Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 39
KÖRFUBOLTI Keflavíkurkonur unnu annan auðveldan sigur á Stúdín- um á tæpri viku þegar þær unnu leik liðanna í 1. deild kvenna, 75- 47, í Keflavík í gær en fyrir viku slógu þær Stúdínur út úr bikarn- um á sama stað. Keflavík náði með þessum sigri fjögurra stiga forustu í deildinni, en liðið er búið að vinna níu leiki í röð og er komið á mikla siglingu. Það var ljóst frá byrjun í hvað stefndi en Keflavík skoraði 24 af 30 fyrstu stigum leiksins og hafði yfir 44-22 í hálfleik. Birna Valgarðsdóttir er að spila vel fyrir Keflavíkurliðið þessa dagana og í gær var hún með 22 stig, 8 fráköst og 5 stoðsendingar og var besti maður vallarsins. Keflavíkurliðið fékk 22 fleiri víti en Stúdínur og nýtti þau líka frábærlega (85%) en næst Birnu í stigaskorun var Erla Reynisdóttir með 11 stig. Erla Þorsteinsdóttir gerði 9 stig og tók 6 fráköst á 17 mínútum og Marín Rós Karlsdóttir skoraði átta stig á þeim 16 mínútum sem hún spilaði. Hjá ÍS var Alda Leif Jónsdóttir allt í öllu líkt og oft áður, en í leiknum í gær skoraði hún 13 stig, gaf 7 stoðsendingar, stal 7 boltum og varði 4 skot. Hafdís Helgadótt- ir, sem varð 39 ára daginn áður, átti einnig ágætan dag og var með 10 stig og 5 fráköst á 20 mínútum. Lovísa Guðmundsdóttir skoraði 8 stig fyrir ÍS, sem hefur tapað fjór- um leikjum í röð í deild og bikar á aðeins 12 dögum. ■ 39SUNNUDAGUR 25. janúar 2004 FÓTBOLTI Bjarni Guðjónsson lék sinn fyrsta leik með Coventry þegar félagið gerði jafntefli við 2. deildarfélagið Colchester. Bjarni byrjaði á varamannabekknum en tók stöðu Dele Adebola á 64. mín- útu. Colchester komst yfir á 29. mínútur þegar Dele Adebola skallaði boltann í eigið mark eftir aukaspyrnu. Coventry jafnaði að- eins fjórum mínútum síðar með marki Julians Joachim. Jafnteflið í Coventry og sigur 3. deildarfélagsins Swansea á 1. deildarfélaginu Preston voru óvæntustu úrslit dagsins. Tvö mörk á þremur mínútum seint í leiknum færðu Swansea sigurinn á Preston. Alsírbúinn Dixon Etuhu skoraði mark Preston snemma í seinni hálfleik en Andy Robinson jafnaði fyrir heimaliðið með skoti beint úr aukaspyrnu. Lee Trundle skoraði sigurmarkið með skoti af markteig. Úrvalsdeildarfélögin Birming- ham og Portsmouth komust í 5. umferðina eins og við var búist en ekki án fyrirhafnar. Bryan Hughes skoraði fyrir Birming- ham strax á fjórðu mínútu en Wimbledon, botnlið 1. deildar, átti bæði stangarskot í fyrri hálfleik og dauðafæri á lokamínútunni. Matthew Taylor skoraði bæði mörk Portsmouth í 2-1 sigri á Scunthorpe, sem leikur í 3. deild. varamaðurinn Andy Parton skor- aði mark Scunthorpe undir lokin og Paul Hayes fékk upplagt færi í byrjun seinni hálfleiks til að jafna en Shaka Hislop bjargaði Portsmouth með góðri mark- vörslu. Burnley og Gillingham, sem eru á svipuðu róli í 1. deildinni, mættust á Turf Moor. Burnley skoraði tvisvar á þriggja mínútna kafla í fyrri hálfleik, fyrst Robert Blake með skoti af löngu færi og síðan Ian Moore með skalla af markteig. Robert Blake skoraði öðru sinni um miðjan seinni hálf- leik en Darius Henderson minnk- aði muninn í 3-1 fyrir Gillingham með marki af stuttu færi. Ipswich og Sunderland, tvö af efstu liðum 1. deildar, mættust á Portman Road. Gestirnir unnu 2-1 með mörkum Tommy Smith og Argentínumannsins Julio Arca. Martijn Reuser minnkaði muninn í 2-1 seint í leiknum. Tranmere fylgdi eftir góðum útisigri á Bolton í 3. umferð bik- arsins með útisigri á Luton í gær. Mickey Mellon skoraði eina mark leiksins með skoti af um 20 metra færi. Framkvæmdastjóri Tran- mere er Brian Little, sem lengi lék og þjálfaði hjá Aston Villa. Leik Telford og Millwall var frestað vegna þess að Bucks Head, heimavöllur Telford, var á kafi í vatni. ■ BIRMINGHAM VANN WIMBLEDON Clinton Morrison, leikmaður Birmingham, sækir að marki Wimbledon. Mikele Leigertwood er til varnar. Fátt um óvænt úrslit Flest úrslit samkvæmt bókinni í 4. umferð ensku bikarkeppninnar. ENSKA BIKARKEPPNIN S c a r b o r o u g h - C h e l s e a 0 - 1 0-1 John Terry (10.). A r s e n a l - M i d d l e s b r o u g h 4 - 1 1-0 Dennis Bergkamp (19.), 1-1 Jos- eph Desire-Job (23.), 2-1 Fredrik Lj- ungberg (28.), 3-1 Fredrik Ljungberg (67.), 4-1 David Bentley (90.). B i r m i n g h a m - W i m b l e d o n 1 - 0 1-0 Bryan Hughes (4.). B u r n l e y - G i l l i n g h a m 3 - 1 1-0 Ian Moore (30.), 2-0 Robert Blake (33.), 3-0 Robert Blake (64.), 3-1 Darius Henderson (71.). C o v e n t r y - C o l c h e s t e r 1 - 1 0-1 Dele Adebola, sjálfsm. (30.), 1-1 Julina Joachim (33.) I p s w i c h - S u n d e r l a n d 1 - 2 0-1 Tommy Smith (45.), 0-2 Julio Arca (68.), 1-2 Martijn Reuser (89.). L u t o n - T r a n m e r e 0 - 1 0-1 Mickey Mellon (81.). P o r t s m o u t h - S c u n t h o r p e 2 - 1 1-0 Matthew Taylor (35.), 2-0 Matt- hew Taylor (66.), 2-1 Andy Parton (89.). S w a n s e a - P r e s t o n 2 - 1 0-1 Dickson Etuhu (58.), 1-1 Andy RE/MAX-deild kvenna: Fjarar undan Valsstúlkum HANDBOLTI Þrír leikir fóru fram í RE/MAX-deild kvenna í gær. Vals- stúlkur töpuðu sínum öðrum leik í röð þegar þær biðu lægri hlut fyr- ir Gróttu/KR, 19-16, á Seltjarnar- nesi. Sigur Gróttu/KR var mjög öruggur og höfðu þær á tímabili átta marka forystu, 17-9. Vals- stúlkur eru enn á toppi deildarinn- ar þrátt fyrir tapið, einu stigi á undan Eyjastúlkum sem unnu Víking, 35-27, í gær. Alla Gokori- an skoraði sjö mörk fyrir ÍBV en Natasa Damiljanovic var marka- hæst hjá Víkingi með átta mörk. KA/Þór lagði síðan Fram, 21-20, í botnslag deildarinnar. ■ Andrea Gaines er komin aftur til Njarðvíkur: KR í fyrsta sinn í 2. sætið KÖRUBOLTI KR-konur komust upp í annað sæti 1. deildar kvenna í fyrsta sinn í vetur með 22 stiga sigri á Njarðvík, 71-49, í DHL- Höllinni í gær. KR hafði leikinn í öruggum höndum allan tímann og leiddi 39-23 í hálfleik en Andrea Gaines spilaði þarna sinn fyrsta leik fyrir Njarðvík á árinu eftir að hafa loksins sloppið úr fangelsis- vist í Bandaríkjunum. Gaines skoraði 16 stig og tók 12 fráköst í þessum leik en hitti aðeins úr 4 af 24 skotum sínum og endurkoma hennar dugði Njarðvíkurliðinu skammt sem hafði unnið ÍR án hennar í síð- ustu viku. Hildur Sigurðardóttir var at- kvæðamest sem fyrr hjá KR með 17 stig og 11 fráköst en Lilja Oddsdóttir var með 14 stig og 9 fráköst. Katie Wolfe bætti við 9 stigum, 10 fráköstum og 7 stoðsendingum og Guðrún Arna Sigurðardóttir var með 8 stig og 10 fráköst en KR vann fráköstin í leiknum 57-38. KR-liðið komst með þessum sigri upp fyrir ÍS á innbyrðisárangri en KR hefur unnið 2 af 3 leikjum liðanna í vetur. Hjá Njarðvík var Gaines at- kvæðamest eins og áður kom fram en Auður Jónsdóttir skoraði 11 stig og Gréta Mar Guðbrands- dóttir var með 8 og 7 fráköst. ■ 1. deild kvenna í körfubolta: Fjögurra stiga forusta Keflavíkurkvenna BIRNA VALGARÐSDÓTTIR AÐ SPILA VEL Birna Valgarðsdóttir lék vel fyrir topplið Keflavíkur gegn ÍS í kvennakörfunni í gær. STAÐAN Í 1. DEILD KVENNA Keflavík 1 4 1 1 3 1139–868 2 2 KR 1 4 9 5 933–861 1 8 ÍS 1 4 9 5 885–817 1 8 Njarðvík 1 4 6 8 842–982 1 2 Grindavík 1 3 4 9 774–855 8 FÓTBOLTI Tvö mörk frá Frakkan- um Bruno Cheyrou tryggðu Liverpool sæti í 5. umferð ensku bikarkeppninnar. Cheyrou skor- aði bæði mörk Liverpool í 2-1 sigri í gærkvöld og hefur nú sett fjögur mörk í síðustu fimm leikj- um félagsins. Cheyrou skoraði fyrra mark sitt eftir aðeins 73 sekúndur, með skoti af tíu metra færi. Emile Heskey fékk færi í miðjum víta- teignum en Oliver Bernard náði að stoppað skotið. Boltinn barst til Cheyrou sem sendi hann af yf- irvegun í netið. Frakkinn Laurent Robert jafn- aði tæpum tveimur mínútum síð- ar. Newcastle fékk aukaspyrnu þegar Dietmar Hamann braut á Olivier Bernard um 30 metrum frá marki. Robert skaut hörku- skoti yfir varnarvegginn og markvörðinn Jerzy Dudek sem virtist hafa boltann innan seiling- ar. En skotið var firnafast og var boltinn á 125 kílómetra hraða samkvæmt mælingu BBC. Fyrsta bikarmark Newcastle á Anfield Road síðan 1913 var staðreynd. Cheyrou skoraði sigurmark Liverpool á 61. mínútu. Steven Gerrard sótti upp vinstri kantinn og sendi boltann fyrir markið. Cheyrou beið átekta við vítateig- inn og hljóp síðan á hárréttu augnabliki inn í teiginn. Hann var einn og óvaldaður við markteig Newcastle þegar sending Gerr- ard barst og setti Cheyrou bolt- ann í netið með hörkuskalla. Liverpool keypti Bruno Cheyrou frá Lille sumarið 2002 á 3,7 milljónir punda. Hann átti erfitt uppdráttar fyrsta veturinn og hafði aðeins einu sinni verið í byrjunarliði á þessari leiktíð þeg- ar hann fékk tækifæri í leik gegn Chelsea fyrir þremur vikum. Cheyrou skoraði eina mark leiks- ins, bætti öðru marki við gegn Úlfunum í vikunni og tveimur í gær í bikarleiknum gegn Newcastle. ■ Fjórða umferð ensku bikarkeppninnar: Bruno Cheyrou enn á skotskónum BRUNO CHEYROU Skoraði bæði mörk Liverpool í bikarsigri gegn Newcastle í gær.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.