Alþýðublaðið - 21.03.1973, Page 1
alþýðu
iðvikudagur 21. marz 1973
66. tbl.
54. árg.
Læknar neituðu að
FORÐIZT
SLYSIN!
LAXÁRDEILA
ÚR SÖGUNNI
Stúlka þessi er persónugervingur herferöar gegn
siysum iÞýzkalandi, enda skartar hún öryggishjálmi,
hliföargleraugum og traustlegum vinnugalla, en minni
áherzia viröist lögö á fatnaö nær kroppnum. Mynd
þessi hefur veriö prentuö i þrem milljónum eintaka,
svo vinnandi menn sem viðast um Þýzkaland megi
njóta hennar.
Fulltrúar stjórnar
Laxárvirkjunar og land-
eigendafélagsins á Laxár-
svæöinu komust i gær að
efnislegu samkomulagi um
öll aöalatriði til lausnar
Laxárdeilunni.
Fulltrúar beggja aðila
sátu á stifum fundum i gær
og fyrradag og þeim lykt-
aði með fyrrnefndu sam-
komulagi.
Knútur Otterstedt, raf-
veitustjóri á Akureyri,
sagði i samtali við Alþýðu-
blaðið i gærkvöldi, ,,aö ekki
væri endanlega búið að
ganga frá samkomulaginu,
eftir væri að finpússa það
og bera það siöan undir
ýmsa aðila”, og bætti viö:
„Ég vona, að þessi deila sé
nú raunverulega leyst, og
þessu verði ekki hafnaö”.
Fulltrúar deiluaðila
undirrituðu samkomulagið
með upphafsstöfum sinum
og með fyrirvara um hugs-
anlega nákvæmara orðalag
og um samþykki stjórna
hvors aðila um sig.
Samkomulagið náðist á
grundvelli tillagna, sem
sáttamenn höfðu lagt fram,
þ.e. þeir Egill Sigurgeirs-
son, hrl., og ólafur Björns-
son, prófessor, en rikis-
stjórnin stóð á bak við til-
lögugerð þeirra.
Dómþing var sett I slysa-
deild Borgarspitalans i
fyrrinótt, eftir að tveir
læknar á vakt, neituöu aö
taka blóðprufu af manni,
sem grunaöur var um ölv-
un við akstur.
Samkvæiiit d ó m s ú r -
skurði, sem örn liöskulds-
son, fulltrúi sakadómara,
kvað upp um tvöleytiö, var
læknunum lokst gert aö
taka blóðprufuna, en þá
hafði staðið i stappi I nær
sjö klukkustundir. M.a.
voru Asgeir Friöjónsson,
fulltrúi lögreglustjóra, og
Bragi Ólafsson, aðstoöar-
borgarlæknir, tilkvaddir
vegna þessa máls, auk þess
sem tveir lögregluþjónar
viku ekki frá hinurn grun-
aða.
Forsaga ntálsins er sú,
að um kl. 19,30 i fyrrakvöld,
stöðvuðu lögregluþjónar
ferðir þess grunaöa, eftir
aö hann haföi verið kæröur
fyrir óöruggan akstur.
Lögreglumennirnir töldu
hann sýnilega drukkinn og
vildu færa hann til blóö-
prufu, en þaö vildi
maðurinn ekki. Hann var
þá fluttur á slysadeildina,
þar sem blóöprufur eru
yfirleitt teknar.
Neituöu þá læknarnir aö
taka prufuna, sem fyrr
segir, þrátt fyrir uppkveö-
inn hæstaréttardóm i svip-
uðu máli áriö 1958, sem
kveður á um, aö læknum sé
skylt aö taka blóöprufur.
Þess iná geta, aö læknar
liafa hingað til veriö á móti
þeim dómi, þar sem þeir
segja hann brjóta i bága
viö siöareglur lækna.
Visuöu læknarnir til 41.
greinar laga um meöferö
opinberra mála. Þar segir
m.a. að mönnum sé skylt
að veita rannsóknardóm-
ara og lögreglumönnum
lið, i þarfir opinberrar
rannsóknar. Einnig segir,
að undanþegnir skyldunni
séu nánustu vandamenn
sökunauts.
Þaö er aö frétta af hinum
grunaöa, aö hann var yfir-
heyrður i sakadómi i gær,
og neitaði þar aö hafa ekiö
undir áhrifum áfengis,
þrátt fyrir vitni tveggja
lögregluþjóna, uin aö hann
hafi sýnilega veriö drukk-
inn og óviökomandi aöili
hafi kært hann fyrir
óöruggan akstur.
Maðurinn hefur nú verið
látinn laus, og er beðið
niöurstöðu blóðrannsókn-
ar. Hins vegar er þess að
gæta, að maðurinn fékk
hátt i sjö klukkustunda
„forskot”, á meöan deilan
um blóðprufuna stóö. —
Þátturinn
frægi í
Kanasjón-
varpinu á
fimmtudag
Sjónvarpsþáttur Bob
Hope, þar sem Bobby
Fischer kemur fram,
verður á dagskrá Kefla-
vikursjónvarpsins
klukkan 19:00
fimmtudag.
Þáttur þessi var tek-
inn upp skömmu eftir að
Fischer kom heim til
Bandarikjanna ný-
bakaður heimsmeistari
i skák frá tslandi og
bregður Bob Hope sér i
rússneskt gervi and-
spænis honum við skák
borðið. t þætti þessum
kemur og fram sund
kappinn Mark Spitz
sem um likt leyti kom
heim hlaðinn verð-
launapeningum frá
Olympiuleikunum
Munchen. Spitz sýnir þó
ekki sundhæfileika sina
i þættinum, heldur
tannlækniskunnáttu.
Alþýðublaðið hafði
samband við Jón Þórar
insson hjá sjónvarpinu
„Við spurðumst fyrir
um þennan þátt á sinum
tima”, sagði Jón. „En
hann var svo óheyrilega
dýr, að það náði engri
átt fyrir okkur. Þessi
þáttur verður þvi ekki
sýndur i islenzka sjón
varpinu”.
Enn hækkar
sá guli í
verði
vestra
Bandariskir sérfræð-
ingar spá þvi að sögn
Herald Tribune, að inn-
fluttur fiskur hækki i
verði á Bandarikjamark-
aði um allt að 10% á
næstu vikum, en Banda-
rikjamenn flytja árlega
inn yfir 80% þess fiskmet-
is, sem þeir neyta.
Sérfræðingarnir segja,
að þessi hækkun á næstu
vikum verði aðallega
vegna gengisfellingar
dollarans. Þrátt fyrir
þessa hækkun til viðbótar
miklum hækkunum á siö-
asta ári, mun fiskur enn
um sinn standast sam-
keppni við kjöt, hvaö
verðlag snertir.
Dómþing á slysadeildinni að nóttu til