Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2001, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2001 Fréttir I>V Svört skýrsla um stöðu Ríkisútvarpsins í ríkisstjórn í gær: ^ Róttæk hagræöing RUV - og niðurskurður boðaður - afnotagjöldin hækkuð Ríklsútvarpiö Þaö stefnir í niöurskurö og erfiöleika hjá Ríkisútvarpinu þrátt fyrir afnota- gjaldshækkun. „Fjárhagsstaða Ríkisútvarpsins er núna orðin þannig að stofnunin mun augsýnilega ekki geta rétt reksturinn af nema með róttækum hagræðingaraðgerðum og breyt- ingum á dagskrárframboði, t.d. með styttingu útsendingartíma, minna hlutfalli innlends efnis og meiri endursýningum í sjónvarpi og verulegri fækkun viðamestu dagskrárgerðarverkefna í útvarpi, svo sem leikrita og tónlistarþátta. Það er afar mikilvægt að forðast að láta breytingar á dagskrá hafa áhrif á auglýsingatekjur því ef það gerist getur stofnunin lent í víta- hring.“ Þetta er ein af niðurstöðum nefndar sem menntamálaráðherra skipaði til að fara yfir málefni Rik- isútvarpsins en nefndin hefur skil- að skýrslu sem kynnt var á ríkis- stjómarfundi í gær. Var á fundin- um ákveðið að menntamálaráð- herra heimilaði Ríkisútvarpinu 7% hækkun á afnotagjöldum frá 1. janúar 2002. Fjárhagsstaðan sem nefndin er að vísa til er 300 millj- óna króna fyrirsjáanlegur halla- rekstur á RÚV í ár en það nemur um 10% af rekstragjöldum. Bent er á í skýrslunni að nokkrir þættir sérstaklega skýri bága rekstrar- stöðu. Lífeyrisskuldbindingar, kjara- samningar og minnkandi auglýs- ingatekjur eru þættir sem koma þar við sögu. Fram kemur í skýrsl- unni aö allt frá árinu 1993 hafa líf- eyrisskuldbindingar verið rekstr- inum þungar og þó aldrei sem síð- ustu þrjú árin þegar þessar skuld- bindingar hafa tekið til sín um 300 milljón krónur á ári. „Þessi kostn- aöarliður hefur þvi verið þekktur í mörg ár án þess að gerðar hafi ver- ið nægilegar ráðstafanir til þess að mæta honum með því að ákveða stofnuninni meiri tekjur eða að út- gjöld væru lækkuð sem þessu nem- ur,“ segir í skýrslunni. Á það er þó bent að ýmsar hagræðingaraðgerð- ir hafi komið til sem geri það að verkum að útgjöldin eru þetta 100-200 milljónum króna lægri á ári en þau ella hefðu verið. Þá seg- ir nefnd ráðherra að óeðlilegt sé að fjármagna Sinfóníuna alfarið út frá RÚV en Sinfónían er vaxandi byrði fyrir stofnunina, ekki síst í ljósi nýrra kjarasamninga hljóðfæra- leikara. Þá telur nefndin vert að skoða nýjar leiðir i tekjuöfluninni en innheimta afnotagjaldsins sé bæði óskilvirk og dýr. Eftir kynningu Bjöms Bjarna- sonar menntamálaráðherra á skýrslunni í ríkisstjórn í gær hef- ur verið rætt um að stjómarflokk- arnir setji saman hóp undir for- ystu menntamálaráðherra til að vinna að skipulagsbreytingum á Ríkisútvarpinu og breytingu á op- inberri tekjuöflun til að standa undir rekstri þess. Menntamála- ráðherra hyggst beita sér sérstak- lega fyrir athugun á fjárhagslegum tengslum Ríkisútvarpsins og Sin- fóníuhljómsveitar íslands. Vinnuhópurinn sem samdi skýrsluna samanstóð af Auði Björgu Árnadóttur, menntamála- ráðuneyti, Jóni Lofti Björnssyni, Ríkisendurskoðun, og Leifi Ey- steinssyni, fjármálaráðuneyti. -BG Guðni Ágústsson við upphaf þingfundar í gær: Ritaði Davíð sendibréf - biöur um skýringar við upplýsingalög vegna jarðamála Við upphaf þingfundar í gær kvaddi Guðni Ágústsson landbúnað- arráðherra sér hljóðs um starfsemi þingsins og las upp brot úr bréfi sem hann hafði sent Davíð Odds- syni forsætisráöherra. í bréfinu fer Guðni fram á að forsætisráðherra túlki upplýsingalögin þannig að það skýrist hvort landbúnaðarráðherra er heimilt að veita upplýsingar um sölu ríkisjarða eða ekki. Forsaga málsins var sú að í fyrirspurnar- tíma á þingi fyrir skömmu taldi Guðni sig ekki hafa heimild til að veita Ástu Ragnheiði Jóhannesdótt- ur upplýsingar um kaupverð jarða sem ríkið hefur selt einstaklingum þar sem fyrir lægju tveir úrskurðir frá úrskurðarnefnd upplýsingalaga um að ekki væri heimilt að gefa upplýsingar um einkamál, eins og hvaða verð einstaklingar greiddu fyrir jarðir - jafnvel þótt þær væru keyptar af rík- inu. í ljós kom síðan að þessar upplýsingar eru birtar í ríkis- reikningi þannig að þetta stangast á - starfsreglur ríkisbókhalds og þær reglur sem sérfræðingar landbúnaðar- ráðuneytis telja sig verða að fara eftir. Upplýsingalögin heyra undir forsætisráðuneytið og því sagði ráð- herra eðlilegt að fá umsögn hans. Vinnubrögð gagnrýnd Ýmsir stjórnarandstöðuþing- menn gagnrýndu þessi vinnubrögð ráðherra harkalega og sögðu litla ástæðu til að fara með álitamál af þessu tagi til for- sætisráðherra þegar þingið sjálft hefði á að skipa fullhæfu starfsliði. Einnig var ráðherra gagnrýndur fyrir að vilja snið- ganga þmgið. Á það var einnig bent að þing- menn væru undanþegnir upplýs- ingalögum og nytu ríkrar sérstöðu í svona málum, enda yrðu þeir að sinna eftirlitshlutverki sínu. „Al- þingi hefur ótvíræðan rétt til að afla allra upplýsinga sem geta skipt máli varðandi opinbera stjómsýslu, með- ferð fjármuna og aðra slíka hluti. Þurfi einhverjar slíkar upplýsingar að fara leynt vegna þess að það varði þjóðaröryggi eða persónu- vernd þá er það mál sem Alþingi bregst við með þeim hætti að við- komandi þingnefndir fara með þær upplýsingar í trúnaði,“ sagði Stein- grímur J. Sigfússon um þetta mál. Upplýsingar alla öldina Guðni Ágústsson þakkaði „góð viðbrögð stjórnarandstöðu sem komu mér að vísu ekki á óvart því stjórnarandstaðan er í pólitík og reynir að halla réttu máli.“ Við þessi orð Guðna varð nokkur kurr í salnum og ítrekaði Guðni að hann hefði ekkert að fela. „Ég vildi auð- vitaö sjálfur gjarnan leggja allar upplýsingar um alla síðustu öld hér á borðið og þá kæmi líka fram að háttvirtur þingmaður Steingrímur J. Sigfússon keypti ekki og seldi jarðir eftir sömu ströngu reglunum og sá sem hér stendur," sagði Guðni Ágústsson. -BG Davíð Oddsson. Guöni Ágústsson. Hassið límt Danir í Leifsstöð: Teknir meö fíkniefni Fíkniefnadeild tollgæslunnar á Keflavikurflugvelli hefúr á undanfóm- um dögum handtekið tvo danska ríkis- borgara með flkniefhi í fórum sínum. Sá fyrri var tekinn sl. fimmtudags- kvöld og reyndist hann við skoðun vera með rúmlega 2 kíló af hassi inn- anklæða. Hinn maðurinn náðist á sunnudag og var hann með 1 kíló af hassi, límt á likama sinn. Að sögn Kára Gunnlaugssonar voru mennimir báðir að koma frá Kaup- mannahöfn og voru stöðvaðir við venjubundið eftirlit. Hvomgur hefur komið við sögu lögreglu hérlendis en mál beggja er til rannsóknar hjá fíkni- efnadeild lögreglunnar í Reykjavík. Götuverð efhanna er talið geta numið um sjö milljónum króna. Það sem af er árinu hefur fikniefna- deild tollgæslunnar á Keflavíkurflug- velli lagt hald á tæp 23 kfló af hassi og 75 þúsund e-töflur og er talið að götu- verð efnanna gæti verið um 300 millj- ónir. -aþ slökktur - sættir milli manna Fullar sættir hafa náðst í deilumáli sveitarstjóra og slökkviliðsstjóra í Hrísey, sem spratt af því að sá fyrr- nefndi lamdi slökkviliðsstjórann á brunastað þegar gömul verbúð í eynni brann fyrir tæpum mánuði. í yfirlýs- ingu sem þeir kumpánar hafa sent frá sér kemur fram að hér með sé þessu máli lokið og það muni ekki hafa frek- ari eftirmál. Jafnframt segir í yfirlýsingunni að enginn ágreiningur sé um að það sé slökkviliðsstjóri sem skuli stjórna á brunastað. Þegar verbúðin brann vildi sveitarstjórinn hins vegar að hún brynni til ösku og barði slökkvi- liðsstjórann, sem kappkostaði að slökkva eldinn - sem nú hefur raunar verið gert í tvíeinni merkingu. -sbs Hrísey: Eldurinn Veðrið í kvöld Hlýnar í veðri Minnkandi norðvestanátt og él norðanlands, 8-13 m/s norðaustanlands síðdegis en annars 3-8. Víöa léttskýjað suðaustanlands. Frost 0 til 8 stig. Snýst í sunnan 8-13 og þykknar upp vestan til í nótt. Hlýnar aftur í veðri. Solargangur og sjavarföll REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöid 16.11 15.38 Sólarupprás á morgun 10.19 10.19 Síödegisflóö 22.52 14.58 Árdegisflóö á morgun 11.23 03.25 Skýringar á veduriákniun 15) «.VINDÁTT 10°<- . HITI VINDSTVRKUR ! nietriim 5 sakúndu -10! Nf! ■£& ^3 LÉTTSKÝJAD HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAO HEIÐSKÍRT O ALSKÝJAÐ w Q RIGNING SKÚRIR SIYDDA SNJÓKOMA w = ÉUAGANGUR RRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞGKA F.erð □ SNJÓR ■ÞUNGFÆRT s ÓFÆRT Hálka, hálka og hálka Hálka og hálkublettir eru á vegum á Suöur- og Vesturlandi. Á Vestfjörðum er þæfingsfærð og skafrenningur á Dynjandisheiði. Snjóþekja er á veginum um ísafjarðardjúp og Steingrímsfjaröarheiöi. Á Noröurlandi er hálka á vegum. Norðaustanlands er skafrenningur og hálka á vegum. t> Suölæg átt aftur Vaxandi sunnanátt á morgun, 13-18 m/s og rigning eða súld sunnan og vestan til á landinu en skýjaö norðaustanlands. Hiti 5 til 10 stig vestan til síðdegis en viö frostmark norðaustanlands. Vindur: 13-18 m/ Hiti 1» til Suövestan 13-18 og skúrlr sunnan og vestan tll á landlnu en annars hægarl og skýjaö með köflum. Hltl 1 tll 5 stlg en 5 til 10 stlg austanlands. L.Hi£iir 8—13 m/ir' Hiii 0° til 2° SunimiilJi m Vitidar: C 8-13 m/v'— Hiti 0° til -C" Suðvestan og vestan 8-13. Él sunnan og vestan tll á landlnu en léttskýjaö austanlands. Kólnandl veöur. Vestan og norövestan 8-13. Snjókoma eöa él noröanlands en stöku él suðvestan til. Áfram kólnandl veður. mm* AKUREYRI skýjaö 0 BERGSSTAÐIR BOLUNGARVÍK snjókoma -3 EGILSSTAÐIR hálfskýjaö O KIRKJUBÆJARKL. heiöskírt -2 KEFLAVÍK hálfskýjaö 0 RAUFARHÖFN skafrenningur 0 REYKJAVÍK haglél á síð. klst. 1 STÓRHÖFÐI snjóél 2 BERGEN rigning 7 HELSINKI snjókoma 0 KAUPMANNAHÖFN þokumóöa 7 ÓSLÓ skýjaö 4 STOKKHÓLMUR rigning 4 ÞÓRSHÖFN rigning 5 ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 5 ALGARVE heiöskírt 11 AMSTERDAM skýjaö 10 BARCELONA þokumóöa 6 BERLÍN skýjaö 6 CHICAGO hálfskýjaö 3 DUBLIN súld 11 HALIFAX skúr 2 FRANKFURT alskýjað 6 HAMBORG rigning 8 JAN MAYEN snjóél -8 LONDON skýjaö 9 LÚXEMBORG skýjaö 4 MALLORCA léttskýjað 12 MONTREAL heiöskírt -3 NARSSARSSUAQ alskýjaö -4 NEWYORK heiöskírt 4 ORLANDO heiöskírt 16 PARÍS alskýjaö 5 VÍN léttskýjaö 4 WASHINGTON heiöskírt -1 WINNIPEG léttskýjaö -1 lIHfl VHHIRSTOm ISLANPS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.