Tíminn - 22.06.1982, Qupperneq 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 22.JÚNÍ 1982.
Orðsendina
frá Bjargráðasjóði
Af gefnu tilefni og þar sem ráöstöfunarfé Bjarg-
ráöasjóðs er mjög takmarkað, er athygli vakin á,
aö þar sem almennt er unnt að tryggja fasteignir
og lausafé (þ.m.t. bifreiðar og önnur ökutæki) hjá
tryggingarfélögum fyrir óveðurstjónum, veitir
Bjargráðasjóður ekki fyrirgreiðslu vegna slíkra
tjóna.
E!
Kirkjutónleikar
Randheim-skólahljómsveitin frá Þrándheimi
heldur kirkjutónleika í Kópavogskirkju þriðju-
daginn 22.júní ki. 20.30.
Stjórnandi sveitarinnar er Wiggó Darell.
Á efnisskránni eru verk eftir Mozart, Norderaak,
Webbe, Walter og Verdi. Allir velkomnir.
Skólaskrifstofan.
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir maímánuð
1982, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta
lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir
hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau
eru orðin 20%, en síðan eru viðurlögin 4% til
viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og
með 16. júlí.
Fjármálaráðuneytið,
18. júní 1982.
Of stór sveitar-
félög gera of
litlar kröfur til
einstaklingsins
— segir Skuli Sigurgrímsson
bæjarfulltrúi í Kópavogi
■ Þeir flokkar sem komið hafa sér
saman um meirihlutasamstarf í Kóp-
avogi hafa samþykkt samstarfsyfirlý-
singu, sem unnið verður eftir á þessu
kjörtímabili. Sömu flokkar, þ.e.
Framsóknarflokkur, Alþýðuflokkur og
Alþýðubandalag mynduðu meirihluta á
siðasta kjörtimbili.
Skúli Sigurgrímsson er fyrsti maður á
lista framsóknarmanna í nýafstöðnum
kosningum. Hann varð við þeirri ósk
Tímans að skýra frá helstu atriðum
samstarfsyfirlýsingarinnar og þeim
markmiðum sem bæjarstjórnin setur sér
að vinna að á kjörtimabilinu. Fyrst var
Skúli spurður hvort einhverjar breyting-
ar hefðu orðið á samstarfinu miðað við
fyrra kjörtímabil.
- Alþýðubandalagið tapaði einum
manni í kosningunum, svo að nú eru það
þrír jafnstórir flokkar sem mynda
meirihlutann. Ekki er hægt að segja að
einn sé öðrum fremur leiðandi eða
afgerandi i samstarfinu. Stjórninni
reynum við að skipta þannig að hún
verði sem jöfnust milli flokkanna. Við
framsóknarmenn fáum formann i
bæjarráði fyrstu tvö árin, hinir
flokkarnir sitt árið hvor. Alþýðubandal-
agið fær forseta bæjarstjórnar fyrstu tvö
árin og við hinir eitt ár hvor eftir það.
Sama tilhögun er með fulltrúa í stjóm
sparisjóðsins. Þetta eru dæmi um
skiptinguna, en auðvitað er margt fleira
sem við skiptum með okkur og reynum
að jafna áhrifastöðum sem mest á milli
flokkanna.
- Ekki verða gerðar stórfelldar
breytingar á rekstri bæjarins. Við
ákváðum að halda áfram góðri
fjármálastöðu. Samstarfsyfirlýsingin er
að miklu leyti framkvæmdaáætlun og
skipulagsmál koma þar talsvert inn í.
Meðal þess sem bæjarstjómin ætlar
nú að gera, er að kjósa atvinnueflingar-
nefnd. Við höfum verið með atvinnuefl-
ingarsjóð, sem ekki hefur verið nógu
virkur og á nú að bæta úr því. Verksvið
nefndarinnar er að leita nýrra leiða og
gera áætlanir um atvinnuuppbyggingu
og gera tillögur þar um, og fara
jafnframt með stjórn atvinnueflingar-
sjóðsins.
Jafnræði i
atvinnumálum
Lengi lék það orð á að flestir
Kópavogsbúar sæktu vinnu út fyrir
bæjarfélagið, enda væri þar litla vinnu
að fá. Hvemig standa þessi mál nú?
- Þetta hefur breyst mikið. Ég veit
ekki grannt hvemig staðan er núna, en
1977 gerðum við könnun á því hve
margir bæjarbúar hefðu vinnu í bænum.
Þá lá nærri að í Kópavogi væru
atvinnutækifæri fyrir um það bil tvo
þriðju vinnandi handa. Siðan hefur
þetta breyst enn meira Kópavogi i vil.
Núna er i gangi könnun um þetta atriði.
Á henni að ljúka á næstu vikum og þá
vitum við nákvæmlega hvað atvinnutæk-
ifæmm hefur fjölgað.
Á tímabilinu hafa mörg fyrirtæki
verið stofnuð í Kópavogi og mörg flust
þangað. Það er óhætt að segja núna að
Reykjavík og Kópavogur eru orðin eitt
atvinnusvæði, þvi nú sækja margir
atvinnu i Kópavog sem búa annars
staðar.
Hvers konar fyrirtæki eru álitin
vænlegust að stofna í Kópavogi og hvar
mun atvinnumálanefndin helst bera
niður þegar hún tekur til starfa?
- Við höfum aðgang að sjó á Kársnesi
og þar eru góðir möguleikar á hafnar-
gerð, sem ekki hefur verið nýtt. Einn
þátturinn er sá að skipuleggja hafnar-
svæðið og nýta það. Að visu er frystihús
i bænum og saítfiskverkun er starfrækt
þar, i smáum stil samt. En á þessu sviði
era miklir möguleikar fyrir hendi.
- Að öðra leyti er áætlað að
skipuleggja atvinnufyrirtæki i Fífu-
hvammslandi. Við höfum enn ekki gert
okkur sérstakar hugmyndir um hvers
konar atvinnurekstur verður þar. En
svæðið kemur til með að liggja ákaflega
vel við samgöngum því Reykjanes-
brautin, sem tengir Breiðholtsbraut og
veginn suður í Hafnarfjörð liggur þar
um og kemur til með að verða miðsvæðis
á höfuðborgarsvæðinu. Er þetta eftirsótt
landsvæði til atvinnuuppbyggingar og
búsetu.
Skipulag og byggðaþróun
- Samstarfsyfirlýsingin fjallar að
miklu leyti um skipulag og byggðaþróun.
Þar eru ákvæði um að Ijúka aðalskipu-
laginu, sem verið hefur í endurskoðun
og ákvæði era um að efnt verði i
ríkara mæli en áður til samkeppni um
deiliskipulag nýrra svæða. Þar verður
það mark sett að skipulagið verður ekki
eins rigbundið og oft hefur viljað verða
hjá okkur. Þetta á aðallega við um
skipulag suðurhlíðar Kópavogshálsins
og dalsins, það er að segja Smára-
hvamms- og Fífuhvammslands.
Þar verður næsta byggingarsvæði, en
allt byggingarsvæði i norðurhlíð Kópa-
vogshálsins er að verða fullbyggt.
Ákvæði er um skipulag íþrótta og
útivistarsvæðis í Kópavogsdal. Ákvæði
er um að hluti af Sæbólslandi og
Vogatungureit verði nýtt undir íbúðir
fyrir aldraða. Verður það tryggt með
reglugerð að þær ibúðir haldist í eigu
eldri bæjarbúa.
Enn er ákvæði um að skipuð verði
nefnd um að ljúka framkvæmdum á
vesturhluta miðbæjarsvxðisins, sem ver-
ið hefur i byggingu á undanförnum áram
og gengið rólega siðustu árin. Verður
skipulag á miðbæjarsvæðinu fyrir vestan
Hafnarfjarðarveg endurskoðað.
Að öllum líkindum verða það að
meginhluta menningarstofnanir sem þar
verða staðsettar. Fyrsta byggingin þar
verður sennilega safn Gerðar Helgadótt-
ur, sem við eram skuldbundnir að
byggja yfir. En ég býst við að stjórn lista-
og menningarsjóðs verði falið að gera
áætlanir um uppbyggingu og skipulag
þessa svæðis.
Skólamál
- Það hefur verið fremur heitt i
skólamálum hjá okkur undanfarið. Við
voram að semja við menntamálaráðu-
■ Á síðari árum hafa fjölmörg fyrirtæki verið stofnuð í Kópavogi og önnur flust
þangað og atvinnujafnvægi er milli Reykjavíkur og Kópavogs. rmumyndir Róbeit.
■ Hafnarskilyrði eru góð i Kópavogi og munu fyrirhugaðar hafnarframkvæmdir
þar skapa mörg atvinnutækifæri.