NT - 07.06.1984, Page 16

NT - 07.06.1984, Page 16
Hin nýja Fimmtudagur 7. júní 1984 16 KLEÓPATRA og kakan M Bölvun Tutankhamens fylgir fornmununum úrgraf- hvelfingunum.er sagt.en hér sjáum við 4.600 ára gull- líkneskju. sem er fyrirmynd- in að kökunni hennar Christ- ie. ■ Hún Christie Brinkley, leikkona/fyrirsæta, er kannski ekki mjög lík Kleópötru hinni fornu drottningu, en hún er ekki síður full kynþokka en sagt er að sú egypska hafi verið. Hér sjáum við hvar Christie tekur sig út fyrir ljósmyndarann við hliðina á af- mæliskökunni sinni, sem var bökuð í líkingu við múmíu frá fyrir 4-5 þúsund árum. Haldið var upp á afmælið á eygpskri deild New York Metropolitan Museum of Art, en þar hafði Brinkley fatasýningu, þrátt fyrir mikil blaðaskrif og aðvar- anir til manna um að koma ekki nálægt neinum fornum eygpskum munum úr grafhelf- ingum hinna fornu konunga. Þeim fylgi bölvun, eða eitthvað óþekkt eiturefni, sem hafi orðið mönnum til meins og jafnvel bana. Skorað hefur verið á þá sem hafa einhverja slíka muni undir höndum, að koma þeim til rannsóknar - annað væri ábyrgðarhluti. Sumir segja að þessi að- vörun frá egypskum aðilum sé til þess að komast eftir hvar séu í einkaeigu eða söfnum ýmsir forngripir, sem hafi verið flutt- ir ólöglega út úr Egyptalandi. M Erégekkilík henni Kleó- pötru? sagði Christie Brínk- ley við hliðina á „múmíu-kök- unni" sinni. MARILYN X* MONROE-BRÚDUNNI FYLGDU REIMLEIKAR i Talast við undir fjög- ur (nei, átta!) augu ■ Stór-spæjararnir Roger (007) Moore og Michael Caine sjást hér saman á góðri stund í Los Angeles. Bond tottar stór- an vindil en Caine er hugsandi mjög. Þeir tveir hafa leikið ein- hverja mestu njósnara sem sést hafa á hvíta tjaldinu. Báðireru herramennirnir með gleraugu, enda komnir á virðulegan aldur. Líklega þyrftu þeir að taka ofan gleraugun áður en þeir færu að leika einhverja njósnaspennuþætti. Annars höfum við það fyrir satt, að þeir séu báðir hættir að slást sjálfir í hasar-atriðum heldur láti staðgengla sína um það, - en þeir ku enn sjálfir sjá um ástaratriðin. M Martha Miller er mikill brúðusafnari. Hún er 42 ára, býr ein ng hefur aldrei gifst né eignast barn, en gengst mjög upp í brúðusafni sínu, sem er bæði stórt ug fallegt. Hún hafði lengi ætlað sér að kaupa í safnið eina Marilyn Monroe-dúkku, en þær cru rnjög fallegar og kosta um 80 doliara stykkið. Hún lét svo verða af því fyrir nokkrum mánuðum. En það var ekki liðinn einn mánuður, þegar þessi brúðukaup höfðu snúist upp í hálfgerða martröð fyrir eigandann. Martha Miller segir, að brúðunni fylgi reimleikar, og sé það áreiðanlega stjarnan sjálf sent sé að gera vart við sig. Brúðan færðist alltaf til á nóttunni, og var aldrei á sama stað á morgnana og hún hafði verið sett á kvöldið áður. „í fyrstu hélt ég að þetta væri einhver vitleysa í mér sjálfri, eða að ég væri að verða eitthvað rugluð“, sagði brúðu- eigandinn. Hún sagðist samt ekki hafa verið tilbúin til að samþykkja það, en hugsaði sér að rannsaka málið nánar Martha setti smádúk undir dúkkuna að kvöldi til á snyrti- borði sínu, - en tók alla smá- dúka í íbúðinni og geymdi f skúffu, svo ekki yrði neinn ruglingur úr þessu. Að morgni var svo brúðan á náttborðinu hennar. Þetta sama gerðist, er hún setti brúðuna að kveldi á smádúk á lítið kaffiborð í borðstofunni. en næsta morg- un stóð hún á miðju borðstofu- borðinu. Smám saman varð Martha hrædd og hafði miklar áhyggjur af þessu, og vildi skila dúkkunni aftur í verslun- ina þar sem hún keypti hana. Þeir vildu ekki skipta, því of langur tími hafði liðið frá því hún var keypt. „Ég reyndi að gera þeim skiijanlegt í búðinni, að ég vildi ekki eiga brúðuna, því að það fylgdu henni reim- leikar, en það var bara hlegið að mér“, sagði Martha Miller. „Ég varð reið“. sagði hún síðan, „og vissi ekki þó hvað ég gæti gert“. Þá var mér bent á konu, sem hefði miðilsgáfur og hún hefði líka reynt við að kveða niður draugagang í húsum.“ Martha fékk viðtal við miðil- inn Corrine og hafði brúðuna með sér. Um leið og hún kom inn sagðist miðillinn finna fyrir nærveru einhverrar fallegrar veru. Þegar Corrine for að handfjatla dúkkuna féll hún f dá og sagði í dásvefninum, að brúðunni fylgdi andi Marilyn Monroe, og hún væri að reyna að ná sambandi við lífið á ný í gegnum þetta leikfang. Martha segist ekki lengur vera hrædd við það sem fylgi brúðunni og vera ákveðin í að eiga hana áfram. „Ég hugsa að allt verði rórra núna, þegar við höfum fengið botn í málið“ sagði hún eftir miðilsfundinn. Burton « Burton ■ Richard Burton mætti með sparibrosið, þegar hann kom að heilsa upp á dóttur sína, Kate Burton, að tjaldabaki á Broadway. Kate lék þar í leikritinu „Present Laughter“. Pabbinn virðist vera ánægður með frammi- stöðu dótturinnar. Þau feðginin ætla að koma fram saman í sjón- varpsþætti seinna á þessu ári í „Ellis Island“. Þar mun Kate leika dóttur Richards.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.