Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 20
Þær eru þungar byrðarnar semliðsmenn handboltalandsliðs- ins og þjálfarar þess bera. Tap- leikur á stórmóti þýðir nefnilega ekki bara minni möguleika á góð- um árangri heldur líka, og alls ekki síður, sár á sálartetri þjóðar- innar. Sú var tíðin að Íslendingar voru lélegir í handbolta, deildar- keppnin var lítilfjörleg, fáir leik- menn léku með erlendum liðum og kröfur þjóðarinnar um góðan árangur á alþjóðavettvangi voru í takt við það. Umfjöllun um leiki á stórmótum var af skornum skammti enda beinar sendingar útvarps- og sjónvarpsstöðva ekki komnar til sögunnar og ekki nema á færi hörðustu áhuga- manna að telja upp leikmenn landsliðsins. Á þessum árum sameinaðist þjóðin um eitthvað allt annað en handbolta. En svo kom Bogdan, pólskur undramaður sem vissi meira um íþróttina en nokkur annar og leit sumpart á hana sem vísindi. Landsmönnum fannst eitthvað við þennan mann sem ekki kunni stafkrók í íslenskri tungu, leit út eins og skipasmiður frá Gdansk og barði leikmenn áfram með áðuróþekktum aðferðum. Hann lét þá til dæmis gera þolfimi- æfingar og það fannst okkur hin- um fyndið. Íslendingar verða hand- boltaþjóð Bogdan fór með landsliðið á Ólympíuleikana í Los Angeles árið 1984 og náði ótrúlegum ár- angri, sjötta sæti. Og það var þá sem ballið byrjaði, við vorum á góðri leið með að verða handbolta- þjóð. Áfram gekk vel og augu allra beindust að Sviss þegar heimsmeistaramótið var haldið þar árið 1986. Fleyg varð setning Bjarna Fel í sjónvarpslýsingu frá einum leikn- um þegar sigur var að nást: „Nú er gaman að vera Íslendingur hér í Sviss,“ sagði Bjarni og allir tóku undir, það var gaman að vera Ís- lendingur. Leikmenn á borð við Kristján Arason, Alfreð Gíslason og Guð- mund Guðmundsson urðu skyndi- lega þjóðareign, myndir af þeim voru á veggjum barna- og ung- lingaherbergja og hinir fullorðnu dunduðu sér við að rekja ættir þeirra og finna frændskap við hetjurnar. Hugtakið „strákarnir okkar“ varð til og þeir voru svo sannarlega okkar, við áttum hreinlega í þeim hvert bein. Á þessum árum og þeim næstu fylgdist þjóðin með í heimahús- um, safnast var saman hjá þeim sem áttu stærstu sjónvarpstækin og bestu sófana, það var poppað og sódastrímið blandað af áfergju. Stemningin var ennþá á þann veg að hver sigur væri stór- kostlegur og tap bara óheppni. Frægur tapleikur gegn Suður- Kóreu í Sviss var útskýrður með þeirri einföldu staðreynd að við vissum ekkert um andstæðing- ana, þeir hefðu komið okkur á óvart með nýstárlegum varnar- leik og ekki annað að gera en að bíta í skjaldarrendur og vinna næsta leik. Krafan um árangur Á þessu gekk um skeið, allt þar til óþolinmæðin fór að gera vart við sig. Það var ekki nóg að vinna leik og leik og smæla framan í heiminn eftir tapleiki, á stórmót er jú haldið til að vinna til verð- launa og það var orðin næsta krafa landsmanna. Þau unnust í Frakklandi árið 1989. Þetta var reyndar B-keppni, eins konar önnur deild, en það skipti ekki nokkru máli, liðið lék stórkostlega og okkur leið eins og sönnum sigurvegurum. Á ýmsu hefur gengið síðan, við höfum hafnað í fjórða sæti á Ólympíu- leikum og Evrópumóti en hrapað allt niður í þrettánda sæti á heimsmeistaramóti. Það var raunar þegar mótið var haldið hér á Íslandi árið 1995, sem er auðvitað sér kapítuli út af fyrir sig. Við vorum orðin svo mikil handboltaþjóð að við víluðum ekki fyrir okkur að halda HM og réð- umst í dágóðar framkvæmdir og gríðarlegt umstang til að svo gæti orðið. Á þessu tímabili hefur liðið ýmist staðið undir nafni sem strák- arnir okkar eða dottið niður í að vera aumingjar með hor, eða hvernig sem menn nú vilja orða það. Fólk hefur hópast í þúsunda- tali í Smáralind til að hylla liðið eftir frækileg afrek og reynt að gleyma leikmönnum og reyndar íþróttinni allri eftir ófarir. Þetta er sá blákaldi raunveru- leiki sem landsliðið býr við og þessu verður ekki breytt. Það er undir Ólafi, Guðjóni, Sigfúsi og hinum strákunum komið hvort þorrinn verður okkur ánægjulegur í ár. Áfram Ísland! bjorn@frettabladid.is 20 25. janúar 2004 SUNNUDAGUR á gátt um Nú er tækifærið til að láta sína villtustu bíladrauma rætast. Komdu og reynsluaktu nýjum glæsilegum *Avensis. Veglegir vetrarpakkar að verðmæti 125.000 krónur fylgja fyrstu 8 beinskiptu RAV4 sem seljast. Í markaði jeppamannsins í Arctic Trucks verður frumsýndur nýr 38 tommu *LandCruiser með sérstakri túrista breytingu. Skoðaðu *Yamaha vélsleðana og *Yamaha vélhjólin og líka 38 tommu *Hilux bílana sem eru á tilboðsverði. Lexus *RX300 og Lexus IS200 verða líka í öndvegi og hægt verður að eignast þá á sérlega góðum kjörum. Í *Toyota Betri Það verður allt opið upp á gátt hjá okkur á Nýbýlaveginum um helgina * Eigða'nn eða leigða'nn tilboð lc 90 53.300 verð pr mán Avensis 26.800 verð pr mán Yaris 17.400 verð pr mán ÍS LE N SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S T O Y 23 39 4 0 1/ 20 04 * ÍS LE N SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S T O Y 23 39 4 0 1/ 20 04 Enn og aftur er íslenska handboltalandsliðið í sviðsljósinu, nú á Evrópumótinu í Slóveníu. Geðheilsa landsmanna helst gjarnan í hendur við gengi liðsins á stór- mótum; þegar vel gengur líður okkur vel en þegar á móti blæs finnst okkur sem óréttlæti heimsins sé algjört og stemningin í samfélaginu er eftir því. Með þjóðina á bakinu GLEÐISTUND Í SMÁRALIND Sigfúsi Sigurðssyni, Ólafi Stefánssyni og Einari Erni Jónssyni fagnað eftir fjórða sætið á EM í Svíþjóð. Ólafur þerrar gleðitár af hvarmi og greina má forseta lýðveldisins í bakgrunni.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.