NT - 07.06.1984, Blaðsíða 17

NT - 07.06.1984, Blaðsíða 17
 I- Fimmtudagur 7. júní 1984 17 M Skrautlega Marilyn-brúðan, aem gerð e eftir hínni vinsælu leikkonu sem dó , dularfullan hátt i ágúst 1962 ■ Nýlega var kvikmyndin Scarface sýnd hér og vakti hún mikla athygli. Al Pacino, sem lék aðalhlutverkið var vel f>ekktur áður, en stúlkan sem fór með aðalkvenhlutverkið /ar óþekkt. Hún heitir Mary Elizabeth Mastrantonio, og með mydninni Scarface varð hún aðnjótandi þeirrar frægðar, sem oftast gefst aðeins í draumum ungra stúlkna um frægð. Mary Elizabeth hafði varla ráðrúm til að átta sig eftir að myndin hafði verið frumsýnd, þegar pressan var farin að gefa henni nafnið „Andlit 9. ára- tugarins. “. Mary Elizabeth hafði verið við söngnám og tekið þátt í flutningi söngleika, sem ekki höfðu gengið vel, þegar ieik- stjórinn Brian De Palma kom auga á hana, en hann var að leita að stúlku í hlutverkið í Scarface, og hafði leitað mikið og víða. - Ég þurfti að finna stúlku sem gat verið sakleysisleg og breytt sér í kynbombu í einni svipan, og Mary Elizabeth hafði allt sem með þurfti. Svo er hún góð leik- og söngkona, og ég spái henni miklum frama, sagði leikstjórinn. Mary Elizabeth Mastranton- io er 25 ára New York stúlka af ítölskum ættum. M Hln fagra látna Marilyn Monroe. <* Rod og nýja Ijóskan ■ Rod Stewart hefur látið huggast, en hann var hálfaumur þegar Alana hans stakk hann af yfir hafið. Einhvers staðar sagði svo: Karlmenn kjósa helst ljósk- ur (eða gentlemen prefer blond- ies), og það virðist koma heim og saman við smekk Rods Stewarts, sem einu sinni var í stormasamri sambúð við Britt Ekland, og síðan hinni ljós- hærðu Alana Hamilton og nú sést hann stöðugt með nýrri kærustu Kelly Emberg, sem hann kynnir hér fyrir ljósmynd- urum sem voru á eftir hinum fræga rokkara. ■ Hin fagra Mary Elizabeth Mastrantonio, sem varð fræg í Scarface.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.