guðjón Guðmundsson skrifar:
Mig langar til að leggja nokkur
orð í belg varöandi samþjöppunina
á matvörumarkaðnum. Ég sé ekki
neina meinbugi á þessu Baugsmáli
sem slíku. Staðreyndin er að vísu
sú að hér er kominn allt of stór risi
á matvælamarkaðinn fyrir okkur,
svona fáa neytendur. Það yrði ekki
gott ef allur matvörumarkaðurinn
færðist smám saman á þessar hend-
ur sem standa að Baugi. En á með-
an boðið er gott úrval matvæla og
þjónustan er á því stigi sem hún er
i dag, þá megum við neytendur vel
við una.
Mér er þó ekki alveg rótt þegar ég
sé að ekki er um sömu matvæli að
ræða eða sama úrval í verslunum
þessa risafyrirtækis. Ég sé t.d. að
Hagkaup auglýsir matvæli og fleiri
vörategundir í sérstökum bæklingi
og svo fær maður annan bækling
frá Nýkaupi með matvælum, en
[RQ[d)Æ\ þjónusta
allan sólarhringinn
- eða hringið í síma
J&SO 5000
milli kl. 14 og 16
Ég fylgist hins vegar vel með og kanna verð og vörugæði hjá báðum stóru fyr-
irtækjunum, Baugi og Kaupási, það ættu reyndar allir að gera, segir m.a. í
bréfinu.
ekki með sama úrvali og hjá Hag-
kaupi.
Satt að segja finnst mér Nýkaups-
verslunin, t.d. á Eiðistorgi, hafa dal-
að að undanfomu, mér finnst ekki
auðvelt að finna vörurnar mínar,
þar eru breytingar sem mér finnst
vera alveg óþarfar, og mér finnst
gæðin í matvörunum ekki þau
sömu og i verslunum merktum Hag-
kaupum. En ég bíð þolinmóður á
meðan risinn er að átta sig. Ég
fylgist hins vegar vel með og kanna
verð og vörugæði hjá báðum stóru
fyrirtækjunum, Baugi og Kaupási.
Það ættu reyndar allir að gera.
Fákeppni leiðir óhjákvæmilega
til grisjunar, og ég vil ekki sjá þá
tíma renna upp hér á landi að bæði
framleiðendur og seljendur séu svo
fáir að þeir hafl sjálfdæmi um hvað
okkur er boðið. Gætum að því að
enn er hér ekki fengið innflutnings-
frelsi að fullu í matvælum, t.d. bú-
vörum. Það eiga því allir að vera á
varðbergi gagnvart hreyfingum á
matvörumarkaði. Þær skipta okkur
miklu.
DV
Þjóðarsálin hættir
Margrét hringdi:
Það er eftirsjá að þættinum Þjóð-
arsálinni hjá Ríkisútvarpinu. Hún
kvað eiga að hætta eftir mánudag-
inn, síðasta dag maí. Ég skil ekkert í
ráðamönnum RÚV að geta ekki hald-
ið þessum hálftíma þætti úti og þó er
hann aðeins 5 daga vikunnar, og
raunar ekki nema 3, því svokölluð
gestaþjóðarsál dregst frá á fimmtu-
dögum og eins á fostudögum þegar
ekki má hringja inn i þáttinn. Þátt-
urinn er mun vinsælli en ráðamenn
RÚV halda og mun nauðsynlegri fyr-
ir hina almennu borgara sem ekkert
skjól hafa annað til að bera upp ósk-
ir sínar og gagnrýni gegnum síma.
Ég skora á RÚV að endurskoða af-
stöðu sína til þessa þáttar og leyfa
honum að halda áfram i sumar.
Slakari nemendur
á landsbyggðinni?
Klara hringdi:
Hvers vegna koma nemendur
skóla á landsbyggðinni verr út á
samræmdum prófum en nemendur í
Reykjavik eða á höfuðborgarsvæð-
inu? Ég svara því þannig að nemend-
ur á landsbyggðinni eru hreinlega
ekki á þgim buxunum að sitja lengur
á skólabekk en nauðsynlegt er. Hér í
þorpi er t.d. mikil vinna og hver sem
vettlingi getur valdið fer í vinnu þeg-
ar vel gefur. Lifið á landsbyggðinni,
einkum i sjávarplássunum, er bara
nákvæmlega óbreytt frá því sem seg-
ir í kvæðinu um hann Gvend á eyr-
inni. Krakkar vinna meira og læra
minna. Peningurinn er það sem sóst
er eftir, ekki námið. Hins vegar er
alltaf einn og einn sem metur námið
mest og hann fer líka betur út úr
prófunum. Sá hinn sami er líka far-
inn burt um leið og hann fer í fram-
haldsnám - og kemur ekki aftur.
Þetta er bara staðreynd málsins.
Brauðin hennar
Sylvíu
Sylvía Jóhannsdóttir hringdi:
Miðvikudagsmorguninn 26. maí
átti ég von á nýjum brauðum fyrir
fyrirtæki mitt, Smurbrauðsstofuna
hér á Laugavegi 170, en þegar til átti
að taka og ég ætlaði að nálgast
brauðin að venju fyrir utan var þar
ekkert að finna. Ég hringdi í viðkom-
andi bakarí og kvartaði en fékk það
svar að komið hefði verið með brauð-
skammtinn að venju. Brauðin ásamt
bökkunum sem þau eru afhent í voru
því tekin og sáust ekki meir. Ég vil
nú koma þvi á framfæri við þann eða
þá sem tóku brauðskammtinn minn
traustataki hvort ekki sé a.m.k. við
hæfi að skila aftur bökkunum. Ég
met viðleitnina til heiðarleikans,
þótt til hálfs sé.
Harðari þjóð-
ernisstefnu
Vilhj. Alfreðsson skrifar:
Þegar maður hugsar til þess að
erlendir aðilar gera tilraun til að
svíkja um eða yfir 200 milljónir
króna út úr reikningum helstu ís-
lensku fyrirtækjanna á sama tíma
og erlendir aðilar meina okkur að
veiða hvali og seli í okkar landhelgi
er svo sannarlega kominn tími til að
stjórnvöld taki upp harðari þjóðern-
isstefnu. Hvatningarhrópið „íslandi
allt“ hefur enn sitt gildi. Við skulum
gjalda varhug við tilraunum er-
lendra aðila eða ríkisstjóma sem
seilast til áhrifa hér á landi eða gera
beinlinis strandhögg á íslensk fyrir-
tæki eins og dæmin sanna.
Skemmdar
grillkartöflur
Snorri skrifar:
Ég hef stundum keypt svokallaðar
grillkartöflur, pakkaðar í álpappir.
Það mun ég ekki gera lengur, a.m.k.
ekki nema þá að skoða þær áður, því
ég hef margsinnis lent í því að kaupa
þessar kartöflur óséðar og fá þær
skemmdar. Jafnvel sést skemmdin
stundum ekki fyrr en maður sker í
kartöfluna. Þetta eru kartöflur frá
Ágæti og verður fyrirtækið að vanda
sig betur í framtíðinni ef það ætlar
að haldá viðskiptavinum.