Morgunblaðið - 20.06.2003, Page 6

Morgunblaðið - 20.06.2003, Page 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ VEFRITIÐ Tíkin hélt í gær upp á eins árs afmæli sitt. Fjölmenni mætti á skemmtistaðinn Metz við Bankastræti þar sem velunnurum ritsins var boðið til sérstakrar af- mælisveislu. Ritstjórar Tíkarinnar gerðu stuttlega grein fyrir sögu ritsins og hugmyndafræðinni á bak við stofnun þess. Við þetta til- efni var tilkynnt að ritstjórn Tík- arinnar hefði valið Þorgerði Katr- ínu Gunnarsdóttur „tík ársins“. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugs- dóttir, einn af ritstjórum Tík- arinnar, segir að nafn vefritsins sé tilvísun í orðið pólitík en að vefritinu standi hópur hægrisinn- aðra kvenna sem leggi áherslu á jafnrétti kynjanna. „Við ákváðum að halda upp á ársafmælið 19. júní þótt vefritið sé nokkrum vik- um eldra. Okkur þótti þetta við- eigandi tímasetning enda viljum við heiðra minningu þeirra kvenna sem hafa rutt brautina í jafnréttisbaráttu á Íslandi. Að sama skapi viljum við hvetja kon- ur á Íslandi til þess að halda ár- vekni sinni,“ segir Þorbjörg Sig- ríður. Morgunblaðið/Arnaldur Þorgerður Katrín valin „tík“ ársins Í TILEFNI af kvenréttindadegin- um í gær, 19. júní, stóðu Femínista- félag Íslands, Kvenréttindafélag Ís- lands, Kvennakirkjan, Bríet, tíma- ritið Vera, Bandalag kvenna í Reykjavík, Rannsóknarstofa í kvenna- og kynjafræðum og Kvennasögusafn Íslands að átakinu Málum bæinn bleikan. Allir jafnréttissinnaðir einstak- lingar voru hvattir til að ganga í bleiku eða bera eitthvað bleikt. Ár- angurinn lét ekki á sér standa. Margar verslanir stilltu bleikum föt- um út í glugga, bleikt skraut sást á ólíklegustu stöðum og jafnréttissinn- að fólk bar bleika litinn. Bleikir steinar Femínistafélag Íslands gaf helstu ráðamönnum þjóðarinnar Bleika steina en tilgangur þeirra er að minna á mikilvægi þess að hafa jafn- réttissjónarmið í huga við alla ákvarðanatöku. Um leið voru ráða- menn hvattir til að kynna sér fem- ínisma til þess að geta unnið skil- virkt að jafnrétti. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkir steinar eru gefnir en vonin er að þetta verði árlegur við- burður. Í orði en ekki á borði Femínistar hittust við Ráðhúsið í gærdag og gengu saman að Hall- veigarstöðum en þar var móttaka í boði Kvennaheimilisins Hallveigar- staða. Bandalag kvenna í Reykjavík, Kvenfélagasamband Íslands og Kvenréttindafélag Íslands standa að heimilinu og buðu femínistum upp á veitingar. Í móttökuni voru flutt nokkur ávörp, brot úr leikritinu Ólafía og tímaritið 19. júní var kynnt. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra var ein þeirra sem flutti ávarp og gerði réttindi kvenna að umtals- efni en þar segir hún hlutina ekki vera á borði eins og þeir eru í orði. Þrátt fyrir lagalegt jafnrétti er margt sem vantar upp á í raunveru- leikanum. M.a. talaði hún um launa- misréttið sem er ríkjandi og þann mikla mun sem er á fæðingarorlofs- greiðslum til karla annars vegar og kvenna hins vegar. Siv líkti kvenréttindabaráttunni við íslensku jurtina vetrarsteinbrjót sem getur vaxið inn í stein og klofið hann smám saman. „Við tökum okk- ur steinbrjótinn til fyrirmyndar, molum niður múrana, innri jafnt sem ytri, svo við getum blómstrað í öllu okkar bleika veldi,“ sagði Siv. Birna Þórarinsdóttir, meðlimur í Femínistafélagi Íslands, talaði frá sjónarhorni ungs femínista. Líkt og Siv talaði hún um að jafnréttið væri í orði en ekki á borði og að konur og stelpur væru smám saman að upp- götva það. „Það er fyrir öllu að beisla þann kraft sem leystur hefur verið úr læðingi til að vekja ungt fólk á öll- um aldri til meðvitundar um að enn séu margir hnútar óleystir og þeir rakni ekki upp af sjálfu sér,“ sagði Birna. Haldið var upp á kvenréttindadaginn í gær Morgunblaðið/Jim Smart Femínistar gengu frá Ráðhúsinu og að Hallveigarstöðum. Mála bæinn bleikan Ljósmynd/Björg Ólafsdóttir Karlpeningurinn á renniverkstæði Össurar hf. skellti sér allur í bleikt til merkis um stuðning við jafnréttisbaráttuna. JAFNRÉTTISNEFND Akureyrar- bæjar stóð fyrir útisamveru við Hamra í tilefni Kvenréttindadagsins í gær, sem var þó að hluta til færð undir þak vegna veðurs. Að Hömr- um hefur konum verið tileinkaður sérstakur reitur og gróðursettu kon- ur á ýmsum aldri í hann í fyrsta skipti í tilefni dagsins. Stafafura varð fyrir valinu og voru alls gróðursettar 400 plöntur í reitinn. Konurnar ræddu um nafn á reitinn áður en verkið hófst en fljótlega urðu þær þó sammála um að skíra hann Vilhelm- ínureit til heiðurs Vilhelmínu Lever. Vilhelmína bjó á Akureyri á 19. öld og þótti mjög sjálfstæð og merkileg kona. Hún var einstæð móðir en stundaði bæði verslunar- og veit- ingarekstur í bænum og hún var jafnframt fyrsta konan á Íslandi til að kjósa í bæjarstjórnarkosningum, árið 1863, um 20 árum áður en konur fengu kosningarétt. Morgunblaðið/Kristján Gerður Jónsdóttir, formaður jafn- réttis- og fjölskyldunefndar Akur- eyrarbæjar, dóttir hennar Kolbrún Árnadóttir og ömmustelpan Þóra Aldís Kolbrúnardóttir gróðursetja stafafuru í Vilhelmínureit. Gróðursett í Vilhelm- ínureit FUNDI Alþjóðahvalveiðiráðsins lauk í Berlín í gær. Stefán Ásmunds- son, fulltrúi Íslands á fundinum, tel- ur niðurstöðu fundarins vera von- brigði fyrir Ísland. Á fundinum var tekin ákvörðun um að stofna sér- staka nefnd um hvalavernd innan ráðsins en sú ákvörðun ráðsins varð til þess að 50 manna sendinefnd Jap- ans gekk af fundi. Á fundinum var einnig samþykkt áskorun um að ríki sem stunda veiðar í vísindaskyni láti af þeim veiðum og þau ríki sem áformað hafa að hefja vísindaveiðar eru hvött til þess að hætta við. Þá var á fundinum samþykkt ályktun þar sem Japanir eru sérstaklega hvattir til þess að láta af veiðum við Suð- urskautslandið. Íslendingar tóku nú þátt í fund- inum sem fullgildir meðlimir en þetta er fjórða tilraun Íslands til þess að öðlast lögmætan seturétt á fundum ráðsins. Í fyrstu tvö skiptin fékk Ísland ekki að taka þátt og á síðasta fundi fékk Ísland þátttöku- rétt eftir mikla rekistefnu. Stefán telur að það sé ákveðinn sigur fyrir Ísland að vera tekið fullgilt inn í hvalveiðiráðið og að Ísland sé betur sett innan ráðsins heldur en utan þess, sérstaklega með þeim fyrir- vara um hvalveiðar í atvinnuskyni sem Ísland hefur gert. „Ég get sagt að stóra niðurstaðan fyrir Ísland er annars vegar að þetta er fyrsti fund- urinn þar sem við tökum þátt sem fullgildir aðilar frá upphafi til enda og enginn gerir tilraun til þess að setja þá stöðu í tvísýnu. Hitt að við ætluðum með aðildinni að setja kraft í það að ná einhverju samkomulagi um stjórnunarráðstafanir hvalveiði- ráðsins. Frekar en að það mál hafi þokast áfram á þessum fundi fór það beinlínis aftur á bak. Berlínarsam- þykktin miðar að algjörri verndun hvala burtséð frá stöðu stofnanna. Þessi niðurstaða er að sjálfsögðu mikil vonbrigði fyrir okkur og öll þau ríki sem styðja sjálfbærar hvalveið- ar,“ segir Stefán. Dani tekur við formennsku, Spánverji verður varaformaður Henrik Fischer, frá Danmörku, tók við embætti formanns Alþjóða- hvalveiðiráðsins í lok fundarins. Danir ákváðu að taka ekki þátt í at- kvæðagreiðslum um ályktanir um vísindaveiðar þar sem Danir viður- kenna ekki rétt Alþjóðahvalveiði- ráðsins til þess að banna veiðar held- ur eigi það vera ákvörðun ríkjanna sjálfra. Fischer hefur gegnt varafor- mannsembætti ráðsins undanfarin þrjú ár, en hefð er fyrir því að vara- formaður taki við formennsku í ráðinu að loknu þriggja ára kjör- tímabili sem varaformaður. Doming- uez Diaz frá Spáni var kjörinn vara- formaður. Hann bar sigurorð af Claris Charles frá Grenada í at- kvæðagreiðslu en Ísland studdi framboð Charles. Hefði Charles unnið hefði hún verið fyrsta konan til að gegna svo mikilvægri stöðu innan Alþjóðahvalveiðiráðsins. Hvalveiðiandstæðingar í meirihluta Ljóst er af niðurstöðu fundarins að þau ríki sem eru andsnúin hval- veiðum hafa meirihluta innan Al- þjóðahvalveiðiráðsins. Pólitískur þrýstingur víða um heim virðist hafa orðið til þess að þjóðir sem höfðu hófsama afstöðu til veiðanna, vildu takmarka þær en ekki banna, hafa í auknum mæli skipað sér í flokk með þeim þjóðum sem taka einarða af- stöðu gegn öllum veiðum. Þetta veld- ur fulltrúa Íslands í ráðinu áhyggj- um: „Vonbrigðin hjá okkur eru fyrst og fremst að ríkin sem hafa verið að gefa sig út fyrir að vera í eins konar miðjuhópi voru greinilega hluti af hvalveiðiandstæðingum á þessum fundi,“ segir Stefán. Næsti fundur Alþjóðahvalveiði- ráðsins verður haldinn á Ítalíu í maí 2004. Stefán Ásmundsson að loknum fundi hvalveiðiráðsins Niðurstaðan skref aftur á bak Segir andstæð- inga veiða ráða ferðinni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.