Alþýðublaðið - 21.03.1973, Blaðsíða 3
Þeir hika
ekki við að
auglýsa
VARID YKKUR Á
LÓÐABRÚSKURUNUM!
HLATUR
Illæiö að mér! segir
leikkonan I)onna
Reading —■ en til þessa ,
liefur karlinönnuni
orðið tiðræddara uin
að 11110 væri fögur,
kynæsaudi og þar
frain eftir götunum.
Nú hefur hún bætt nýj-
um hæfileika við safn
sitt — gamanleik.
Þessa stundina leikur
hún i stykkinu:
„Liggðu ekki þarna,|
segðu eitthvað”. Og
hvað segið þið um
Raðhiísalóð í Breiðholti
á góðum stað til sölu.
Tilboð send;st^BI. merkt:
Ekki erú lóðabraskarar alveg
dottnir uppfyrir enn, þrátt fyrir
stórhert eftirlit borgarinnar. Ný-
lega birtist t.d. auglýsing i einu
dagblaðanna, þar sem raðhúsalóð
á góðum stað i Breiðholti var aug-
lýst til sölu gegn hæsta tilboði.
bað mun þó harla fátitt að
braskarar þessir auglýsi svo
opinberlega, heldur fara viðskipt-
in fremur fram bak við tjöldin.
Samkvæmt upplýsingum, sem
blaðið fékk á skrifstofu borgar-
verkfræðings, getur verið stór-
varasamt að verzla við þessa
braskara, þvi þeir geta allt eins
selt fleiri en einum sömu eign-
ina. Liggur.það i þvi, að nú fást
lóöarsamningar ekki lengur fyrr
en hús á lóðinni er fokhelt. Selji
braskarinn lóðina án þess að hafa
byggt á henni, verður sá, sem
byggir, að byggja i nafni braskar-
ans, en þegar húsið er fokhelt,
getur braskarinn allt eins selt það
öðrum.
Ekki var skrifstofunni kunnugt
um verulegt lóðabrask i borginni,
en staðfesti þó, að þrátt fyrir hert
eftirlit hefði ekki algerlega tekizt
að koma i veg fyrir það. —
þetta gerdist uka
Enginn fiskisamningur —
enginn viðskiptasamningur
„betta kemur mér ekki á ó-
vart, þar sem ég hef alltaf búizt
við þvi, að á þetta atriði myndi
reyna. baðhefur reyndar legið i
augum uppi nú lengi”, svaraði
Einar Ágústsson, utanrikisráð-
herra, þegar Alþ.bl. spurði hann
i gærkvöldi um viðbrögð hans til
tilkynningu Efnahagsbanda-
lagsins þess efnis, að sá hluti
viðskiptasamningsins við ís-
lands, sem að sjávarafurðum
lýtur, muni ekki taka gildi, fyrr
en „lausn hefur fundizt i land-
helgisdeilunni’.
Utanrikisráðherra vildi ekki
gefa neinar upplýsingar um
efnisatriði þeirra nýju hug-
mynda Breta um bráðabirgða-
lausn, sem fram komu i viðræð-
um brezka sendiherrans og ráð-
herrans, en sagði, að rikis-
stjórnin hefði ákveðið að halda
áfram viðræðum við sendfherr-
ann.
ÞEIR DAÐRA VID HUGMYND-
INA UM 400 ÞÚSUND TONN
bað hefur verið heldur dauft yf-
ir loðnuveiðunum tvo siðustu
sólarhringa. Um kvöldmatarleyt-
ið i gærkvöldi höfðu 12 skip til-
kynnt afla, samtals 3100 lestir, en
sólarhringinn á undan hafði afl-
inn verið 4150 lestir. Heildaraflinn
er þvi farinn að nálgast 370 þús-
und lestir á vertiðinni, og ekki öll
von úti að takist að veiða 400 þús-
und lestir. .
☆
t gær voru flest skipin á veiðum
á svæðinu frá Ingólfshöfða vestur
að Vestmannaeyjum. A öðrum
svæðum var veiði sáralitil.
bróarrými er nú nægjanlegt
allstaðar á landinu.
Heimir SU var með mestan afla
gær. 440 lestir, Loftur Baldvins-
son EA var með 400 lestir og
Hilmir SU var með 360 lestir.
Kæra sig hreint
ekkert um út-
flutning á ostum
„Stefna okkar er að flytja sem
minnst út af mjólkurvörum, eða
aðeins það sem framleitt er um-
fram innanlandsþörfina, og á-
stæðan fyrir þvi að útflutningur-
inn dróst saman á siðastliðnu
ári er sú, að innanlandsneyzlan
jókst”, sagði óskar H. Gunnars-
son, framkvæmdastjóri Osta- og
smjörsölunnar, þegar Alþýðu-
blaðið innti hann eftir hverju
það sætti, að útflutningur
mjólkurvara var 53 milljónum
króna minni i fyrra en árið áður.
Innanlandssalan jókst um 105
milljónir og var samtals 907.5
milljónir króna.
Talsverð aukning var á sölu
bitapakkaðra osta, eða 36%, og
sagðist óskar þakka mikilli
fræðslustarfsemi og kynningu á
ostum þá aukningu.
Mest var framleitt af smjöri á
árinu, eða 1582 tonn fyrir innan-
landsmarkað, en 77 tonn til út-
flutnings, og er minnkunin aðal-
lega þar. 1034 tonn voru fram-
leidd af osti fyrir innanlands-
markað og 937 til útflutnings, en
mest var flutt út af nýmjólkur-
dufti, 402 tonn, — aðeins 44 tonn
voru seld innan lands. Ný-
mjólkurduftið er aðallega selt
til Bretlands og býzkalands.
Sameinast um söluumboð
Flugfélag Islands og Eimskipafélag Islands'h.f. hafa undirritað
samning um að Flugfélag tslands taki að sér aðalsöluumboð fyrir
Eimskipafélag tslands i Oslo, Stokkhólmi og London og ennfremur
söluumboð i Glascow, Kaupmannahöfn og Frankfurt.
Samtimis gerðu félögin með sér annan samning um farþegaflutn-
inga með skipi aðra leiðina og flugvél hina.
Illlllllllllll Framsóknarflokkurinn feigur segja SUF-menn
„Tviskinnungur boðar feigð
Framsóknarflokksins” segir i
millifyrirsögn i grein á síðu ungra
framsóknarmanna i Timanum i
gær.
Greinin er skrifuð i tilefni af
þeim skoöunum, sem fram-
sóknarþingmennirnir Jón Skafta-
son og Björn Pálsson létu i ljós á
fundi i Framsóknarfélagi
Iieykjavikur um varnarmálin, en
þar lýsti Jón Skaftason þvi yfir,
að hann teldi, „að varnarliðið ætti
ekki að hverfa af landinu”.
Aðalfyrirsögn greinarinnar
var: „Tek ekkert mark á sam-
þykktum flokksþings! ”. Eru
þessi orð höfð eftir Birni Páls-
syni, sem nefndur er „Húnvetn-
ingaþingmaður”, en hann mun
hafa farið háðulcgum orðum um
„andstæðinga hersetunnar”.
Segir i greininni, að Jón Skafta-
son hafi tekið undir ýmislegt i
ræðu „Húnvetningaþingmanns-
ins”, m.a„ ,,að menn tækju ekki
þátt i atkvæðagreiðslum né held-
ur mikHbmark á samþykktum
flokksþings!!
Höfundur greinarinnar, sem
ekki er tilgreindur, en greinin er
birt á ábyrgð stjórnar Sambands
ungra framsóknarmanna, veltir
þvi siðan fyrir sér, hvort ástæða
sé fyrir unga framsóknarmenn að
sækja næsta flokksþing Fram-
sóknarflokksins, og spyr, „hvaða
gagn.sé að fjölmennum og há-
vaðasömum fundum flokksins,
þar sem talað er frjálsum orðum
um áhrif hins óbreytta flokks-
manns, þegar sjálfskipaðir ein-
ræðisseggir iáta skoðanir flokks-
manna sem vind um eyru þjóta”.
©
Miövikudagur 21. marz 1973