Morgunblaðið - 08.11.2003, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 08.11.2003, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 57 DAGBÓK í Rauðagerði 26 • Opið 10-18 20% afsláttur af öllum síðbuxum og pilsum Langur laugardagur www.green-house.is Ný sending af gæðaskóm frá Portúgal Verð 5.500 Verð 9.900 Ný sending Dömuskór í miklu úrvali Stærðir 42-44 Margrét, sími 897 4770 • www.storirskor.is Guðrún Arnalds, símar 896 2396 og 561 0151 gud.run@mmedia.is Njóttu þess sem er Tími til að anda, létta á hjartanu og endurnærast. Skoða viðhorfin okkar, sleppa því sem er að íþyngja okkur og sættast við líðandi stund. Guðrún Arnalds verður með helgarnámskeið 22-23 nóvember. líföndun • jóga • hugleiðsla • verkefni STJÖRNUSPÁ Frances Drake SPORÐDREKI Afmælisbörn dagsins: Þú ert einbeitt/ur, kraft- mikil/l og metnaðargjörn/ gjarn. Þú þarft að læra eitthvað mikilvægt á komandi ári. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Reyndu að finna milliveginn á milli þess að gæta fjárhags- legs réttar þíns og virða eig- ur annarra. Hér er greinilega þörf á málamiðlunum. Naut (20. apríl - 20. maí)  Það er fullt tungl í merkinu þínu og því áttu erfitt með að ákveða hvort þú eigir að láta þarfir þínar ganga fyrir þörf- um annarra. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Ef þú finnur til líkamlegrar vangetu verðurðu að byrja á því að horfast í augu við vandann. Þegar þú sérð hlut- ina í skýru ljósi geturðu farið að leita leiða til að breyta þeim. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Ekki gera of miklar kröfur til barna þinna, vina eða maka í dag. Tunglið er fullt og því er spenna í fólki. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Sýndu fjölskyldu þinni sér- staka þolinmæði í dag og þá sérstaklega foreldrum þín- um. Þú gætir þurft að taka fjölskylduna fram yfir vinn- una. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Farðu sérstaklega varlega í umferðinni í dag, hvort sem þú ert akandi, gangandi eða á hjóli. Það er hætt við að fólk sé utan við sig þar sem það er fullt tungl. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú gætir lent í deilum um sið- ferði í dag. Mundu að það þurfa ekki alltaf allir að vera sammála. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Það er fullt tungl á móti merkinu þínu og það getur skapað spennu í þér. Reyndu að sýna þolinmæði og um- burðarlyndi. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Reyndu að bægja svart- sýninni frá þér og muna að þinn helsti styrkur felst í bjartsýni þinni og fram- kvæmdakrafti. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Forðastu deilur og frestaðu því að ræða erfið málefni. Tunglið er fullt og það er hætt við að það geri and- rúmsloftið fjandsamlegt. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú þarft sennilega að velja á milli heimilisins og vinnunnar í dag. Þú nýtur mikillar at- hygli og ættir því að gæta sérlega vel að ímynd þinni. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Forðastu deilur um trúmál og heimspeki í dag. Þar sem tunglið er fullt er hætt við að fólk standi blýfast á skoð- unum sínum. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. HEIÐLÓARKVÆÐI Snemma lóan litla í lofti bláu „dírrindí“ undir sólu syngur: „Lofið gæzku gjafarans, grænar eru sveitir lands, fagur himinhringur. Ég á bú í berjamó, börnin smá, í kyrrð og ró, heima í hreiðri bíða. Mata eg þau af móðurtryggð, maðkinn tíni þrátt um byggð eða flugu fríða.“ - - - Jónas Hallgrímsson LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 60 ÁRA afmæli. Ámorgun, sunnudag- inn 9. nóvember, er sextug- ur Eyþór Ágústsson, vél- stjóri, Hafnargötu 4, Stykkishólmi. Hann verður með fjölskyldu og vinum á afmælisdaginn. 90 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 8. nóv- ember, er níræður Haukur Eggertsson, útvarps- virkjameistari og fyrrver- andi forstjóri Plastprents hf., Barmahlíð 54, Reykja- vík. Eiginkona hans er Lára Böðvarsdóttir. Þau eru að heiman í dag. BRETARNIR Brian Senior og Mark Horton eru meðal þeirra sem sjá um mótsblað HM í Monakó. Þunn slemma frá fjórðu umferð vakti athygli þeirra, því besta spilaleiðin virtist vandfundin. Þeir sendu samlanda sínum, David Burn, línu í gegnum tölvuna og báðu hann að leggjast yf- ir spilið. Burn þykir snjall greinandi og var fljótur að svara: Norður ♠ D ♥ Á8 ♦ Á9642 ♣ÁKG82 Suður ♠ K64 ♥ KD94KG3 ♦ 543 ♣ Suður spilar sex grönd og fær út spaðatíu, sem austur tekur með ás og spilar gos- anum til baka. Hvernig myndi lesandinn spila? Burns mælir með þessari leið: Laufásinn er tekinn í öðrum slag og ef austur kemur með drottninguna, er svínað 109xx. Ef báðir fylgja smátt, vill Burns spila tígli á kóng og svína svo laufgosa. Ef laufliturinn gefur fimm slagi eru komnir 11 í allt og tveir möguleikar á þeim tólfta: hjartað 3-3, eða þvingun í hjarta og tígli. Ef vestur reynist hafa byrjað með drottningu fjórðu í laufi, er eina vonin að hjart- að falli og vestur þvingist í láglitunum. Burns reiknast svo til að slemman sé í kringum 44%, en bætir við að forritið Deal- master Pro hafa unnið spilið í 56% tilfella á opnu borði (en inni í því er að fella Dx í laufi fyrir aftan blindan). Norður ♠ D ♥ Á8 ♦ Á9642 ♣ÁKG82 Vestur Austur ♠ 1098532 ♠ ÁG7 ♥ 652 ♥ G107 ♦ 5 ♦ D10873 ♣D106 ♣97 Suður ♠ K64 ♥ KD943 ♦ KG ♣543 Eins og spilið lá var nokk sama hvað leið var valin – allt gaf tólf slagi. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 90 ÁRA afmæli. Ámorgun, sunnudag- inn 9. nóvember, er níræður Guðmundur Ingimund- arson, (Gvendur á Garð- stöðum), Garðbraut 43, Garði. Hann mun ásamt konu sinni, Helgu Sigurð- ardóttur, taka á móti gest- um þann dag í Samkomu- húsinu í Garðinum frá kl. 15 til 18. Hjónin vona að fjöl- skylda, vinir og kunningjar komi og samfagni þeim á þessum tímamótum. Blóm og gjafir vinsamlegast af- þökkuð. 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 Re7 5. a3 Bxc3+ 6. bxc3 c5 7. Rf3 b6 8. Bb5+ Bd7 9. a4 Bxb5 10. axb5 Dc7 11. O-O O-O 12. He1 cxd4 13. cxd4 Hc8 14. Ba3 Rg6 15. c3 Dc4 16. Hb1 a6 17. Rd2 Dc7 18. bxa6 Hxa6 19. Bb4 Rc6 20. Bd6 Db7 21. He3 Ra5 22. Dg4 Dd7 23. h4 Re7 24. Bxe7 Dxe7 25. Hg3 f5 26. exf6 Dxf6 27. He3 Hc6 28. Hbe1 b5 29. Dg3 Dd8 30. h5 h6 31. Rf3 Rc4 32. H3e2 Rd6 33. Re5 Hc7 34. Rg4 Rf5 35. Dd3 Dd7 36. Re5 De8 37. Rg6 Hf7 38. Rf4 He7 Staðan kom upp í fyrri hluta Íslands- móts skákfélaga, Flugfélagsdeildinni, sem lauk fyrir skömmu í Mennta- skólanum í Hamra- hlíð. Benedikt Jónasson (2283) hafði hvítt gegn Stefáni Kristjánssyni (2403). 39. Dxf5! Glæsileg drottningarfórn sem trygg- ir hvítum unnið tafl vegna góðrar samvinnu manna hans. 39...exf5 40. Hxe7 Dc6 41. He8+ Kf7 42. H1e7+ Kf6 43. He5 Kg5 svartur stæði einnig illa eft- ir 43... Kf7 44. H8e7+. 44. Rxd5 g6 45. Hg8 Dc4 46. Hxf5+! Kh4 47. Hxg6 b4 48. g3+ Kh3 49. Rf4#. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Fyrir flottar konur Bankastræti 11 • sími 551 3930 50 ÁRA afmæli. Mánu-daginn 10. nóvember er fimmtug Hildur Bald- vinsdóttir, Árholti 9, Húsa- vík. Eiginmaður hennar er Garðar Jónasson. Hún tek- ur á móti frændum og vin- um í Vökuholti veiðiheimili við Laxamýri í dag, laug- ardag, milli kl. 17–22. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Sam- þykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.