Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 38
FÓTBOLTI Arsenal afsannaði þá kenningu í gær að liðið væri eins manns lið þegar það rúllaði yfir lélegt lið Middlesbrough, 4-1, á Highbury án þess að besti maður liðsins, Thierry Henry, væri með. Arsene Wenger, knattspyrnu- stjóri Arsenal, ákvað að hvíla hann í leiknum til að hafa hann ferskan á lokakafla tímabilsins og það kom ekki að sök þótt Wenger hafi ekki verið rótt fyrir leikinn. Hann flutti Svíann Fredrik Ljungberg í framlínuna með Dennis Bergkamp og Ljungberg þakkaði traustið með tveimur mörkum. Arsenal hafði mikla yf- irburði í leiknum og sýndi oft á tíðum frábær tilþrif. Dennis Bergkamp kom liðinu yfir á 18. mínútu með fallegu marki eftir frábæran undirbúning hjá Ray Parlour en Kamerúninn Joseph- Desire Job jafnaði metin fjórum mínútunum síðar. Ljungberg kom Arsenal yfir á 28. mínútu og hann gerði síðan út um leikinn þegar 22 mínútur voru til leiksloka. Skömmu seinna var George Boateng, miðjumanni Middles- brough, vikið af velli vegna tveggja gulra spjalda og á lokamínútu leiksins setti hinn bráðefnilegi framherji Arsenal, David Bentley, punktinn yfir i-ið þegar hann vippaði yfir Mark Schwarzer, markvörð gestanna, og skoraði fjórða mark bikarmeistar- anna, sem eru komnir áfram í fimmtu um- ferð. ■ FÓTBOLTI Utandeildarliðið Scar- borough barðist hetjulega gegn stjörnum prýddu liði Chelsea á McCain-leikvanginum í Scar- borough í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar en varð að láta í lægra haldi, 1-0. Það var varnar- maðurinn sterki John Terry sem skoraði sigurmark Chelsea strax á tíundu mínútu leiksins. Það leit út fyrir að leikmenn Scarborough ættu í vændum erfitt síðdegi því að leikmenn Chelsea héldu uppi stórskotahríð að marki liðsins fyrstu mínúturn- ar. Frank Lampard átti þrumuskot í slá marks Scarborough af fjöru- tíu metra færi og í kjölfarið skaut Eiður Smári Guðjohnsen framhjá. Eiður Smári var nokkrum sinnum nálægt því að skora í leiknum en hafði ekki heppnina með sér. Leik- menn Scarborough börðust hins vegar eins og ljón og komust meira inn í leikinn eftir því sem líða tók á hann. Colin Cryan, sókn- armaður Scarborough, fékk dauðafæri þegar um tíu mínútur voru eftir en Carlo Cudicini, markvörður Chelsea, varði vel. Skömmu síðar voru leikmenn Chelsea síðan heppnir að fá ekki dæmda á sig vítaspyrnu þegar William Gallas, varnarmaður liðs- ins, handlék knöttinn innan teigs. Dómarinn sá þó ekki neitt og leik- menn Chelsea kláruðu leikinn og tryggðu sér sæti í fimmtu um- ferð bikarkeppninnar. Stóðu sig vel John Terry, hetja Chelsea, hrósaði leikmönnum Scarborough í hástert eftir leikinn. „Við feng- um færi en þeir pressuðu stíft undir lokin og gerðu okkur mjög erfitt fyrir. Þeir stóðu sig vel en við komum hingað til að klára verkefni, sem við gerðum,“ sagði Terry. Steve Kerr, miðjumaður Scar- borough, var ósáttur við að dóm- arinn skyldi ekki dæma víta- spyrnu þegar Gallas handlék knöttinn en sagði að hann og félagar hans gætu verið stoltir af frammistöðu sinni. „Mér fannst þetta vera hendi en stundum fær maður það sem maður vill og stundum ekki. Við áttum í erfið- leikum fyrstu fimmtán mínútur leiksins enda eru leikmenn Chel- sea allir í heimsklassa. Það hefur verið frábært að taka þátt í þessu bikarævintýri og að fá Chelsea sem andstæðing gerði það ennþá betra,“ sagði Kerr. Augljóst víti R u s s e l l Slade, knatt- s p y r n u - s t j ó r i S c a r - b o r - o u g h , v a r v i s s um að h a n s m e n n h e f ð u átt að fá v í t a - s p y r n u . „ Þ e t t a var aug- ljóst víti. Ég er k a n n s k i ekki alveg hlutlaus en eins og það leit út fyrir mér var þetta ekkert nema víta- spyrna. Við getum líka verið stoltir af frammistöðunni. Chelsea-menn fengu fullt af fær- um en við stóðum í þeim og hefðum hugsanlega getað náð jafntefli í lokin. Þessi leikur kem- ur Scarborough á knattspyrnu- kortið og færir því miklar tekjur, sem við fögnum,“ sagði Slade. Talið er að Scarborough hafi fengið um 700 þúsund pund fyrir sjónvarpsrétt og miðasölu en það nægir að sögn kunnugra til að reka félagið næstu tvö árin. ■ REAL VANN Real Madrid sigraði Villarreal 2-1 í 21. umferð spænsku úrvalsdeildarinnar í gær. Argent- ínski miðjumaðurinn Santiago Sol- ari skoraði fyrra mark Real á 14. mínútu en hann var í byrjunarlið- inu vegna meiðsla Zinedine Zidane. Ronaldo skoraði seinna mark Real á 54. mínútu og var það sextánda deildarmark hans á leiktíðinni. Sergio Ballesteros skoraði mark Villarreal fjórum mínútum fyrir leikslok. Real er efst í deildinni, tveimur stigum á undan Valencia sem leikur við Osasuna á heima- velli í dag. TÚNIS SIGRAÐI Francileudo Dos Santos skoraði sigurmark Túnisa sem unnu Rúandamenn 2-1 í opn- unarleik Afríkukeppninnar í fót- bolta. Ziad Jaziri skoraði fyrra mark Túnisbúa á 27. mínútu en Joao Elias jafnaði fimm mínútum síðar fyrir Rúanda með skoti beint úr aukaspyrnu. Dos Santos, sem er fæddur í Brasilíu og leikur fyrir Sochaux í Frakklandi, skoraði sig- urmark mótshaldaranna á 57. mín- útu. Túnisbúar hafa tekið þátt í Afríkukeppninni frá 1962 en Rú- anda leikur í lokakeppninni í fyrs- ta sinn. 38 25. janúar 2004 SUNNUDAGUR ■ Fótbolti BLÓÐ, SVITI OG TÁR Bandaríska tennisstúlkan Venus Williams gat ekki falið tilfinningar sínar eftir að hún féll úr leik í þriðju umferð Opna ástralska meistaramótsins í gær. Tennis hvað?hvar?hvenær? 22 23 24 25 26 27 28 JANÚAR Sunnudagur Hetjuleg barátta Scar- borough dugði ekki Beið lægri hlut fyrir Chelsea, 1-0, á heimavelli í enska bikarnum í gær. Henrik Larsson: Þriðji markahæst- ur hjá Celtic FÓTBOLTI Svíinn Henrik Larsson skoraði eitt marka Celtic í 3-1 úti- sigri á Aberdeen í gær. Með mark- inu er hann orðinn þriðji marka- hæsti leikmaðurinn í sögu félags- ins með 220 mörk. Jimmy McGrory á markametið en hann skoraði 397 mörk á árunum 1922 til 1939 og Bobby Lennox 273 mörk á árunum 1961 til 1980. Stilian Petrov og Stephen Pear- son skoruðu hin mörk Celtic í gær en Steve Tosh skoraði eina mark Aberdeen. Celtic er sem fyrr langefst í skosku úrvalsdeildinni. Félagið gerði jafntefli á fyrsta leikdegi í haust en hefur nú sigrað í 20 leikjum í röð. Aberdeen er enn í næstneðsta sæti. Rangers er sem fyrr í öðru sæti eftir 1-0 heimasigur á Livingston. Þjóðverjinn Christian Nerlinger skoraði sitt fyrsta deildarmark í hálft þriðja ár. Hearts er í þriðja sæti eftir 2-0 sigur á botnliði Part- ick Thistle. Dennis Wyness skor- aði bæði mörkin. ■ LEIKIR  13.15 Leiftur/Dalvík og Þór leika í Boganum á Akureyri í Powerade- mótinu í fótbolta.  19.00 Fjölnir og Fram spila í B-riðli Reykjavíkurmóts karla í knatt- spyrnu í Egilshöll.  19.15 ÍR keppir við Grindavík í Seljaskóla í 1. deild kvenna í körfubolta.  19.15 Grindavík leikur við Snæfell í Grindavík í Intersport-deildinni í körfubolta.  20.00 Haukar mæta FH á Ásvöll- um í RE/MAX-deild kvenna í handbolta.  21.00 Fylkir og Víkingur spila í B-riðli Reykjavíkurmóts karla í knattspyrnu í Egilshöll. SJÓNVARP  12.15 Enski boltinn á Sýn. Bein út- sending frá leik Manchester City og Tottenham í 4. umferð bikar- keppninnar.  14.50 Trans World Sport á Sýn. Íþróttir um allan heim  15.50 Enski boltinn á Sýn. Bein út- sending frá leik Northampton og Manchester United í 4. umferð bikarkeppninnar.  17.00 EM í handbolta á RÚV. Bein útsending frá leik Íslendinga og Tékka í C-riðli Evrópumótsins í handknattleik í Celje í Slóveníu.  18.00 NBA-boltinn á Sýn. Bein út- sending frá leik Dallas Mavericks og Sacramento Kings í NBA- deildinni í körfuknattleik.  20.35 PGA-mótaröðin í golfi á Sýn. Sýnt frá undirbúningi fyrir sterkustu mótaröðina í heiminum í golfi.  21.05 Hnefaleikar á Sýn. Útsend- ing frá bardaga Arturo Gatti og Gianluca Branco á Sýn.  21.45 Helgarsportið á RÚV. Allt það helsta í íþróttum um helgina.  00.00 EM í handbolta á RÚV. Út- sending frá leik Íslendinga og Tékka. JOHN TERRY FAGNAR MARKI John Terry, varnar- maðurinn sterki hjá Chelsea, fagn- ar hér sigurmarki sínu gegn Scar- borough í gær. Enska 2. deildin: Barnsley tapaði FÓTBOLTI Tvítekin vítaspyrna réði úrslitum þegar Brighton vann Barnsley 1-0 í 1. deildinni í gær. Tony Caig, markvörður Barnsley, varði spyrnu Leons Knight en dómarinn lét endurtaka spyrnuna vegna þess að Craig var komin af marklínunni þegar Knight skaut. Knight skoraði af öryggi úr seinni spyrnunni. Brighton komst upp fyrir Barnsley með sigrinum og er í sjötta sæti en Barnsley er í því áttunda. Bæði félög hafa 42 stig en markatala Brighton er sjö mörkum hagstæðari. Barnsley, sem hefur ekki sigr- að í deildarleik síðan á annan í jól- um leikur við Blackpool á heima- velli á miðvikudag og Notts County á útivelli á laugardag. ■ HENRIK LARSSON Þriðji markahæsti leikmaður Celtic frá upphafi. Bikarmeistarar Arsenal eru komnir áfram í 16 liða úrslit: Ekkert mál án Thierry Henry FREDRIK LJUNGBERG SKORAÐI TVÖ MÖRK Kolo Toure, Patrick Vieira og Sol Campbell fagna hér öðru marki Svíans Freddie Ljungberg fyrir Arsenal gegn Middlesborough í enska bikarnum í gær.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.