NT


NT - 07.06.1984, Side 6

NT - 07.06.1984, Side 6
GOTT POLK Fimmtudagur 7. júní 1984 6 Utgerðarmenn á Austurlandi: Fjögur skilyrði sett fyr- ir áframhaldandi rekstri ■ „Nú er 15-25% tap á útgerð og um 5% tap á saltfiskverkun. Tap á skreiðarbirgðum er 200- 300 milljónir og táknrænt fyrir afstöðu stjórnvalda er að ætla að taka „gengishagnað" af skreiðarbirgðum þrátt fyrir tapið. Tap er nú einnig á rekstri frystihúsa“, segir m.a. í yfirlýs- ingu sem blaðinu hefur borist frá forráðamönnum 11 sjávarút- vegsfyrirtækja á Austurlandi, þeirra hinna sömu sem lýstu því yfir fyrir skemmstu að skipum fyrirtækjanna verði lagt 24. júní nk. í yfirlýsingu þessari segir einnig að Ijóst sé að fyrirtæki í sjávarútvegi hafi haldið áfram rekstri mun lengur en skynsam- légt virðist. Til þess að unnt sé að halda rekstrinum áfram, krefjast fyrir- tækin þess að eftirfarandi fjögur skilyrði verði uppfyllt: 1. Endurkaupalán Seðla- bankans hækki í 60% af afurða- verðmæti og viðskiptabankarnir láni 24% til viðbótar. 2. Einn milljarður verði út- vegaður að láni til að greiða hluta af vanskilaskuldum. 3. Fiskverð verði ákveðið þannig að meðalíyrirtæki séu rekin taplaust. 4. Vextir á afurðalánum verði lækkaðir. Nýr adstoðar- bankastjóri ■ Axel Kristjánsson lögfræðingur var ráð- inn aðstoðarbanka- stjóri Útvegsbankans í gær. Axel Kristjánsson lauk lagaprófi frá Há- skóla íslands 1954 og hóf störf í Útvegs- bankanum sama ár. Hann hefur verið aðal- lögfræðingur bankans síðan 1. september 1963. Kosangasið á guíu kútunum fæst nú á öllum helstu útsölustöðum Skeljungs, bæði á höfuðborgarsvæðinu og út um land. Kosangasið er fáanlegt alls staðar í 2ja, 5 og 11 kílóa kútum, en 17 og 33ja kílóa kút þarf sumstaðar að panta með örlitlum fyrirvara. Athugið að tómum hylkjum er veitt móttaka á öllum sölustöðum Kósangass og umframhylki eru keypt af viðskiptavinum gegn staðgreiðslu. Gleymið ekki þeim gulu í sumar! ©Skeljungur h.f. Einkaumboð ■ Þátttakendur í fyrstu skipulögðu skoðunarfcrðinni til Akraness fyrir utan Akraprjón þar sem Rúnar, framkvæmdastjóri færði öllum forláta ullartrefla í tilefni dagsins. Onnur frá vinstri á myndinni er Þórdís, leiðsögumaður. NT-mynd S.L.P. Kynnisferðir á Akranes alla f immtudaga í sumar: Vilja laða fleiri ferðamenn á Skaga ■ „Þetta er svona frumraun okkar Akurnesinga - bæði til að laða fleiri ferðamenn hingað uppeftir og eins til að gera eitthvað fyrir þá ferðamenn sem koma og vita ekkert hvert þeir eiga að snúa sér varðandi upplýsingar og leiðbeiningar", sagði Þórdís Artúrs- dóttir, sem í sumar verður leiðsögu- maður í sérstökum „pakkaferðum" sem boðið verður upp á til Akraness í sumar. Það eru nokkrir hagsmunaaðilar á Akranesi, m.a. frá Útgerð Akraborgar, veitingahúsinu Stillholti og Minjasafn- inu sem unnið hafa að undirbúningi þessa sérstaka ferðaprogramms undan- farna mánuði og sagði Þórdís hafa verið ákveðið að stíla það inn á fiskinn og sjávarútveginn. Boðið er upp á ferðir þessar alla fimmtudaga frá og með fimmtudeginum 7. júní. En einnig sagði Þórdís mögulegt að hafa þær á mánudögum h'ka ef stærri hópar koma. Reiknað er með að fólkið komi með morgunferð Akraborgarinnar kl. 10 úr Reykjavík og að tekið verði á móti því á Skaga kl. 11. Fyrst liggur leiðin á Minjasafnið þar sem m.a. er góð sjó- minjadeild. Þá er farið í góðan hádeg- isverð - sjávarrétti - á hinu prýðilega veitingahúsi Stillholti. Næst liggur leið- in í frystihús þar sem kynnt er með- höndlun fisksins frá því hann kemur í land og þar til hann er tilbúinn til útflutnings. Eftir göngutúr um höfnina er ekið gegn um bæinn að Akraprjóni þar sem ferðamönnum gefst tækifæri á að kaupa allskonar ullarvörur á heild- söluverði. Þaðan er ekið á Akratorg þar sem þrír eigendur keramikverkstæðis hafa útimarkað í tengslum við þessar ferðir. Til baka er farið með 5,30 ferð Akraborgar. Verð þessarar ferðar er 900 kr. og eru þá innifaldar ferðir Akraborgar, aðgangur að safninu, há- degisverðurinn í Stillholti, leiðsögn á íslensku og ensku og rúta á Skaga. Miðar eru seldir í ferðaskrifstofum í Reykjavík, m.a. söluturninum á Lækj- artorgi. I Kaupfélag- I ið byrjar á I stórbyggingu ■ Fyrsta skóflustunga að grunni nýs verslunarhúss Kaupfélags Stykkishólms var tekin þar s.l. laugardag. Verkið framkvæmdi I Jóhannes Guðjónsson, sem starf- að hefur hjá félaginu um langan I aldur, en hann hætti þar störfum fyrir tveim árum þá 82 ára gamall. Hin nýja verslun verður á Borgar- braut, andspænis Hólmkjöri. Að sögn kaupfélagsstjórans, Ásmundar Karlssonar, á húsið að I verða 1.296 fermetrar að grunn- fleti, en áætlað er að það verði byggt í áföngum. Ráðgert er að í fyrsta áfanga verði byggður tæpur helmingur hússins, sem hýsa á nýja kjörbúð Kaupfélagsins. Síð- ari áfangar verða fyrir aðra starf- semi félagsins, byggingarvöru- verslun og aðrar sérvörur, lager og skrifstofur. Ásmundur sagði nú unnið að því að skipta um jarðveg í grunni, sem áætlað er að taki um 6 vikur, I en hvað meira verður gert í sumar I sagði hann ekki ákveðið ennþá. Að byggingarframkvæmdum standa Kaupfélag Stykkishólms og Samband ísl. samvinnufélaga.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.