Morgunblaðið - 20.06.2003, Side 23

Morgunblaðið - 20.06.2003, Side 23
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 23 Kringlukast í fullum gangi 3 dagar eftir ÍSLENSKU menntasamtökin hafa dregið erindi sitt um rekstur leik- skóla í Garðabæ til baka. Samtökin segja ástæðuna þá að ekki sé nægilegur tími til undirbún- ings til þess að starf geti hafist í haust. Enn eigi margt eftir að gera í húsnæðinu sem þau höfðu í huga og segjast þau ætla að leita að öðru tækifæri í framtíðinni. „Engar formlegar viðræður höfðu farið í gang og þær munu þá ekki eiga sér stað,“ segir Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri í Garðabæ. Drógu erind- ið til baka Garðabær ♦ ♦ ♦ HAFNFIRÐINGAR létu ekki smá- vægilega vætu hafa áhrif á hátíða- höld í tilefni þjóðhátíðar og aðsókn var með besta móti á atburði dags- ins. Fjölmenni var í skrúðgöngunni og á Víðistaðatúni meðan skemmti- atriði voru flutt, en þar flutti meðal annars fjallkonan Silja Úlfarsdóttir ávarp, Flensborgarkórinn söng og Hafnarfjarðarleikhúsið sýndi brot úr verkinu „Gaggalú“. Skátarnir sáu um tívolí á Víðistaðatúni og skemmtu börnin sér í þrautabraut- um, á stultum og í rafmagnsbílum. Um kvöldið hélt skemmtunin áfram í miðbænum og íbúar bæj- arins fjölmenntu að Hafnarfjarð- arkirkju þar sem fjölbreytt skemmtidagskrá var flutt af ýms- um skemmtikröftum. Mesta athygli vakti söngur Birgittu Haukdals og hljómsveitarinnar Írafárs, en þau fluttu Evróvisjónlagið 2003. Þá var víkingahátíð sett er fjöldi víkinga kom siglandi á víkingaskip- inu Íslendingi inn höfnina. Fjöl- margir lögðu leið sína á hátíðina og skemmtu sér hið besta við söng og vopnaglamur. Loks heimsóttu Guð- rún Gunnarsdóttir og Eyþór Gunn- arsson sjúkrastofnanir bæjarins og fluttu sérstaka dagskrá tileinkaða Ellý Vilhjálms dægurlaga- söngkonu. Væta trufl- aði ekki há- tíðahöldin Hafnarfjörður Skátarnir fóru að venju fremstir í flokki með íslenska fánann í skrúðgöng- unni í Hafnarfirði en fjölmenni var í göngunni. ÞAÐ dugði ekki minna til en hjálp krana og aðstoðarmanna er þýski listamaðurinn Lupus kom síðasta steininum fyrir í minnismerki um fyrstu lúthersku kirkjuna sem reist var á Íslandi. Merkið stendur við Óseyrarbryggju í Flensborgarhöfn í Hafnarfirði og myndar táknrænan gotneskan boga úr íslensku grjóti og er 6,5 metra hátt. Johannes Rau, forseti Þýskalands, og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhjúpa minnismerkið 1. júlí næstkomandi þegar þýski forsetinn kemur hingað til lands í opinbera heimsókn. Þá verða liðin 400 ár frá því síðast var sungin þýsk messa í kirkjunni. Síðasta stein- inum komið fyrir Hafnarfjörður Morgunblaðið/Arnaldur Listaverk í Hafnarfirði. Fyrir flottar konur Bankastræti 11 • sími 551 3930

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.