Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1999, Síða 22
38
MÁNUDAGUR 31. MAÍ 1999
$ SUZUKI
Komdu í
reynslu-
akstur!
SUZUKI BÍLAR HF
Skcifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is
Hefur þú séð svona verð á 4x4 bíl?
• Mest seldi bíllinn í Japan(l), annað árið í röð.
• Öruggur Suzuki fjölskyldu- og fjölnotabíll.
• Skemmtilequr bíll meðmiklum staðalbúnaði:
ABS hemlalæsivörn (4x4),
rafdrifnu aflstýri, loftpúði
samlæsingu, o.m.fl.
Ódýrasti 4x4
bíllinn á Islandi
IIIIIIIIII lllllllllll IIIIII lllll IIIIIMIIIIIII llll
GL 1.099.000 KR.
GL 4x4 1.299.000 KR.
Illlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Verzlunarskóli Islands
Innritun nýnema vorið 1999
Nýútskrifaðir grunnskólanemar:
Umsóknarfrestur um skólavist í Verzlunarskóla íslands
rennur út föstudaginn 4. júní, kl. 16. (
Verzlunarskóli íslands getur nú innritað 280 nemendur til náms
í 3. bekk. Berist fleiri umsóknir verðurvalið úr þeim á
grundvelli einkunna í samræmdum greinum á grunnskólaprófi.
Reiknað er meðaltal samræmdra einkunna og skólaeinkunna.
Eldri umsækjendur, og þeir sem hafa stundað nám íerlendum
grunnskólum, eru þó metnir sérstaklega
Nemendur sem innritast í Verzlunarskóla íslands geta valið eftirtaldar
námsbrautir til stúdentsprófs:
Braut
Alþjóðabraut:
Hagfræðibraut:
Málabraut:
Stærðfræðibraut:
Viðskiptabraut:
Samskipti á erlendum tungumálum. Saga og
menning helstu viðskitpalanda,aIþjóðastofnanir
og starfsemi þeirra.
Viðskiptagreinar, stærðfræði og tungumál.
Góður grunnur að háskólanámi í hagfræði og
öðrum þjóðfélagsgreinum.
Fimm erlend tungumál í kjama. Góður grunnur
að háskólanámi í erlendum tungumálum og
málvísindum.
Stærðfræði, raungreinar og viðskiptagreinar.
Góður grunnar að háskólanámi í verkfræði
og raunvísindum.
Rekstur og stjómun fyrirtækja. Stofnun og rekstur
eigin fyrirtækis. Góður gmnnur að háskólanámi
í viðsktptagreinum.
• Á fyrsta ári velja nemendur milli þýsku og frösnku en að öðra leyti stunda
allir sama nám.
• Að loknu fyrsta námsári er valið milli brauta.
• Sérkenni hverrar brautar mótast af því framhaldsnámi sem stefnt er að
og þeirri starfsþjálfun sem nemendur fá.
• Verzlunarpróf er tekið að loknu tveggja ára námi og stúdentspróf að loknu
fjögurra ára námi.
Umsóknareyðublað fylgir grannskólaskírteinum en það má einnig fá á
skrifstofu skólans og þar sem sameiginleg innritun í framhaldsskóla
fer fram.
Upplýsingar um nám er að finna á heimasíðu skólans http://www.verslo.is
Þar er einnig hægt að leggja inn fyrirspumir og umsókni um skólavist.
Opið hús
verður í Verzlunarskóla Islands þriðjudaginn 1. júní 1999
kl. 15-18. Þar numu kennarar og námsráðgjafar veita
upplýsingar um námið í skólanum og taka á móti umsóknum.
Verið velkomin
Fréttir
ísaQörður:
Bónus í slaginn 17. júní
- Samkaup hefur þegar svarað með verðlækkunum
Starfsmenn Verkþings ehf. í
Reykjavík vinna nú ásamt rafvirkj-
um frá Pólnum hf. og öðrum iðnað-
armönnum á ísafirði við að setja í
stand Bónusverslun á staðnum.
Verður nýja verslunin til húsa í
verslunarmiðstöðinni Ljóninu á
Skeiði á ísafirði, þar sem rekinn
hefur verið matvörumarkaður á
vegum heimamanna um árabil. Að
sögn Antons Kjartanssonar, eins
forsvarsmanna Verkþings, er áætl-
að að Bónus geti hafið starfsemi á
ísafirði 17. júní.
„Innrétting verslunarinnar hér á
ísafirði er öll unnin samkvæmt
Bónus-stöðlum,“ sagði Anton, en
fyrirtæki hans sá einnig um stand-
setningu Bónusverslunarinnar á
Akureyri á sínum tíma. Þó að þetta
væri með svipuðum hætti sagði
hann viðhorfið til Bónusverslunar-
innar á ísafirði vera mun jákvæð-
ara en var fyrir norðan. Unnið er af
miklum hraða við breytingarnar á
húsnæðinu sem er um 700 fermetr-
ar að gólffleti, enda skammur tími
til stefnu.
Bónus mun ekki verða einráður á
sínu sviði á ísafirði því fyrir er
verslun Samkaups sem er vel stað-
sett í miðbænum. Samkaupsmenn
gera sér fyllilega grein fyrir vænt-
anlegri samkeppni og hyggjast
mæta henni með lágvörumarkaði.
18. maí fór þegar að bera á stór-
lækkuðu verði sumra vörutegunda í
Samkaupum og ekki laust við að
brúnin lyftist dálítið á viðskiptavin-
unum.
íbúar víða um Vestfirði bíða nú
spenntir eftir Bónusversluninni og
aukinni samkeppni og hefur mikið
verið spurst fyrir um væntanlega
Bónusopnun frá íbúum á Patreks-
firði.
-HKr.
Starfsmenn Verkþings og Pólsins gerðu örstutt hlé á vinnu sinni og stilltu sér upp til myndatöku.
DV-mynd Hörður
Alþýöusamband Suöurlands:
Skattleysismörkin 85 þúsund
Á þingi Alþýðusambands Suður-
lands 21. maí var samþykkt ályktun
þar sem því er fagnað að fram er
komin skýr stefna fyrir komandi
kjarasamninga. Þar sem mögulegt
hafi verið að hækka laun stórra
hópa starfsmanna ríkis og sveitarfé-
laga, þingmanna, ráðherra og ann-
arra æðstu embættismanna þjóðar-
innar án þess að stefna afkomu
þjóðarbúsins i voða, hljóti það að
vera merki um að fjárhagur þjóðar-
innar standi traustum fótum.
Þingið skorar á launafólk og
samtök þess að fylkja sér um þá
ófrávíkjanlegu kröfu fyrir komandi
kjarasamninga að eftir þá verði lág-
markslaun um 100.000 krónur á
mánuði og að fjölþrepa skattkerfi
verði. tekið upp. Skattleysismörk
verði 85.000 krónur og þau fylgi
Þingfulltrúar á þingi ASS.
verðlagsþróun. Einnig sé það sjálf-
sögð krafa að atvinnuieysisbætur og
bætur almannatrygginga fylgi al-
mennri launaþróun í landinu. -NH
DV-mynd Njörður
Vesturland:
Verðlaun fyrir nafn og tákn
DV, Stykkishólmi:
Við hátíðlega athöfn á Fosshótel í
Stykkishólmi voru verðlaun veitt
fyrir nafn og tákn Atvinnuvegasýn-
ingar Vesturlands. Verðlaunin
hlaut Sigríður Kristinsdóttir frá
Reykholti, en hún stakk upp á nafn-
inu Vesturvegur og hannaði það
tákn sem best þótti.
Sigríður rekur nýlegt fyrirtæki
Húsnæði óskast
Ríkissjóður leitar eftir kaupum á íbúðarhúsnæði í
Borgarnesi. Um er að ræða einbýlishús, par- eða
raðhús, u.þ.b. 170-200 m“að stærð, að meðtöldum
bílskúr.Tilboð er greini staðsetningu, verðhugmynd
og áætlaðan afhendingartíma sendist eignadeild
fjármálaráðuneytisins, Arnarhváli, 150 Reykjavík,
fyrir 11. júní nk.
Fjárrnálaráðuneytið
Jóhanna Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Eflingar, Sigríður
Kristinsdóttir verðlaunahafi og Val-
gerður Laufey Guðmundsdóttir, verk-
efnisstjóri sýningarinnar.
DV-mynd Birgitta
sitt, Hönnunarstofuna Handbragð, í
Reykholti, en hún er grafískur hönn-
uður og nýkomin frá námi í Svíþjóð.
Að sögn Valgerðar Laufeyjar
Guðmundsdóttur, verkefnisstjóra
Eflingar, var þátttaka í keppninni
góð og alls skiluðu 24 aðilar inn
hugmyndum sínum. Allt bendir til
þess að sýningin, sem verður opin
18.-20. júni nú í sumar, heppnist vel
því að viðbrögö fyrirtækja hafa ver-
ið mjög góð. -BB