Dagblaðið - 10.06.1977, Side 28
Prófessor Bryson:
MANNKYNIÐ ÞARF Afi
HAGA SÉR EINS OG
ÍSLENZKUR BÓNDI
Keunen frá HoHandi ásamt Bryson, Bandaríkjunum, Næst kemur Indverjinn Gaekwad, sem sagði:
Eitt ísland á fimm daga fresti á Indlandi. Loks er Nobelsverðlaunahafinn Linus Pauling frá
Bandaríkjunum. — DB-myndir R. Th. Sig.
„Mannkynið sér nú fram á að
þær auðlindir er við nú búum
við gangi brátt til þurrðar og á
næstu árum þarf að taka mikil-
vægar ákvarðanir er varða
munu mannkynið allt um
ófyrirsjáaniega framtið," sagði
Linus Pauling prófessor og tvö-
faldur Nóbelsverðlaunahafi, í
tilefni ráðstefnu þeirrar er nú
stendur yfir á Loftleiðahótel-
inu, Vöxtur án vistkreppu. Til
ráðstefnunnar er boðað af al-
þjóðlegum samtökum sem
starfa í Sviss, í samráði við
stjórnvöld á íslandi. Ráðstefn-
una sækja nær eingöngu ein-
staklingar á eigin vegum, vís-
indamenn og fræðimenn
hvaðanæva úr veröldinni.
Reid A. Bryson, prófessor frá
Bandaríkjunum, sagði nú
hausta að i heiminum. Tíma
uppskerunnar væri lokið og nú
þyrfti að fara að undirbúa sig
undir veturinn. Minnti hann á
sjónarmið íslenzkra bænda um
aldir, við þyrftum að kanna
hvaða vetrarforða við ættum og
fækka síðan fénu svo nægt
fóður verði fyrir það allt út
veturinn, vetur þann sem
mannkynið nálgast óðum. Um
næstu aldamót er áætlaður
fjöldi jarðarbúa átta milljarðar.
En að áliti vísindamanna nær
jörðin alls ekki að brauðfæða
allan þann fjölda.
Donald J. Keunen, rektor
háskólans í Leiden í Hollandi
kvað sig vera svartsýnismann.
Á næstu fimm til tíu árum væri
nauðsynlegt að jafna skiptingu
auðæfa jarðarinnar, þó væru
hinar rikari þjóðir alls ekki
reiðubúnar til slíks og stöðugt
ykist bilið milli snauðr.a þjóða
og ríkra.
Fatehsingrao Gaekwad frá
Indlandi kvaðst nú vera á Is-
landi fyrsta sinni, en sannar-
lega vonast til þess að fá tæki-
færi til að koma hingað oftar.
Kvaðst hann sér til mikillar
hrellingar hafa uppgötvað þá
staðreynd áð Indverjum fjölgar
jafnmikið á hverjum fimm
dögum og nemur fjölda állra
Islendinga.
Að endingu kvaðst Linus
Pauling, forseti ráðstefnunnar,
þrátt fyrir allt hafa trú á mann-
kyninu, unga fólkinu er mundi
hindra að allt of illa færi. Fann
hann stjórnmálamönnum, eins
og þeir eru í dag, flest til for-
áttu og kvað þá ekki geta unnið
að lausn hinna aðkailandi mála,
þeir væru alltaf að hugsa um
eiginn hag, að verða kosnir í
næstu kosningum. Alltof
miklum fjárhæðum væri varið
til hernaðarútgjalda í heimin-
um; að vilja almenningsálitsins,
en Pentagon, varnarmálaráðu-
neyti Bandaríkjanna, kynti
mjög undir áróðri fyrir meiri
útgjöldum til hernaðar.
Ráðstefnunni mun ljúka nú
um helgina og eftir u.þ.b. eitt
ár er von á bók með fyrirlestr-
um þeim sem haldnir voru á
ráðstefnunni. - BH
Sætúnið verður
malbikað í sumar
- Fyrirhugað að verja 810 milljönum til
nýbygginga gatna og 285 í viðhald í ár
— I ár er áætlað að verja um
810 milljónum króna til nýbygg-
inga og holræsagerðar á vegum
Reykjavíkurborgar. Um 285 millj-
ónir fara í viðhald gatna og hol-
ræsa, sagði Ölafur Guðmundsson,
yfirverkfræðingur gatnadeildar
borgarverkfræðings í viðtali við
DB.
Stærsta verkefnið er í iðnaðar-
hverfunum við Vesturlandsveg og
er áætlað að verja þar 140 milljón-
um. I sumar verður Sætúnið frá
Skúlatorgi austur að Kringlu-
mýrarbraut malbikað og er
áætlað að það kosti um 45 milljón-
ir króna. Þetta er ákaflega þörf
framkvæmd þar sem álag á
Borgartúninu er allt of mikið en
síðar verður Skúlagatan breikk-
uð.
Inn við Suðurlandsbraut er
áætluð talsverð framkvæmd. Það
er nýbygging húsagötu frá Veg-
múla og austur fyrir Bygginga-
vörusölu SÍS.
Þá er ætlaðað að leggja nýtt
slitlag á Suðurlandsbrautina eins
og hún leggur sig — raunar
Laugaveg allt frá Rauðarárstíg og
austur að Elliðavogi og er reiknað
með að sú framkvæmd kosti 25
milljónir.
Þá verður einnig fríkkað upp á
Miklubrautina frá Grensásvegi
austur fyrir brýr. Ekki verður
Hafnarfjarðarvegurinn skilinn
útundan. Hann verður malbik-
aður frá Miklatorgi allt suður að
Nesti.
Ibúar Breiðholts verða þó enn
um sinn að sýna biðlund. „Birgis-
braut“, eins og gatan holótta i
gegn um Blesugrófina er oft
nefnd, verður ekki malbikuð í
sumar. Þeir hjá gatnamáladeild-
inni ætla að bera ofan í hana og
síðan á að tengja beint úr
Stekkjarbakkanum á Reykjanes-
brautina á næsta ári.
- h halls.
0
Þrátt fyrir talsverðar fram-
kvæmdir i sumar verða íbúar
Breiðholts III enn um sinn að
sætta sig við „Birgisbraut" í gegn-
um Blesugrófina.
Hef jast umtalsverðar kolmunnaveiðar
í sumar?
Búast má við að
kolmunnaveiðar komist á
eillhveii louiiln. i'l stig hér í
sumar, en i fyrrasumar voru
aðeins gerðar tilraunir með
slíkar veiðar á einu skipi, skut-
togaranum Runólfi, og ekki
tókst að framkvæma
vinnslutilraunir sem skyldi.
Hafrannsóknastofnunin
hefur nú lagt til við sjávarút-
vegsráðuneytið að reyndar
verði veiðar til bræðslu á
nokkrum skipum. Til þess að
laða skip að þessum veiðum er
lagt til að þeim sé tryggð
einhver lágmarksafkoma, svo
sem með þeim hætti að greiða
niður olíuna til þeirra. Fari af-
koman hins vegar yfir eitthvert
tiltekið lágmark, falli allir
styrkir niður.
Þá hefur rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins lagt til að
ráðuneytið heimili stofnuninni
að taka á leigu fiskiðjuver,véla-
búnað og mannskap til að gera
umtalsverðar tilrauriir til
skreiðarverkunar kolmunna. I
fyrra þegar sú stofnun tók
Runólf á leigu til veiða, sem
gengu vel, gengu vinnslurann-
sóknir ekki sem skyldi. Stafaði
það af önnum fisk-
vinnslustöðvanna, sem þátt
tóku í tilrauninni.við úrvinnslu
annarra fisktegund^. Hins veg-
ar lofuðu þær tilraunir, sem
gerðar voru, góðu. Þess má að
lokum geta að sjávarútvegs-
ráðherra hefur ítrekað það í
máli sínu að undanförnu að
nauðsyn beri til þess að leggja
áherzlu á nýtingu ónýttra fisk-
tegunda hér við land, og má því
búast við góðum undirtektum
ráðune.vtis við fyrrnefndar
tillögur.
-G.S.
FÖSTUDAGUR 10. JtJNt 1977.
Kópavogs-
bflar missa
númer sín
I gærkvöldi stöðvaði
Kópavogslögreglan 34 bíla
sem urðu á vegi hennar og
ekki höfðu verið færðir til
skoðunar á réttum tfma.
Aðeins 10 bílanna sluppu í
gegnum skoðun með mislita
miða á rúðum en 24 bílar
misstu númerin, auk þess
sem ökumennirnir fá sektir
fyrir að mæta ekki með-
bilana til skoðunar á
auglýstum tíma. 1 fyrra-
kvöld voru 15 bílar
stöðvaðir, 8 sluppu í gegn,
en 7 misstu þá númerin.
Aðgerðum þessum verður
haldið áfram, að sögn lög-
reglunnar
-ASt.
Samninga-
viðræður
við EBE
ákveðnar
Niðurstöður fundar
sendimanna Efnahags-
bandalagsins og Islendinga í
gær urðu að samninga-
viðræður voru ákveðnar,
líklega í haust.
Gundelach, formaður
sendinefndar EBE, kvartaði
um, að hann hefði enn ekki
getað tilkynnt bandalaginu
um neinn árangur í
viðræðum við tslendinga.
Jafnframt fundi, sem sagt
var, að væri til að undirbúa
samningaviðræður, voru
fundir nefndar um
viðskiptamál. Islendingar á
þeim fundi vísuðu á bug
tilraunum Breta til að
tengja viðskiptamálið og
fiskveiðimálið.
-HH.
Veiðihús,
laxveiði og
fríttfæði
Laxveiðin í Norðurá hefur
gengið dável miðað við
kuldaköst og fleira. Fyrsti
veiðimannahópurinn, stjórn
SVFR, fékk 58 laxa á hálfum
þriðja degi. Næsti hópur
lenti í kuldakastinu og fékk
„aðeins“ 21 lax á 3 dögum,
en hópur sem lauk veiði í
fyrradag fékk 30 laxa.
Nú opnast margar ár til
laxveiða á næstu dögum.
Veiði í Grímsá hefst 15. júní.
Þar hefur veiði Grétar Páls-
son flugumferðarstjóri.
Hann hlaut vinning í
happdrætti SVFR, en
vinningurinn var eins dags
veiði í Grimsá fyrir sex
stangir, veiðihúsið til afnota
fyrir 12 gesti með fríu fæði
og öllu.
Grétar mætir þarna með
fimm vini sína, sem hann
hefur boðið til að njóta
happdrættisvinningsins með
sér. Allir verða með eigin-
konur með. Það verður hátíð
í veiðihúsinu. Örfá veiðileyfi
i Grímsá í júnímánuði eru
ennþá laus. Veiðileyfi á
svæði SVFR eru hins vegar
langt til uppseld. -ASt.