Fréttablaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 37
FIMMTUDAGUR 19. október 2006 5 Fyrir skemmstu opnaði ný barna- og unglingafataverslun, Gling-gló, í húsnæði Iðu við Lækjargötu. „Við sérhæfum okkur í fötum á börn og unglinga, frá vörumerkinu Lego,“ segir Bryndís Blöndal framkvæmdastjóri og annar eig- enda Gling-gló. „Barnafötin eru ætluð börnum á aldrinum eins til tíu ára. Þau eru gríðarlega vönduð. Tölur og rennilásar eru ofnæmis- prófaðir, velflest efni teygjanleg svo auðvelt er að klæða börnin í og úr og saumaskapur allur til fyrir- myndar. Til staðfestingar um það ganga fötin á milli barna án þess að láta á sjá.“ Unglingafötin virðast ekki vera síðri ef marka má Bryndísi, en þau eru frá sama framleiðanda en undir öðru vörumerki sem kallast Grunt. „Það er sami gæðastaðall á þeim og barnafötunum,“ útskýrir hún. „Þau eru ætluð börnum alveg frá átta ára aldri og upp úr. Fötin eru gædd þeim kostum að vera einföld, endingargóð og flott útlits.“ Þetta er í fyrsta sinn sem Lego- verslun opnar á Íslandi, en áður hafa tilteknar vörur frá fyrirtæk- inu fengist í verslunum hérlendis. „Hérna fæst raunverulega þver- skurðurinn af því sem fyrirtækið framleiðir,“ útskýrir Bryndís. „Vöruúrvalið á eftir að koma þeim í opna skjöldu sem telja sig þekkja vöruna úr íslenskum búðum.“ Að sögn Bryndísar er þetta jafnframt fyrsta „shop in shop“ verslun frá Lego sem opnuð er á Íslandi, en með því er átt við að allt í búðinni sé frá einu og sama vöru- merkinu, allt frá vörunum sjálfum upp í innréttingar. Gling-gló á í samstarfi við Heild- verslun Halldórs Jónssonar um sölu á Lego, en sú heildverslun hefur flutt vöruna til landsins um árabil. Bryndís áréttar að opnun nýju búð- arinnar þýði ekki að Lego-vörur muni hverfa úr hillum annarra verslana, heldur muni þær fást áfram í Róberti bangsa og Ólavíu og Oliver svo dæmi séu tekin. Opnuð hefur verið heimasíða- þar sem hægt er að kynna sér nýju verslunina og vöruúrvalið betur. Vefslóðin er www.glinglo.is. Vöruúrvalið er hreint ótrúlegt í búðinni þannig að aðdáendur Lego hafa ærna ástæðu til að kætast. Gling-gló er fyrsta verslunin á Íslandi þar sem eingöngu vörur frá Lego eru seldar. Fyrsta Lego-verslunin Barnafötin frá Lego eru vönduð í alla staða, ofnæmisprófuð, úr teygjanlegum efnum og saumaskapur góður. Gling-gló er að finna í kjallaranum í húsnæði Iðu við Lækjargötu. Bryndís Blöndal er framkvæmdastjóri Gling-gló og annar eigenda. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Ekki aðeins föt fást í versluninni heldur alls kyns fylgihlutir. Barna kuldagallar Faxafeni 12, Reykjavík• Glerárgötu 32, Akureyri. Opið 9-18 virka daga og 10-16 laugardaga. Kuldagalli, stærðir 2-8 13.440 kr. 6.500 kr. 66 °N o rð u r/ o kt 06
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.