NT - 07.06.1984, Page 4

NT - 07.06.1984, Page 4
Fjöldi nýrra vínveitingaleyfa: ■ Helga Ingólfsdóttir semballcikari. Tónleikar Helgu Ingólfsdóttur í kvöld: Fjögur sembal- verk eftir Bach ■ Á tónleikum Helgu Ingólfsdóttur semballeikara í Kristskirkju Landakoti í kvöld leikur hún einvörð- ungu verk eftir J.S. Bach, „efnisskráin er valin með tilliti til þess að á næsta ári verða liðin 300 ár frá fæðingu J.S. Bachs," segir Helga í tilkynningu um tónleika sína. Verkin sem hún leikur eru annars Prelúdía og fúga í B-dúr BWV 890, Frönsk svíta nr. IV í Es-dúr BWV 815, Konsert í ítölskum stíl í F-dúr BWV 971 og Forleikur að frönskum hætti í H-moll BWV 831. Tvö seinni verkin eru viðamest segir Helga, en þau gaf Bach út árið 1735 undir heitinu klavierúbung nr. II. (æfingarfyrirslaghörpunr. 2). Á titilsíðunni gefur höfundurinn forskrift að því að þau skuli leikin á tveggja hljóðfæra sembal og það er einmitt slíkur semball sem Helga leikur á. Hljóðfæri hennar er eftirlíking af hljóðfæri sem hollenskur sembalsmiður, J.D. Dulcken smtðaði árið 1745. Haspo, FÁNASTENGUR Eigum til afgreiðslu þýskar ál fánastengur 6,8 og 10 metra Á hagstæðu verði Sölustaðir: Sambandið Byggingavörur Suöurlandsbraut 32 og kaupfélög víöa um land Umboð: Innflutningsdeild Sambandsins Búsáhöld - Holtagörðum - Sími 812 66 Bjórstofur taka völdin ■ Þeim fjölgar nú óðum, þeint stöðum í Reykjavík sem hafa áfenga drykki á boðstólum. Sérstaklega ber á svokölluðum bjórstofum, sem selja í bjór- gíösum áfengisblöndu sem svip- ar til bjórs. Borgarráð sendi á þriðjudag, til umsagnar Áfengisvarnarráðs, umsóknir frá veitingahúsunum Bixið, Hornið og Duus við Aðalstræti, um vínveitingaleyfi. Pá hefur borist frá matsnefnd vínveitingahúsa, til dómsmála- ráðuneytis, umsögn um um- sóknir Brauðbæjar, Safari og Stúdentakjallarans. Er þar um að ræða endurnýjun á vínveit- ingaleyfi og breytingar. Mats- nefndin mælti ekki gegn um- sóknunum. Meðal staða sent hlotið hafa vínveitingaleyfi upp á síðkastið má nefna Zorba við Laugaveg, Pöbbinn við Hverfisgötu, Hótel Hof við Rauðarárstíg og Hjá Kokknum við Laugaveg. 29. maí sl. samþykkti borgar- ráð að mæla ekki gegn umsókn- um nokkurra staða. Má þar nefna Veitingahúsið Sjávarsíða við Tryggvagötu, Sælkerann á Austurstræti, Veitingahúsið Tryggvagötu 26 og Skálkaskjól 2, en það er nýtt nafn á Stúd- entakjallaranum. Er hér um að ræða cndurnýjanir á leyfum, breytingar og ný leyfi. Þá hefur Gafl-inn í Hafnarfirði sótt um almennt vínveitingaleyfi. Bæjarstjórn hefur vísað málinu til áfengismálanefndar og lög- reglustjóra. Einnighefur Hrafn- kell Guðjðnsson sótt um vín- veitingaleyfi fyrir Junó Bar viö Skipholt. Það er því greinilega fjölgun á vínveitingahúsum í vændum. Sagt er að Jón Helgason Itafi' reynt að hægja á úthlutunum vínveitingaleyfa þegar hann tók við og komið þeirri klásúlu inn í reglugerð, að vísa verði um- sóknum til Afengisvarnarráðs. Hins vegar sé flóðbylgja um- sókna svo mikil að Jón ráði ekki við. Ekki er annað að sjá en að fólk kunni vel þessum nýju stöðum. Starfsmaðureinsþeirra sagði að mest kæmi þangað í hádeginu fastagestir, sem kæmu þá til að borða. Hann sagði að iítið væri um „drykkju" og að menn sætu frekar yfir einu bjórglasi. Þá sögðu gestir okkur að oft væri mikil og góð stemmning á kvöldin á bjórstofunum og þá sungið og trallað. En nokkrir gestir sögðu að það væri ansi hart að þurfa að borga hátt verð fyrir „bjórlíki“ meðan góður bjór væri bruggað- ur á landinu. ■ Jú, þessi inynd er tekin á íslandi. Nánar tiltekið á Pöbbinum við Hverfisgötu. Hvað er langt þangað til að um krana sem slíka rennur góður bjór í stað bjórlíkis? NT-mynd: Róbcri Fimmtudagur 7. júní 1984 4 ■ Velkomin. Friðrik Sigurðsson og Kristján Sigurmundsson forstöðumenn dvalarheimilisins fyrir þroskahefta sem opnað var að Fífuhvammsvegi í Kópavogi í gær. NT mynd Árni Bjarnason Nýtt á íslandi - Kópavogsbær opnar skamm- tímadvöl fyrir þroskahefta ■ í gærdag opnaði Kópavogs- bær skammtímadvalarheimili fyrir þroskahefta í húsnæði sérkennslustöðvar bæjarins að Fífuhvammsvegi 31. Þar er ætl- unin að þroskaheftir sem eru á heimilum aðstandenda ^eti dvalið til lengri eða skemmri tíma til hressingar og skemrnt- unar, allt frá því að vera þar dagstund upp í 8 vikur, en slík þjónusta hefur ekki þekkst hér- lendis fyrr. Hjá forstöðu- mönnum fengust þær upplýsing- ar að bókanir hefðu verið heldur fáar en búist er við að úr rætist með aukinni kynningu á heimil- inu. í gær var mörgum aðstand- endum þroskaheftra í Kópavogi boðið að vera við opnun og kynna sér aðstæður og bókuðu margir dvöl fyrir sitt fólk að því ioknu. Þeir Kristján og Friðrik, forstöðumenn heimilisins sögðust vilja leggja áherslu á það að heimilið væri ekki hugs- að sem neitt neyðarúrræði í vistun þroskaheftra heldur hvíldar og hressingarheimili fyr- ir þroskahefta og um leið fyrir- byggjandi til þess að fólk geti haft þessa einstaklinga inn á heimilunum með þessari aðstoð. Fyrst um sinn verður heimilið starfrækt í tvo mánuði en fram- hald rekstrarins er reiknað með að ráðist af þeirri þörf sem kemur í Ijós á þeim tíma. Að Fífuhvammsvegi geta verið fimm dvalargestir í senn en auk þess verða að jafnaði tveir starfsmenn á staðnum. Takmarkinu náð: Gigtlækn- ingastöð opnuð ■ Gigtarfélag íslands hefur tekið í notkun nýja gigt- lækningastöð að Ármúla 5 í Reykjavík. Gigtlækningastöðin er í 530 fermetra húsnæði, sem félagið keypti árið 1981. Þar er aðstaða fyrir 4-6 sjúkra- þjálfara, tvo iðjuþjálfa og tvo lækna í senn, en 5 læknar munu skiptast á um að þjóna sjúklingum í stöðinni. Með tilkomu gigtlækn- ingastöðvarinnar er lang- þráðu takmarki náð. Nú verður hægt að samræma alla aðstoð við gigtsjúka, auk þess sem auknir möguleikar eru nú á fræðslustarfi af ýmsu tagi. Gigtarfélagi Islands hafa borist margar góðar gjafir til gigtlækningastöðvarinnar, frá bæði einstaklingum og félagasamtökum. Þá hefur félagið sjálft staðið að fjár- öflun til stöðvarinnar. Endurhæfingarráð, Alþingi og Reykjavíkurborg hafa einnig veitt fé til hennar. Gigt hefur verið nefnd dýr- asti sjúkdómur í heimi og tíðni hennar er mjog há. Talið er að 25 þúsund íslend- ingar þjáist af gigt og þúsund- ir bera ævilangar menjar sjúkdómsins. Gigtlækningastöðin er hluti heilbrigðiskerfisins í landinuog greiðirTrygginga- stofnun ríkisins fyrir hverja meðferð sjúklings á hliðstæð- an hátt og á öðrum endur- hæfingarstöðvum.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.