Morgunblaðið - 20.05.2004, Page 18

Morgunblaðið - 20.05.2004, Page 18
ERLENT 18 FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ w w w .d es ig n. is © 20 03 - IT M 20 04 15 Ármúla 31 • S. 588 7332 Opi›: Mán. - föst. 9-18, Laugardaga 10-14 Einnig miki› úrval blöndunartækja Recife á bor› 46x46 sm Kr. 22.900,- Nilo í bor› 47,5x39 sm Kr. 11.900,- Nila í bor› 56,5x47 sm Kr. 7.900,- Denver á bor› 40x41,5 sm Kr. 23.900,- Laguna á bor› 49x39 sm Kr. 18.900,- Miami á bor› 48,5x62,5 sm Kr. 16.400,- Cima í bor› 53,5x41,5 sm Kr. 10.900,- Lyra á vegg 45x35 sm e›a 50x24 sm Kr. 3.250,- Nostalgia á fæti 70x57 sm Kr. 65.900,- Madeira á fæti 51x40 sm Kr. 23.900 Natal á bor› 61x52 sm Kr. 23.900,- Bahia í horn 47,5x48 í horn Kr. 18.900,- Nila á fæti 55x45 sm Kr. 9.450,- Corinto í bor› 60x48,5 sm Kr. 19.900,- Marina hornhandlaug 65x52 sm kr. 12.900,- Marina á vegg 50x35 sm Kr. 4.850,- Fama í bor› 56x47 sm Kr. 10.900,- Dallas á bor› 46x46 sm Kr. 19.700,- Las Vegas á bor› 49x51,5 sm Kr. 20.900,- Boston á bor› 40,5x40,5 sm Kr. 12.920,- kr kr kr kr krkr krkr krOpnunartilbo› postulínshandlaugar O P I ‹ Í D A G U P P S T I G N I N G A R D A G „MÉR líst vel á að Singh verði forsætisráðherra. Hann er einn af mikilhæfustu forystumönnum sem Indland hefur átt á seinni árum,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, en hann hitti Manmohan Singh er hann kom hing- að til lands fyrir tæplega þremur árum. Þá var hann í föru- neyti Soniu Gandhi sem kom hingað í einkaheimsókn í boði Ólafs. „Hann er mjög yfirvegaður og fágaður maður. Skemmti- leg blanda af heimsmanni og Indverja. Vel menntaður og víðsýnn en jafnframt hógvær og lítillátur,“ segir Ólafur þegar hann er spurður hvernig Singh kom honum fyrir sjónir. Hann segir Singh njóta mikillar virðingar bæði á Indlandi og um allan heim. „Hann var einn helsti áhrifa- maður Kongressflokksins í stjórnartíð hans og höfundur þeirra efnahagsbreytinga sem hafa gert Indverjum kleift að njóta hagvaxtar á liðnum árum.“ Ólafur segist skilja vel þá ákvörðun Soniu Gandhi að verða ekki forsætisráðherra landsins þrátt fyrir að hún hafi ákaft verið hvött til þess. „Fjölskyldan hefur orðið að búa við mikinn ótta á undanförnum árum og ef hún tæki við embættinu væri hún að gera sjálfa sig að skotmarki. Satt að segja er aðdáunarvert að þessi kona, sem hefur tekist á við svo mikla sorg í fjölskyldu sinni, hafi fallist á að verða forystumaður þessa sögufræga flokks og leitt hann til sig- urs í þessu fjölmennasta lýðræðisríki heims. Það er ekki lít- ið afrek.“ Ljósmynd/Gunnar G. Vigfússon Sonia Gandhi, Ólafur Ragnar Grímsson, Dorrit Moussaieff og Manmohan Singh fyrir utan Bessastaði sumarið 2001. Ólafi Ragnari líst vel á nýja forsætisráðherrann FORSETI Indlands, Abdul Kalam, fól í gær Manmohan Singh úr Kongress-flokknum að mynda nýja ríkisstjórn. Flokkurinn útnefndi Singh for- sætisráðherraefni sitt í gær eftir að ljóst varð að Sonia Gandhi, leiðtogi flokksins, vildi ekki taka að sér embættið. Singh og Gandhi gengu á fund Kalams í gær og lýstu því yfir að Kongressflokkurinn og stuðningsflokkar hans hefðu meirihluta á þinginu. Fyrrverandi stjórnarflokkar, þar sem harðlínu-hindúar hafa mikil áhrif, hafa farið hamför- um síðustu daga gegn Gandhi, sem er er ítölsk að uppruna og sagt að útilokað væri að hún gæti tekið við forystu landsins vegna upprunans. Sagði Gandhi að hún óttaðist að þeir myndu grípa til örþrifaráða ef hún tæki við embættinu. Eig- inmaður hennar, Rajiv Gandhi, sem var forsætisráðherra um nokkurra ára skeið, var myrtur 1991. Móðir hans, Indira Gandhi, var myrt nokkrum ár- um fyrr er hún gegndi embætt- inu. Singh sagði að hann vildi gera Indland að fyrirmyndar- ríki í efnahagsumbótum. „Við sendum mörkuðunum þau skilaboð að stjórn okkar geri sér grein fyrir mikilvægi heilbrigðs fjármálamarkaðar. Það er engin ástæða til ótta,“ sagði hann. Singh hét því að Indland yrði land þar sem fá- tækir myndu fá ný tækifæri. Verð á fjármálamörkuðum hef- ur hrunið eftir að Kongress- flokkurinn vann óvæntan sigur í þingkosningum í síðustu viku. Singh er hins vegar þekktur fyrir eindreginn stuðning sinn við markaðsstefnu og gæti því tilnefning hans orðið til að róa markaðina. Verðið hækkaði þegar um nær 3% er ljóst var að hann tæki við. Gandhi verður áfram formaður Singh var í gær kjörinn leið- togi þingflokks Kongress- flokksins. Hann er 71 árs gamall hag- fræðingur frá Oxfordháskóla, er síkhi og verður fyrsti for- sætisráðherra Indlands sem ekki er hindúi. Singh starfaði um tíma hjá Alþjóða gjaldeyr- issjóðnum, IMF, en gegndi embætti fjármálaráðherra meðan Kongressflokkurinn var við völd á árunum 1991 til 1996. Hann beitti sér þá fyrir því að indverska hagkerfið yrði opnað eftir áratugalanga haftastefnu. Mikið hefur verið reynt að fá Soniu Gandhi ofan af þeirri ákvörðun sinni að gefa ekki kost á sér í embætti forsætis- ráðherra. Í yfirlýsingu, sem hún sendi flokksfélögum, sagð- ist hún ætla að leiða flokkinn áfram. „En ég bið ykkur að skilja að ég tala af dýpstu sannfæringu þegar ég segi að að ég geti ekki breytt ákvörðun minni um að verða ekki for- sætisráðherra,“ segir hún. Singh verð- ur forsætis- ráðherra Indlands Öflugur talsmaður markaðs- stefnu og verðlag hækkaði þegar á mörkuðum Nýju Delhí. AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.