Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 43
SUNNUDAGUR 25. janúar 2004 43 ERLING FLYTUR Í BORGARLEIKHÚSIÐ Vegna mikillar eftirspurnar verða ÖRFÁAR SÝNINGAR á Nýja sviði Borgarleikhússins. Laugardaginn 31.01. kl. 20:00 Sunnudaginn 08.02. kl. 20:00 Sunnudaginn 15.02. kl. 20:00 Sunnudaginn 22.02. kl. 20:00 www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is MIÐASÖLUSÍMI: 568 8000 JÓN GNARR STEFÁN JÓNSSON Leikarar: Stefán Jónsson / Jón Gnarr / Hildigunnur Þráinsdóttir Skúli Gautason / Gísli Pétur Hinriksson / Leikstjóri: BENEDIKT ERLINGSSON / Þýðing og staðfærsla: HALLGRÍMUR HELGASON „FRÁBÆR ERLING! “ DV „Stefán Jónsson sýnir enn einu sinni að hann hefur ÓTRÚLEGA HÆFILEIKA til að lifa sig inn í kynlega kvisti mannfélagsins “ Morgunblaðið „Textinn er oft á tíðum bráðfyndinn en það eru ekki síður aðstæður þeirra félaga og viðbrögð sem framkalla HLÁTRASKÖLL hjá áhorfendum “ DV „ Jón Gnarr leikur Kalla Bjarna, oft BRÁÐFYNDINN eins og hans var von og vísa og náði mörgum góðum sprettum “ Morgunblaðið „Túlkun Hildigunnar er hárbeitt og FLJÚGANDI FYNDIN “ Morgunblaðið „Stefán Jónsson fer með hlutverk Erlings og gerir það LISTAVEL “ DV „Jón Gnarr stóð sig FRÁBÆRLEGA“ Fréttablaðið  Sigríður Guðný Sverrisdóttir hefur opnað málverkasýningu í Baksalnum í Galleríi Fold, Rauðarárstíg 14-16. Sýn- inguna nefnir listakonan Gulur, rauður, grænn og blár. Sýningin stendur til 1. febrúar.  Jón Gnarr er með myndlistarsýningu í Fríkirkjunni, og nefnir hann sýninguna I.N.R.I.  Myndlistarmaðurinn Snorri Ás- mundsson er með málverkasýningu á veitingarhúsinu Sólón.  Hafsteinn Michael sýnir í Næsta galleríi, Næsta bar, Ingólfsstræti 1a. Þetta er sjöunda einkasýning hans.  Íris Linda Árnadóttir er með sýn- ingu á Pósthúsbarnum, Pósthússtræti 13.  Rósa Sigrún Jónsdóttir sýnir í Gall- erí Hlemmi. Verkið sem Rósa sýnir heitir „Um fegurðina“ og samanstendur af um það bil 10.000 samansaumuðum eyrna- pinnum og vídeói. Sýningin stendur til 31. janúar.  Þýski myndlistarmaðurinn Ingo Fröhlich er með sýningu í Gallerí Kling og Bang, Laugavegi 23. Sýning Ingo stendur til 8. febrúar.  Í Hafnarhúsinu stendur yfir þema- sýning úr verkum Errós í eigu safnsins.  Í Gerðarsafni í Kópavogi stendur yfir sýningin Carnegie Art Award 2004, þar sem sýnd eru verk eftir 24 af helstu listamönnum Norðurlanda. Sýningin stendur til 22. febrúar. Gerðarsafn er opið 11-17 alla daga nema mánudaga.  Guðbjörg Lind er með málverka- sýningu í galleríinu og skartgripaverslun- inni Hún og hún, Skólavörðustíg 17b.  Í tilefni 140 ára afmælis Þjóðminja- safnsins stendur yfir sýning í risi Þjóð- menningarhússins.  Þorkell Þórisson sýnir yfir 50 olíu- og akrílmyndir í nýju gallerí að Tryggva- götu 18 sem nefnist Gallerí T-18.  Sýning á málverkum eftir Braga Ás- geirsson stendur yfir í forkirkju Hall- grímskirkju. Bragi sýnir stór óhlutbund- in olíuverk þar sem hann vinnur með ljósið og þau birtuskil sem framundan eru. Sýningin stendur til 25. febrúar 2004.  Í Þjóðarbókhlöðunni stendur nú yfir sýningin „Í orði og á borði“, sem er samsýning Freyju Bergsveinsdóttur, grafísks hönnuðar, og Guðrúnar Ind- riðadóttur leirlistarkonu.  Í Ásmundarsafni stendur yfir sýning- in Ásmundur Sveinsson - Nútímamað- urinn. Þetta er yfirlitssýning haldin í til- efni af 20 ára afmæli Ásmundarsafns. Hún stendur til 20. maí.  Sölusýning Péturs Péturssonar á 11 málverkum hjá Val-myndum í Ár- múla 8 hefur verið framlengd og mun standa út janúarmánuð. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. Í nóvember síðastliðnum frum-sýndi Kómedíuleikhúsið á Ísa- firði einleikinn Stein Steinarr, sem fjallar um ævi og verk skáldsins úr Nauteyrarhreppi við norðanvert Ísafjarðardjúp. Leik- arinn Elfar Logi Hannesson og leikstjórinn Guðjón Sigvaldason sömdu einleikinn í sameiningu. „Allur textinn í þessu verki er eftir Stein Steinarr sjálfan,“ segir Elfar Logi. „Við duttum niður á þessa leið á endanum. Í sýning- unni eru ein nítján ljóð eftir Stein ásamt glefsum úr viðtölum við hann og greinum eftir hann. Þetta fléttum við svo saman og drögum upp sýn okkar á skáldið, en segj- um sem sagt þessa sögu með orð- um hans sjálfs.“ Nú um helgina hefur Elfar Logi fengið inni í Borgarleikhús- inu í Reykjavík til þess að sýna þennan einleik. Fyrri sýningin af tveimur hér fyrir sunnan var í gær, en sú síðari verður í kvöld. Meiningin er að bjóða bæði fram- haldsskólum og efstu bekkjum grunnskóla upp á skólasýningar á þessu verki. „Steinn Steinarr talar held ég enn mjög vel til unga fólks- ins, krakka sem eru í níunda eða tíunda bekk og upp í fram- haldsskólann. Ég held líka að mjög margir hafi einhvern tím- ann heyrt ljóðin hans, án þess endilega að gera sér grein fyr- ir því eftir hvern þau eru. Óvenju mörg þeirra hafa til dæmis verið notið sem dægur- lagatextar.“ ■ Einleikurinn um Stein Steinar ■ LEIKSÝNING ELFAR LOGI HANNESSON Í HLUTVERKI SKÁLDSINS Íbúum höfuðborgarsvæðisins gefst kostur á að sjá einleikinn Stein Steinarr í Borgarleikhúsinu í kvöld. Bestibitinn PÉTUR JÓHANN SIGFÚSSON Ég fæ mér yfirleitt Hot wingskjúklingavængi á Dominos þegar ég er að flýta mér,“ segir spaugarinn Pétur Jóhann Sigfús- son. „Ég mæli eindregið með þeim skyndibita.“

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.