Alþýðublaðið - 21.03.1973, Síða 12
BANN
Lögbann var i gær lagt á
fundarboöanir, útgáfu félags-
skirteina og innheimtu félags-
gjalda Guðmundar Bergssonar,
Árna Markússonar, Einars
Hannessonar, Haraldar Henrys-
sonar, og Ólafs Hannibalssonar
eða Steinunnar Harðardóttur, i
nafni Samtaka frjálslyndra i
Reykjavik.
Var gerðarbeiðendum Bjarna
Guðnasyni alþm. og fleirum gert
að setja kr. 75.000.00 i tryggingu
og var hún lögð fram i réttinum.
Lögbannið er, eðli sinu sam-
kvæmt, aðeins bráðabirgðaráð-
stöfun, og fellur niður, ef ekki
verður innan viku höfðað
staðfestingarmá1 fyrir
Bæjárþingi Reykjavikur.
Lögbannsúrskurð kvað upp Jón
P. Emils, fógeti i málinu.
Fundur Samtaka frjálslyndra i
Reykjavik i gærkvöldi samþykkti
samhljóða að breyta nafni félags-
ins i „Samtök frjálslyndra og
vinstri manna i Reykjavik”. Eins
og sagt var frá hér i blaðinu i gær
var lögð fram beiðni um lögbann
við boðun þessa fundar, og
annarra athafna þeirrar stjórnar,
sem fundinn boðaði,en það voru
Guðmundur Bergsson og fleiri.
Lögbannsbeiðendur voru Bjarní
Guðnason, alþm., og aðrir, sem
upphaflega voru kosnir i aðal-
stjórn Samtaka frjálslyndra i
Reykjavik.
Gerðarþolar, Guðmundur
Bergsson og upphaflega kosnir
menn i varastjórn félagsins, báðu
um frest til greinargerðar. Fóget-
inn, Jón P. Emils veitti frestinn
og kom þvi beiðnin ekki til
úrskurðar fyrir hinn boðaða fund
i fyrrakvöld.
Klukkan fjögur i gær var
fógetaréttur settur á ný. Lagði
lögmaður gerðarþola, Hörður
Einarsson, hrl. fram greinargerð
og Ijósrit úr fundargerðarbók, og
lögmaður gerðarbeiðenda, Logi
Guðbrandsson hrl. fleiri réttar-
skjöl. Var siðan gert hlé á réttar-
haldinu. Að loknum fresti til at-
hugunar á framlögðum gögnum
fór fram munnlegur málflutning-
ur, þar sem lögmenn aðila
útlistuðu og itrekuðu gerðar
kröfur.
Meðal annars, sem kom fram i
málflutningi gerðarþola, var þvi
lýst yfir, að Guðmundur Bergs-
son, hefði tekið við formanns-
störfum, sem kjörinn varafor-
maður. Hann hefði kvatt til
stjórnarstarfa þá varamenn, sem
kjörnir hefðu verið af aðalfundi,
til þess að gegna þeim störfum, ef
kosnir aðalmenn i stjórn sinntu
ekki lengur stöðum sinum i fé-
lagsstjórninni. Til þessa hefði
einmitt komið, er þeir neituðu að
vinna með Guðmundi sem for-
manni, eftir að Bjarni Guðnason
,,hafði haslað sér völl utan félags-
ins” eins og orsökin fyrir brott-
vikningu Bjarna var orðuð á sín-
um tima.
Var þvi lýst yfir, að
Guðmundur og hans stjórn hefði
verið reiðubúin til að vinna að
málum félagsins með gerðar
beiðendum.
Með hliðsjón af félagslegum og
pólitiskum hagsmunum taldi lög-
maður gerðarþola rétt að áskilin
yrði veruleg fjártrygging.
Gerðarbeiðandi taldi, að það
væri ekki hlutverk fógeta-
réttarins að meta efnisástæður
málsins að öðru leyti en þvi, sem
tæki til afstöðunnar til lögbanns-
beiðninnar.
Má nú vænta þess, að stefnt
verði til staðfestingar á lögbann-
inu fyrir Bæjarþingi Reykja-
vikur, og málið verði þar efnis-
lega sótt og varið.
KÓPAVOGS APÓTEK
Opið öll kvöld til kl. 7,
nema laugardaga til
kl. 2, sunnudaga milli
kl' 1 09 3 Sími40l02.
Framkvæmdanefnd bygg-
ingaráætlunar hefur ákveðið að
taka tilboði Breiðholts hf i bygg-
ingu 314 nýrra ibúða fyrir
nefndina. Breytingartilboð
Breiðholts hf sem gerir ráð fyrir
steyptum innveggjum, var 242
milljónir og 600 þúsund krónur,
en tilboð Istaks hf i.verkið var
242 milljónir. Þetta er sjötti og
siðasti áfangi byggingáráætl-
unarinnar.
Við töldum rétt að taka hærra
SBNDIBIL AS1ÖDIN Hf
tilboðinu i þessu tilfelli, þvi
Breiðholt hf. hefur byggt fyrir
okkur frá upphafi áætlunarinn-
ar, og mun i lok hennar hafa
skilað tæplega 1200 ibúðum”,
sagði Eyjólfur Sigurjónsson for-
maður framkvæmdanefndar i
samtali við Alþ.bl. i gær.
Vinnulaun voru lægri i tilboð
Istaks en hjá Breiðholti. Hins
vegar var efniskostnaður minni
hjá Breiðholti.
Henni fannst það ekki nógu
lifandi að standa yfir pottunum i
Vestmannaeyjum, Eyjastúlk-
unni Sigriði Högnadóttur, og
bað þvi um að verða flutt úr
mötuneytinu og út á Skansinn til
að sprauta vatni.En þar þótti
karlmönnunum hún heldur djörf
i baráttunni við hraunið, svo
hún var sett i simavörzlu á
Skansinum á daginn, en samt
sem áður gengur hún á hólm við
hraunið. Á kvöldin slæst hún i
hóp þeirra, sem koma slöngun-
um fyrir uppi á gamla hrauninu
til að kæla niður nýju hraun-
tungurnar — það verk fram-
kvæmir sérstök vakt klukkan
8—12.
,,Patton hafði litla trú á mér
til að byrja með”, sagði Sigrið-
ur’ þegar Alþýðublaðið hafði tal
af henni i gær, ,,en ég held að
hann hafi skipt um skoðun”.
Sigriður verður 17 ára gömul i
haust og lauk landsprófi i fyrra
og ætlaði að safna sér fyrir
skólagöngu til að geta farið i
Myndlista- og handiðaskólann
næsta vetur, ,,en það verður
varla af þvi strax”, sagði hún.
„En það gerir ekkert til, það
verður fyrst að bjarga Eyjum,
— og ég ætla að vera heima,
hvaðsem á dynur”, og hún varð
ákveðin i röddinni, svo enginn
gat efazt um að hugur fylgdi
máli.
MÆLARNIR GEFA VISBENDINGU UM
AD GOSID KUNNIAD VERA (RÉNUN
Fyrsta visbendingin um það, að j
gosið i Vestmannaeyjum kunni að
vera i rénun gerði vart við sig
klukkan sex i fyrrakvöld en þá
sýndu siritandi mælar i Eyjunum
minni titring á jarðskorpunni en
nokkru sinni hafði mælzt áður, og I
var hann þá tiu sinnum minni en |
hann hefur lengst af verið frá
byrjun gossins. Einnig hefur
rúmtak hraunrennslisins verið tiu
sinnum minna sl. hálfan mánuð
en það var jafn langan tima áður.
Sveinbjörn Björnsson eðlis- I
ífræðingur, hjá Raunvisindadeild
Háskólans, sagði við Alþýðublað-
ið i gær kvöldi, að haldi jarð-
skorpan áfram að vera svona ró-
leg vakni miklar vonir um, að
gosið fari rénandi, en þetta
ástand sýni, að átökin i gignum og
hraunrásinni i hann, séu minni en
[nokkru sinni fyrr.
i Alþýðublaðið bar þetta einnig
undir Sigurð Þórarinsson jarð-
fræðing, og sagði hann, að alla-
vega væru þetta ekki merki um,
að nýr gigur væri um það bil að
myndast, þá ættu mælarnir að
sýna aukinn titring. Að öðru leyti
vildi hann ekkert um þetta segja,
þar eð hann fór ekkert til Eyja i
gær.