Morgunblaðið - 04.06.2002, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 51
Þýsk
gæði!
ÁRANGUR þremenninganna
Hannesar Hlífars Stefánssonar,
Helga Áss Grétarssonar og Jóns
Viktors Gunnarssonar á nýafstöðnu
minningarmóti Capablanca í Hav-
ana á Kúbu var ekki til að hrópa
húrra fyrir. Ferð þeirra var þó
áhugaverð og Helgi Áss Grétarsson
hefur tekið saman stuttan pistil um
glímu þeirra þremenninga við mat-
armenningu eyjaskeggja, tilraunir
þeirra til að ræða stjórnmál og svo
skákskýringu frá mótinu.
Gist var og teflt á fjögurra
stjörnu hóteli í úthverfi Havana.
Maturinn sem boðið var upp á var
prýðilegur nema erfitt reyndist að
fá tómatsósu og pipar! Hannes
barðist hatrammri baráttu við
þjóna hótelsins við að fá tómatsósu
með matnum sínum. Í fyrstu fór
hann halloka en að lokum gáfust
þeir upp á þrákelkni hans og létu
honum í té forláta tómatsósu. Ís-
lenskur kollegi hans barðist á öðr-
um vígstöðvum þar sem hann
reyndi að nota hvert tækifæri til að
ræða stjórnmál við Kúbverja. Það
reyndist þrautin þyngri þar sem
innfæddir forðast að ræða stjórn-
mál eins og heitan eldinn, enda eiga
menn yfir höfði sér fangelsisvist ef
áróður gegn Castro og stjórn hans
er borinn út. Sem dæmi um þetta
andrúmsloft voru samræður undir-
ritaðs við kúbverska stórmeistar-
ann Walther Arencibia. Aðspurður
um kosningaferlið á Kúbu sagði
hann að fólk tilnefndi frambjóðend-
ur er síðan væru kosnir á þing er
setti saman stjórn. Þegar leitast var
eftir nánari skýringum á þessu fyr-
irkomulagi gerðist hann flóttalegri
og sagði einfald-
lega að þetta
væri ekki eins og
vestrænt lýð-
ræði. Þegar sá
möguleiki var
reifaður hvort
hann gæti farið í
framboð spurði
hann: „Hvað ætti
ég að segja?“ Í
spurningunni
fólst að hann mætti svo fátt segja að
framboðið yrði merkingarlaust.
Besta skák Hannesar á mótinu
var gegn téðum Arencibia.
Hvítt: Hannes Hlífar Stefánsson
Svart: Walther Arencibia
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rbd7 6. Be2 Stalín
nokkur beitti þessum leik árið 1926.
Ekki er vitað hvort þetta sé hinn
blóði drifni einræðisherra en alltént
fetar Hannes í fótspor hans. 6. Bc4
eða 6. Be3 eru e.t.v. beinskeyttari
leikir. 6...Rc5 7. Bf3 e6 8. Be3 a6
Sjá stöðumynd I.
9. O-O
Hannes taldi eftir skákina að 9.
g4 h6 10. h4 hefði verið betra.
9... Dc7 10. a4 Be7 11. a5 O-O 12.
g3
Enn taldi Hannes 12. g4 vera
betra.
12...Hb8 13. Bg2 b5 14. axb6
Hxb6 15. Rb3 Bb7 16. He1 Hd8 17.
De2 Hb4?
17...Rfd7 hefði verið betra. Í
framhaldinu nær hvítur frumkvæð-
inu sem hann eykur skref fyrir
skref.
Sjá stöðumynd II.
18. Bxc5! dxc5 19. Ra5 Rd7
19...Hxb2 gekk ekki upp vegna
20. Rxb7 Hxb7 21. e5 Rd5 22. Rxd5
exd5 23. c4 og hvítur stendur með
pálmann í höndunum.
20. Rxb7 Hxb7 21. Rd1 Rb8 22.
e5 Ha7 23. c3 Rd7 24. De4 a5?!
Þótt erfitt sé að átta sig á því þá
veikir þetta b5-reitinn sem hvítur
notfærir sér. 24...Db6 hefði verið
ákjósanlegra.
25. h4 h5 26. c4! Db6 27. Rc3 Rb8
28. Rb5 Had7 29. Ha3 Hd2 30. Df3
g6
Hvítum hefur tekist að koma sér
ákjósanlega fyrir á drottningar-
væng og veikt kóngsvæng svarts.
Núna hefjast sóknaraðgerðir á
kóngsvæng enda svartur þar fálið-
aður.
Sjá stöðumynd III.
31. Df4! Hd1
31...Hxb2 gekk ekki upp vegna
32. Hf3 Hf8 33. g4 hxg4 34. Dxg4
Rc6 35. h5 g5 36. Hf6! og hvítur
vinnur. Í framhaldinu gengur sókn
hvíts einnig upp eins og í sögu.
32. Hxd1 Hxd1+ 33. Kh2 Bf8 34.
g4! hxg4 35. Dxg4 Dd8 36. h5 Bg7
37. f4 gxh5 38. Dxh5 Dd2 39. Hg3
Dc2 40. f5 Hd3
Sjá stöðumynd IV.
41. Hxg7+ Kxg7 42. f6+ og svart-
ur gafst upp enda stutt í mátið.
Á Kúbu má tefla en
ekki ræða stjórnmál
Daði Örn Jónsson
Helgi Áss Grétarsson
SKÁK
Kúba
MINNINGARMÓT CAPABLANCA
6.–17. maí 2002
Stöðumynd I.
Stöðumynd II.
Stöðumynd III.
Stöðumynd IV.
Hannes Hlífar
Stefánsson
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
Eggjabikarar
verð
kr. 2.300
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mánudag-föstudag 11-18 ,
laugardag 11-15