Dagblaðið - 17.11.1977, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1977.
Óþörf
valdbeiting
vallarlögreglu?
Kona fingurbrotin og
marín eftír handtöku
— Enga kæru fengið segir lögreglust jóri
Nokkrar stimpingar áttu sér
stað á Keflavíkurveili á laugar-
dagskvöld á milli tveggja lög-
reglumanna og rúmlega fimm-
tugrar konu. Telur konan að
lögreglumennirnir hafi sýnt
óþarfa hrottaskap og sér all-
nokkuð á konunni eftir átökin
og er hún m.a. fingurbrotin og
marin víða og neglur brotnar.
Konan var við vinnu á vellin-
um á laugardag og hefur venju-
legan vinnupassa vegna þess.
Eftir vinnu fór hún að borða í
svokölluðum CPO-klúbbi en
þar þurfa klúbbfélagar að taka
ábyrgð á gestum sínum, og tók
einn varnarliðsmaður ábyrgð á
konunni. Um kl. 8 fór kónan úr
klúbbnum og i leigubil, sem
beið fyrir utan en skildi kápu
sína eftir í klúbbnum. Þegar
hún var setzt inn í bílinn komu
að tveir lögreglumenn og báðu
hana um passa. Hún afhenti
þeim passa sinn en þeir sögðu
það ekki vera nóg og þyrfti hún
að hafa gestapassa og væri því
ólögleg og skyldi koma með
þeim á lögreglustöðina. Konan
sagðist þá ætla að ná i kápuna
en þá var gripið um úlnliðina á
henni en hún spyrnti á móti.
Tveggja mánaða strit á að blómstra á
föstudaginn:
BUFFALO BILL ÞEIRRA
í FLENSBORGARSKÓLANUM
Menningarfélag Flensborgar-
skólans er stórtækt í verkefna-
vali. Annað árið í röð ræðst félag-
ið í það að sviðsetja viðamikið
leikrit. Fyrir valinu nú varð leik-
ritið Indíánar eftir Arthur Kopit í
þýðingu Óskars Ingimarssonar.
Frumsýning verður á föstudags-
kvöldið og þá blómstrar tveggja
mánaða látlaust starf 27 leikenda
og um 10 annarra nema sem hafa
unnið af kappi og mikilli sam-
vizkusemi við gerð búninga, leik-
tjalda og hinna margvíslegustu
leikmuna.
Leikritið skrifaði höfundurinn
á árunum 1966-68 og eru atburð-
irnir í Víetnam kveikjan að því.
Royal Shakespeare flokkurinn
frumflutti það í London 1968, ári
síðar var það sviðsett i Washing-
ton og Þjóðleikhúsið flutti það
1972-73 og nú er röðin komin að
Flensborgarskóla.
Leikritið fjallar um hlutskipti
Indíána og það hvernig réttur
minnihlutahópa er fótum troðinn
af þeim sem meira mega sín.
Aðalsöguhetjan, Buffalo Bill, er
vinur Indíánanna og góði strákur-
inn sem vill öllum vel og er
óendanlega hjálpsamur en verður
óafvitandi sá sem einna helzt
stuðlar að niðurlægingu
Indíánanna.
Ráðgerðar eru í fyrstu fimm
sýningar auk frumsýningarinnar
og verða þær frá 20.—27. nóvem-
ber. Sala miða og upplýsingar er
að fá í Flensborgarskóla, síma
53392.
- ASt.
Hún var þá tekin með valdi í
lögreglubílinn, dró annar lög-
regluþjónninn konuna inn í bíl-
inn en hinn ýtti en konan
streittist stöðugt á móti.
Síðan var farið með konuna á
lögreglustöðina en ekki var tek-
in skýrsla af henni. Konan
krafðist þess að tekin væri blóð-
prufa af sér þar sem hún hafði
lítið drukkið en vildi ekki vera
sökuð um að hafa verið ölvuð.
Því var ekki svarað. Konan
segir að bæði hún og lögreglu-
mennirnir hafi verið æst. Hún
var spurð hvert hún ætlaði að
fara að lokinni dvölinni á lög-
reglustöðinni og svaraði hún
því að þeim kæmi það ekki við.
Var þá haft á orði að stinga
henni inn en þó kom ekki til
þess.
Að þessu loknu fór konan til
læknis og þá kom í ljós að hún'
var brotin á þumalfingri hægri
handar og er með marbletti á
upphandlegg og neglur eru
brotnar. Konan er nú í gifsi og
veldur það henni erfiðleikum 1
starfi.
Dagblaðið bar þessa frásögn
konunnar undir Þorgeir Þor-
steinsson lögreglustjóra á
Keflavíkurflugvelli. Hann
sagðist kannast við að lögreglan
hefði verið fengin til að fjar-
lægja konu, sem var undir
áhrifum áfengis, frá umrædd-
um klúbbi. Konan hefði m.a.
klórað lögregluþjón í andliti.
Hins vegar hefði konan ekki
kært yfir neinni óþarfa vald-
beitingu til lögreglustjóraemb-
ættisins. „Það er þvl ekki hægt
að segja neitt um málið á þessu
stigi málsins. Rétt væri að
konan gæfi skýrslu um atburð-
inn áður en lengra er haldið,“
sagði lögreglustjóri.
- JH
Buffalo Bill Flensborgarskólans og fleiri á sviðsæfingu í Indíánum
ý. P tsl- .<*- />■ l|! l Táír ffl
1 1 )jÉr 1 w ■í\\ \ mm
J . i S| jLjlv',
IHI V. iámm m m m W W Á> P ;
9
✓
„VETRARSPORT 77”
Tveggja daga markaðurá nýjum ognotuðum vetrarvörum
Eskfirzkar húsmæður:
SALTA AF KAPPI
TVISTA Á EFTIR
Eskfirzkar húsmæður hafa
heldur betur látið hendur standa
fram úr ermum að undanförnu.
Og skapið hefur verið í bezta lagi,
eins og alltaf þegar síldin kemur.
Húsmæður hafa fengið vel borg-
aða aukavinnu svona rétt fyrir
jólin. Að meðaltali hafa þær
saltað 100 tunnur á viku, en það
gerir 100 þúsund krónu vikulaun.
Konurnar hafa neitað tíma-
vinnu sem karlmennirnir verða
þó að sætta sig við. Þykir mönn-
um hér eystra að jafnréttismálin
hafi snúizt við.
Að lokinni söltun hafa konurn-
ar átt það til að bregða sér á ball í
sínu bezta pússi. Þar er tvistað af
kappi. Austfirzkar konur láta
mikla vinnu engin áhrif hafa á
lífsgleði sína.
- Regína.
„Vetrarsport ’77“ nefnist
vetrarvörumarkaður sem Skíða-
deild iR efnir til á laugardaginn
og sunnudaginn. Er þetta gert að
fyrirmynd erlendis frá þar sem
slíkir markaðir eru árvissir at-
burðir.
ÍR-ingar bjóða upp á 500 fer-
metra salarkynni að Ármúla 21 í
húsi Vatnsvirkjans. Þar verður
opinn markaður fyrir alla þá sem
vilja selja eða kaupa notaðar eða
nýjar vetrarvörur, skíðabúnað,
skíðafatnað, hlífðarfatnað.
skauta, sleða o.fl. o.fl. Gefin verða
góð ráð og aðstoðað við verðlagn-
ingu.
Það er stöðugt vandamál fyrir
unglinga t.d., sem þurfa stærri
skíði og skó á hverju ári, eða
annað hvert ár, að fá sér nýtt á
sanngjörnu verði, því hér er oft
um vandaðan og dýran búnað að
ræða. Sumir hætta iðkun skíða-
eða skautaíþrótta og vilja losna
við góða hluti á sanngjörnu verði.
Margir liggja með dýrar og
vandaðar vetrarvörur, jafnvel
ónotaðar, í geymslum og á háa-
loftum en hafa ekki sinnt því að
selja þær þar sem slíkt kostar
umstang og fyrirhöfn.
Margir sem hafa veigrað sér við
iðkun vetraríþrótta vegna stofn-
kostnaðar ættu að eiga þarna
möguleika á að fá það sem þá
vantar á viðráðanlegu verði.
Markaðurinn er opinn á laugar-
daginn og sunnudaginn frá 2—7.
Munum er veitt móttaka á
fimmtudags- og föstudagskvöld
kl. 8—11 og eftir 10 á laugardag.
- ASt.
Próf kjör sjálfstæðismanna um helgina:
SV0NA Á AÐ BERA
Alþingisprófkjör Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík fer fram
dagana 19., 20. og 21. nóvem-
ber. Kjörstaðir verða 7.
Til þess að úrslitin í prófkjör-
inu verði bindandi fyrir kjör-
nefnd þurfa 8007 Reykvíkingar
að taka þátt í því og auk þess
þurfa einstakir frambjóðendur
að fá minnst 50% greiddra at-
kvæða.
Atkvæðisrétt hafa allir
stuðningsmenn D-listans í al-
þingiskosningþm sem náð hafa
20 ára aldri hinn 25. júní 197.
og eiga lögheimili í Reykjavík.
Meðlimir Sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík hafa atkvæðisrétt
ef þeir hafa náð 18 ára aldri á
fyrrgréindum tíma og eiga lög-
heimili í Reykjavík.
Nöfnum frambjöðenda er
raðað eftir stafrþfsröð á at-
kvæðaseðla. Kjösa skal fæst 8
V m. i wp—i- ............
frambjóðendur og flest 12 með
því að setja kross fyrir framan
nöfn þeirra sem óskað er að'
verði á endanlegum framboðs-
lista.
Samkvæmt framansögðu eiga
óflokksbundnir menn atkvæðis-
rétt í prófkjörinu en rétt er að
benda á mismunandi lágmarks-
aldur kjqsenda í því sambandi.
Skoðanakö'Viu'i
Samtímis prófkjörinu gefst
þátttakendum kostur á að taka
afstöðu til eftirtalinna mál-
efna:
1. Eruð þér hlynntur því að
rekstur útvarps verði gefinn
frjáls?
2. Teljið þér að lækka beri
kosningaaldur í alþingis- og
sveitarstjórnakosningum í
. 18 ár?
SIG AÐ VIÐ AÐ KJÓSA
3. Eruð þér hlynntur þvi að
varnarliðið taki þátt í kostn-
aði vegna þjóðvegagerðar
hér á landi?
4. Eruð þér hlynntur því að
leyfð verði bruggun og sala
áfengs öls á íslandi?
5. Eruð þér hlynntur því að að-
setur ráðuneytanna verði í
gamla miðbænum svo-
nefnda?
Laugardaginn 19. og sunnu-
daginn 20. nóvember verða
kjörstaðir opnir frá kl. 14—19.
Mánudaginn 21. nóvember
verður opinn kjörstaður í Val-
höll, Háaleitisbraut 1. kl.
13.30—20.30.
Sérstök upplýsingamiðstöð
verður "starfrækt á meðan kosn-
ing stendur yfir Upplýsinga-
síminner 82900.
Kjörstaðir —
kjörhverfi
1. KJÖRHVERFI: Nes- og Mela-
hverfi, Hringbraut, sem fylgir
hverfinu og öll byggð sunnan
hennar. Kiörstaður: KR-heimili
við Frostaxkjól.
2. KJÖRHVERFI: Vestur- og
Miðbæjarhverfi, öll byggð
vestan Bergstaðastrætis, Öðins-
götu og Smiðjustígs, sem fylgir
hverfinu og norðan Hring-
brautar. KJÖRSTAÐUR: Gróf-
inni 1.
3. KJÖRHVERFI: Austurbær,
Norðurmýri, Illíða- og Holta-
hverfi. Hverfið takmarkast af
1. og 2. kjörhverfi í suður og
vestur. Kringlumýrarbraut í
austur en að Laugavegi og
Skúlagötu i norður. sem fylgir
hverfinu. Kjörstaður:
Templarahöllin v/Eiríksgötu.
4. KJÖRHVERFI: Laugarnes-
hverfi og Langholt, öll byggð
norðan Suðurlandsbrautar og
hluta Laugavegs. Nefndar
götur fylgja ekki hverfinu.
Kjörstaður: Samkomusalur
Kassagerðar Reykjavíkur
v/Kleppsveg.
5. KJORHVERFI: Háaleitis-,
Smáibúða-, Bústaða- og Foss-
vogshverfi. Hverfið takmarkast
af Kringlumýrarbraut í vestur
og Suðurlandsbraut í norður,
sem fýlgir hverfinu. Kjörstað-
ur: Valhöll, Háaleitisbraut 1.
6. KJÖRHVERFI: Arbæjar- og
Seláshverfi og önnur byggð
Reykjavíkur utan EUiðaáa.
K.IÖRSTAÐUR: Coca Cola.
Draghálsi.
7. KJÖRHVERFI: Breiðholts-
hverfi. Öll b.vggð í Breiðholti.
Kjörstaður: Seljabraut 54.
- BS
V