Dagblaðið - 10.06.1977, Page 15
IjACBLAÐIÐ. KÖSTUDACUR 10. JUNI 1977.
15
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
í,
Guðmundur Rúnar Guðmundsson, FH, er orðinn stórsnjall hástökkvari, þó hann sé aðeins 18 ára. Mikill
framtíðarmaður. Á Laugardalsveilinum bætti hann drengjamet Eliasar Sveinssonar — sem hann hafði
jafnað í Svíþjóð nýiega, 1.95 m — fyrst í 1.98 m. Lét ekki þar við standa heldur stökk tvo metra. Reyndi
síðan við 2.03 metra — unglingamet Jóns Þ. Ólafssonar, en tókst ekki að þessu sinni. Jón Þ. Ólafsson var
stökkdómari á mótinu í gær, en hann á íslandsmetið 2.10 m og sagði: — Ef Guðmundur æfir vel á hann
eftir að ná langt í hástökkinu. Þá má til gamans geta þess, að Guðmundur Rúnar er frændi Jðns
Péturssonar, Snæfelljngs og lögregluþjóns, sem fyrstur íslendinga stökk tvo metra. Á DB-mynd Sveins
Þormóðssonar er hinn ungi Guðmundur Rúnar við skráningartöfluna.
Stórsigur í kast-
keppninni við Dani
— Glæsileg kastsería Hreins — Erlendur og Óskar sigruðu
í sleggjukasti og spjótkasti. Guðmundur Rúnar
stökk tvo metra íhástökki
Sterku landsliðsmennirnir
okkar í frjálsum iþróttum fórulétt
með að vinna slórsigur gegn Dön-
um i kastlandskeppninni, sem
lauk á Laugardalsvelii í gær. Þeir
Erlendur Valdimarsson. KR, og
Óskar Jakobsson, ÍR, gerðu sér
litið fyrir og sigruðu í sinum
greinum í gær. Erlendur í
sleggjukasti og Óskar í spjótkasti.
Lokatölur í landskeppninni urðu
því ísland 27 stig ( af 32 möguleg-
um) — Danmörk 17, en þeir
Hreinn Halldórsson og Erlendur
sigruðu i kúluvarpi og kringlu-
kasti fyrri daginn. í unglinga-
keppninni varð jafnt hjá
þjóðunum. ísland 10 stig — Dan-
mörk 10 stig.
Öskar, sem keppti i öllum kast-
greinunum fyrir Island, hafði
yfirburði í spjótkastinu í gær. Það
kom ekki á óvart, jafn mikill af-
reksmaður og sá piltur er orðinn.
Hann kastaði 72.08 m. John
Solbjerg varð annar með 65.48 m.
og Karsten Kraglund 3ji með
65.04 m. Stefán Hallgrimsson
varð fjórði með 59.40 m, svo
ísland hlaut sex stig, Danir fimm.
Sigur i landskeppninni unninn þó
ein grein væri eftir. 1 unglinga-
keppninni sigraði Cunnar Jensen
með 61.84 m., en Einar Vilhjálms-
son, hinn 17 ára sonur Vilhjálms
Einarssonar, bætti sinn bezta
árangur á 3ja metra. Kasaði 58.96
m. Ákaflega glæsilegur piltur,
sem líklegur er til stórafreka eins
og faðir hans hér áður fyrr.
í sleggjukastinu kastaði Er-
lendur 56.72 m og varð því
tvöfaldur sigurvegari r keppn-
inni. Virkaði mjiig afslappaður
bæði i kringlunni sem og sleggj-
unni í gær — og það verður ekki
langt í stórafrekin hjá honum.
I’eder Ilansen kastaði 53.56 m.
Kjeld Andreasen 51.98 m og
Oskar 43.82 m. Í unglingakeppn-
mni sigraði Einn Jaeobsen með
47.14 m og jafnaði þar með stig
Íslands. en Asgeir Þór Eiríksson
kasl aði 30.70jn.
Kep.pl var i nokkrum auka-
greinum. Ilreinn Halldórsson er
hreint orðinn frábærlega iirugg-
ur. Kastsería hans í gær er sú
bezta, sem hann hefur náð 20.43
— 20.50 — 20.56 og 20.15, en tvö
köst ógild. Annað þeirra mældist
20.76 m eða sex sm lengra en
tslandsmet hans, en Hreinn var
þá svo óheppinn að slá fingrunum
í kasthringinn. Þessi afrek vann
Hreinn eftir að hafa æft tvívegis
fyrr um daginn.
Cuðmundur Rúnar Guðmunds-
son, FH, bætti drengjametið í há-
stökki um fimm sentimetra — og
rauf tveggja metra inúrinn. Það
er alltaf merkur áfangi. Cuð-
mundur Rúnar er efni i ntikinn
afrekstnann og þeir í Hafnarfirði
eiga tvo aðra stráka, sem líklegir
eru til mikilla afreka í há-
stökkinu. Hörkukeppni var í 110
m grindahlaupi og þrír fyrstu
menn fengu sama tíma 15.4 sek.
Elías Sveinsson, KR, sigraði. Jón
Sævar Þórðarson, IR, varð annar
og Björn Blöndal, KR. þriðji. Þor-
valdur Þórsson, IR. varð fjórði á
15.9 sek. í 400 m jafnaði Jón
Sævar sinn bezta árangur. Hljóp á
51.3 sek. Tveir ungir FH-ingar,
Einar Cuðmundsson, 52.1 sek. og
Gunnar Sigurðsson, 53.0 sek. eru í
stöðugri framför í hlaupunum. 1
hástökkinu varð Elías Sveinsson
annar með 1.95 m. 1 5000
m hlaupi bætti Sigurður I’. Sig-
mundsson, KH. árangur sinn um
10 sek. Hljöp á 15:41.2 mín. en
Agúst Cunnarsson, UBK, varð
annar með 16:25.8 mín.
í keppni kvenna sigraði Ingunn
Einarsdóttir, ÍR, í 100 m grinda-
hlaupi á 14.5 sek. og 400 m á 57.1
sek. Þar vakti Sigurborg Guð-
mundsdóttir, Á, mikla athygli.
Bætti árangur sinn um nokkrar
sekúndur. Hljóp á 58.8 sek. Sigur-
borg — dóttir Guðmundar, Lárus-
Sonar. þess snjalla hlaupara, sem
komst í úrslit í 400 m á EM 1950
— gift kona og tveggja barna
móðir. Byrjuð æfingar og keppni
aftur eftir nokkurt hlé. I lang-
stökki sigraði Lára Sveinsdóttir,
Á. Stökk lengst 5.24 m.
-hsim.
Velta HSI40
milljónir kr.
halli þrjár
— Siguröur Jónsson gef ur kost á sér
til endurkjörs til formanns á þingi HSÍ,
sem hefst íkvöld
— Ég sé mér ekki annað fært en
að gefa enn kost á mér til
formanns HSÍ. Eins og málin
standa er illmögulegt að hlaupa
frá þeim, sagði Sigurður Jónsson
formaður Handknattleikssam-
bands íslands en HSÍ heldur
ársþing sitt nú um helgina. Þing-
ið hefst í kvöld oglýkur á morgun
— fyrir iandsleikinn gegn N-
Írum.
— HSÍ verður einmitt 20 ára á
morgun — 11. júní. Við höfum
ekki í hyggju að halda sérstaklega
upp á daginn. Reynum heldur að
stefna að góðum árangri lands-
liðsins, hélt Sigurður áfram.
—Velta HSÍ var i fyrra 40
milljónir og halli á sambandinu
varð um 3 milljónir. Þetta eru
miklir peningar. Af þeím fóru 16
milljónir i undirbúning lands-
liðsins fyrir HM í Austurríki og á
sjöttu milljón í húsaleigu. Við
öfluðum á milli 12-13 milljóna
króna með beinum söfnunum.
Það gefur auga leið að slíkt
gengur ckki til lengdar.
— Kerðir íslenzkra leikmanna er-
lendis eru sífellt að verða stærra
vandamál hjá okkur. Hvernig við
bregðumst við þeim látum við í
hendur þjálfara okkar, Januszar
Gzerwinski.
— Við munum læra af þeim mis-
tökum er við gerðum á síðastliðn-
um vetri í skipulagningu móta.
Þau verða i fastari skorðum en
áður. Þannig gefur auga leið að
ekki er hægt að fresta leikjum
vegna leikmanna er æfa með
landsliðinu, sagði Sigurður Jóns-
son formaður HSÍ að lokum.
Handknattleiksráð Reykja-
víkur ályktaði á aðalfundi sínum
nýlega um framkvæmd og niður-
röðum Íslandsmótsins 1977-78.
Þar er bent á, að mistök frá
mótinu 76-77 megi ekki endur-
taka sig. Hroðvirknisleg vinnu-
brögð frá síðasta ári eiga ekki og
þurfa ekki að eiga sér stað. Slikt
geti haft ófyrirsjáanlegar af-
leiðingar. HKRR mæltist því til
við stjórn HSÍ, að jafnhliða bætt-
Sigurður Jónsson.
um árangri landsliðsins verði lögð
meiri rækt við þjónustustarfsemi
HSÍ, sér í lagi yngri flokkana.
-h. halls.
IK lék sína fyrstu leiki
ígærkvöldi:
Vann báða
íþróttafélag Kópavogs lék
fyrstu knattspyrnukappleiki sína
i gærkvöldi. Ékki verður annað
sagt en að vel hafi gengið hjá
hinu unga félagi. Í 5. flokki
sigraði ÍK Njarðvíkinga í
Njarðvík með 4:3, en i 3. deild
meistaraflokks sigraði ÍK ÍR-inga
með 4:0.
ALLIR HEILIR NEMA GISLI
- Noröur-írsku landsliðsmennirnir koma til íslands í dag.
HM-leikurinn á morgun
Vllir landsliðsstrákarnir eru
heilir nema Gísli Torfason, Kefla-
vík. Hann fékk stuð í leiknum við
Víking í 1. deildinni á mánudag
— og hefur verið hjá lækni i
ntorgun, sagði Árni Þorgrimsson,
landsliðsnefndarmaður, þegar
blaðið ræddi við hann í morgun.
En við erum bjartsýnir á, að Gísli
geti tekið þátt í landsleiknum við
Norður-íra á morgun, sagði Árni
ennfremur.
Þejr Marteinn Geirsson og
Teitur Þórðarson komu heim á
miðvikudagskvöld. Komu síðast
þeirra landsliðsmanna okkar, sem
leika erlendis — og fóru beint á
æfingu. Báðir líta mjög vel út.
Greinilega í toppþjálfun eins og
þeir Ásgeir Sigurvinsson, Guðgeir
Leifsson og Jóhannes Eðvaldsson.
Landsliðskapparnir hafa æft á
hverju kvöldi að undanförnu und-
ir stjórn Tony Knapps og einnig
hafa verið umræðufundir, leik-
aðferðin rædd. t gærkvöld héldu
landsliðsmennirnir austur að
Þingvöllum, en þar verður dvalið
og æft að Laugarvatni fram að
landsleiknum.
Norður-írska liðið er væntan-
legt til islands í dag. Það hefur að
undanförnu verið í æfingabúðum
á Skotlandi. Forsala á aðgöngu-
miðum er við Útvegsbankann í
Reykjavík og áhugi greinilega
mjög mikill á þessum HM-leik
íslands og Norður-írlands. Hann
hefst kl. þrjú á laugardag á Laug-
ardalsvellinum. Verð
aðgöngumiða er 1200 kr. í stúku,
800 kr. i stæðum — en lægra verð
f.vrir börn.
'Kem ekki að
notum fvrr en
ég hef leysl
þau
Það lagast Þegar þú
.' ferð að æfa á ný:
Þjálfi sér um það!
Hugur Bomma leitar til Nitu, ekki
fótbolta, og það veit Þjálfi.
-1 (' Tölum betui sarnan þegar