Fréttablaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 24
 19. október 2006 FIMMTUDAGUR24 hagur heimilanna ÁV EX TI R 35.231 KR. „Þegar ég byrjaði að halda heimili var hægt að hringja í ráðleggingamiðstöð húsmæðrafélagins og fá góð ráð. Ég hef lítið notað mér þetta á undanförnum árum, kannski vegna þess að ég er orðin reyndari húsmóðir.“ Álfheiður segist reyna að laga hlutina ef þeir fara úrskeiðis í stað þess að henda þeim. „Ég bý svo vel að hafa góðar handavinnukonur í kringum mig sem gera við teppi og mottur þegar þess er þörf. Það getur vel verið að ég sé ekki að spara á þessu en ég vil nýta hlutina eins og hægt er.“ GÓÐ HÚSRÁÐ LAGA HLUTINA SJÁLF ■ Álfheiður Ingadóttir, varaþingmað- ur VG, reynir að laga hlutina sjálf.„Verstu kaup sem ég hef gert voru kaup á amer- ískum, sjö manna bíl sem ég keypti með það í huga að rúma alla fjölskylduna. Bíllinn entist okkur í fimm mánuði en þá byrjaði hann að bila.“ Helga Vala segir að eftir 6-7 mánaða bilerí hafi fjölskyldan gefist upp og losað sig við bílinn. „Ég man ekki hvað bíllinn kostaði en það var allavega allt of mikið miðað við hvað hann entist okkur illa. Við skipt- um síðan bílnum út fyrir þann sem við eigum nú sem er lítill og sparneytinn.“ Helga Vala minnist einnig slæmra kaupa í skáp sem hún keypti. „Skápurinn var sérpantaður en kom í einingum sem þurfti að setja saman. Það liðu sex mánuðir þar til ég setti skápinn saman og hann varð aldrei góður til síns brúks. Skápur- inn er nú í notkun en það kemur fyrir að hillur detta úr honum og hurðirn- ar duttu fljótt af. Mig hafði alltaf dreymt um að gera eitthvað sjálf en ég verð að viðurkenna að þessi frumraun mín við smíði heppnaðist ekki sem skyldi. Ætli bestu kaupin sem ég hef gert séu ekki íbúðir okkar hjóna á Meistara- völlum og á Vesturvallagötunni. Við eigum enn íbúðina á Vesturvalla- götu þó við búum ekki í henni sem stendur.“ Helga Vala viðurkennir að hún kaupi stundum án þess að hugsa en segir að það hafi til þessa verið hennar bestu kaup. „Dagsdaglega bruðla ég ekki enda krefst það hagsýni að reka stóra fjölskyldu.“ Helga Vala fluttist nýlega búferlum í Bolungar- vík þar sem maður hennar er bæjarstjóri. NEYTANDINN: HELGA VALA HELGADÓTTIR FJÖLMIÐLAKONA OG LAGANEMI Hurðarlaus skápur með lausum hillum Verðlag á Íslandi er í mörgum tilfellum mjög hátt. Þetta veit landinn og sættir sig að því er virðist við. Það er þó alltaf jafn átakanlegt þegar kúnninn er minntur á þetta úti í búð, t.d. þegar erlend verð eru prentuð á umbúðir vara sem eru í boði hér. Þá sést verðmunurinn svart á hvítu. Nýverið var aftur byrjað að selja klassískt tyggjó frá Wrigley‘s og að auki bættist við tegundin Big Red. Á pakkana er verðið prentað, 30 sent, eða 20 kall miðað við gengið í dag. Hér kostar pakkinn 80 kr í Nóatúni, eða fjórum sinnum meira en í Bandaríkjunum. Er þetta eðlileg verðhækkun eða er verið að taka okkur í bakaríið? ■ Verðlag Fjórum sinnum dýrara tyggjó Fyrir viku fjölluðum við um netframköllun á Íslandi. Þar kom fram að ódýr- asta framköllun sem hér er í boði er kr. 25 á mynd. Í framhaldi af þessu hafði lesandi samband og benti á að mun ódýrara væri að kaupa þessa þjónustu að utan, enda alveg jafn auðvelt að senda myndir í gegn- um netið til útlanda og innanlands. Lesandinn sendi dæmi um framköllun í gegnum fyrirtækið Bonusprint (www.bonusprint.com/us). Hann lét framkalla 223 myndir. Hver mynd kostar 11 sent eða kr. 7,5. Með 10% tolli, 24,5% VSK, kr. 206 póstburðargjaldi til Íslands og tollmeðferðargjaldi kr. 350 var heildarverðið 2826 kr eða 12,67 fyrir hverja mynd hjá Bonusprint, tvöfalt minna en myndin kostar hjá ódýrasta íslenska framköllunarfyrirtækinu. ■ Netframköllun: Helmingi ódýrara ef keypt að utan Ódýrustu skrautfiskarnir sem hægt er að kaupa hér- lendis eru neontetrur hjá 101 Gæludýrum í Hafnar- stræti og gullfiskar hjá Dýraríkinu, Grensásvegi. Báðir kosta 350 kr. stykkið. Dýrasti skrautfiskur landsins er hins vegar saltvatnsfiskur af tegundinni Flame angel og kostar 32.000 kr hjá Dýraríkinu. Það má því fá 914 og hálfa neontetru og/eða gullfisk fyrir einn Flame angel. Sé áhugi fyrir hendi má svo auðveldlega fá miklu dýrari fiska, t.d. forláta koi fisk af sérstöku litar- afbrigði með stóru ættartré. Koi fiskar hafa selst á allt að 70 milljónir króna, en slíkir dýrgripir eru stundum svamlandi í görðum japanskra milljónamæringa. ■ Dýrast / ódýrast Skrautfiskar Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins leitar nú að fólki til að taka þátt í neytendakönnun á þorski. Könnunin fer fram í dag og er fólki boðið að koma niður á Skúlagötu 4 til að smakka fisk og fylla út eyðublað í kjölfarið. Frekari upplýsingar gefa Kolbrún, Ása og Guðrún í símum 5308665 / 5308666 / 5308667. ■ Könnun: Viltu smakka þorsk? Líftími margra raftækja er ekki langur, þetta vita neytendur af eigin raun. Hver á til dæmis tíu ára gamlan farsíma eða tölvu? Heldurðu að þú verðir enn- þá að nota mp3-spilarann þinn eftir fimm ár? Borgar sig að fara með bilaðan hlut í viðgerð eða er betra, og kannski líka ódýrara, að fá sér bara nýjan? Ekki eru til neinar opinberar tölur yfir líftíma raftækja og samkvæmt starfsmönnum í verslunum hér er þetta mjög mismunandi eftir tækj- um. Þannig má búast við að góð þvottavél endist í 12-15 ár og þurrkari jafnvel lengur, en þegar rafeindatæki eiga í hlut er allt annað uppi á teningnum. Í Svíþjóð er reynslan sú að mikill meirihluti fólks endurnýjar farsímann sinn innan tveggja ára. Varla erum við eftirbátar Svía í þessum efnum enda höfum við löngum talist neysluglöð þjóð. Algengasta bilun- arorsök á farsímum á Íslandi eru rakaskemmdir í kjölfar illrar með- ferðar, til dæmis ef sími er hafður í kulda. Ef farsíminn gleymist úti í bíl yfir nótt er til dæmis ekki von á góðu. Annað vinsælt rafeindatæki eru plasmaflatskjáirnir, en síðustu jól voru sannkölluð flatskjáajól. Framleiðendur segja líftíma plasmaskjáa á bilinu 60-80.000 tímar, en lítil reynsla er komin á tækin ennþá enda tæknin nýleg. „Þessi bransi hefur breyst mikið,“ segir Þór Ólafsson hjá við- gerðaverkstæðinu Sóni. Hann ætti að vita það enda með tuttugu ára starfsreynslu. „Sumt, eins og magnarar, er í sama gæðaflokki og áður, en mek- anísk tæki eins og DVD- og CD-spil- arar eru yfirleitt orðin ódýrari tæki. Þetta er ekki sterk framleiðsla. Allt úr plasti og eiginlega einnota dót því það virðist vera stefna fyrir- tækjanna að fram- leiða ekki vara- hluti í þetta. Einn daginn þegar allir ruslahaugar heimsins verða orðnir fullir af ónýtum raftækj- um fara menn kannski að hugsa sinn gang.“ Tæki sem seld eru á Íslandi eru langflest með tveggja ára ábyrgð og Þór segir að fólk komi oftast með tækin í viðgerð ef ábyrgðin er ennþá á þeim. „Þá metum við hvort það borgi sig að gera við. Það er sáralítið um það að kúnninn leggi sjálfur í viðgerðarkostnað.“ Þetta er skiljanlegt enda er nú til dæmis hægt að fá DVD-spilara á undir 4.000 kall, sem er álíka og viðgerð- in kostar, ef ekki minna. Raftæki sem hent er enda oft hjá Góða hirðinum. Um tveir gámar af dóti berast daglega. Þórir Örn Sigvaldason er starfsmaður Góða hirðisins. Hann segir magn- að að sjá hverju fólk er að henda. „Núna var til dæmis að koma inn Whirlpool þvottavél sem er örugg- lega ekki nema 2-3 ára gömul,“ segir hann. „Við fáum ótrúlega heillegt dót, fólk er jafnvel bara að losa sig við tæki eins og ísskápa eða uppþvottavélar þegar það skiptir um eldhúsinnréttingu og gömlu tækin passa ekki við nýju innréttinguna. Það er eins og fólk nenni ekki lengur að setja smáaug- lýsingar í blöðin og finnist bara auðveldara að henda þessu. “ Þórir segist sárasjaldan fá far- síma inn, þeim sé bara hent þegar þeir bila. „Gamaldags“ tölvuskjáir (ekki flatskjáir) standa hins vegar í röðum á 300 kall stykkið. „Fólk hefur verið að kaupa þetta hérna hjá okkur til að fara með í búðirn- ar þegar þær bjóða afslátt af nýjum skjám ef þeim gamla er skilað,“ segir Þórir og bætir við: „Nú virðist vera vinsælast að henda safapressum. Við höfum allavega fengið svaka magn af þeim upp á síðkastið. Svo fara flat- skjáirnir örugglega að detta inn á þessu ári eða næsta.“ gunnarh@frettabladid.is FLATSKJÁR Flatskjáir fara að detta inn í Góða hirðinn. Raftæki fara úr búðinni í ruslið á tveimur árum ÞÓRIR ÖRN SIGVALDASON Í GÓÐA HIRÐINUM Magnað að sjá hverju fólk er að henda. FRÉTTABLAÐIÐ/GLH > Meðalneysla hjóna eða sambýlisfólks með börn árið 2004 Útgjöldin DVD SPILARI Fást nú á undir 4.000 kr. SY KU R, S Æ LG Æ TI O .F L. Heimild: Hagstofa Íslands 77.397 KR. www.somi.is N†TT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.