Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1968, Síða 8
8
LANDSBÓKASAFNIÐ 1967
Ásgeir Svanbergsson Þúfum í Reykjafjarðarhreppi í N.-ísafjarðarsýslu gaf And-
ríkar kvöldbænir Josuae Stegmans og að auki handrit með vikusálmum.
Frú Soffía E. Ingólfsdóttir, ekkja Friðgeirs Bjarnarsonar stjórnarráðsfulltrúa, af-
henti þjóðskjalaverði og hann síðan Landsbókasafni gögn úr dánarbúi manns síns,
handrit kcmin úr fórum Skúla Markússonar frá Hj örleifshöfða. Má þar nefna m. a.
geysimikla ritgerð um Njálu í fimm bindum.
Dr. Þorsteinn Sæmundsson færði safninu að gjöf úr dánarbúi móður sinnar, frú
Svanhildar Þorsteinsdóttur, Kvæðabók með hendi Þorsteins Erlingssonar, þá hina
sömu, er Sigurður Nordal getur um á IV bls. formála síns fyrir útgáfu Þyrna 1918.
Sr. Albert E. Kristjánsson í Blaine í Washingtonríki, sem nú er á tíræðisaldri og
lengi hefur látið mikið að sér kveða meðal íslendinga vestan hafs, gaf hingað bréfa-
safn sitt og ýmis önnur gögn.
Arnór Sigurjónsson rithöfundur færði safninu frá sér og systkinum sínum eigin-
handarrit föður þeirra, Sigurjóns Friðjónssonar, og eru þar kvæði, sögur, ritgerðir
o. fl. Var á árinu, sem kunnugt er, öld liðin frá fæðingu Sigurjóns.
Dr. Þorsteinn Þorsteinsson, fyrrv. hagstofustjóri, afhenti ýmis gögn úr búi Brynj-
ólfs og Herdísar Benedictsen, en þau gögn höfðu verið í vörzlu Geirs rektors Zoega
og Bryndísar, konu hans, er var dótturdóttir Brynjólfs.
Þorsteinn afhenti ennfremur merkilegt safn bréfa til Geirs rektors.
Jón Gauti Pétursson á Gautlöndum sendi safninu nokkur bréf afa síns, Jóns al-
þingismanns Sigurðssonar á Gautlöndum, til Þorsteins Jónssonar sýslumanns í Þing-
eyjarsýslum og síðar Árnessýslu, en Gunnlaugur Þorsteinsscn á Kiðjabergi hafði senl
þau Pétri Jónssyni í Reykjahlíð 1921.
Af keyptum handritum skal þessara getið:
Frá Englandi var keypt Memoir on the Mineralogy of the Island of Iceland eftir
Sir Henry Holland (er var á íslandi sumarið 1810), eiginhandarrit, dagsett í Lissa-
bon 29. júlí 1812. Svo virðist sem Holland hafi flutt þetta erindi í Royal Academy
of Portugal. - Frá Danmörku voru keypt handrit nokkurra greina, er birtust á sínum
tíma í dönskum blöðum eftir Finn Jónsson, Guðmund Kamban, Gunnar Gunnarsson,
Jónas Guðlaugsson og Valtý Guðmundsson.
Hér fara á eftir nöfn þeirra manna, er gefið hafa eða afhent handrit á árinu 1967,
án þess að frá þeim handritum verði sérstaklega skýrt:
Frú Anna Eiríks, Reykjavík, Benedikt S. Benediktz bókavörður, Durham, Eiríkur
Benedikz sendiráðunautur, London, Dr. Finnur Sigmundsson, Reykjavík, Guðjón Ás-
geirsson Kýrunnarstöðum í Dalasýslu, Jón Emil Guðjónsson, Reykjavík, Dr. Krist-
inn Guðmundsson sendiherra, Moskvu, Snæbjörn Jónsson, fyrrv. bóksali, Englandi,
Dr. Steingrímur J. Þorsteinsson, Reykjavík, Sveinn Sigurðsson, fyrrv. ritstjóri, Reykja-
vík, Þjóðskjalasafn, Dánarbú Þorsteins Jósepssonar, Reykjavík, Þráinn Valdimarsson,
Vestmannaeyj um.
Landsbókasafn flytur öllum gefendum handrita beztu þakkir.