Fréttablaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 30
30 19. október 2006 FIMMTUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Sigríður Björg Tómasdóttir og Trausti Hafliðason FULLTRÚAR RITSTJÓRA: Björgvin Guðmundsson og Páll Baldvin Baldvinsson. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Eg las nýlega í erlendu riti um Íslendinga, að engin þjóð í heimi mundi vera svo grandvör og löghlýðin. Fangelsin stæði tóm og hegningardómarnir væri óvenjulega fáir í hlutfalli við mannfjölda. Þá datt mér í hug samtal, sem eg átti í fyrra við einn af helztu lögfræðingum vorum. Hann var að segja mér frá meðferð einnar íslenzkrar peningastofnunar, sem nýlega var komin í fjárþröng. Sögurnar voru svo hroðalegar, að hárin risu á höfði mér. ,,En er þetta ekki hegningarvert?“ spurði eg. ,,Það mundi það vera alls staðar nema á Íslandi,“ svaraði hann rólega. En er það ekki svo, að hér sé framinn grúi lagabrota, sem eru á almanna vitorði, en enginn hróflar við? Er ekki spillingin í þjóðfélagi voru orðin almennt umtalsefni, án þess að rönd verði við henni reist? Almenningsálitið er magnlaust, af því að lífsskoðun almennings stefnir öll að vor- kunnsemi. Yfir allt er breidd blæja, þar sem kærleikur kann að vera uppistaðan, en kæruleysi er áreiðanlega ívafið.“ Orðin hér að framan eru tekin úr ritgerð, sem Sigurður Nordal prófessor birti í Skírni 1925. Síðan eru liðin rösk áttatíu ár, en orð Sigurðar eiga samt enn vel við. Af ýmsu er að taka. Morgun- blaðið birti 14. október sl. grein eftir Sverri Hermannsson, fyrrverandi Landsbankastjóra Sjálfstæðisflokksins, undir yfirskriftinni ,,Bankaræningjar“. Grein Sverris fjallar um fyrrver- andi framkvæmdastjóra sama flokks og fáeina félaga hans, sem byrjuðu með tvær hendur tómar. Sverrir hafði tíu dögum fyrr birt aðra grein um sömu menn í sama blaði og sagt þar: ,,Þegar öll kurl hafa komið til grafar er spurning- in ekki sú hvort hinir ábyrgu verði dæmdir í rasphús heldur hversu langa tukthúsvist.“ Ætla mætti, að ríkislögreglustjóra eða ríkissaksóknara þætti vert að kanna, hvað hæft er í þessum ásökunum bankastjórans fyrrverandi, enda var hann árum saman náinn samverkamaður þeirra manna, sem hann ber nú svo þungum sökum, og er öllum hnútum kunnugur innan flokks sem utan. En ríkislögreglustjór- inn hreyfir hvorki legg né lið, ekki frekar en hann gerði til dæmis þegar sitjandi forsætis- ráðherra sakaði formann einkavæðingarnefndar til tíu ára um að hafa haft milligöngu um tilraun til að bera á sig 300 milljón króna mútur. Hvorki forsætisráðherrann né formaður einkavæðingarnefndar sá ástæðu til að krefjast rannsóknar mútumálsins og ekki heldur stjórnarandstaðan að Frjálslynda flokknum frátöldum. Lögreglan lyfti ekki litla fingri. Hvers vegna ekki? Stjórnmálaflokkarnir misnot- uðu allir aðstöðu sína í ríkisbönk- unum, það segir sig sjálft. Þeir skiptu bankastjórastólunum bróðurlega á milli sín og áttu allir fulltrúa í bankaráðum. Áratugum saman heyrðu aðalbókarar bankanna beint undir bankaráðin, svo að bankaráðsmenn höfðu húsbóndavald yfir bókurunum og gátu því fylgzt með fjárreiðum einstakra viðskiptavina bank- anna. Sjálfstæðismenn gátu fræðzt um framsóknarfyrirtækin og öfugt, og Alþýðuflokkurinn og Alþýðubandalagið fengu að fljóta með. Það er ekki mjög langt síðan skipuritum bankanna var breytt á þann veg, að bókarar heyrðu beint undir bankastjóra, líkt og tíðkast í öðrum fyrirtækjum. Þessi gagnkvæma hugulsemi – allir með! – er nærtækasta skýringin á því, hvers vegna ýmis vafasöm mál í bönkunum voru ekki rannsökuð, heldur þögguð niður. Bankabókin (1994) eftir Örnólf Árnason vakti ekki mikla athygli, þótt hún fengi hárin til að rísa á höfðum grunlausra lesenda. Morgunblaðið birti ólundarlega umsögn um bókina eftir Björn Bjarnason, nú dómsmálaráð- herra. Ríkissaksóknari hefur nú fyrirskipað rannsókn á meintum hlerunum. Hvað hefur gerzt? Hvaða slys hefur borið að höndum? Einn munurinn á hlerunarmálinu og bankamálun- um er sá, að í hlerunarmálinu er hugulsemin ekki gagnkvæm. Einn flokkur liggur undir grun um að hafa hlerað aðra, og þeir knýja á um opinbera rannsókn. Sama máli gegnir um einkavæðingu viðskiptabankanna. Þar skipuðust bankamál landsins í fyrsta skipti á þann veg, að ríkisstjórnarflokk- arnir voru einir um hituna. Stjórnarandstaðan var ekki höfð með. Erindrekar stjórnarflokk- anna sitja enn í einkabankaráðum eins og tíminn standi í stað. Stjórnarandstaðan mun væntan- lega láta rannsaka einkavæðingu bankanna og annarra ríkisfyrir- tækja, nái hún að mynda nýja ríkisstjórn eftir kosningar. Öðru verður varla trúað. Flokkspólitískt réttarfar? ÞORVALDUR GYLFASON Í DAG | Kærleikur eða kæru- leysi S ú ákvörðun sjávarútvegsráðherra að heimila hvalveiðar í atvinnuskyni markar vissulega nokkur tímamót. Ákvörðunin styðst við gild rök. En framhjá hinu verður ekki horft að hún getur reynst umdeild. Þetta mál hefur verið lengi á dagskrá. Það er snúið um marga hluti. Þar hefur bæði komið til flókin þjóðréttarleg staða og heit- ar tilfinningar án skyldleika við vísindaleg rök um sjálfbærar veiðar. Kjarni málsins er fólginn í þeirri staðreynd að vísindamenn hafa lengi mælt með ákveðnum takmörkuðum veiðum á einstökum hvala- stofnum. Enginn vafi leikur því á að innan þeirra marka byggjast hval- veiðar á meginreglunni um sjálfbæra nýtingu. Aukheldur hafa vísindamenn sýnt fram á að til lengri tíma er mikil- vægt að jafnvægi sé í nýtingu helstu nytjastofna sjávar. Það er einfald- lega innra samhengi í lífríkinu sem ekki er unnt að líta framhjá. Rökin fyrir því að hefja hvalveiðar að nýju byggja fyrst og fremst á þessum sjónarmiðum. Önnur efnahagsleg rök hafa ekki þýðingu. Þjóðréttarlegar hindranir hafa hins vegar verið í vegi nýtingar á vísindalegum grundvelli. Innan Alþjóðahvalveiðiráðsins hafa þau ríki haft undirtök sem virt hafa vísindaleg rök að vettugi. Þar hafa lönd eins og Bretland og Bandaríkin verið í fararbroddi. Þversögnin í afstöðu Bandaríkjanna hefur verið einstök. Þau hafa beitt áhrifum sínum til þess að hindra veiðar annarra þjóða á vísinda- legum grundvelli. En á sama tíma hafa þau sjálf leyft veiðar án þess að uppfylla þau skilyrði. Það voru mistök þegar Alþingi samþykkti með eins atkvæðis mun að mótmæla ekki hvalveiðibanninu á sínum tíma. Alþjóðahvalveiði- ráðið hefur ekki um langan tíma fengist til þess að fjalla um verndun og nýtingu hvalastofna á grundvelli alþjóða hvalveiðisáttmálans. Í því ljósi var úrsögnin úr ráðinu eðlileg og nauðsynleg með þeim skýring- um sem þá voru gefnar og opnun á inngöngu að nýju með fyrirvara gagnvart banni við veiðum. Á daginn kom að innganga með slíkum fyrirvara var eina leiðin til þess að koma okkur í sömu þjóðréttarlegu stöðu og Norðmenn hafa haft. Það skref var því afar mikilvægt og var farsællega ráðið. Fyrir þá sök er þjóðréttarleg staða okkar nú óumdeild. Tilfinningaleg afstaða einstaklinga, samtaka og ríkisstjórna er á hinn bóginn staðreynd sem taka verður alvarlega. Reynsla Norðmanna er að vísu sú að hvalveiðar síðustu ára hafa ekki haft nein skaðleg áhrif. Við verðum hins vegar að reikna með því að andstæðingar hvalveiða séu upplitsdjarfari þegar minni þjóð á í hlut. Andstaðan við hvalveiðar er þess konar að óráðlegt er að taka áhættu í því efni nema fullgildar ástæður standi til þess. Þó að máli skipti að sýna í verki fullveldisrétt okkar eru það ekki rök sem ein og sér duga til þess að taka ákvörðun eins og þá sem nú hefur verið tekin. Það eru skýr vísindaleg rök fyrir jafnvægi í lífríki sjávar sem hér eru í húfi. Að þeim rökum virtum var það eðlileg ákvörðun og í sam- ræmi við stefnumörkun Alþingis að stíga þetta skref. Rétt er að Alþjóðahvalveiðiráðið taki nú til endurskoðunar innra starf sitt. Í ljósi þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað er í raun mikil- vægt að ráðið taki virka forystu um raunverulega verndun og stjórn á nýtingu hvalastofna. Það er einfaldlega betri kostur en að láta veiðar þróast án alþjóðlegrar stjórnunar. Íslensk stjórnvöld eiga sem fyrr að vera reiðubúin til virkrar þátt- töku í slíku starfi. Hvalveiðar í atvinnuskyni hefjast á ný: Eðlileg ákvörðun ÞORSTEINN PÁLSSON SKRIFAR UMRÆÐAN Hleranir Viðbrögð sumra stjórnmálamanna við þeim upplýsingum, að sími utanríkis- ráðherra hafi verið hleraður svo seint sem á árunum 1991-93, mega heita undarleg. Fyrstu viðbrögð voru þau, að fórnalamb ólöglegra og leynilegra hlerana var krafið um vitni. Vandinn er sá, að hér er um að ræða leynilega starfsemi, sem eðli málsins samkvæmt fer fram, þar sem vitnum verð- ur ekki við komið. Annars vegar eru gerendur bundn- ir þagnareiðum við yfirmenn, sem þeir eiga starfs- frama sinn undir. Hins vegar hafa þeir gerst brotlegir við lög og eiga því yfir höfði sér málsókn. Við þessar aðstæður er borin von, að vitnin gefi sig fram. Vilji menn í alvöru upplýsa málið og fá öll gögn upp á borð- ið, verður að fara norsku leiðina: Að þingið samþykki lög um sakaruppgjöf og skipi þverpólitíska nefnd, sem hvetji menn til að stíga út úr skúmaskotum fortíðar. Skrítnust eru þó viðbrögð Þórs Whitehead sagn- fræðings. Hann hefur sem kunnugt er birt upplýsing- ar um leynilega starfrækslu leyniþjónustu sem var falin í íslenska stjórnkerfinu en hafði að markmiði að halda uppi njósnum (þ.m.t. hlerunum) um íslenska ríkisborgara áratugum saman. Þessar upplýsingar vekja upp réttmætar spurningar, þ.m.t. hvort þessari leyniþjónustu sé lokið og þá hvenær henni hafi lokið? Fremur en að standa fyrir máli sínu og taka undir með þeim, sem krefjast þess að öll spil verði lögð á borðið, bregst sagnfræðingur- inn við með því að benda á Steingrím Her- mannsson og undirritaðan og reyna að telja lesendum sínum trú um að við höfum líka rekið leyniþjónustu. Þetta mega heita undarleg samanburðar- fræði. Annars vegar eru upplýsingar um, að dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins hafi á sínum tíma beitt sér fyrir stofnun og starf- rækslu leyniþjónustu innan íslenska stjórn- kerfisins, sem starfaði áratugum saman. Hins vegar er íslenskur utanríkisráðherra, sem felur íslenskum embættismanni hjá NATO að kanna það, við fall Austur-Þýskalands 1989, hvort leyniþjónustan STASI hafi starfað á Íslandi eða haft íslenska ríkisborgara í þjónustu sinni. Af hverju var varafastafulltrúa hjá NATO falið að fylgjast með þessu máli? Af því að for- sætis- og utanríkisráðherrar Íslands vissu ekki að til væri íslensk leyniþjónusta, sem starfaði í nánu sam- starfi við vesturþýska kollega. Sem betur fer fékk sagan farsælan endi, því að upplýst var, að STASI hefði ekki starfað hér á landi, svo vitað væri, og engir íslenskir ríkisborgarar geng- ið í þjónustu þeirra. Er sama hægt að segja um leyni- þjónustu Bandaríkjanna? Höfundur var utanríkisráðherra Íslands 1988-95 Sagnfræðingur og stjörnuvitni JÓN BALDVIN HANNIBALSSON Einn, tveir og tíu Eftir margra ára umræðu í borgar- stjórn, um fjármál borgarinnar, sem engan endi ætlar að taka mætti halda að það taki langan tíma að ná til botns í málum borgarinnar. Önnur málefni eru þó skjótrædd á fundum borgarstjórnar eins og sannaðist á síðasta fundi. Þar þurfti að samþykkja breytingu á fulltrúum Framsóknar- flokks í menntaráði og leikskólaráði, sem víxluðu sætum. Sú sem sat í menntaráði er námsráðgjafi í grunn- skóla, en sú sem sat í leikskólaráði er leikskólastjóri í borginni. Leikskóla- stjórinn stjórnaði því ekki aðeins sínum skóla, heldur sat í ráði sem stjórnaði öllum leikskólum í höfuð- borginni, bæði faglega og fjárhags- lega, en slíkt þykir ekki við hæfi. Burt með manninn! Hann var ómyrkur í máli, Kristján Loftsson útgerðarmaður Hvals hf., í kvöldfréttum Sjónvarps í fyrradag. Þar kallaði hann sendiherra Bretlands á Íslandi dóna og vildi að íslensk stjórnvöld myndu reka manninn úr landi. Þeir sem ekki eru jafn heitir í hvalveiðimálum voru væntanlega ekki alveg með á nótunum hvað breski sendiherrann hafði gert til að móðga þjóð- ina svo, þar sem hann hafði í fyrr í fréttatímanum mótmælt hvalveið- unum á mjög svo kurteisan máta, líkt og Bretum er einum lagið. Þolum minniháttar og meiriháttar stríð Aldrei hefur til þess komið að erlendum sendiherra hafi verið vísað héðan úr landi. Tveir sendi- ráðsstarfsmenn Sovétríkjanna voru sendir heim á 7. áratugnum, en engir sendiherrar.Íslendingar sáu ekki ástæðu til að senda þýska ræðismanninn heim í heimsstyrjöld- inni síðari og eftirlétu Bretum að handtaka hann. Í þorskastríðunum var heldur ekki neinn sendur heim, en breska ríkisstjórnin fann það upp hjá sjálfri sér að kalla sendiherr- ann heim tímabundið. En nú virðist Kristján líta svo á að hvalastríðið sé skollið á sem sé all alvarlegra en hin fyrrnefndu stríð. svanborg@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.