NT - 07.06.1984, Blaðsíða 15

NT - 07.06.1984, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 7. júní 1984 1 5 verða að eiga þess kost að gera það upp við sig hvort þeir yfirleitt hafa efni á að borða á viðkomandi stað áður en þeir ganga inn. Maður hefur oft orðið vitni að því að fólk hefur horfið frá því að fá sér mat á veitingastað eftir að hafa séð matseðilinn inni. Einnig veit maður tii þess að fólk hefur veitt sér dýrari mat en það ætlaði sér eftir að það hefur sest inn. „Slíkt á auðvitað ekki að eiga sér stað,“ sagði Jó- hannes Gunnarsson. Skemmtistaðirnir tregir í samtali við Jóhannes kom einnig fram að skemmtistaðir eru margir hverjir nokkuð tregir til að fara að settum reglum um verðmerkingar. í því sambandi nefndi hann auglýsingar í blöðum, en í þeim ber skemmtistöðum að taka fram sérstaklega ef verð aðgöngumiða er hærra en venjulega vegna sérstakra skemmtikrafta. „Oft er aðeins skemmtikrafturinn auglýstur en ekkert sagt um hækkað verð,“ sagði hann. -En hver eru viðurlögin við brotum á reglum um verð- merkingar? „Það er náttúrulega skýlaust lagabrot að fara ekki að settum reglum. Okkur er mögulegt að kæra slík brot til rannsóknar- lögreglu ríkisins og þar eiga þau að fá meðferð eins og önnur kærumál. En við höfum hingað til reynt að fara hina leiðina. það er að segja benda mönnum vinsamlega á að þeir fari ekki að settum reglum og reyna þannig að fá þá til að bæta sig og ég veit ekki til að komið hafi til sekta eða refs- inga ennþá vegna svona mála. En nú nýlega hafa allar aðstæð- ur breyst. Verðlag er frjálst og þess vegna hef ég grun um að við munum fljótlega breyta um stefnu í þessum efnum og fara út í harðari aðgerðir gagn- vart þeim sem ekki standa sig,"sagði Jóhannes Gunnars- son. JÚNÍ ÚTBOÐ RÍKISVÍXLA Skilafresturtilboða ertil kl. 14:00 miðvikudaginn 13. júní 1984. Tilboðum sé skilaðtil lánadeildar Seðlabanka íslands, Hafnarstræti 10, Reykjavík, fyrir þann tíma. Útboðsskilmálar, sem eru hliðstæðir þeim sem giltu í maíútboðinu, liggja frammi ásamttilboðseyðublaði í afgreiðslu Seðlabankans, en þeir eru helstir: 1 Gert sé tilboð ' lágmark 5 víxla hvern að ■ fjárhæð kr. 50.000,- þ.e. nafnverð kr. 250.000.-, eða heilt margfeldi af því. 2. Tilboðstrygging er kr. 10.000.- A Ríkisvíxlarnir eru stimpilfrjálsir og ■ án þóknunar. Um skattalega meðferð þeirra gilda sömu reglur og hverju sinni um innstæður í bónkum og sparisjóðum. Útgáfudagur víxlanna er 15. þ.m. og gjald- dagi 14. september n.k. Reykjavík, 7.júní 1984 RÍKISSJOÐUR ÍSLANÐS

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.