Alþýðublaðið - 10.10.1970, Page 1
„NOKKURS
ARABISK
VÍLARÁN
Lögmannafélagið
usn augiýsingar
dómarafulltrúa
Playboy og
ekki lengra
„Excuse me, sir“ sagSi banda-
riskur maður, sem vék sér að
einum blaðamanna Alþýðublaðs
ins í bókaverzlun í Reykjavik,
— „getur þú bent mér á hvar
Synjað
rj Samkvæmt greinargerð
sem iblaðinu barst í gær-
kvöldi frá Útihafi hf.. hefur
félaginu verið synjað um fyr-
irgreiðslu hins opinbera
vegna kaupa á tveimur skut-
togurum, sem (það haíði í
hyggju að kaupa. Al,þýðu-
blaðið mun skýra nánar frá
þessu xnáli eftir helgina. —
verzlunin er, sem selur pomo-
grafísk blöð?“
Að öllum likindum hefur
þessi bandaríkjamaður frétt af
slíkri verzlun frá félögum sín-
um á Keflavíkurflugvelli — en
engin bókaverzlun í núðbænum
gat veitt honum nokkra úr-
lausn.
Ekki virðast heldur likur á
að úr því muni rætast, því
Lárus Blöndal Guðmundsson,
formaður Félags íslenzkra bóka
verzlana, tjáði okkur að félagið
hefði strangar reglur um inn-
flutning blaða og bóka, nánast
siðareglur, sem gerðar væru í
samráði við tollstjóra og lög-
reglustjóra. IVIeð því liefðu ver-
ið dregnar ákveðnar línur, og
bóksalar yrðu án efa siðastir
mauna til að flytja inn í landið
Framhald á bla. 3.
„Fyrir tilstuðlan dómsmálaráðuneytisins hefir nú
risið upp ný stétt á meðal okkar, stétt genrilögmanna,
sem svo mætti kalla, lögfræðinga í þjónustu hins
opinbera, sem færa sér málflutningsréttindi sín í nyt,
án þess þó að fuilnægja ákvæðum f. nr. 61/1962 um
skrifstofur, flestir hverjir. Skrifstofa gervilögmanns-
ins er gjarna skrifstofa hins opinbera, þar sem hann
á að rækja vinnuskyldu sína gagnvart hinu opinbera.
Skrifstofutfmi gervilögmannsins er gjarna skrifstofu-
tími opinberu skrifstofunnar, þar sem hann vinnur.
Biðstofa gervilögmannsins er biðstofa opinberu skrif-
stofunnar. . . . Margir þessara gervilögmanna eru
handhafar dómgæzlu. Þeir gera sér lítið fyrir og skipta
um lit eftir hlutverki sínu eða umhverfi, eins og
kameljónið.“ ...
Úr Fréttabréfi L.M.F.I.
Tryggingar, neytendavernd og
ný stefna I landbúnaði -
efsf á baugi hjá AJþýðuflokknum i vetur,
| ] — Aðalviðfangsefni þings-
ins verður að sjállsögð'u, eins
og alltaf, að afgreiða fjárlög,
sagði Gylfi f*. Gíslason í gær, er
Alþýðublaðið hafði samband við
hann í tilefni þingsetningarinn-
ar í dag og spurðist fyrir um
helztu verkefni þingsins. — f
því sambandi er rétt að minn-
ast á, að væntaniegir launasamn
ingar við opinbera starfsmenn
liljóta að hafa veruieg átorif á
f jármálaafgreiðsluna, en ekki er
enn vitað, hver verður niður-
staða þeirra samninga.
Þá má búast við því, að lausn
verðbóiguvandamá'lsins komi
með einhverjum hætti ti'l kasta
Alþingis, en öllum er væntan-
lega ljóst, að nauðsyn'egt er að
stöðva snúning verSbólguhjóls-
ins með verðstöðvunarráðstöf-
unum. Um þiessi atriði er ein-
mitt verið að fjalla í viðræðum
rfkisstjórnarinnar, launþ’ega og
atvinnur'ekenda.
Um þau mál, sem Alþýðu-
flokkuránn myndi helat beita sér
fyrir á þinginu í vetur, sagði
Gylfi Þ. Gíslason:
segir Gylfi
— Aðalmál Alþýðufilokksins
í vetur mun verða að vinna að
allsherjarendurskoðun á al-
mannatryggingalöggjöfinni í því
skyni að auka tryggingabætur
og 'bæta skipulag trygginganna.
Koma til greina í því sambandi
breytingar á skattamálum og
h'eilbrigðisþjónustu.
Þá hefur Alþýðuflokkurinn á-
huga á því, að sett verði löggjöf
um málefni neytenda líkt og
tíðkast í nálægum löndum.
Ennfremur tel ég að stefnan
í landbúnaðarmálum hljóti að
koma ti'l umræðu, þar 'eð aldrei
hefur verið ljósara en einmitt
nú, að stefna sú, sem fyigt hef-
ur verið um áratuga skeið, hef-
ur orðið og er til óþurftar fyrir
bæði neytendur og bændur og er
íslenzkum skattborgurum allt
of dýr.
Á miðvikudaginn gekk stjóm
Lögmannafélags íslands á fund
Jóhanns Hafstein í síðasta við-
talstíma hans sem dómsmála-
ráðherra og ítrekaði ma. kröfa
þess efnis, að tiltekinn hæsta-
réttarlögmaður yrði sviptur
réttindum til málflutnings, en
upphaflega gerði stjóm félags-
ins þessa kröfu á s.l. vetri án
þess að henni hafi þó enn verið
sinnt af hálfu ráðuneytisins. —■
Meðal umkvörtunarmála, sem
stjóm lögmannafélagsins bar
fyrir dómsmálaráðherra, var
veiting málflutningsleyfa til
dómarafulltrúa. í samtali við
Alþýðublaðið segir formaður
Lögmannafélags íslands, að
stjóm félagsins líti svo á, að
auglýsingar dómarafulltrúa um
opnun lögfræðiskrifstofa séu
nokkurs konar arabisk flugvéla
rán eða þingeysk dýnamit-
sprengja til að vekja athygli á
liunzuðum málstað.
f viðtali blaðsins við Guð-
mund Ingva Sigurðsson, for-
mann Lögmannafélags íslands,
kemur fram, að lögmannafélag-
ið á undir högg að sækja við
dómsmálaráðuneytið tll að geta
veitt löpmönnum aðhald og
skapa eðlilegt traust almenn-
ings á lögmönnum, en dóms-
málaráðuneytið veiti mönnum
málflutningsréttindi í blóra við
vilja lögmannafélagsins.
„Það hafði reyndar staðið
lengi til, að stjóm lögmanna-
félagsins færi á fund dóms-
málaráðherra til viðræðna um
ýmis mál, sem að lögmönnum
snúa, og höfðu lent í útideyðu
hjá ráðuneytinu um afgreiðslu,
og minnast jafnframt á ný mál,
sem lögmannastéttin her fyrir
brjósti. Eitt þeirra mála, sem
livað efst hefur verið á baugi
hjá lögmönnum lengi, — ég vil
segja í mörg ár, — er sú ó-
svinna og siðleysi, að dómarar
og dómarafulltrúar geti stund-
að lögmannsstörf jafnframt
aðalstarfi sínu“.
Guðmundur sagði ennfrem-
ur: „Við kvörtuðum einnig
Frh. á bls. 11.
TOP - POP
í OPNU!
Frh. á bls. 11.