Morgunblaðið - 29.09.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGARGREINUM í Morg-
unblaðinu hefur fjölgað verulega á
undanförnum árum. Til að öllu efni
Morgunblaðsins verði haganlega
fyrir komið reynist nauðsynlegt að
setja minningargreinum, sem og
öðru efni, ákveðin lengdarmörk.
Því hefur verið ákveðið að fyrir ut-
an aðalgrein verði aðrar greinar
1.500 slög (með bilum), sem eru um
50 línur í blaðinu (17 dálksenti-
metrar) og í kringum 300 orð.
Hinsta kveðja – nýtt form
Ætlast er til að þær greinar, sem
skilað er inn eftir þessa helgi, verði
innan þeirra lengdarmarka sem að
framan er lýst.
Jafnhliða þessu verður tekin upp
nýjung sem kölluð er HINSTA
KVEÐJA þar sem hægt verður að
senda örstutta kveðju (5–15 línur),
þegar það á við. Þetta form á við
þegar votta á virðingu án þess þó
að það sé gert með langri grein (sjá
sýnishorn). Blaðið vonast til að
þessum breytingum verði vel tekið
af lesendum og að eftir þeim verði
farið í hvívetna.
Ritstj.
Breyttar reglur um
minningargreinar
Hæfileg lengd. Til þess að sjá
lengd minningargreinar í t.d.
Word-ritvinnslu, þá er valið
Tools-valblaðið og síðan Word
Count. Þá opnast þessi upplýs-
ingagluggi og sýnir orðafjöldann
(Words); slagafjölda án orðabila
(Characters (no spaces)); slaga-
fjölda með orðabilum (Characters
(with spaces)): 1.500.
g
fa
g
n
ar
n
k,
a
ð-
m
g
m
n-
r
r
ð
r-
i.
m
r-
n-
í
ar
l-
u
í
ð
ð-
ð
gg g
Sú hugsun að svo kynni að fara var
manni þó oftast fjarri, svo mikill var
lífsþróttur hennar, hugurinn vökull
og atorkan óbilandi.
Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj aæ
ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj.
lkasdjf laksjf laks jdf.
Laksdjælaskdjfæalskjfaæls
kdjfaæl sk djfalæs kd.
Jón Jónsson og
Jónína Jónsdóttir
Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj aæ
ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj
lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask-
djfæalskjfaæls kdjfaæl sk djfalæs
kd fdh fg df df df n dfhndfghdfh
dfgh dfgh dfh fdgh.
Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj
aæ ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj
lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask-
djfæalskjfaæls kdjfaæl sk.
Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj
aæ ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj
lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask-
djfæalskjfaæls kdjfaæl sk.
Jón Jónsson
HINSTA KVEÐJA
MORGUNBLAÐINU í dag
fylgir auglýsingablaðið
Blindrasýn frá Blindrafélaginu.
Blaðinu er dreift um allt
land.
ÖSSUR Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, sagði í ræðu
sinni við upphaf flokksstjórnarfund-
ar í gær að framundan væri harður
kosningavetur og í kosningabarátt-
unni yrði tekist á um grundvallarat-
riði. ,,Helstu víglínur kosninganna
verða að mínu mati varðstaða um
velferðarkerfið, tengsl Íslands og
Evrópu, auðlindamál, skattamál,
fjárfestingar í menntakerfinu og
vöxtur smáfyrirtækja og nýrra at-
vinnugreina,“ sagði Össur.
Vék hann sérstaklega að stöðu
heilbrigðismálanna og sagði að þau
mál og ferill Framsóknarflokksins í
þeim yrðu óhjákvæmilega eitt af
kosningamálum vetrarins. ,,Fram-
sóknarflokkurinn hefur farið með
heilbrigðismál í átta ár. Hann getur
ekki skotið sér undan ábyrgð á
þeirri stöðu sem ríkir í heilbrigð-
ismálum landsmanna, og þeim
röngu ákvörðunum sem þar hafa
verið teknar af ráðherrum flokksins
á undangengnum árum,“ sagði Öss-
ur.
,,Heilbrigðisráðherrar Framsókn-
arflokksins tóku ranga ákvörðun
þegar þeir tóku upp fastlaunakerfi í
heilsugæslunni, með þeim afleiðing-
um að afköst minnkuðu, og vegna
þess og annarra aðgerða, og að-
gerðaleysis, þá hefur frumheilsu-
gæslan veikst í tíð Framsóknar,“
sagði Össur.
Segir ráðherra Framsóknar
hafa tekið ranga ákvörðun
Hann sagði heilbrigðisráðherra
Framsóknarflokksins einnig hafa
tekið ranga ákvörðun þegar þeir
ákváðu að takmarka ekki aðgang að
sérfræðilæknum með svipuðum
hætti og gert er í flestum nágranna-
löndum.
Össur sagði útgjöld hafa aukist til
sérfræðilækna og þeirra sem seldu
lyfin en ekki hefði orðið raunaukn-
ing útgjalda til Landspítala – há-
skólasjúkrahúss. ,,Við viljum ekki
svona samfélag. Við viljum ekki
samfélag þar sem heilabilaðir eru
sendir heim vegna skorts á fjárveit-
ingum, þar sem geðsjúkir eru á göt-
unni, meðan einstakir sérfræðingar
taka milljónatugi á ári. Á kosninga-
vetri þarf Framsóknarflokkurinn að
svara þjóðinni hvernig stendur á því
að staðan í heilbrigðismálum er eins
og hún er, eftir átta ára setu þeirra í
heilbrigðisráðuneytinu,“ sagði Öss-
ur. Hann gagnrýndi einnig harðlega
hugmyndir innan Sjálfstæðisflokks-
ins um einkavæðingu í heilbrigðis-
kerfinu sem hann sagði ekki ganga
upp.
Hugmyndir ræddar um sér-
stakt innanlandsráðuneyti
Össur fjallaði einnig í ræðu sinni
um hugmyndir sem ræddar eru inn-
an Samfylkingarinnar um breyting-
ar á stjórnkerfinu og nútímavæð-
ingu þess.
Fram kom í máli hans að til um-
ræðu er að marka þá stefnu að
fækka ráðuneytum, búa til eitt at-
vinnuvegaráðuneyti með uppstokk-
un landbúnaðar-, sjávarútvegs- og
iðnaðarráðuneytis, koma á laggir
neytendaráðuneyti, auk þess sem
hugmyndir eru uppi um stofnun sér-
staks innanlandsráðuneytis er færi
með löggæslu og dómsmál, mann-
réttindamál, sveitarstjórnar- og
skipulagsmál, byggðamál og fleira.
Össur Skarphéðinsson boðar harðan kosningavetur á flokksstjórnarfundi
Gagnrýndi framgöngu Fram-
sóknar í heilbrigðismálum
Morgunblaðið/Kristinn
Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, flytur ræðu við upphaf flokksstjórnarfundar Samfylking-
arinnar á Grand Hótel Reykjavík í gær. Síðdegis í gær fór fram málefnastarf í nefndum á þinginu.
MIKIÐ var um að vera í Langholts-
skóla í gær í tilefni hálfrar aldar af-
mælis skólans. Boðið var upp á fjöl-
breytta dagskrá auk þess sem
fjölmörgum gestum gafst tækifæri
til að skoða myndir og ýmsa muni
nemenda síðastliðin 50 ár. Hér tek-
ur Hreiðar Sigtryggsson, skóla-
stjóri Langholtsskóla, á móti gest-
um og gangandi ásamt nokkrum
nemendum skólans sem halda á
lofti nýju merki skólans.
Morgunblaðið/Kristinn
Afmæli Langholtsskóla
ÍSLANDSFLUG hefur gert samn-
ing við flutningafélagið DHL og
ítalska fyrirtækið Femar um frakt-
flutninga á B-737-300 vél. Ómar
Benediktsson, framkvæmdastjóri fé-
lagsins, segir að um spennandi verk-
efni sé að ræða. Gert er ráð fyrir að
vélin verði eingöngu mönnuð ís-
lenskri áhöfn og verður fyrst flogið
næstkomandi mánudag.
Fram kemur í fréttabréfi FÍA að
Femar er eitt stærsta flutningafyr-
irtæki Ítalíu og mun vélin verða nýtt
í að flytja frakt innanlands á Ítalíu.
Vélin sem Íslandsflug hefur fengið í
verkefnið, er svokölluð QC (Quick
Change), og hefur henni verið breytt
í fraktvél.
Íslandsflug tók nýja B-737-vél í
rekstur í sumar og er hún staðsett á
Krít. Nýja fraktvélin er sú sjötta af
þessari gerð sem félagið hefur í sín-
um rekstri að sögn Ómars.
Verkefnastaða Íslandsflugs er góð
um þessar mundir og margt spenn-
andi á döfinni að sögn hans.
Íslandsflug gerir
samning um
fraktflug á Ítalíu
MAÐURINN sem stunginn
var til bana í húsi við Klapp-
arstíg í Reykjavík síðastliðið
fimmtudagskvöld hét Bragi
Ólafsson.
Hann var fæddur 17. nóvem-
ber 1936, ókvæntur, en lætur
eftir sig uppkomin börn.
Maðurinn
sem lést
BÍLVELTA varð á Skaga-
strandarvegi laust fyrir klukk-
an níu í gærmorgun og er öku-
maðurinn grunaður um ölvun
við akstur.
Bifreiðin var á leið til Skaga-
strandar, þegar ökumaður
missti stjórn á henni, en hann
og farþegi sluppu með smá-
vægileg meiðsl. Fólksbíllinn er
hins vegar talinn ónýtur.
Stöðvaðir fyrir
ölvun við akstur
Töluverður erill var hjá lög-
reglunni í Kópavogi í fyrrinótt
en þá voru þrír ökumenn stöðv-
aðir grunaðir um ölvun við
akstur og einn í gærmorgun.
Bílvelta
við
Skaga-
strönd