Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2000, Page 46

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2000, Page 46
54 Helgarblað LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2000 DV Ólífur og sverðfiskur - ódýr og góður matur Krít: Gagn og gaman Þjónustulipur gengilbeina. Dublin á íslandi • Faxafeni 10 • sími 553 1381 Áhugamenn um mat ættu aö eiga unaðslega sæludaga á Krít, því þar er fjöldinn allur af áhugaverðum veitingahúsum sem gaman er að prófa. En úrvalið er svo mikið að það tæki mörg ár að prófa þá alla, meira að segja fyrir stærstu matar- göt. Eyjaskeggjar gera lítið úr morg- unverðinum, fá sér í mesta lagi ►bolla af sterku kaffi, en gera því meira úr hádegis- og kvöldverðin- um. Hefðbundin krítversk máltíð sam- anstendur af for- og aðalrétti. f for- rétt er tilvalið að smakka Chori- atiki, sem er salat með fetaosti og ólífum, eða Tzatziki sem er jógúrt með hvítlauk og gúrku. f aðalrétt er svo hægt að velja á milli gómsætra kjöt- eða flskrétta. Af áhugaverðum fiskréttum má nefna Kalamaria, sem er djúpsteiktur kolkrabbi, eða ljúffengan Xefia sem er glóðasteikt- ur sverðfiskur. Hinir sem hrifnir eru af kjöti ættu að prófa Súvlaki, sem er blandað kjöt á teini, og hafa Dolmades, fyllt vínviðarlauf, sem ► meðlæti. Að lokinni máltíð er svo yfirleitt boðiö upp á raki, sem er krítverskur snafs, til að róa mag- ann. Verði ykkur að góðu. -Kip gömul menning og vingjarnlegt fólk Býrðu í Kaupmannahöfn? r- www.islendingafelagid.dk í ár gefst íslendingum í fyrsta skiptið færi á að fljúga beint til grísku eyjarinnar Krítar. Beint flug af klakanum hófst í apríl og mun standa fram í október. Ferðunum hefur verið feikilega vel tekið og um 5000 manns hafa nú þegar bókað far. íslenskum ferðalöngum er boðið upp á tvo áfangastaði, annars vegar Hanía og hins vegar Reþýmnon, báðir þessir staðir eru á norður- strönd Krítar. Krít er stærsta eyja Grikklands og ein stærsta eyjan í Miðjarðarhafi. Hún er syðsta eyjan í Evrópu, um 260 km löng og um 60 km breið þar sem hún er breiðust. Krit liggur mitt á milli Evrópu og Afríku. íbúarnir eru rúmlega hálf milljón, en sú tala marg- faldast á hveiju ári vegna mikils Qölda ferðamanna sem þangað sækir. Landslagið á Krít er ekki ósvipað því sem við eigum að venjast á Is- landi, þótt veðurfarið sé ólíkt. Lofts- lagið er mOt og sumrin löng, veturinn minnir á gott íslenskt vor. Krít er fjallaeyja þar sem hæsti tindurinn, Psilorítis, teygir sig upp i 2.456 metra hæð og á vetuma snjóar í fjöllin. Mest undirlendi er á norðanverðri eyjunni og þar eru ræktaðar ólífur og vínþrúgur en til fjafla stunda bændur kvikfjárrækt. Helstu atvinnuvegir eru landbúnaður og ferðamennska. Fyrr á öldum var Krít menningar- legt stórveldi og er hin svonefnda mínóíska menning kennd við hana. Ýmsar merkar fomminjar frá þeim tíma hafa verið grafnar upp og er þar helst að nefna hallirnar Knossos og Faistos. Fornminjarnar í Knossos Þegar gengið er um í Knossos má bæði skoða fornminjar og fallegt landslag. Iðandi mannlíf Borgin Heraklíon eða Íraklíon var gerð að höfuðborg Kritar 1971. Hún er jafnframt auðugasta borg Kritar, upp- bygging er mjög mikil í og umhverfis hana. Það er í raun allt nýtt þar því flestar „fornminjar“ hafa verið endur- nýjaðar frá grunni eftir loftárásir Þjóðverja í seinna stríði. Hanía er önnur stærsta borgin á Krít og var höfuðborg hennar til 1971 DUBLIN AISLANDI Dublin á íslandi Lagersala ÓTRÚLEG VERÐLÆKKUN Ljósakrónur, skermar, lampar og veggljós, enn meiri verðlækkun, nú 50% afsláttur. Vatteruð rúmteppi, single, double og king size, nú aðeins 1499 kr. Pottaþurrkur með ýmsum myndum, aðeins 125 kr. Bollar frá 50 kr. Hnífapör, 16 stk., á aðeins 550 kr. Frábært úrval af nælonsokkabuxum og sokkum á 60% afslætti Sokkabuxur nú frá 50 kr., sokkar frá 30 kr. Dömublússur frá aðeins 499 kr. Stök hnífapör frá aðeins 50 kr. Léttir sumarkjólar frá aðeins 999 kr. Stuttbuxur aðeins 499 kr. Thermal og bómullarundirföt fyrir börn og fullorðna á hreint ótrúlegu verði. Allar herrabuxur, nú á 999 kr. Ekki bara þetta, margt fleira. Kíkið til okkar og sjáið sjálf. Opið mán - fim 10-18 föstud 10-19 laugard 10-18 sunnud 13-17 og enn í dag eru til Krítverjar sem telja hana andlega höf- uðborg sína. Hanía er einstaklega vina- leg og falleg borg sem byggð er í kringum höfnina. I miðbæmnn eru göt- urnar þröngar og margir ranghalar þar sem auðvelt er að villast, en þar má finna góða mat- sölustaði og fjöl- breyttar verslanir. Niður við höfnina er mikill fjöldi for- vitnilegra matsölu- staða og iðandi mannlíf. Þar er einnig að flnna íslamska mosku og krít- verska sjóminjasafnið sem í sjálfu sér er aðeins fyrir hörðustu áhugamenn um sjóferðasögu og stríðsminjar. I fimm til tíu mínútna göngufjarlægð frá höfninni, rétt aftan við dómkirkj- una, er að finna skemmtilegan mat- vörumarkað. Markaðurinn er í fal- legu húsi sem er eins og kross í lag- inu og minnir einna helst á gamla brautarstöð. Reþýmnon er þriðja stærsta borgin á Krít en minnir um margt á þorp. Þar er enn að finna lítil verkstæði handverksmanna sem framleiða og selja vörur sínar sjálfir og tala ein- ungis grísku. Það getur því stundum reynst erfitt að komast að samkomu- lagi um verð. Vestur af höfninni er svo virki frá tímum feneyskra yfir- ráða. Það gagnaðist ágætlega á sínum tíma til að hræða burt sjóræningjana en Tyrkir sigldu einfaldlega í kring- um það og hertóku borgina á innan við sólarhring um 1645. Utimarkaður Á Krít er víða hægt að fínna skemmtilega útimarkaði sem bjóða upp á ótrúlegt úrval afglingri. Samaría-gljúfrið Eitt af því sem fólk ætti ekki að missa af er að skoða Samaría- gljúfrið á suðvesturströnd Krítar. Boðið er upp á tvenns konar ferðir. Annars vegar er hægt að velja svo- nefnda letingjaleið. Þá er ekið til Chora Sfakios og siglt þaðan til Ormos Roumelis. Frá Roumelis er síðan gengið að Jámhliðinu en það- an er mjög fallegt útsýni yfir gljúfrið. Hin leiðin er erfiðari en þá ganga menn gljúfrið enda á milli. Gljúfrið er um 16 kílómetra langt og tekur því ferðin fjóra til sjö tíma. Áhugamenn um dýralíf ættu endi- lega að leggja þetta á sig þar sem í gljúfrmu er að finna heimkynni síð- ustu villigeita í heiminum. Gagn og gaman Möguleikamir til að njóta lífsins á Krít em óþrjótandi, hvort sem menn vilja liggja á ströndinni, kíkja á mannlífið eða skoða fornminjar. Eyj- an hefur upp á að bjóða allt í senn skemmtun, fróðleik og hvild. -Kip

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.