Morgunblaðið - 08.11.2003, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 08.11.2003, Blaðsíða 43
kl. 11. Umsjón hafa Edda, Hera og Örn. Góð og uppbyggileg stund fyrir alla fjöl- skylduna. Kvöldvaka við kertaljós kl. 20. Umfjöllunarefnið að þessu sinni er spurn- ingin: Hverju trúa kristnir menn? Örn Arn- arson leiðir tónlist og söng ásamt hljóm- sveit og kór kirkjunnar. Kaffi í safnaðar- heimili að lokinni guðsþjónustu. ÁSTJARNARSÓKN í samkomusal Hauka í Hafnarfirði: Barna- og fjölskyldumessur á sunnudögum kl. 11-12. Djús, kex, kaffi og hlýtt samfélag eftir athöfn að vanda. Ponzý. Unglingastarf ætlað krökkum fædd- um 1990 og eldri á mánudögum kl. 20-22. KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkjuskóli í Stóru- Vogaskóla laugardaga kl. 11.15-12. Messa í Kálfatjarnarkirkju sunnudaginn 9. nóvember kl. 14. Kaffi, djús og meðlæti í þjónustuhúsinu eftir athöfn. VÍDALÍNSKIRKJA: Kristniboðsdagurinn. Messa kl. 11. Kirkjukórinn leiðir sönginn undir stjórn Hrannar Helgadóttur org- anista. Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar. Sunnu- dagaskólinn, yngri og eldri hópur, mætir á sama tíma. Tekið verður á móti framlögum til kristniboðs við lok messunnar. Allir vel- komnir! Helgistund verður í Hjúkr- unarheimilinu Holtsbúð kl. 12.40. Prest- arnir. BESSASTAÐASÓKN: Sunnudagaskóli kl. 11 í sal Álftanesskóla. Kristjana og Ásgeir Páll leiða frábært starf fyrir börnin. Foreldr- arnir velkomnir með. Prestarnir. BESSASTAÐAKIRKJA: Kristniboðsdag- urinn. Guðsþjónusta kl. 14. Eingöngu verða sungnir negrasálmar að þessu sinni, en Álftaneskórinn undir stjórn org- anistans, Hrannar Helgadóttur, sér um tónlistina. Tekið verður á móti framlögum til kristniboðs við lok guðsþjónustunnar. Sr. Friðrik J. Hjartar og Gréta djákni þjóna. Þeir sem óska eftir akstri geta haft sam- band við Linda eða Auði í síma 565 0952. Allir velkomnir. Prestarnir. GRINDAVÍKURKIRKJA: Txt: Jóh. 4.34-42. Aðrir hafa erfiðað. Barnastarfið kl. 11. Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Létt gospel- sveifla með hljómsveit og kór. Organisti Örn Falkner. Kór Grindavíkurkirkju. Prestur sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir. Sókn- arnefndin. ÞORLÁKSKIRKJA: Messa kl. 11. Ferming- arbörn lesa ritningartexta. Munuð bæna- stundir þriðjudaga kl. 09 og fimmtudaga kl. 09.30. Foreldramorgnar á fimmtudög- um 10-12 og Bibíupælingar á mánudögum kl. 20. Sóknarprestur. YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Sunnudaga- skóli sunnudaginn 9. nóvember kl. 11. Umsjón Ástríður Helga Sigurðardóttir, Ingi- björg Erlendsdóttir og Tone Solbakk. NJARÐVÍKURKIRKJA (Innri-Njarðvík): Sunnudagaskóli í safnaðarheimilinu sunnudaginn 9. nóvember kl. 11 í umsjá Arngerðar Maríu Árnadóttur organista, Kötlu Ólafsdóttur og Petrínu Sigurð- ardóttur. KIRKJUVOGSKIRKJA (Höfnum): Sunnu- dagaskóli sunnudaginn 9. nóvember kl. 13. Umsjón hafa Margrét H. Halldórsdóttir og Einar Guðmundsson sem leikur á gítar. Baldur Rafn Sigurðsson. KEFLAVÍKURKIRKJA: Aldursskiptur sunnudagaskóli kl. 11 árd. Elín Njálsdóttir umsjónarmaður eldri barna, Margrét H. Halldórsdóttir umsjónarmaður yngri barna. Aðrir starfsmenn sunnudagaskólans eru Arnhildur H. Arnbjörnsdóttir, Einar Guð- mundsson og Sigríður Helga Karlsdóttir. Barnakór Keflavíkurkirkju fer í heimsókn í Fella- og Hólasókn í Reykjavík. Þau syngja þar undir stjórn Hákons Leifssonar og Bylgju Dísar Gunnarsdóttur. Guðsþjónusta kl. 14. Börn verða borin til skínar. B Sl.30.1-6, Fil 4.8-1, Jóh. 9. 1-11. Prestur Ólafur Oddur Jónsson. Kór Keflavíkurkirkju syngur. Organisti Hákon Leifsson. Með- hjálpari Leifur Ísaksson. Sóknarnefnd býð- ur til kaffidrykkju eftir messu. Sjá nánar í Vefriti Keflavíkurkirkju keflavikurkirkja.is HVALSNESKIRKJA: Laugardagur 8. nóv- ember. Safnaðarheimilið í Sandgerði. Kirkjuskólinn kl. 11. Allir velkomnir. Sunnudagur 9. nóvember. Safnaðarheim- ilið í Sandgerði. 21. sunnudagur eftir Þrenningarhátíð. Guðsþjónusta kl.14. Hjálmar Árnason alþingismaður prédikar. Kór Hvalsneskirkju syngur. Organisti Stein- ar Guðmundsson. Sunnudagur 9. nóv- ember. Safnaðarheimilið í Sandgerði. Gospel-messa kl. 20.30. Ferming- arnámskeið er laugardag 8. nóvember milli kl. 9.30-12 í grunnskólanum í Garði. NTT-starfið er í safnaðarheimilinu á mánu- dögum kl. 16.30. ÚTSKÁLAKIRKJA: Laugardagur 8. nóv- ember. Safnaðarheimilið Sæborg. Kirkju- skólinn kl. 14. Allir velkomnir. Sunnudagur 9. nóvember. 21. sunnudagur eftir Þrenn- ingarhátíð. Guðsþjónusta kl.16.30. Hjálm- ar Árnason alþingismaður prédikar. Kór Út- skálakirkju syngur. Organisti Steinar Guðmundsson. Garðvangur. Helgistund kl. 15.30. Fermingarnámskeið er laug- ardag 8. nóvember milli kl. 9.30-12 í grunnskólanum í Garði. NTT-starfið: Níu til tólf ára starfið er í safnaðarheimilinu Sæ- borg á fimmtudögum kl.16.30. Sókn- arprestur Björn Sveinn Björnsson. HNÍFSDALSKAPELLA: Sunnudagaskóli kl. 13. ÍSAFJARÐARKIRKJA: Messa og kirkju- skóli kl. 11. Fermdir verða tveir drengir: Björn Jóhannes Hjálmarsson, Pólgötu 8, og Fannar Freyr Þorbergsson, Smiðjugötu 10. Kór Ísafjarðarkirkju syngur. Organisti er Hulda Bragadóttir. Sóknarprestur. LAUGALANDSPRESTAKALL: Af óviðráð- anlegum ástæðum verður ekki messað í Saurbæjarkirkju sunnudaginn 9. nóv- ember heldur verður æskulýðsmessa þann dag í Kaupangskirkju kl. 13.30. Væntanleg fermingarbörn munu sjá um tónlistaratriði og lestur. Sama dag er messa í Kristnesi kl. 15. HRÍSEYJARKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11. Messa kl. 14. MÖÐRUVALLAPRESTAKALL: Guðsþjón- usta fyrir allt prestakallið verður í Möðru- vallakirkju sunnudaginn 9. nóv. kl. 14. Ragnar Gunnarsson kristniboði prédikar. Messukaffi á prestssetrinu á eftir. Allir hjartanlega velkomnir. Sóknarprestur. AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Svavar A. Jónsson. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti Björn Steinar Sólbergsson. Ragnar Gunnarsson skólaprestur prédikar. Sunnudagaskóli kl. 11. Fyrst í kirkju, síðan í safnaðarheimili. ÆFAK kl. 20. GLERÁRKIRKJA: Barnasamvera í kirkjunni kl. 11, sameiginlegt upphaf með guðs- þjónustunni, tvískipt starf fyrir eldri og yngri börn. Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Arn- aldur Bárðarson þjónar. Organisti Hjörtur Steinbergsson. Félagar í kór Glerárkirkju syngja. Fermingarbörn ásamt foreldrum hvött til að koma. Fundur með foreldrum fermingarbarna úr Glerárskóla sunnudags- kvöldið 9. nóvember kl. 20. HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Sunnu- dagur: Kl. 11 sunnudagaskóli. Kl. 17 al- menn samkoma. Rannveig Óskarsdóttir talar. HVÍTASUNNUKIRKJAN á Akureyri: KFUM og K, Sunnuhlíð, Akureyri. Laug- ardagur 8. nóvember: Kristniboðs- samkoma kl. 20.30. Ræðumaður Ragnar Gunnarsson kristniboði. Sunnudagur 9. nóvember: Kristniboðsdagurinn. Kaffisala Kristniboðsfélags kvenna kl. 15 til 17 í Sunnuhlíð. Kristniboðssamkoma kl. 20.30. Ræðumaður Ragnar Gunnarsson kristniboði. Allir velkomnir. LAUFÁSPRESTAKALL: Svalbarðskirkja: Guðsþjónusta sunnudaginn 9. nóv. kl. 14. Kristniboðsdagurinn. Börnin úr kirkjuskól- anum í Valsárskóla syngja nokkur lög. Grenivíkurkirkja: Kyrrðarstund sunnu- dagskvöldið 9. nóv. kl. 20. ÁSSÓKN Í FELLUM: Sunnudagaskóli í Kirkjuseli kl. 11. Guðsþjónusta í Áskirkju í Fellum kl. 14. Sóknarpresturinn, sr. Lára G. Oddsdóttir, prédikar og þjónar fyrir alt- ari, fermingarbörn lesa ritningartexta. Kór Ássóknar syngur undir stjórn organistans Kristjáns Gissurarsonar. Foreldrarmorgnar - mömmumorgnar eru í Kirkjuseli í Fellabæ alla þriðjudaga kl. 10-12. Foreldrarmorgn- arnir eru samstarfsverkefni prestakall- anna þriggja á Héraði; Eiða-, Vallaness- og Valþjófsstaðarprestakalls og eru foreldrar og/eða afar og ömmur sem gæta lítilla barna hjartanlega velkomin. Kaffi og safi í eldhúsinu og dótakassinn góði á sínum stað. SKEIÐFLATARKIRKJA í Mýrdal: Guðsþjón- usta sunnudag kl. 14. Organisti Kristín Björnsdóttir. Söngur Kirkjukór Skeiðflat- arkirkju. Fermingarbörn og forráðamenn hvött til að mæta. VILLINGAHOLTSKIRKJA í Flóa: Messa nk. sunnudag kl. 13.30. Vænst er þátttöku fermingarbarna og aðstandenda þeirra. Nýr organisti boðinn velkominn. Kristinn Ág. Friðfinnsson. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa verður sunnudag 9. nóvember kl. 11. Sókn- arprestur. HAUKADALSKIRKJA: Guðsþjónusta verð- ur sunnudag 9. nóvember kl. 14. Sókn- arprestur. SELFOSSKIRKJA: Messa sunnudag kl. 11. Kirkjukór Hvanneyrarsóknar í Borg- arfirði kemur í heimsókn. Síra Flóki Krist- insson, sóknarpretur á Hvanneyri, prédik- ar. Munið barnastarfið á sama tíma í safnaðarheimilinu. Foreldrar, afar og ömmur hvött til þess að koma með börn sín. Léttur hádegisverður eftir athöfnina í safnaðarsalnum. Morgunbænir þriðjudaga til föstudaga kl. 10, kaffisopi á eftir. For- eldrasamvera miðvikudaga kl. 11. Kirkju- skóli í Vallaskóla í útistofu nr. 6 fimmtudag kl. 14-14.50. Æskulýðsfélag Selfosskirkju heldur fund miðvikudaginn 5. nóvember kl. 20 uppi í safnaðarheimilinu. Sr. Gunnar Björnsson. STOKKSEYRARKIRKJA: Barnaguðsþjón- usta sunnudag kl. 11. Sóknarprestur. HVERAGERÐISKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11. Orgelstund kl. 17. Jörg E. Sonder- mann leikur orgeltónlist í anda kirkjuárs- ins. Orgelstundir í Hveragerðiskirkju eru að jafnaði annan sunnudag hvers mánaðar. Orgeltónverk frá ýmsum tímum eru leikin af organista kirkjunnar og einnig er flutt stutt hugleiðing og bæjargjörð. Org- elstundir eru gott tækifæri til trúarlegrar íhugunar í hléi við amstur hversdagsleik- ans og til að njóta friðsældar og uppbygg- ingar við útleggingar tónskáldanna á boð- skap ritningarinnar. Foreldramorgnar eru alla þriðjudagsmorgna kl. 10 í safn- aðarheimili kirkjunnar. Jón Ragnarsson. KIRKJUBÆJARKLAUSTURSPRESTA- KALL: Grafarkirkja: Guðsþjónusta kl. 11:00. Klausturhólar: Helgistund kl. 15:00. Samkórinn syngur við báðar at- hafnir og organisti er Brian Bacon. Sr. Bryndís Malla Elídóttir MESSUR Á MORGUN/KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 43 Kristniboðsdagur í Seljakirkju Á MORGUN sunnudaginn 9. nóv- ember er kristniboðsdagurinn. Seljakirkja byrjar á því að bjóða fólk velkomið í barnaguðsþjónustu kl. 11. Almenn guðsþjónusta verður kl. 14 og þar munu Afríkubúarnir Irene og Salómon segja frá kristni- boði ásamt Leifi Sigurðssyni kristniboða. Eftir guðsþjónustu gefst fólki tækifæri til þess að skoða muni frá Afríku, sem staðsettir eru í anddyri kirkjunnar. Verið velkomin í Selja- kirkju. Ómar Ragnarsson í Hallgrímskirkju KRISTNIBOÐSDAGURINN verður haldinn hátíðlegur í Hallgríms- kirkju sunnudaginn 9. nóvember. Messa og barnastarf verður kl. 11.00. Sr. María Ágústsdóttir pré- dikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni D. Hróbjartssyni og sr. Lár- usi Halldórssyni. Hörður Áskelsson kantor stýrir söng félaga úr Mót- ettukór Hallgrímskirkju og leikur á orgel kirkjunnar. Magnea Sverr- isdóttir djákni hefur umsjón með barnastarfinu. Tekið verður á móti gjöfum til kristniboðsins. Eftir messu um kl. 12.30 mun Ómar Ragnarsson fréttamaður halda fyrirlestur er hann nefnir: Sem engill af himnum. Hann mun fjalla um kristniboð og hjálp- arstarf, en hann fór og heimsótti Helga Hróbjartsson, sem starfar í Eþíópíu og kynnti sér starf hans þar. Fjölskylduhátíð Hafnarfjarðarkirkju HAFNARFJARÐARKIRKJA býður til fjölskylduhátíðar sunnudaginn 9. nóvember. Slíkar hátíðir eru haldn- ar reglulega einu sinni í mánuði yf- ir vetrartímann. Hátíðin hefst kl. 11.00. Báðir sunnudagaskólar kirkj- unnar sameinast en þeir eru haldn- ir í safnaðarheimilinu og Hvaleyr- arskóla. Allir leiðtogarnir mynda hljómsveit og spila undir hressileg- um söng. Unglingakórinn kemur í heimsókn og syngur undir stjórn Helgu Loftsdóttur. Og ekki má gleyma Afríkuleiknum sem sr. Þór- hallur stjórnar. Eftir hátíðina í kirkjunni er boðið upp á nammiveislu í safnaðarheim- ilinu. Kirkjurútan ekur eins og venjulega. Auk þess fer strætisvagn frá Hvaleyrarskóla kl. 10.55 og heim aftur rúmlega 12.00. Hátíð fermingarbarna í Hafnarfjarðarkirkju SUNNUDAGURINN 9. nóvember er kristniboðsdagur kirkjunnar. Á þessum degi verður haldin sérstök hátíð fermingarbarna og fjöl- skyldna þeirra í Hafnarfjarð- arkirkju. Slík hátíð er haldin tvisv- ar á hverjum vetri. Hátíðin hefst með gospel- guðsþjónustu kl. 20.00. Kvennakór Hafnarfjarðar syngur undir stjórn Hrafnhildar Blomsterberg. Antonia Hevesi organisti leikur undir. Sr. Þórhallur predikar og sr. Gunnþór þjónar fyrir altari. Eftir gospel-stundina bjóða ferm- ingarbörn foreldrum, fjölskyldum og öllum kirkjugestum til kaffi- veislu í safnaðarheimilinu. Öll fermingarbörnin leggja eitthvað til veislunnar. Fjölskyldur ferming- arbarnanna eru sérstaklega hvatt- ar til að fjölmenna í kirkjuna sína og taka þátt í hátíðinni með börn- unum. Góðir gestir í Fella- og Hólakirkju FJÖLSKYLDUMESSA verður í Fella- og Hólakirkju sunnudaginn 9. nóvember. Sr. Svavar Stefánsson þjónar fyrir altari. Hann og æsku- lýðsfulltrúi kirkjunnar, Elín El- ísabet Jóhannsdóttir, munu spjalla við kirkjugesti. Í heimsókn kemur Pétur pókus, töframaður og mun hann sýna börnunum hin leynd- ardómsfullu töfrabrögð sín. Þá kemur barnakór Keflavíkurkirkju í heimsókn ásamt stjórnanda sínum, Hákoni Leifssyni, og syngur. Barnakórar Fella- og Hólakirkju munu einnig koma fram og syngja undir stjórn Lenku Mátéovú, org- anista og söngstjóra kirkjunnar, og Þórdísar Þórhallsdóttur sem ann- ast barnakórastarfið með Lenku. Foreldrafélag barnakóra Fella- og Hólakirkju verður með kökubas- ar eftir messu og er ágóðanum var- ið til starfsemi kóranna. Það verður því bæði fjölbreytt, skemmtileg og fræðandi fjöl- skyldumessa í Fella- og Hólakirkju á sunnudaginn og allir, ungir sem aldnir, eru hjartanlega velkomnir. Rúta ekur um hverfið að lokinni fjölskyldumessunni fyrir þá sem lengst þurfa að sækja. Stór helgi í Dómkirkjunni Á LAUGARDAGINN kl. 17 verða orgeltónleikar Guðnýjar Ein- arsdóttur á Tónlistardögum. Við fáum heimsókn frá Neskirkju í messuna kl. 11 á sunnudaginn. Sr. Örn Bárður Jónsson, Kór Neskirkju og organistinn Steingrímur Þór- hallsson flytja messu sem organist- inn hefur samið. Yngri deild Barna- kórs Dómkirkjunnar mun einnig syngja undir stjórn Kristínar Vals- dóttur. Sr. Jakob Ágúst Hjálm- arsson mun prédika og fjalla um kristniboð á Íslandi og erlendis. Í samveru safnaðarfélagsins eftir messu flytur dr. Sigurbjörn Ein- arsson erindi. Þann dag kl. 17 eru svo tónleikar Unglingakórs Dómkirkjunnar og Unglingakórs Bústaðakirkju. Stjórnendur Kristín Valsdóttir og Jóhanna Þórhallsdóttir. Það er ósk okkar og von að þessi mikla dag- skrá komi að góðu gagni og laði marga að. Kvöldvaka í Fríkirkj- unni í Hafnarfirði ANNAÐ kvöld verður kvöldvaka við kertaljós í Fríkirkjunni í Hafn- arfirði og hefst dagskrá kl. 20. Slíkar kvöldvökur eru haldnar einu sinni í mánuði og njóta mikilla vinsælda. Að venju skipar tónlist og söngur stóran sess á kvöldvökunni en það er Örn Arnarson sem leiðir tónlist og söng ásamt hljómsveit og kór kirkjunnar. Umfjöllunarefni kvöldvökunnar er að þessu sinni spurningin, hverju trúa kristnir menn? Við fáum þrjá kirkjugesti til þess að velta þessari spurningu fyrir sér. Að venju verður svo boðið upp á kaffiveitingar í safnaðarheimilinu að lokinni kvöldvöku. Kristniboðsdagurinn í Lindakirkju LINDAKIRKJA í Kópavogi hefur aðsetur til guðsþjónustuhalds í Lindaskóla, þar sem sóknin er ný og kirkjuhús ekki risið. Á kristniboðdaginn, 9. nóvember, verður guðsþjónusta þar kl. 11, að venju. Leifur Sigurðsson kristni- boði prédikar, Guðmundur Karl Brynjarsson sóknarprestur þjónar fyrir altari. Kanga-kvartettinn syngur afrísk lög og sálma ásamt Kór Lindakirkju. Organisti: Hannes Baldursson. Sunnudagaskóli fer fram í kennslustofum á meðan guðsþjónustan fer fram. Að lokinni guðsþjónustu bjóða börn úr 10. bekk Lindaskóla upp á kaffiveit- ingar á vægu verði. Sætaferðir frá Vatnsenda- og Salahverfi. Allir velkomnir. Klassísk messa og gregorssöngur ÁHUGAHÓPUR um klassíska messu og iðkun gregorssöngs stendur nú í haust fyrir messu með gregorslagi 2. sunnudag hvers mánaðar kl. 20 í Friðrikskapellu. Hópurinn kallar til helgiþjónustu ýmsa presta. Næsta messa, og sú þriðja í röð- inni, verður sunnudaginn 9. nóv- ember kl. 20. Sr. Arngrímur Jóns- son messar. Sungin verður VIII messan, Missa de Angelis. Allir eru hjartanlega velkomnir. Klassísk messa og gregorssöngur er dýrmætur arfur kirkjunnar og kjarnmikið andlegt fóður. Það er von þeirra sem að þessari messuröð standa að með henni skapist vett- vangur fyrir þau sem gleði hafa af því að iðka klassíska tilbeiðslu- hætti, hins elsta söngs kirkjunnar, sem tjáningarform trúarinnar. Aðalfundur Listvinafélags Hallgrímskirkju AÐALFUNDUR Listvinafélags Hallgrímskirkju, sem frestað var sl. vor, verður haldinn í Hallgríms- kirkju í dag, laugardaginn 8. nóv- ember, kl. 13:30. Fundurinn hefst með stuttri tón- listardagskrá í kirkjunni, þar sem Mótettukór Hallgrímskirkju og Schola cantorum syngja undir stjórn Harðar Áskelssonar. Aðalfundarstörf fara síðan fram í suðursal kirkjunnar, þar sem ný lög félagsins verða einnig borin undir atkvæði og dagskrá Listvinafélags- ins 2003-2004 kynnt. Kaffiveitingar eru í boði félags- ins og eru listvinir hvattir til að fjöl- menna. Mikil gróska er í starfsemi List- vinafélags Hallgrímskirkju og hefst 22.starfsár félagsins með kant- ötumessu og kantötutónleikum á fyrsta sunnudegi í aðventu þann 30.nóvember nk. ásamt opnun á myndlistarsýningu Braga Ásgeirs- sonar í forkirkjunni. Gospeltónleikar í Sandgerði GOSPELKÓR Fíladelfíu, ásamt hljómsveit, heldur tónleikaí safn- aðarheimilinu í Sandgerði, sunnu- dagskvöldið 9.nóvember kl. 20:30, undir stjórn Óskars Einarssonar. Flutt verður létt Gospeltónlist í bland við fallega lofgjörðarsálma. Meðal laga sem munu hljóma er, Fylltu heimilin af gleði, Down by the Riverside, Oh happy day o.fl. Í lokin gefst tónleikagestum kost- ur á að eignast nýjasta Gospel disk kórsins,„Gleði“. Það verðurgospel stemmingá sunnudagskvöldið í safnaðarheim- ilinuog taka tónleikagestir virkan þátt í söngnum. Aðgangur er ókeypis. Morgunblaðið/Jim Smart
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.