Lesbók Morgunblaðsins - 30.12.1973, Side 23
Su*HK
W, Amlntr, Baykjavlk
mnkvjtJ.: HaiaHhur BrtfMm
mtatjAnr: t>j)inin»ri
BttstJjtltr.: Gidt lÍffwttcMa
AaitNiiav: Aml Gu«u Kiirttnma
Bttrtjéra: Alalstratt C. Bfari ifflM
Fötin hans Putta
Framhald af bls. 12
Segðu Putta að koma eins og
skot heim. Ég vil ekki hafa
þessi læti. En strákurinn sagði:
Putti kemst ekki heim, hann er
fastur i snjónum, snjóhúsið
okkar hrundi ofan á hann.
Mamma Putta sagð: Ég held
að hann sé að segja satt, við
skulum fara og athuga þetta
Þau klæddu sig og lögðu al
stað. Loksins komu þau svo
þangað, og sáuaðþaðvarsatt.
Allir fóru að grafa frá honum.
Putti sagðst verða að fara til
Sínu saumakonu til að fá ný
föt, en mamma hans sagði að
hann ætti aðfara heim og beint
í rúmið. Putti var einn dag í
rúminu því að hann var með
svo mikið kvef. Á meðan saum-
aði mamma hans jólasveinaföt
og poka handa honum sem
hún gaf honum þegar hann
kom á fætur. Mikið var hann
Putti glaður því að nú gat hann
farið til byggða með hinum
jólasveinunum.
Halla Margrét
Tryggvadóttir,
Vesturbergi 28.
Minningar frá Æðey
Framhald af bls. 9
eldri, hélt sig úti á sjó langt frá
henni.“ Vissulega hrífandi
undantekning.
Allt frá upphafi hafði ég lifað
og hrærzt í hinum auðuga fugla-
heimi í Æðey. Hver dagur bauð
upp á nýja, eggjandi viðburði.
Stundum sögðu börnin mér i
hrifningu sinni frá því, að þau
hefðu fundið sérstaklega áhuga-
vert hreiður, eða þá sérkennileg
egg, sum óvenjulega stór. Stund-
um komum við auga á fálka, sem
gerði skyndiárás á eyna og greip
þar lunda eða kriu, sem verpir
þar þúsundum saman. Einar,
fimmtán ára, skarpskyggn piltur
með lifandi áhuga og ást á fuglun-
um og háttum þeirra, var mjög
hjálplegur. Það var Stefán lika,
sumardrengur úr Reykjavík, sem
var vanur þvf að vera mér til
aðstoðar við daglegar merkingar á
kriuhreyðrum. Þá skal ekki
gleymd góðvild og þolinmæði Jón-
asar* elzta sonar Helga, sem var
sérfræðingur í öllu, sem laut að
bátum, eða Guðmundar, sem var
mfn önnur hönd á Snæfjallaheiði,
þar sem mér tókst að mynda fálka
i hreiðri.
Og nú voru þessir hamingjudag-
ar liðnir, næstum áður en ég vissi.
Nú lifa þeir aðeins i endurminn-
ingunni. öll gestrisnin, vináttan
og ástúðin, sent ég naut í Æðey,
mun fylgja mér, það sem eftir er
ævinnar, ótal myndir af fuglum
og blómum, fjöllum, er skuggar
leika um, glitrandi fossum og
lygnum stöðuvötnum, sem spegla
sjálfan himininn.
Er nokkur þarna úti?
Framhald af bls. 15
Enn sem komiðer höfum viðenga
slíka vitneskju.
Allt þetta gerir fyrirfram ráð
fyrir tilvist pláneta af „jarðarteg-
und“. Það er að segja pláeta,
sem eru eða voru áþekkar frum-
jörðinni með heilmiklu af vatni,
metani og ammóníaki. Eins og
jörðin er nú, með 20% af súrefni í
gufuhvolfinu, myndi hún ekki
geta framþróað líf. Einföldu efn-
in, sem eru fyrsta skrefið á braut-
inni til lífs, myndu aldrei koma
fram. Þau myndu umhverfast í
koltvísýring, köfunarefni og
vatn. Við höfum aðlagað
okkur að súrefninu og meir
að segja þörfnumst við
þess til að geta verið til.
Á hinn bóginn gæti súrefnisgufu-
hvolf verið ábending um tilvist
þróaðs lífs, vegna þess að við trú-
um því, að öbundið súrefni f gufu-
hvolfi okkar sé árangur ljóssam-
tengingar platna í óralangan
tíma (ljóssamtenging plantna er
hæfileiki þeirra til að binda sam-
an koltvísýring og vatn, þannig að
sykurtegundir (orkugjafar)
myndist, en við þetta losnar súr-
efni úr læðingi. Þýð.).
Líf á öðrum plánetum?
Þegar möguleikinn um tilveru
lífs á plánetum af „jarðartegund"
er nefndur, fara hugsanir okkar
strax út fyrir þau mörk og spyrja
um plánetur, sem ekki líkjast
jörðunni. Jæja, hvað með þær?
Við erum i þeirri óheppilegu að-
stöðu að hafa aðeins eitt
sýnishorn,, okkur sjálfa,
og verðum ' að gera
an flokk — lif. Þetta erstáðreynd,
sem þeir, er afneita tilveru lifs
annars' staðar, gleyma sér til
hægðarauka. Grein, sem gerði
slíkt hið sama viðvíkjandi ein-
hverju öðru viðfangsefni, myndi
verða vísað á bug í styttingi af
hvaða vísindariti sem væri. Samt
sem áður eru til prentaðar grein-
ar, sem staðhæfa í reynd „við
erum óviðjafnarlegir", eða„við er-
um einu vitsmunaverurnar i al-
heiminum". Þetta hljómar tals-
vert, álika og gamla hrópið „við
erum í miðju alheimsins."
í sólkerfi okkar hefur plánetan
Júpíter aðstæður, sem eru harla
frábrugðnar þeim jarðnesku.
Júpíter er stærsta plánetan og
hún er tiltölulega nálæg. Þess
vegna er hún hentugt viðfangs-
efni til rannsókna. Lofthjúpur
hennar er að mestu leyti vatns-
efni og helíum, en í honum eru
einnig metan og ammónfak og e.t.-
v. vatn líka. Til þess að svara
spurningunni um möguleikana á
lífi þar er nauðsynlegt að fram-
kvæma eftirlíkingartilraunir
áþekkar þeim, sem gerðar eru á
„frumjörðinni", af því að ennþá
getum við ekki heimsótt Júpíter.
Ástandið getur breytzt ef f járveit-
ing verður veitt til flugs framhjá
Júpfter og Satúrnusi, sem ráðgert
er siðar á þessum áratug.
Gerð tilrauna þessara krefjast
nokkurrar fyrirfram l>ekkingar
um aðstæður á Júpíter. Sam-
kvæmt okkar beztu vitneskju.
sem þvf miður er fremur
ófullkomin, eru allmörg
skýjalög f lofthjúpnum, þau eru
samsett úr ammónfaki og
trúlega vatni (hin lægri). Lög-
in smábreytast í vatnsefn-
ishjúp. er eykst hratt að þétt-
leika eftir því sem neðar dregur
og rennur saman við „haf“ úr
fljótandi vatnsefni, sem að lokum
verður að ,,yfirborði“ úr föstu eða
málmkenndu vatnsefni. Þar eð
hitinn hækkar ört eftir því sem
neðar dregur myndi allt líf á Júpf-
ter sennilega takmarkast við efri
lög lofthjúpsins (ekkért lff fær
þrifizt við 2500° C, ekki einu sinni
fræðilega!).
Eftirlíkingartilraunirnar voru
hafnar fyrir nokkrum árum c®
gáfu þær upplýsingar, að efna-
fræðileg framþróun (myndun
fló.kinna efna úr einföldum) ætti
sér í raun og veru stað á Júpíter.
Þetta er fyrsta skrefið í framþró-
un lífs. Efnin, sem myndast, eru
ekki þau sömu og við frumjarðar-
aðstæður, vegna þess að tilraun-
irnar voru gerðar í vatnssneyddu
umhverfi. 1 staðinn fyrir amínó-
sýrur mynduðust nítríl. En þegar
þau voru hituð í vatni komu fram
amínósýrur áþekkar þeim, sem
gert er ráð fyrir að hafi skapazt á
jörðunni áður en lífið hélt innreið
sina. (NTtríl eru efni, sem eru
beinlínis leidd af blásýru, en blá-
sýran er einmitt það efni, sem
fyrst kemur fram i öllum slíkum
tilraunum, hvort sem um ræðir
eftirlíkingar á frumjarðaraðstæð-
um eða Júpítersaðstæðum. Því
virðist blásýran vera lykilefni i
þróun þeirri, er getur af sér líf,
sbr. formálsorð. Þýð.). Þegar við
rýnum eftir kjarnasýrubösum
rekumst við á takmörk núverandi
þekkingar. Það lítur mjög svo út
fyrir, að kjarnasýrubasar myndist
í raun og veru, bæði vegna efna-
fræðilegra ályktana svo og lik-
indasannana, en ennþá hefur eng-
inn raunverulega fiskað kjarna-
sýrubasa upp úr súpunni eftir
slíka eftirlikingartilraun á loft-
hjúpi Júpiters. Illuti líkindasann-
ananna er reistur á útfjólubláum
litrófum uppskeru þeirrar, er
fæst úr ofangreindum tilraunum
— litrófin benda til nærveru
arómatískra efna. (Sagt á mjög
breiðum grundvelli eru arómatísk
efni hringtengd lífræn sambönd
og kjarnasýrubasarnir falla í
þennan annars sundurleita flokk.
Þýði). Undir útfjólubláum lampa
glóa efnin með skærum bláum
bjarma, (sem er einkennandi
fyrir mörg arómatisk efni. Þýð.).
Sumt af líkindasönnununum
snerta Júpíter ekki hið minnsta,
heldur rykið i rúminu milli
stjarnanna svo og loftsteina.
Rykið inniheldur sum af efnum
þeim, er liggja lifinu til grund-
vallar, og það sama á við um geim-
gasið. Svo langt sem við getum
séð virðist allur geimurinn vera
hlaðinn „líffræðilegum" efnum.
Sýnt hefur verið fram á, að loft-
steinar innihalda vissa pýri-
mfdína (þetta eru kjarnasýru-
basar, þýð.) og að þeir innihalda
einnig ósannkennd efni svipuð
þeim, sem hafa verið einangruð
úr Júpítereftirlíkingartilraun-
um. Ef tjörur af JúRiter-tegund
innihalda nokkra af þeim heteró-
sýklum (tilheyra arómatísku sam-
böndunum og eru oft afar mikil-
væg efni lifefnafræðilega, þýð.),
sem einnig er að finna í loft-
steinum, því það ekki einnig pýri-
mfdína og púrína? (Púrinar telj-
ast einnig til kjamasýrubasanna.
Þýð.). Sömu efnahvörfin eiga sér
stað á báðum stöðum. Þótt sann-
anir þessar séu afar yfirborðs-
kenndar ætti ekki að líða á löngu
þar til eitthvað haldbetra kemur
fram.
Þar eð efnahvörf þau, er að
lokum leiddu til lífs á jörðinni,
virðast einnig eiga sér stað á Júpi-
ter svo og f þokum þeim, sem
loftsteinarnir urðu til úr, er þá
ekki líklegt, að þau eigi sér stað á
sérhverri plánetu þar sem metan,
ammóníak og orka eru fyrir
hendi? Efnahvörf eru efnahvörf
— þau hirða ekki urn, hvar þau
eiga sér stað, ef skilyrðin eru rétt
þá fara þau bara í gang. Júpíter
er aðeins umtalsverður af þvf að
svo vill til, að hann er nálægur og
þægilegur. Við höfum áhuga á
lífi, hvarsem það er.
Niðurlag í næsta blaði.
Velgengni mín í
Rúmeníu
Framhald af bls. 19
fundvís á krár og knæpur og aðra
þá staði, sem nokkuð fæst til
drykkjar. Einn morgun snemma
var ég á ferð í þungum þönkum
hugsandi stinnt um mannlífið,
sem ég var ekki alveg sáttur við
þessa stundina og mátti þar um
kenna kvöldinu á undan. Sem ég
nú reika þarna um stóran útiveit-
ingastað, þar sem verið var, eftir
því sem afgreiðslufólk vaknaði,
að smáopna ýmsar skonsur, verzl-
anir og veitingasölur, sé ég hvar á
einum stað lokur eru dregnar frá
hlerum og sér þar inní lítinn bar.
Þar inni sat maður viðeinkenni
lega iðju. Hann hafði i höndum
tvo litla skaftpotta með löngum
sköftum og skók þá ákaflega til i
glóðhituðum sandi. Þetta var
Tyrki að laga tyrkneskt kaffi.
Nú þarf nátturlega ekki að orð-
lengja það, að ég kom að máli við
þennan mann, þar sem mér sýnd-
ist að hann myndi geta breytt
viðhorfum mfnum til mannlifsins.
Hann skenkti sitt indæla og rót-
sterka kaffi, það er með korginunt
i, og koniaksstaup með, áður en ég
náði að biðja um bað. Svona var
hann klár í sjúkdómsgreining-
unni. Hann lét veitingarnar á bar-
diskinn, ég ætlaði að taka þær og
setjast við borð úti i garðinum
eins og til stóð. En þá snýst hon-
um skyndilega hugur, eftir að
hafa virt mig vandlega fyrir sér.
Ég er með höfðinglegt yfirvara-
skegg, ekki ósvipað Hindenburg
gamla og öðrum prússneskum
generálum og það gæti hugsazt að
Tyrkinn hafi haldið að ég væri
prússneskur generáll afturgeng-
inn og mér bæri að sýna virðingu
umfram aðra gesti — mér likarsú
tilgáta betur en hin, að hann hafi
haldið, að ég lumaði á dollurum.
Hvað sem um það er, þá tekur
hann til sín kaffibollann og staup-
ið og bendir mér að fara inn um
dyr, sem voru þarna til hliðar við
barholuna. Tyrkinn vísar mér
til sætis og setur fyrir ntig kaffið
og koníakið. Það er undarlegt,
hvað tilveran getur tekið snögg-
um stakkaskiptum af litlu tilefni.
að því er virðist. Iíafi Tvrkinn
orðið fyrir v’onbrigðum með doll-
araeign mina. þá lét hann mig
ekki gjalda þess og tókst með okk-
ur hin bezta vinátta, þó að hvor-
ugur skildi annan. Ég átti marga
góða morgunstund hjá Tyrkjan-
um mínum, það sem eftir var
dvalarinnar. Kaffið hans rót-
sterkt og koniakið unnu bug á
rúmensku gerlunum. Hvað getur
líka verið heilsusamlegra líkama
og sál að morgni dags í útlandinu
en tvrkneskt korgkaffi og franskt
koníak?
— Guð blessi Hund-
Tyrkjann—.
TÍGRIS
Mtihl
anoUay.
straufría sængurfataefnið er nú fyrirliggjandi í mörg-
um mynztrum og litum.
Einnig í saumuðum settum. Kærkomin gjöf, hverj-
um sem hlýtur.
Sparið húsmóðurinni erfitt verk, sofið þægilega og
lífgið upp á litina í svefnherberginu.
Reynið Night and Day og sannfærizt.
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
Innflutningsdeild
SAMBANDSHÚSINU RVÍK, SÍMI 17080