Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 22
22 25. janúar 2004 SUNNUDAGUR Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, í viðtali: Ætla að ljúka því verki sem mér var falið Stjórnvöld hafa fyrirskipaðsparnað í rekstri Landspít- ala-háskólasjúkrahúss, stærsta spítala landsins. Forstjóri sjúkrahússins segir sparnaðar- aðgerðir geta dregið úr öryggi þjónustunnar. „Það þurfti að leita leiða til að hagræða í starf- semi spítalans en um leið er mikilvægt að öryggis sé gætt. Ef stjórnendur spítalans álíta að einhverjar af þessum að- gerðum dragi úr öryggi mun ég fara betur yfir þau mál með þeim,“ segir Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra. „Hlutverk spítalans er mjög sérstakt. Hann er enda- stöðin í heilbrigðiskerfinu og getur ekki vísað annað verstu tilfellum sem til hans koma. Þarna hafa stjórnendur og starfsfólk náð gríðarmiklum árangri og til þessarar stofnun- ar er varið mjög miklum fjár- munum. Við höfum ekki getað mætt allri fjárþörf og þurfum að staldra við núna en ég tel að stjórnendurnir hafi mætt mál- inu af mikilli ábyrgð og ég vil í góðri samvinnu við þá komast út úr þeim stormi sem nú geng- ur yfir.“ Hvernig líður manni sem tek- ur ákvörðun sem verður til þess að um tvö hundruð manns missa vinnuna og keðjuverkanir leiða til þess að ákvörðunin bitnar á þeim sem minnst mega sín? „Ég tek ekki þessa ákvörðun, en hvorki mér né stjórnendum sem í þessu tilviki segja upp starfsmönnum sínum líður vel. Í samfélaginu er verið að draga saman á ýmsum sviðum og það er alltaf alvarlegt mál þegar fólk missir vinnuna. Enginn tekur ákvarðanir eins og þessar með bros á vör en þegar til framtíðar er litið getur verið nauðsynlegt að hagræða og laga starfsemi að breyttum að- stæðum.“ Einkavæðing ekki á stefnu- skránni Er það kannski eins konar launstefna stjórnvalda að færa heilbrigðiskerfið í átt til einka- væðingar? „Einkavæðing í heilbrigðis- þjónustunni er ekki á stefnuskrá minni. Sem heilbrigðismálaráð- herra ber mér skylda til að standa vörð um þá góðu heil- brigðisþjónustu sem við höfum byggt upp, en mér ber líka að tryggja að verkin sem unnin eru á þessu sviði séu unnin þannig að við fáum sem mest fyrir þá fjár- muni sem renna til þjónustunn- ar. Ef einkarekstur borgar sig eigum við að nýta okkur þær lausnir, en beita ella öðrum að- JÓN KRISTJÁNSSON „Ég hef gefið kost á mér til að vera áfram í þessu ráðuneyti og hef haft ánægju af því að fást við þau verkefni sem hér eru. Ég hef nóg að gera og mun vinna mín verk af kostgæfni þangað til 15. september. Síðan verður ákveðið hver víkur. Ég sé ekki af hverju ég ætti að víkja. Framsóknarflokkurinn þarf fyrir og eftir 15. september að höfða til þess breiða hóps sem studdi flokkinn til góðra verka í kosningunum í fyrra.“ Stundum er talað eins og einkavæðing og einkarekstur muni bjarga öllu, eins og þá verði skyndi- lega til nógir peningar. Þetta finnst mér vera fljótandi tal. Menn mega ekki gleyma að við erum með einkarekstur víða í heilbrigðiskerfinu, til dæmis í sérfræði- og öldrun- arþjónustunni. Þetta hefur gengið ágætlega en kostar fjármuni, engu síður en rík- isreksturinn. ,,

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.