Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1999, Qupperneq 15
MÁNUDAGUR 31. MAÍ 1999
15
Súpa og súpa
- hið fullkomna útlit
Varla eru jólin liðin
er bresta á auglýsingar
í öllum fjölmiðlum um
hvemig endurheimta
skuli glatað útlit eftir
jólaátið. Heilsuræktar-
stöðvar blómstra sem
aldrei fyrr og aðdáun á
æsku og hreysti er alls-
ráðandi. Ég finn til van-
máttar þegar ég geng
fram hjá verslunum
sem bjóða tískufatnað
og sé sjálfa mig speglast
í glerinu við hlið gín-
unnar sem klædd er
þröngum, flegnum kjól
sem varla nær niður á
mið læri. Ég hraða mér
burt og reyni að sætta
mig við þá staðreynd að
engin kona er kona í
dag nema hún sé holdlaus og bjór-
inn einn á beinunum.
Freistingar
Þótt jólin séu löngu liðin em
freistingarnar enn til staðar. Á
þorrablótunum t.d. svignuðu borð-
in undan súm, söltuðu og reyktu
og hákarlinn var eins og brjóst-
sykur í munni manns. Góa gekk í
garð með gleði og
meiri mat. Varla að
maður væri búinn
að kyngja síðasta
flatkökubitanum
þegar bolludagur
rann upp og í fram-
haldi af honum
sprengidagur og þá
styttist í páska og
fermingarveislur,
hvítasunnu og sjó-
mannadag. Og sið-
an er það 17. júní og
grillið í sumarbú-
staðnum og
maj ónessamlokum-
ar í útilegunum.
Hvar endar þetta
allt saman?
Súpa og brauð
Þar með er ekki öll sagan sögð
því ég hef einnig ánægju af því að
borða á veitingastöðum og á mér
uppáhaldsstaði. Einn sunnudag
eftir göngu í góða veðrinu fór ég á
veitingastað í hádeginu þar sem
boðið var upp á rétt dagsins sem
var súpa og
brauð. Alveg
mátuleg hressing
og kaffisopi á eft-
ir. Hvort tveggja
bragðaðist vel og
snerti hvorki
tönn né tungu.
Súpan var þykk
eins og grautur,
saðsöm og ljúf-
feng og örugglega
alveg hræðilega
fítandi.
Ég fékk sam-
viskubit og hugsaði til gínunnar
mjóu í búðarglugganum og vissi
að ég hefði átt að velja eitthvað
annað af matseðlinum, eins og til
dæmis soðsúpu sem inniheldur
færri hitaeiningar en uppbökuð
súpa því í henni er einungis vatn,
grænmeti og viðeigandi krydd.
Grænmeti og ávextir
En það er skrítið að á meðan
næringarfræðingar flytja um það
langar ræður að forðast beri fitu
og borða meira af trefjaefnum,
grænmeti og ávöxtum heilsunnar
vegna er nær aldrei boðið upp á
annað en uppbakaður súpur á
veitingastöðum. Aspas-, sveppa-
eða blómkáls-, hnausþykkar og
stundum flýtur fitan ofan á.
Hvernig stendur á þessu? Eins og
öllum er umhugað um útlit sitt og
heilsu og forðast tertur og majónes
eins og heitan eldinn og hlaupa
hálfan daginn ef þeim verður á að
innbyrðia súkkulaðibita eða
rjómatertusneið.
Ég hef ítrekað spurt hvort ekki
sé soðsúpa á matseðlum veitinga-
húsa, en svarið er oftast nei.
Veitingahúsarekstur á sér langa
sögu og heilsuræktarstöðvar
spretta upp eins og gorkúlur á
haug og eru vaxandi atvinnugrein
í landinu. Getur verið að það sé
samband þama á milli?
Gunnhildur Hrólfsdóttir
Kjallarinn
Gunnhildur
Hrólfsdóttir
rithöfundur
„En það er skrítið að á meðan
næringarfræðingar flytja um það
langar ræður að forðast beri fítu
og borða meira af trefjaefnum,
grænmeti og ávöxtum heilsunnar
vegna er nær aldrei boðið upp á
annað en uppbakaðar súpur á
veitingastöðum. “
Utanríkisstefna
Bandaríkjanna
Eg vil benda Þórdísi á
að Bandaríkin þurfa alls
ekki að flytja inn olíu.
Það eru nægar byrgðir
til í því landi. Innflutn-
ingnum er ætlað að efla
þau ríki sem framleiða
olíuna og veita þeim
styrk til að vernda
landamæri sín. Þetta er
kallað valdajafnvægi,
Þórdis! Og vandamál
bamanna í írak er ekki
sök Bandaríkjanna,
heldur er það hinn vit-
firrti Saddam Hussein
sem ber ábyrgð á vel-
ferð barna í sínu riki.
Heimildarmyndir
geta blekkt
Kjallarinn
Baldvin Berndsen
framkvæmdastjóri
Þann 21. maí sl. ritaði Þórdís
Sigurþórsdóttir pistil um utanrík-
isstefnu Bandaríkjanna. Þórdís
hefur, að því er mér skilst, MA-
próf í þróunarfræðum í þriðja
heiminum. Ekki er mér kunnugt
um hvaða skóla hún sótti en
kennslan sem hún hlaut þar er
greinilega mjög slök því Þórdís
virðist vera í algjöru myrkri hvað
snertir utanríkismál á heimsvísu.'
Frelsið í Vestur-Evrópu
Ég spyr (og þá fyrst og fremst
Þórdísi): Hvers vegna eru Vestur-
Evrópurikin frjáls í dag, þ.m.t. ís-
land? Er það ekki að þakka utan-
ríkisstefnu Bandaríkjanna, mót-
aðri m.a. af Franklin D. Roosevelt
Bandaríkjaforseta! Hvers vegna
féll Berlínarmúrinn, og þar með
þrældómurinn í Sovétríkjunum?
Er það ekki að þakka utanríkis-
stefnu Bandaríkjanna, mótaðri
m.a. af Ronald Reagan Bandaríkja-
forseta! - Þórdís ætti að taka sér
ferð til Lúxemborgar og rabba við
íbúa þessa fallega lands og spyrja
þá hvers vegna þeir fengu ffelsi
frá ásókn nasista.
Það er engin spuming að utan-
ríkisstefna Bandaríkjanna orsak-
aði frelsi þessa lands. Virðing íbú-
anna felst i þeirri staðreynd að
hershöfðingi Bandaríkjahers í síð-
ari heimsstyrjöld, George S.
Patton, er grafinn þar í landi. Ég
samþykki með Þórdísi að Banda-
ríkin selja vopn til grunsamlegra
aðila í fjölmörgum vafasömum
ríkjum en það er gert í skilningi
opinna viðskipta við önnur lönd.
Flestar þjóðir, sem framleiða
vopn, selja þau til vinaþjóða og
óbeint til óvina. Það er mjög erfítt
að fyrirbyggja slík viðskipti á opn-
um frjálsum markaði. Meira að
segja frændur okkar Svíar stunda
slík viðskipti.
Stríð um sjálfræði og öryggi
Persaflóastríðið var ekki strið
um olíuverð, eins og Þórdís stað-
festir, heldur var
það stríð um bæði
sjálfræði Kúveit
og svo til að varð-
veita öryggi
Bandaríkjanna.
Olían er lífæð
Bandaríkjanna og
sérhver einræðis-
herra sem heftir
flæði olíunnar til
Bandaríkjanna
hefur þurft að
taka afleiðingun-
um. Hefur Þórdís aldrei heyrt um
OPEC! Það er OPEC sem stjómar
verði á olíunni?
Þórdís vitnar í heimildarkvik-
mynd frá 1992 til skýringar á Pana-
mainnrásinni 1989. Þórdís segir frá
aðstoð Bandarikjastjórnar og fjöl-
miðla í þessu samhengi. Þetta er
auðvitað á misskilningi byggt því
það er þá í fyrsta skipti í sögu
Bandaríkjanna að „pressan" og rík-
ið eru í samvinnu. Það gengur gegn
öllum staðreyndum um þessi tvö
öfl í Bandaríkjunum því fjölmiðlar
þar i landi eru oft kallaðir fjórða
valdið (“The fourth estate") og slík
samvinna gerist hreinlega ekki.
Manuel Noriega var stærsti inn-
flytjandi á eiturlyfjum ul Banda-
ríkjanna því hann gaf eiturlyfja-
smyglurum Kólumbíu leyfi til að
nota land sitt í glæpastarfseminni í
fjöldamörg ár. Þessi viðskipti varð
að stöðva og það var gert. Panama-
skurðurinn var
byggður af Banda-
ríkjunum og samn-
ingurinn er hreinn
og beinn: Panama
eignaðist skm’ðinn
en Bandaríkin gæta
öryggis á svæðinu.
Þar með er tryggt að
skip geti farið um
skurðinn áhættu-
laust.
Ég fæ ekki annað
séð en Þórdís hafi
látið blekkja sig illa
með heimildar-
myndinni (ósk-
arsverðlaun eru
enginn gæðastimp-
ill. Hins vegar,
hefði myndin hlotið nóbelsverð-
laun væri annað upp á teningn-
um!). Ég verð því að kalla þetta
„The Þórdís Deception".
Það er fremur dapurt að Banda-
ríkin hafi hlotið það hlutverk að
vera „lögregla alheimsins“ og
þurfi að hjálpa Balkanskagalönd-
unum, forða þeim frá Serbum og
öðrum þjóðum sem stunda
„hreinsanir" á sínum heimaslóð-
um. En ég spyr: Ef ekki Bandarík-
in þá hver? Við verðum að styðja
NATO og um leið Bandaríkin við
þessar hörmulegu aðstæður.
Bandaríska þjóðin styrkir þetta
átak og synir hennar leggja lif sitt
í hættu, enn eina ferðina, til að
tryggja frið í Evrópu. Samanburð-
ur á vopnaviðskiptum þjóða er því
algerlega út í hött.
Baldvin Bemdsen
„Við verðum að styðja NATO og
um leið Bandaríkin við þessar
hörmulegu aðstæður. Bandaríska
þjóðin styrkir þetta átak og synir
hennar leggja líf sitt í hættu, enn
eina ferðina, til að tryggja frið í
Evrópu.“
Með og
á móti
Vindstigin kvödd
Veðirstofa íslands tilkynnti nýlega
að hún myndi hætta að nota hug-
takið vindstig í veðurspám 1. júní. í
stað vindstiga mun Veðurstofan
styðjast við hinn alþjóðlega staðal
metra á sekúndu eða m/s. Þessar
breytingar hafa það í för með sér að
gömul íslensk heiti á ýmsum
veðrafyrirbærum, sem tengjast
vindstigunum, eins og logn, gola,
kaldi og rok, hverfa.
Breytum ekki
málinu
„Við á Veðurstofunni erum
ekki að breyta íslensku máli eða
fella út úr málinu góð orð. Við
erum hins vegar að hætta að
nota kvarða
sem byggist á
áætluðum
vindstyrk þar
sem hver tala
á kvarðanum
er tengd
ákveðnu heiti
(t.d. 3 vindstig
= gola, 6 vind-
stig = stinn-
ingskaldi).
Bæði heitin og kvarðinn verða
áfram til rétt eins og faðmur,
dagleið eða þumlungr þótt við
tilgreinum lengdir nú fremur í
metrum, kilómetrum eða senti-
metrum. í stað vindstiganna ætl-
um við hins vegar að nota al-
þjóðlega viðurkennda hraðaein-
ingu, m/s, enda fjölgar ört stöð-
um þar sem vindur er mældur
en ekki áætlaður, eins og áður
var aðalreglan. Þannig ætlum
við að segja frá því að vindhrað-
inn sé 8, 9 eða 10 m/s en ekki
kaldi, enda gétúr káídi þýtt sam-
kvæmt viðmiðunartöflum
8,0-10.7 m/s sem jafngildir 5
vindstigum."
Höldum okkar
sérstöðu
„Mér þykir alltaf ástæða að
staldra við þegar við slítum ein-
hvern þráð. Við íslendingar höf-
um þá sérstöðu að það hefur
ekki orðið
hefðarrof í
okkar tungu
eins og í t.d.
dönsku, ensku
og norsku. ís-
lenska hefðin
hefur ætíð ver-
ið í málinu
sem gerir það
að verkum að
við getum enn
lesið ævafoma texta með skiln-
ingi. Þar af leiðandi er ástæða að
staldra við og íhuga málið þegar
við hverfum frá slíkum málhefð-
um eins og heitum á ákveðnum
veðrum. Veðurstofan hefur vel
og lengi fylgt þessum hefðum.
Kul, gola, stinningskaldi og fár-
viðri éru orð sem allir skilja.
Þessar breytingar eru svo sem
engin ósköp en við sem erum til-
törulega fastheldin á gamlar
hefðir vörum alltaf við þegar
stigin eru skref sem slíta
ákveðna þræði. Ég gef ekki mik-
ið fyrir samræmingu milli þjóða.
Við íslendingar megum hafa
okkar sérstöðu óhræddir og
þurfum ekki að hafa áhyggjur
þótt einhver híi á okkur." -hvs
Kjallarahöfundar
Athygli kjallarahöfunda er
vakin á því að ekki er tekiö við
greinum í blaðið nema þær ber-
ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu-
diski eða á Netinu. DV áskilur
sér rétt til að birta aðsent efni á
stafrænu formi og í gagnabönk-
um.
Netfang ritstjómar er:
dvritst@ff.is
Magnús Jónsson
veöurstofustiórí.