Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 40
40 25. janúar 2004 SUNNUDAGUR ÉG SKAL HJÁLPA ÞÉR David Beckham hjálpar hér Juliano Belletti, leikmanni Villarreal að standa á fætur í leik Real Madrid og Villarreal í spænsku 1. deildinni í gær. Fótbolti A-riðill Evrópumótsins í handbolta í Slóveníu: Ellefu marka sigur Svía gegn Sviss HANDBOLTI Svíar eru öruggir í milliriðil eftir léttan sigur á Sviss, 35-24, í A-riðli Evrópumótsins í handknattleik í Velenje í Slóveníu í gær. Það var aðeins í byrjun sem Svisslendignar náðu að halda í við Svíana og jafnt var á öllum tölum fram til 3–3. Þá sigu Svíar fram úr, höfðu sex marka forystu, 18- 12, í hálfleik og leiddu síðan mest með tólf mörkum í síðari hálfleik. Þeir kláruðu leikinn með ellefu marka mun, 35-24. Stórskyttan Thomas Gautschi var markahæst hjá Svisslending- um með sex mörk, Robert Kosta- dinovich, fyrirliði liðsins, skoraði fimm mörk, Simon Brogli, Iwan Ursic og Thomas Furer skoruðu þrjú mörk hver og Marco Kurth, Urs Schärer, Severin Brüngger og Carlos Lima skoruðu eitt mark hver. Christian Meisterhans varði fimm skot í marki Svisslendinga og Antoine Ebinger varði fjögur. Jonas Källman, félagi Ólafs Stefánssonar hjá Ciudad Real, var markahæstur hjá Svíum með sex mörk, Johan Pettersson og Marcus Ahlm skoruðu fimm mörk hvor, Sebastian Seifert skoraði fjögur mörk, Martin Boquist og Jonas Larholm skoruðu þrjú mörk hvor, Kim Andersson, Jonas Ern- elind og Joacim Ernstsson skor- uðu tvö mörk hvor og gömlu brýn- in Magnus Wislander, Stefan Lövgren og Staffan Olsson skor- uðu eitt mark hver. Peter Gentzel varði þrettán skot í marki Svía og Thomas Svensson eitt. Svíar eiga að spila við Rússa í dag, en það er algjör úrslitaleikur um hvort liðið vinnur riðilinn og fer með fjögur stig í milliriðil. Svisslendingar spila hins vegar gegn Úkraínumönnum í úrslita- leik um sæti í milliriðli. ■ Klárum dæmið með sæmd Hornamennirnir Guðjón Valur Sigurðsson og Einar Örn Jónsson ætla ekki að fara heim á morgun. HANDBOLTI Það var róleg stemning hjá íslensku landsliðsmönnunum á hóteli sínu í gær er blaðamaður kíkti í heimsókn. Strákarnir fengu frjálsan tíma fram að kvöldmat eftir að hafa æft um morguninn og var hann nýttur til þess að fá sér göngutúr eða slaka á í her- berginu, horfa á sjónvarp eða spila playstation. Blaðamaður skellti sér í heimsókn til félag- anna og hornamannanna Guðjóns Vals Sigurðssonar og Einars Arn- ar Jónssonar, en þeir létu fara vel um sig á meðan þeir horfðu á leik Chelsea og Scarborough í sjón- varpinu. „Svona er þetta líf. Nú er bara slökun og einbeiting fyrir næsta leik,“ segir Einar Örn, sem lætur vel af herbergisfélaga sínum. „Hann er fínn. Það eru ekkert of mikil læti í honum,“ segir Einar og hlær. Þeir félagar láta vel af hótelinu þar sem þeir búa en það er í smábænum Lasko sem er skammt utan við Celje þar sem leikirnir eru spilaðir. Hótelið er einnig nokkurs konar heilsuhæli og er öll aðstaða til fyrirmyndar; nudd, pottar og sundlaugar. „Þetta er verulega fínt en mat- urinn er kannski full einhæfur,“ segir Guðjón Valur og býður í leiðinni upp á íslenskt sælgæti sem þeir félagar hafa nóg af. Blaðamaður afþakkar kurteislega enda örlítið yfir kjörþyngd og þarf að passa línurnar. Ég spyr strákana næst út í mót- ið og hvort fyrstu tveir leikirnir hafi ekki verið mikil vonbrigði. „Jú, svo sannarlega,“ segir Guð- jón Valur. „Við höfum engan veg- inn náð að spila okkar leik og erum að leika undir getu. Ég er ekki sáttur við mitt framlag það sem af er en ætla mér að rífa mig upp gegn Tékkunum.“ Einar Örn tekur undir með félaga sínum og segir að nú sé ekkert annað eftir en að bjarga heiðrinum með sigri gegn Tékkum. „Sá leikur verður bara að klárast og við þurfum að reyna að koma í veg fyrir slæmu kaflanna. Við höfum engan áhuga á því að fara heim héðan án sig- urs. Það kemur ekki til greina. Þrátt fyrir vonbrigðin ætla menn sér að klára dæmið með sæmd og svo verður bara að koma í ljós hvað gerist síðan í milliriðlinum en til þess að komast þangað verð- ur að klára Tékkana.“ Strákarnir fóru síðan á mynd- bandsfund í gærkvöld til þess að skoða Tékkana en þeir segjast ekkert ætla að breyta sínum leik- stíl í leiknum. „Við þurfum að ná okkar leik en hann hefur bara ekki komið. Ef það tekst erum við í ágætum málum,“ segir Guðjón Valur og bætir því við að þeir verði að fara að klára færin betur en það verður nú ekki vandalaust því tékkneski markvörðurinn hef- ur farið mikinn á mótinu og ver lítið annað en dauðafæri. „Við skulum vona að hann sé búinn með skammtinn sinn,“ segir Guðjón og glottir og Einar kinkar kolli sammála. ■ EM Í HANDKNATTLEIK A-RIÐILL Svíþjóð-Úkraína 31-25 Rússland-Sviss 28-20 Svíþjóð-Sviss 35-24 Úkraína-Rússland 27-29 Svíþjóð 2 2 0 0 66:49 4 Rússland 2 2 0 0 57:47 4 Úkraína 2 0 0 2 52:60 0 Sviss 2 0 0 2 44:63 0 B-RIÐILL Spánn-Króatía 29-30 Danmörk-Portúgal 36-32 Portúgal-Spánn 27-33 Króatía-Danmörk 26-25 Króatía 2 2 0 0 56:54 4 Danmörk 2 1 0 1 61:58 2 Spánn 2 1 0 1 62:57 2 Portúgal 2 0 0 2 59:69 0 C-RIÐILL Ísland-Slóvenía 28-34 Ungverjaland-Tékkland 30-25 Ungverjaland-Ísland 32-29 Slóvenía-Tékkland 37-33 Slóvenía 2 2 0 0 71:61 4 Ungverjal. 2 2 0 0 62:54 4 Tékkland 2 0 0 2 58:67 0 Ísland 2 0 0 2 57:66 0 D-RIÐILL Frakkland-Pólland 29-25 Þýskaland-Serbía/Svartfja. 26-28 Serbía/Svartfja.-Frakkland 20-23 Pólland-Þýskaland 32-41 Frakkland 2 2 0 0 52:45 4 Þýskaland 2 1 0 1 67:60 2 Serbía/Sv. 2 1 0 1 48:49 2 Pólland 2 0 0 2 57:70 0 MARKAHÆSTIR Markus Baur, Þýskalandi 15 Carlos Resende, Portúgal 15 Ólafur Stefánsson, Íslandi 14 David Juricek, Tékklandi 14 Johan Pettersson, Svíþjóð 14 Alexander Tuchkin, Rússlandi 13 Grzegorz Tkaczyk, Póllandi 13 Yuriy Kostetskiy, Úkraínu 13 Michael Knudsen, Danmörku 13 Petar Metlicic, Króatíu 13 Gregory Anquetil, Frakklandi 12 Zoran Lubej, Slóveníu 12 Torsten Jansen, Þýskalandi 12 Renato Vugrinec, Slóveníu 12 Ivo Diaz, Ungverjalandi 12 Yuriy Petrenko, Úkraínu 12 Zoran Jovicic, Slóveníu 11 Iker Romero, Spáni 11 Ivan Garcia, Spáni 11 Jon Belaustegui, Spáni 11 Guðjón Valur Sigurðsson, Íslandi 11 Karol Bielecki, Póllandi 11 Daniel Stephan, Þýskalandi 11 Florian Kehrmann, Þýskalandi 11 Daniel Buday, Ungverjalandi 11 Eduardo Coelho, Portúgal 11 Lars Krogh Jeppesen, Danmörku 11 SLAKAÐ Á EFTIR ERFIÐA TÖRN Herbergisfélagarnir og hornamennirnir Guðjón Valur Sigurðsson og Einar Örn Jónsson létu fara vel um sig á herbergi sínu í gær þegar blaðamaður Fréttablaðsins kom í heimsókn. Celje, Slóveníu HENRY BIRGIR GUNNARSSON ■ skrifar um EM í handbolta. JONAS KÄLLMAN ÁTTI GÓÐAN LEIK MEÐ SVÍUM GEGN SVISS Svíinn Jonas Källman gnæfir hér yfir varnar- menn svissneska liðsins í leik þjóðanna í gær en hann var markahæstur með 6 mörk. MARKUS BAUR MARKAHÆSTUR Þjóðverjinn Marcus Baur hefur skorað mest á EM til þessa ásamt Portúgalanum Carlos Resende. Andrej Lavrov: Er á leið til Svíþjóðar HANDBOLTI Sænska fréttastofan TT heldur því fram að rússneski mark- vörðurinn Andrej Lavrov sé að fara að gannga til liðs við sænska félag- ið Hammarby, en með því spilar Staffan Olsson. Lavrov, sem er orð- inn 42 ára gam- all, hefur ekki spilað með fé- lagsliði síðan í maí á síðasta ári þegar hann lék með þýska lið- inu TuS Lübecke en hann hefur haldið sér í formi með því að æfa með rússneska liðinu CSKA Moskvu. „Ég hef engan áhuga á því að spila í rússnesku deildinni því að hún er svo léleg. Ég gæti staðið þar í markinu þar til ég yrði sextugur,“ sagði Lavrov og bætti við að hann byggist við því að ganga til liðs við Hammarby strax eftir EM. „Staff- an Olsson hafði samband við mig fyrir jól en þá gengu hlutirnir ekki upp. Nú ætti þetta að ganga,“ sagði Lavrov. ■ Evrópumótið í handbolta: Iker Romero með 11 mörk HANDBOLTI Iker Romero skoraði ellefu mörk þegar Spánverjar unnu Portúgali 33-27 á öðrum degi Evrópumótsins í handbolta. Portúgalar héldu í við Spánverja fram í miðjan fyrri hálfleik en þá stungu Spánverjar af. Þeir breyttu stöðunni úr 7-7 í 16-10 á tólf mínútum og bættu svo um betur og leiddu 19-12 í leikhléi. Jafnræðið var meira með liðunum í seinni hálfleik en Portúgalar voru aldrei nálægt því að vinna upp forskot Spánverjanna. „Þetta var leikur tveggja ólíkra hálfleikja,“ sagði Cecar Argiles, þjálfari Spánverja. „Vegna öflugs leiks okkar síðustu fimmtán mín- útur fyrri hálfleiks komumst við upp með að leika verr í seinni hálfleik. Nú hlökkum við til leiks- ins gegn Dönum og vonumst til að taka með okkur eins mörg stig í milliriðilinn og hægt er.“ Iker Romero, leikmaður Barcelona, var maður leiksins. Hann skoraði átta af ellefu mörk- um sínum í fyrri hálfleik þegar Spánverjar lögðu grunninn að sigri sínum. Iker Romero skoraði ellefu af mörkum Spánverja, Ivan Garcia sex, Alberto Entrerrios fjögur, Roberto Garcia þrjú, Fernando Hernandez og Mariano Ortega tvö hvor og Raul Entrerrios, Jesus Fernandez, Ruben Garabaya, Xa- vier O’Callaghan og Ivan Perez eitt hver. Carlos Resende skoraði átta mörk fyrir Portúgala, Inacio Carmo, Ricardo Costa og Rui Rocha fjögur mörk hver, Eduardo Coelho og Jose Costa þrjú hvor og David Tavares eitt. ■ TÖLFRÆÐI EINARS ARNAR Leiktími (klst.:mín.:sek.) 1:59:28 Skot 7 Mörk 4 Skotnýting 57% Mörk úr horni 2 (3 skot) Mörk úr hraðaupphlaupum 1 (2 skot) Stoðsendingar 0 Tapaðir boltar 1 Boltum náð 2 TÖLFRÆÐI GUÐJÓNS VALS Leiktími (klst.:mín.:sek.) 2:00:00 Skot 21 Mörk 11 Skotnýting 52% Mörk úr horni 4 (7 skot) Mörk úr hraðaupphlaupum 3 (6 skot) Stoðsendingar 4 Tapaðir boltar 3 Boltum náð 4 ANDREJ LAVROV

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.