Fréttablaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 78
54 19. október 2006 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is Pálmi Haraldsson er leikjahæsti leikmaður í sögu ÍA og hefur leikið hátt í 500 leiki fyrir félagið. Pálmi hefur nú tekið þá ákvörðun að leggja skóna á hilluna en hann kom við sögu í 17 leikjum með ÍA í Landsbankadeildinni í sumar og tveimur bikarleikjum. Fréttablaðið náði tali af Pálma í gær og ræddi við hann um þessa tímamótaákvörðun. „Það er bara mikið að gera og ég er bara orðinn saddur. Ég er kominn með stóra fjölskyldu og það er nóg að gera í vinnunni. Svo er líka alltaf spurning hvað maður er lengi til í að vinna frá átta til átta. Þetta er frekar langur vinnudagur og það er mikið lagt á þá sem eru í kringum mann. Fótboltinn hefur þannig séð alltaf gengið fyrir hjá manni, maður hefur alltaf mætt á þessum tíma á þessum degi og allt annað hefur verið lagt til hliðar,“ sagði Pálmi sem er þriggja barna faðir. Þrátt fyrir marga leiki með Skagamönnum þá hafa mörkin eitthvað látið á sér standa á ferli Pálma. „Þau hafa ekki verið mörg en eigum við ekki að segja að þau hafi verið þeim mun fallegri,“ sagði Pálmi og hló en hann hefur unnið fjóra Íslandsmeistaratitla með ÍA. Hvað ætli Pálma finnist eftirminnilegast á sínum ferli? „Eftirminnilegasta tímabilið held ég að sé sumarið 2001. Félag- ið var nánast á hausnum, allt var á suðupunkti og enginn bjóst við neinu af liðinu. Við unnum þá fjóra leiki í fyrri umferð en sjö í síðari umferðinni og unnum deildina. Svona eftir á að hyggja þá var það sennilega sætasti titillinn, miðað við lætin sem voru í kringum klúbbinn á þeim tíma,“ sagði Pálmi en bætti því við að lið Skagamanna árin 1994 og 1995 hefði verið bestu liðin sem hann hefði spilað með á ferlinum. „Nú ætla ég bara að taka mér frí en það verður erfitt að slíta sig frá þessu. Ég er búinn að æfa með ÍA frá því að ég man eftir mér og maður þarf nú eitthvað aðeins að svala fíkninni. En þegar mikið er að gera og árangurinn er ekki alveg eins og hann á að vera þá spyr maður sjálfan sig af hverju maður er í þessu,“ sagði Pálmi sem mun ekki snúa sér að þjálfun á næstunni. PÁLMI HARALDSSON: HEFUR ÁKVEÐIÐ AÐ LEGGJA SKÓNA Á HILLUNA EFTIR LANGAN OG FARSÆLAN FERIL: Það er kominn tími á mig og ég er saddur > Við furðum okkur á ... ... metnaðarleysi íslenskra handboltafélaga sem sum hver virðast hafa takmarkaðan áhuga á að bæta umgjörðina í kringum félag sitt og þetta metnaðarleysi kristallast inni á heimasíðunni dhl-deildin.is. Sá vefur var settur upp af HSÍ fyrir félögin svo þau gætu komið fréttum og upplýsingum á framfæri til fjölmiðla og áhugamanna. Í dag er eina félagið sem stendur sig með vefinn Fram. Upplýsingar um tölfræði eru allar frá síðasta tímabili og vefurinn því í raun ónýtur. Væri nær að hreinlega loka honum. Þetta er miður þar sem nú er sóknarfæri fyrir íslenskan handbolta til að gera betur. Áhugi á deildinni, og handbolta yfir höfuð, mun aftur á móti standa í stað, eða minnka, hafi félögin ekki metnað til að gera betur. HSÍ á einnig sök á máli því réttast væri að gefa félögum ekki keppnisleyfi, líkt og tíðkast hjá KSÍ, ef þau geta ekki uppfyllt ákveðnar lágmarkskröfur varðandi umgjörð. FÓTBOLTI Eggert Magnússon er nú staddur í London en hann er að undirbúa tilboð í enska úrvals- deildarfélagið West Ham. Dag- blaðið Guardian sagði frá því í gær að stjórn West Ham ætlaði að ræða við tvo hópa, annars vegar þann sem Eggert fer fyrir og hins vegar við Ísraelann Eli Papou- chado. Eggert var fyrr í vikunni sagð- ur hafa hækkað tilboð sitt í West Ham úr 65 milljónum punda í 75 en sjálfur segir Eggert ekkert hæft í þeim efnum. „Þetta er enn allt á þreifinga- stigi. Ég get því miður ekkert meira sagt á þessu stigi,“ sagði Eggert við Fréttablaðið í gær. „En fréttir af tilboðum mínum eru ekki réttar. Ég hef ekki hugmynd um af hverju þessu er slegið fram, það er hver vitleysan sem rekur aðra og ekkert nema getgátur í gangi. Svona er breska pressan bara.“ Hann vill lítið fyrir frétt Guar- dian gefa og sagði þetta ferli háð reglum kauphallarinnar í Lundún- um. „En það mun sjálfsagt koma að því að viðræður við þá aðila sem mestu ráða í West Ham eigi sér stað,“ sagði Eggert Magnús- son, formaður KSÍ. - esá Eggert segir fregnir af tilboðum í West Ham rangar: Enn á þreifingastigi FÓTBOLTI Hafþór Ægir Vilhjálms- son, leikmaður ÍA í knattspyrnu, hefur undanfarna daga verið til reynslu hjá sænska 1. deildarlið- inu Norrköping. Er þetta í annað skiptið á skömmum tíma sem hann fer til liðsins en í það fyrra meidd- ist hann strax á fyrstu æfingu og báðu því forráðamenn liðsins um að hann kæmi aftur. „Þetta er búið að ganga mjög vel,“ sagði Hafþór við Fréttablað- ið en hann heldur heim á leið í dag. „Þeir hjá Norrköping eru ekki enn búnir að gera tilboð í mig en þeir ætla sér að gera það og hafa samband við ÍA með það fyrir augum.“ Hafþór er samningsbundinn ÍA til 2008 en í síðasta mánuði skrif- aði hann undir viðauka við samn- ing sinn sem segir að hann sé laus allra mála í lok þessa mánaðar ef Guðjón Þórðarson tæki við þjálf- un ÍA. Viðaukasamningurinn var gerður skömmu áður en ný rekstr- arstjórn meistaraflokks ÍA tók við og réði svo Guðjón til starfa. Núverandi stjórn, leidd af Gísla Gíslasyni, telur þó að viðaukinn standist ekki reglur og hefur óskað eftir úrskurði samninga- og félagaskiptanefndar KSÍ. „Ég býst við því að við munum nú sitjast niður, ég og faðir minn, með rekstrarstjórn ÍA og reyna að leysa þetta mál,“ sagði Hafþór en faðir hans, Vilhjálmur Birgisson, er umboðsmaður Hafþórs sem og var hann meðlimur í stjórninni sem hætti störfum í síðasta mán- uði. „Norrköping mun gera ÍA til- boð að kaupa mig og ef það gengur eftir kem ég aftur hingað í nóvem- ber þegar undirbúningstímabilið hefst. En þetta er allt á frumstigi og erfitt að segja til um hvernig þetta mál endar. En ég er þó mjög svo vongóður.“ Þegar ein umferð er óleikin í sænsku 1. deildinni er Norrköping í fjórða sæti deildarinnar og á ekki möguleika á að vinna sér sæti í úrvalsdeildinni. Norrköping mætir Qviding í lokaumferðinni en síðar- nefnda liðið er þegar fallið í 2. deild. Með Norrköping leika Stefán Þórðarson og Garðar Gunnlaugs- son sem eru báðir uppaldir Skaga- menn. Stefán gekk til liðs við félagið veturinn 2005 og Garðar fyrr í sumar. Þeir eru markahæstu menn liðsins, Stefán með ellefu mörk í 25 leikjum og Garðar með sjö í þrettán leikjum. „Það er mjög ánægjulegt að þeir skuli vera fyrir hjá félaginu. Það gerir þetta allt mun léttara fyrir mig,“ sagði Hafþór Ægir. Heimildir Fréttablaðsins herma að hann hafi verið klár með samn- ing við Val ef hann færi ekki utan og fengi sig lausan frá ÍA. eirikur.asgeirsson@frettabladid.is HAFÞÓR ÆGIR VILHJÁLMSSON Á leið til Norrköping í Svíþjóð ef allt gengur að óskum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Tilboð væntanlegt frá Norrköping í Hafþór Ægi Skagamaðurinn Hafþór Ægir Vilhjálmsson er á leið til Norrköping í Svíþjóð ef svo fer sem horfir. Hann segir tilboð væntanlegt frá sænska liðinu og stefnan sé sett á að leysa það deilumál sem upp er komið um hans stöðu hjá ÍA. FÓTBOLTI Ragnar Sigurðsson hefur þessa vikuna verið í Gautaborg þar sem hann og umboðsmaður hans, Guðlaugur Tómasson, hafa rætt við forráðamenn IFK Gauta- borgar. Í síðustu viku samþykkti Fylkir kauptilboð frá félaginu í Ragnar en þessa vikuna hefur verið fundað um kaup og kjör Ragnars hjá félaginu. „Það er ekkert komið á hreint ennþá,“ sagði Guðlaugur við Fréttablaðið í gær en þeir eru væntanlegir heim til Íslands í dag. „Ég býst við því að það verði komin niðurstaða áður en við förum heim. Það ber ekki mjög mikið í milli aðila og þetta þokast allt í rétta átt. En það er ekkert öruggt fyrr en búið er að skrifa undir og það er spurning hvort samkomulag náist sem allir eru sáttir við.“ Ragnar er tvítugur að aldri og hefur verið fastamaður í meist- araflokki Fylkis undanfarin tvö tímabil. Hann hefur leikið 47 leiki fyrir félagið í deild og bikar og skorað í þeim tvö mörk. Hann hefur einnig leikið fjölda leikja í yngri landsliðum Íslands og þykir með efnilegustu varnarmönnum landsins. - esá Ragnar Sigurðsson er staddur í Svíþjóð: Þokast í átt að sam- komulagi við IFK RAGNAR SIGURÐSSON Staddur í Svíþjóð þar sem hann á í samningaviðræðum við IFK Gautaborg. Þjálfarastyrkir ÍSÍ Verkefnasjóður Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands auglýsir hér með til umsóknar styrki fyrir íþróttaþjálfara til að sækja sér menntun eða kynna sér þjálfun erlendis. Veittir verða 16 styrkir, hver að upphæð kr. 50.000.- Við úthlutun verður leitast við að styrkja sem flestar íþróttagreinar. Þjálfarar hvers kyns hópa (afreksmanna, barna og unglinga o.s.frv.) koma jafnt til greina við úthlutun. Konur eru sérstaklega hvattar til að sækja um styrkina. Styrkhæfar teljast umsóknir vegna ferða/námskeiða á tímabilinu 1. júlí 2006 til 31. desember 2006. Tekið er við umsóknum á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem skal skilað til skrifstofu ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, fyrir miðvikudaginn 1. nóvember nk. Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á skrifstofu ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni Laugardal og á heimasíðu ÍSÍ – www.isisport.is Haust 2006 �������� �� �������� ��������������� ������������������������������������� ���������������������������������� ������������������������������������ ����������������������������������� ��������������������������
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.