Dagblaðið - 17.11.1977, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 17. NÖVEMBER 1977.
Jdnas Bjarnason efnaverkfræðingur:
„SKRIFA ÚT ÓÚTFYLLTA
TÉKKA Á ÞJÓÐFÉLAGIД
að koma til greiðsla á raunvöxtum
á lánum. Fólk telur sig alltaf vera
að hagnast á verðbólgu. Þá m^
nefna, að við samningagerð í
kjarasamningum verða menn að
gera sér grein fyrir raunverulegri
greiðslugetu atvinnugreinanna, í
stað þess að skrifa sífellt út óút-
fyllta tékka á þjóðfélagið":
HP
Guðmundur Ámundason bif reiðarst jóri:
„Umbætur í umferðarmálum
Ililmar Fenger
„Nei, ég mun ekki standa í
mikilli kosningabaráttu," sagði
Ölafur Hannesson prentari í
viðtali við DB. „Þeir hjá kjör-
nefnd báðu mig um þetta og ég sá
þar tækifæri á því að koma
baráttumálum Málfundafélagsins
Óðins á framfæri."
Ekki sagðist Ólafur hyggja á
hann myndi vinna að málum
Óðins, eins og áður sagði. Þar er
hann í stjórn, en hefur unnið
lengi að málefnum Sjáifstæðis-
flokksins og setið í fulltrúaráði
flokksins hér í Reykjavík.
„Sjónarmið Öðins eru m.a. þau,
að allir hafi hér fulla atvinnu.1'
Bjami Guðbrandsson pípulagningameistari:
„FÓLK VERÐUR AD FÁ AÐ RÁÐ-
STAFA SÍNUM FJÁRMUNUM...”
sagði Ólafur. „Þá viljum við
berjast fyrir fullri verðtryggingu
peninga og eins eru húsnæðismál
okkur ofarlega í huga. þ.e. lána-
mál varðandi húsbyggingar, scm
við teljum vera í miklum ólestri.
á meðan ekki er hægt að fá nein
lán, sem einhverju nema vegna
kaupa á gömlum íbúðum. en það
tel ég vera eina helztu ástæðuna
fyrir því, hversu borgin hefui
teygt úr sér og húsrými nýtist
illa.“ HP
hellur," sagði Bjarni. „Það er trú
min að það lagist ekki fyrr en
fólk fær að ráðstafa sínum fjár-
munum sjálft að miklu meira
leyti en nú er.“
Bjarni sagðist vilja berjast
fyrir bættu atvinnuastandi í
Reykjavík og eins myndi hann
láta málefni byggingariðnaðarins
til sin taka.
„Það kæmi húsbyggjendum
verulega til góða ef tollar og
skattar af byggingarefni yrðu
rýmkaðir og ég held að þá mætti
leggja Húsnæðismálastjórn niður.
Varðandi kaup fólks á íbúðarhús-
næði, er tvennt' til í því máli —
fólk sem er að kaupa notað, en
ekki mjög gamalt, situr að mínu
viti við sama borð og það sem er
að kaupa nýtt eða byggja en það
er fólkið sem er að kaupa gamalt
húsnæði sem þyrfti að fá sömu
fyrirgreiðslu."
- HP
Olafur Hannesson
Bjarni Guðhrandsson
„Ég hef starfað í Sjálfstæðis-
flokknum undanfarin tíu ár en
framboð þetta er til orðið fyrir
tilstilli kjörnefndar," sagði Bjarni
Guðbrandsson pípulagninga-
meistari í viðtali við DB. Bjarni
hefur verið í fulltrúaráði flokks-
ins og í stjórn verkalýðsmála-
nefndar hans og er núna for-
maður hverfafélags Skóga- og
Seljahverfis.
„Meðferðin á opinberum fjár-
munum er orðin fyrir neðan allar
„Auðvitað er ég að þessu af
mikilli alvöru," sagði Hilmar
Fenger stórkaupmaður í viðtali
við DB. „Það má að vísu segja, að
tíminn til kosningabaráttu sé
naumur, en ég mun mæta á þá
fundi, sem mér hefur verið boðið
til og eins hyggst ég nota tímann
sem eftir er til einhverra blaða-
skrifa.“
Hilmar hefur lengi unnið að
baráttumálum Sjálfstæðisflokks-
ins, átt sæti í fulltrúaráði, og
starfaði í Hcimdalli fyrr á árum.
„Ef ég verð kjörinn á þing,
mun ég auðvitað beita mér fyrir
umbótuin á sviði fjármála og
efnahagsmála, sem ég hef lengsta
reynsluna í og hef sennilega verið
beðinn að taka þátt i þessu próf-
kjöri vegna þess," sagði Hilmar að
lokum.
HP
„Það voru nokkrir ágætir
kunningjar mínir, sem komu mér
út í þetta framboð," sagði Jónas
Bjarnason efnaverkfræðingur í
viðtali við DB, en hann er í fram-
boði til prófkjörs fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn í Reykjavík. „Ég
verð að viðurkenna, að ég hafði
ekki hugmynd, hvað ég var að
fara út í, en sé svo sannarlega
ekki eftir því, því viðbrögð fólks
hafa verið ákaflega jákvæð."
Stuðningsmenn Jónasar hafa
þegar dreift bæklingi um hann í
hús hér í Reykjavík, en sjálfur
sagðist hann ekki hafa mikla trú á
fundarhöldum til kynningar,
mætingar á slíka fundi væru yfir-
leitt ekki góðar. Sagðist hann
heldur myndu einbeita sér við að
rita greinar í blöð. Jónas er
kunnur fyrir störf sín í Bandalagi
háskólamanna en innan flokksins
Hilmar Fenger stórkaupmaður:
„Framboð ífullri alvöru”
og vegakerfi nauðsynlegar”
Kristján Ottósson blikksmiður:
„UPPBYGGING ATVINNULÍFS
HÉR í REYKJAVÍK...”
-,,Eg hef sótt einn kosningafund
uppi í Breiðholti síðan kjörnefnd
fór fram á það við mig, að ég yrði í
framboði," sagði Kristján Ottós-
son blikksmiður í viðtali við DB.
„Eg á ekki von á neinni frekari
kosningabaráttu, en er auðvitað
tilbúinn í slaginn."
Kristján hefur starfað í full-
trúaráði flokksins og verið ritari
verkalýðsmálanefndar hans.
„Uppbygging atvinnulífs í
Reykjavík er mér efst í huga,"
sagði Kristján ennfremur. „Þá
eru það félagsmálin, sem eru það
stór málaflokkur, að ógerningur
er að gera grein fyrir þvi í stuttu
viðtali. En þetta eru þeir mála-
flokkar, sem ég myndi beita mér
fyrir.ef ég yrði kjörinn."
HP
Pétur Sigurðsson.
Kristján Ottósson >
Ólafur Hannesson prentari:
„STYÐ EINDREGIÐ BARÁTTUMÁL
MÁLFUND AFÉLAGSINS ÓÐINS...”
Jónas Bjarnason
Guðmundur Arnason
hefur hann starfað í Heimdalli og
landsmálafélaginu Verði.
„Ég mun aðallega beita mér
fyrir umbótum á sviðum atvinnu
og menntamála," sagði Jónas.
„Atvinnumálin hafa orðið að sæta
því, að beitt hefur verið allt of
gömlum aðferðum, þ.e. kaup á
fiskiskipum og í heild offjárfest-
ingar, byggðar á erlendum
lántökum. Þetta er blaðra, sem
hlýtur að springa. Atvinnufram-
boð er hér ekki nándar nærri
nógu fjölbreytt.
Verðbólgan er hins vegar það
vandamál, sem verður að hafa
algjöran forgang," sagði Jónas.
„Það eru til mörg ráð, sem ekki
hafa verið notuð, t.d. notkun verð-
jöfnunarsjóða í sjávarútveginum
og eins má nefna, að hér verður
„Nei, þetta var nú ekki mitt
frumkvæði, heldur kjörnefndar,"
sagði Guðmundur Ámundason
bifreiðarstjóri og frambjóðandi
til prófkjörs Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík. „Enda held ég, að
þetta verði sjálfsagt ekki nein
barátta um mig persónulega,
heldur vil ég með þessu sýna
stuðning minn við flokkinn,"
sagði Guðmundur.
Guðmundur hefur unnið mikið
að málefnum bifreiðarstjóra.
bæði í bifreiðastj.óráfélaginu
Frama og einnig á Hreyfli, þar
sem hann vinnur.
„Ég myndi að sjálfsögðu beita
mér fyrir miklum umbótum á
umferðarmálum, hérlendis, ef svo
vildi til, að ég yrði kjörinn á þing.
Umbætur á vegakerfinu eru
nauðsynlegar og eins vil ég
„Framboð mitt er fyrst og,
fremst stuðningsyfirlýsina við
flokkinn, ég hef ekki safnað
neinum undirskriftum, en var
beðinn um þetta af kjörnefnd.'
sagði Pétur Sigurðsson, kauo
maður (Herradeild PÖ) í viðtali
við DB. „Þar af leiðir, að
kosningabarátta mín hefur ekki
verið stórbrotin, — ég komst því
miður ekki á kynningarfundinn,
sem haldinn var uppi í Breið-
holti.
Eg hef starfað fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn, síðan ég vai'
ungur maður og ef svo færi, að ég
yrði kjörinn á þing, yrði ég
náttúrlega að taka mig saman I
andlitinu," sagði Pétur enn-
fremur. „Þar myndi ég að sjálf-
sögðu beita mér fyrir málefnum
verzlunarinnar, sem ég tel hafa
verið mjög afskipta hérlendis að'
undanförnu. Má reyndar segja, að
hún búi við þau kjör hér sem ekki
þekkjast erlendis nema á stríðs-
tímum, svo mikil eru höftin
orðin." HP
iðnaðinum allt hið bezta og myndi
styðja hann af heilum huga,"
sagði Guðmundur ennfremur. HP
Pétur Sigurðsson kaupmaður:
„VERZLUNIN HÉRLENDIS
EINS OG Á STRÍÐSTÍMUM”