Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1999, Qupperneq 34
50
MÁNUDAGUR 31. MAÍ 1999
Afmæli_____________________
Ólafur Helgi Magnússon
Ólafur Helgi Magnússon, skip-
stjóri og útgerðarmaður, Hjöllum
13, Patreksfirði, er sextugur í dag.
Starfsferill
Ólafur fæddist á Patreksfirði og
ólst upp á Hlaðseyri við Patreks-
fjörð. Hann lauk gagnfræðaprófi frá
Héraðsskólanum að Núpi í Dýra-
firði 1955 og lauk síðar hinu meira
fiskimannaprófi frá Stýrimanna-
skólanum í Reykjavík 1964.
Ólafur hefur verið skipstjóri á
ýmsum bátum, einkum frá Patreks-
firði. Hann hefur gert út sinn eiginn
bát frá 1982.
Ólafur er félagi í Golfklúbbi Pat-
reksfjarðar og Golf-
klúbbnum Jökli í Ólafs-
vík.
Fjölskylda
Eiginkona Ólafs er
Bára Pálsdóttir, f. 4.2.
1953, húsmóðir.
Börn Ólafs eru Sigur-
rós Helga, f. 31.1. 1963,
húsmóðir; Guðni Ragnar,
f. 6.9. 1963, d. 23.9. 1997;
Þórdís Snjólaug, f. 9.8.
1966, húsmóðir; Ólafur
Kristinn, f. 12.11. 1967,
framkvæmdastjóri; Ingunn
15.10. 1975, læknanemi; Kári.
Ólafur Helgi
Magnússon.
Ósk, f.
f. 26.1.
1980, nemi; Auður Alfa, f.
20.1. 1989, nemi.
Fóstursynir Ólafs eru
Davíð PáU, f. 24.10. 1972,
vélstjóranemi; Gunnar
Sean, f. 14.3. 1983, nemi.
Barnabörn Ólafs eru nú
sjö talsins.
Hálfbróðir Ólafs, sam-
mæðra, er Leifur Jóns-
son, f. 5.7.1928, skipstjóri.
Albræður Ólafs: Jón
Magnússon, f. 3.3. 1930,
útgerðarmaður og skip-
stjóri; Finnbogi Helgi
Magnússon, f. 28.5. 1931, d. 2.5. 1984,
útgerðarmaður; Ríkharð Magnús-
son, f. 23.4. 1933, skipstjóri; Pálmi
Svavar Magnússon, f. 22.12. 1936, d.
13.12. 1975, skipstjóri.
Foreldrar Ólafs voru Magnús
Jónsson, f. 13.6. 1889, d. 1970, skip-
stjóri og bóndi á Hlaðseyri, og Krist-
ín Finnbogadóttir, f. 14.10. 1909, d.
31.5. 1998, húsmóðir.
Ætt
Foreldrar Magnúsar voru Jón
Magnússon og Pálína Einarsdóttir.
Foreldrar Kristínar voru Helgi
Finnbogi Guðmundsson og Vigdís
Helga Guðmundsdóttir.
Ólafur verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Helgi Ólafsson
Helgi Ólafsson rafvirkjameistari,
Nónási 4, Raufarhöfn, varð sjötugur
á laugardaginn.
Starfsferill
Helgi fæddist á Raufarhöfn og ólst
þar upp. Hann stundaði nám við Iðn-
skólann á Siglufirði, lærði rafvirkjun
" hjá Ásgeiri Bjarnasyni og Baldri
Steingrímssyni, lauk sveinsprófi 1950
og öðlaðist síðar meistararéttindi.
Helgi stundaði almenn rafvirkja-
störf á Raufarhöfn 1950-55 auk þess
sem hann starfaði fyrir Síldarverk-
smiðjur ríkisins, stundaði vélgæslu í
Frystihúsi Raufarhafnar í fimm ár,
starfaði á bíla- og vélaverkstæði í þrjú
ár og sinnti síðan almennum raf-
virkjastörfum til 1974. Hann var síðan
rafvirki hjá Síldarverksmiðju rikisins
og SR-mjöli þar sem hann starfar enn.
Helgi sat í sveitarstjórn Raufar-
hafnar í tuttugu ár og var varaoddviti
í fjögur ár. Hann var einn af stofnend-
um Lionsklúbbs Raufarhafnar og for-
maður hans í eitt ár og slökkviliðs-
stjóri á Raufarhöfn í tæp þrjátíu ár.
Fjölskylda
Helgi kvæntist 17.8. 1955 Stellu
B. Þorláksdóttur, f. 12.12. 1931,
stöðvarstjóra íslandspósts hf. á
Raufarhöfn. Hún er dóttir Þorláks
Þorkelssonar og Ástu Júlíusdóttur
sem eru látin.
Böm Helga og Stellu eru Sigríð-
ur K. Helgadóttir, f.
30.11. 1948, sundlaugar-
vörður á Raufarhöfn, og
á hún tvö börn; Ólafur
H. Helgason, f. 16.11.
1949, verkstjóri í Reykja-
vík, og á hann þrjú börn;
Þorlákur Helgason, f.
5.3.1959, matreiðslumað-
ur í Kópavogi, og á hann
þrjú börn; Hannes
Helgason, f. 8.2. 1966,
þjónustufulltrúi á Akur-
eyri, og á hann tvö börn;
Júlíus Helgason, f. 9.8.
1967, verkstjóri á Raufarhöfn, og á
hann tvö böm; Ásta Helgadóttir, f.
8.2.1970, skrifstofumaður í Hafnar-
firði, og á hún eitt barn.
Langafaböm Helga era
nú ellefu talsins.
Systkini Helga: Bergþóra
Jensen, búsett í Kópa-
vogi; Steinunn Ólafsdótt-
ir, búsett í Reykjavík; El-
mar Ólafsson, nú látinn.
Foreldrar Helga voru
Ólafur Árni Ágústsson,
f. 9.6. 1903, d. 1982, verk-
stjóri og hafnsögumaður
á Raufarhöfn, frá Ósi í
Skilmannahreppi í Borg-
arfirði, og Sigríður Guð-
mundsdóttir, f. 23.11. 1908, d. 1990,
kaupkona á Raufarhöfn, frá Grand
í Eyrarsveit á Snæfellsnesi.
Helgi Ólafsson.
Tryggvi Björnsson
. Tryggvi Björasson,
fyrrv. böndi og síðar
verslunarmaður á
Hvammstanga, Strand-
götu 9, Hvammstanga, ar
áttræður á laugardag-
inn.
Starfsferill
Tryggvi fæddist að-
Hrappsstöðum í Víðidal
í Vestur-Húnavatnssýslu
og ólst þar upp.
Tryggvi var bóndi á
Hrappsstöðum á árunum
1947-85. Hann starfaði síðan við
Verslun Sigurðar Pálssonar og
Ferskra afurða hf. á Hvammstanga.
Tryggvi var gangnaforingi á Víði-
dalstunguheiði um árabil.
Fjölskylda
Tryggvi kvæntist 5.9. 1947 Guð-
rúnu Ingadóttur, f. 15.1.1925, bónda
og húsmóður. Hún er dóttir Inga
Jónssonar, verslunar-
manns á Borgarfirði
eystra, og Gyðríðar Sig-
~urbjargar Hannesdóttur
húsmóðir.
Börn Tryggva og Guð-
rúnar eru Karl Tryggva-
son, f. 17.2. 1947, bifreiða-
rstjóri á Blönduósi,
kvæntur Ragnhildi Hún-
bogadþttúr, f. 15.8. 1950,
og eiga þau þrjú börn og
tvo bafnabörn; Gyða Sig-
ríður Tryggvadóttir, f.
6.6. 1949, bóndi í Áslandi
í Fitjárdal, en maður hennar er
Þorgeir Jóhannesson, f. 23.8. 1945,
og eiga þau tvö börn og fimm
barnaböm; Inga Birna Tryggva-
dóttir, f. 9.11. 1950, starfsmaður við
leikskóla á Blönduósi, en maður
hennar er Guðmundur Arason, f.
1.2. 1946, og eiga þau þrjú böm og
eitt barnabarn; Jóna Halldóra
Tryggvadóttir, f. 30.11. 1953, starfs-
maður við grunnskóla í Borgar-
nesi, en maður hennar er Hjalti
Jósefsson, f. 23.12. 1951, og eiga þau
þrjú börn og eitt barnabarn; Guð-
rún Tryggvadóttir, f. 20.10.1956, að-
stoðarmaður tannlæknis á Blöndu-
ósi, en maður hennar er Björn
Friðriksson, f. 14.7. 1953, og eiga
þau þrjú börn og tvö barnabörn;
Magnea Tryggvadóttir, f. 9.10. 1955,
starfsstúlka í Reykjavík, og á hún
einn son; Steinbjörn, f. 17.7. 1959,
bónda í Galtanesi í Víðidal, en
kona hans er Elín Jónasdóttir, f.
2.3. 1963, og eiga þau þrjú börn;
Ingi Tryggvason, f. 19.2. 1962, lög-
maður í Borgarnesi, kvæntur Ingu
Margréti Skúladóttur, f. 13.4. 1966,
og eiga þau þrjú börn.
Sonur Guðrúnar Ingadóttur frá
því fyrir hjónaband er Örn Amar
Ingólfsson, f. 28.1. 1943, kvæntur
Elsu Finnsdóttur, f. 7.1. 1938, og
eiga þau tvo syni og sex barnabörn.
Systkini Tryggva: Ingveldur, f.
1.2. 1921, fyrrv. bóndi og húsfreyja
að Dæli í Víðidal, nú búsett á
Hvammstanga; Jósefína, f. 31.3.
1924, fyrrv. bóndi og húsfreyja í
Galtanesi í Víðidal, nú búsett í
Kópavogi; Bjarai, f. 15.8. 1925,
fyrrv. umsjónarmaður, búsettur í
Reykjavík; Sigurvaldi, f. 22.2. 1927,
fyrrv. bóndi á Litlu-Ásgeirsá í Víði-
dal, nú á Hvammstanga; Stein-
bjöm, f. 22.9. 1929, iðnaðarmaður í
Reykjavik; Unnur, f. 15.2. 1931,
starfsstúlka í Kópavogi; Álfheiður,
f. 15.2.1931, starfsstúlka í Garðabæ;
Jóney, f. 18.6. 1933, starfsstúlka í
Reykjavík; Gunnlaugur, f. 24.3.
1937, bóndi í Nípukoti i Víðidal.
Foreldrar Tryggva voru Bjöm
Ingvar Jósefsson, f. 11.9.1896, d. 4.8.
1971, bóndi á Hrappsstöðum
1918-47 og á Sjávarborg á Akranesi
1947-66, og k.h., Sigríður Jónsdótt-
ir, f. 29.3. 1892, d. 29.11. 1972, bóndi
og húsfreyja.
Tryggvi Björnsson.
Ásta María Herbjörnsdóttir
Ásta María Herbjörnsdóttir, hús-
móðir og starfsmaður hjá Breiðdals-
hreppi, Snæhvammi í Breiðdals-
hreppi, varð sextug í gær.
Starfsferill
Ásta María fæddist á Dísarstöð-
um í Breiðdal og átti þar heima til
1944 er hún flutti á Ásunnarstaði.
Þar átti hún heima í i tvö ár en síð-
an í Ásgarði i Suðurdal í Breiðdal
til 1955. Hún átti síðan heima í eitt
ár á Gljúfraborg en hefur átt heima
í Snæhvammi frá 1956.
Ásta María var í barnaskóla í
Breiðdal og stundaði nám við Hús-
mæðraskólann að Hallormsstað
1955-56.
Ásta María hefur starfað hjá
Breiðdalshreppi frá 1985 við heimil-
ishjálp aldraðra í Breiðdal.
Ásta María hefur verið formaður
sóknamefndar Heydalakirkju í
Breiðdal frá 1986, hefur setið i
stjóm kvenfélagsins Hlífar í Breið-
dal frá 1997 og setið í stjórn Sam-
kórs Suðurfjarðar frá 1996.
Fjölskylda
Ásta María giftist 11.1. 1959 Þórði
Sigfúsi Sigurjónssyni, f. 20.12. 1927,
d. 1986, bónda, vélstjóra og starfs-
manni Búnaðarfélags Austurlands.
Auk þess var hann sjúkrabílstjóri
og sinnti skólaakstri. Hann var son-
ur Sigurjóns Jónssonar og Oddnýjar
Elínar Vigfúsdóttur er voru búsett í
Snæhvammi.
Börn Ástu Maríu og Þórðar Sig-
fúsar em Herborg Elísabet Þórðar-
dóttir, f. 24.3. 1958, gift Indriða Mar-
geirssyni, f. 17:8. 1961, og eru börn
þeirra Karl Þórður Indriðason, f.
25.6. 1983, og Elva Bára Indriðadótt-
ir, f. 15.5. 1991; Jón Elfar
Þórðarson, f. 18.7. 1960,
en kona hans er Þórdís
Sigríður Einarsdóttir, f.
25.6. 1959, og em böm
þeirra Katrín Heiða
Jónsdóttir, f. 24.4. 1979,
og Birkir Þór Jónsson, f.
15.9. 1991; Herbjöm Þórð-
arson, f. 18.1. 1970, en
sambýliskona hans er
Júlía Wramling, f. 12.4.
1979.
Systkini Ástu Maríu
eru Kjartan Herbjörns-
son, f. 11.7. 1938, fiskmats-
maður í Snæhvammi og bóndi þar;
Herborg Aðalbjörg Herbjömsdóttir,
f. 17.6. 1942, húsmóðir á Akureyri;
Hlíf Bryndís Herbjörnsdóttir, f.
21.10. 1947, starfsmaður hjá íslands-
pósti, búsett á Egilsstöðum; Hall-
dóra Petra Hernbjörns-
dóttir, f. 13.4. 1949, d. 6.4.
1962.
Foreldrar Ástu Maríu
vom Herbjörn Guðmund-
ur Guðmundsson, f. 5.10.
1910, d. 6.7. 1953, bóndi í
Ásgarði í Breiðdal, og
k.h., Elísabet Magnús-
dóttir, f. 5.3.1919, d. 11.12.
1970, húsfreyja.
Ætt
Foreldrar Herbjörns voru
Guðmundur Sveinbjarnar-
son, frá Sveftieyjum á
Breiðafirði, og Herborg Marteins-
dóttir, frá Ámagerði á Fáskrúðsfirði.
Foreldrar Elíabetar voru Magnús
Gunnarsson, frá Skriðustekk í
Breiðdal, og Aðalbjörg Stefánsdótt-
ir, frá Jórvík í Breiðdal.
Ásta María
Herbjörnsdóttir.
Tll hamingju með afmælið 31. maí
85 ára
Viktoría Sigurjónsdóttir, Austurgötu 42, Hafnarfirði.
80 ára
Einar Hallgrimsson, Lindargötu 6, Siglufirði. Þorsteixm Stefánsson, Hrafnistu, Reykjavík.
75 ára
Arnbjörg Jóhannesdóttir, Mýrarvegi 124, Akureyri. Ásgeir Þór Ásgeirsson, Vesturási 31, Reykjavík. Ragna Klara Bjömsdóttir, Blikahólum 2, Reykjavík. Sigurður Karlsson, Núpum, Aðaldælahreppi.
70 ára
Árni Ásgrímur Blöndal, Víðihlíð 2, Sauðárkróki. Edda Magnúsdóttir, Hjallalundi 20, Akureyri.
60 ára
Jolanta Szczepanek, Brekku 10, Djúpavogi. Trausti Tómasson, Vesturbergi 147, Reykjavík.
50 ára
Alice Emma Zachrison, Einholti 11, Akureyri. Grétar Einarsson, Garðabraut 26, Akranesi. Guðrún Halldórsdóttir, Vesturvangi 20, Hafnarfirði. Guðrún Vilhjálmsdóttir, Granaskjóli 78, Reykjavík. Hilmar Einarsson, Týsgötu 1, Reykjavík. Hilmar Kristinn Magnússon, Heiðarhorni 7, Keflavík. Jóhannes Guðmundur Þorbergsson, Neðra-Núpi, Húnaþingi vestra. Pétur Guðmundsson, Silfurgötu 17, Stykkishólmi. Úlfar Malmquist, Stapasíðu 8, Akureyri. Þórhildur Magnúsdóttir Brattholti 19, Mosfellsbæ.
40 ára
Agnes Jónsdóttir, Laugargötu 3, Akureyri. Ásgrlmur Jónas ísleifsson, Breiðvangi 26, Hafnarfirði. Ellsabet Reinhardsdóttir, Viðarási 93, Reykjavík. Gunnar Pálmi Pétursson, Bjamahóli 6, Höfn. Hanna Jóhannesdóttir, Safamýri 75, Reykjavík. Helga Sigurðardóttir, Brekkutúni 23, Kópavogi. Hlöðver Már Ólafsson, Ægissíðu 123, Reykjavík. Karl Gauti Hjaltason, Höfðavegi 31, Vestmannaeyjum. Magnús Pétursson, Sandbakkavegi 6, Höfh. Maria Therese Robin, Refsstað 1, Vopnafjarðarhr. Ólafur Helgi Ingimarsson, Túngötu 40 B, Tálknafirði. Rúnar Vestmann, Borgarsíðu 5, Akureyri. Sigurgeir B. Hreinsson, Hríshóli, Eyjafiarðarsveit. Sigurlína Guðrún Hilmarsdóttir, Fögmkinn 28, Hafnarfirði. Steinþór Ásmundsson, Ásgarði 8, Keflavík.