Tíminn - 22.06.1982, Side 15
ÞRIÐJUDAGUR 22JÚNÍ 1982.
uu.illl'il'
1S
PUNKTAR
Kevin Keegan
aðalstjarna enská fótboltaliðsins
hefur ekki enn getað leikið með
liði sínu í HM á Spáni vegna
meiðsla er hann hrjá i baki.
Duiítið nöturlegt er það fyrir
Kccgan, að hann slasaðist ekki í
knattspymu, heldur i golfi.
Annað mál er þó að Keegan
næði sér sæmilega á strik i vikunni
er ekki vist að hann labbaði beint
í liðið, því Trevor Francis, sem
leikur í hans stað, hefur verið
lykilmaður liðsins í leikjunum
gegn Frökkum og Tékkum.
Aðeins örlitið
innlegg um sjónvarpið og HM.
Reiknað er með að 1.300 milljónir
manna muni setjast fyrir framan
imbann á meðan HM stendur yfif
og fylgjast með herlegheitunum í
beinni útsendingu. Nema hvað?
Meiðsli
hrjá nú mjög vestur-þýska lands-
liðið á Spáni.- Littbarski og
Breitner þurftu að yfirgefa völlinn
i leiknum gegn Chile, sárþjáðir.
Þá lék Rummenigge nánast á
annarra löppinni. Þessir þrir
kappar verða að teljast burðarásar
liðsins.
Markvörður
vestur-þýska liðsins, Toni Schu-
macher, lét þau orð falla, að ef lið
hans komist ekki í aðra umferð
muni hann flytja daginn eftir til
Kanada og ekki láta sjá sig i
heimalandi sínu næstu árin.
Úr því að
furðuleg ummæli vestur-þýskra
eru til umræðu hér, má geta þess
að þjálfarinn, Jupp Derwall, sagði
fyrir leikinn gegn Alsir, að hann
myndi taka fyrstu lest hcim til
Þýskalands ef lið hans tapaði
leiknum. Vestur-Þjóðverjar töp-
uðu, en Derwail er enn ekki farinn
á brott.
Refsingar
vegna slakrar frammistöðu i HM
geta tekið á sig hinar ótrúlegustu
myndir. Til dæmis var ieikmönn-
um ítalska liðsins neitað um að
horfa á nautaat (sem þeim hafði
verið lofað fyrirfram) vegna slakr-
ar frammistöðu gegn Perú (1:1).
Þá voru kampavinsflöskur sem
stóðu á borði búningsherbergis
ítalanna ekki opnaðar og starfs-
maður liðsins rauk með þær út í
fússi að leikslokum.
Rekum
þjálfarann, er vinsælasta setningin
á íþróttasiðum itölsku dagblað-
anna þessa dagana og má segja,
að sportfréttamenn italskir séu
ekkert yfir sig hrifnir af þjálfara,
Bearzot.
Tveir
yngri bræður Maradona eru á
Spáni og hafa þeir vakið nokkra
athygli fyrir lipra knatttækni og
hressilegar yftflýsingar úm getu
Maradona-bræðranna í fótbolta.
á „annarri
löppinni”
Vestur-Þjóðverjar náðu sér loks á strik
hér á HM þegar þeir sigruðu Chilebúa
með 4 mörkum gegn 1 sl. sunnudag. Eru
áhangendur liðsins nú farnir að sjá
bjartari blóm í haga (og væntanlega
bolta í marki andstæðinganna).
Fyrri hálfleikur var fremur daufur, en
þó var aldrei spurning um það hvort liðið
væri betra og hefði undirtökin. Rumme-
nigge skoraði fyrsta markið á 9. min.
með lausu skoti frá vitateig, en
markvörður Chile missti knöttinn undir
sig og i markið heldur klaufalega, 1-0.
Siðari hálfleikur var öllu fjörmeiri en
sá fyrri og á 57..min. skoraði Rumme-
nigge sitt annað mark og nú með skalla,
2-0. Á 78. mín. var Rummi enn á
ferðinni og bæti við þriðja markinu, 3-0.
Þess má geta í framhjáhlaupi, að
Rummenigge á við meiðsl að striða og
var vart reiknað með því fyrirfram, að
hann gæti leikið gegn Chile. Hann
skoraði semsagt þrennu, „hat-trick“ á
annarri löppii.nni. Áður en vfir lauk
höfðu þýskir bætt við fjórða markinu og
var þar að verki Reinder, sem hafði
aðeins verið inná i rúma mínútu. Á
síðustu mín. leiksins lagaði Moscoso
lítillega stöðuna fyrir Chile þegar hann
einlék i gegnum vörn Vestur-Þjóðverj-
anna og skoraði, 4-1.
Moscoso var eini maðurinn sem sýndi
þokkalega takta í liði Chile. Hjá þýskum
var Rummenigge bestur. EM/IngH
Vestur-Þýskaland - Chile 4:1
RUMMENIGGE
skoraði þrennu
Burdarásarnir í hinu
frábæra landsliði
Brasilíumanna:
■ Um fátt er rætt meira meðal knattspyrnuáhugamanna þessa dagana en frábxra
leiki Brasiiiumanna i HM og þeir eru vist fáir sem spá ekki Brössunum sigur í
keppninni. Lykillinn að velgengni liðsins er fóiginn i geysisterkum leik
miðvallarleikmannanna, einum þeirra Socratesar og Zico.
Enskir áfram
Zico
í milliriðli
Tveir bestu midvallarleikmenn
heimsins?
Frá Erik Mogensen, fréttamanni
Tímans á Spáni:
Englendingar tryggðu sér sæti í
svokölluðum B-milliriðli HM með
því að sigra Tékka sl. sunnudag í
Bilbao, 2-0. Voru enskir vel að
sigrinum komnir og er árangur þeirra
það sem af er keppninni hin
glæsilegasti.
Bryan Robson fékk tvö góð færi í
fyrri hálfleiknum til að ná forystunni
fýrir Englendinga, en mistókst að
skora í bæði skiptin. Hann varð
siðan að fara út af vegna meiðsla.
Frá Erik Mogensen, fréttamanni
Tímans á Spáni:
Enskir knattspymuáhugamenn
eru ekkert á því að glata niður þeim
slæma orðstír sem af þeim fer. í
síðustu viku lögðu þeir i rúst
móttöku á hóteli einu i Isle,
smáþorpi utanvið Bilbao. Skömmu
seinna rifu þeir niður hollenskan
fána, bjuggu til einn allsherjar
Frá Erik Mogensen, fréttamanni
Timans á Spáni:
Aðalstjama og primur motor pólska
landsliðsins, Zbigniew Boniek, 26
ára miðvallarleikmaður, mun leika
með italska meistaraliðinu Juventus
frá Torino næsta vetur. Hann mun
Fyrri hálfleikurinn var fremur jafn,
en lítið um marktækifæri.
Francis skoraði síðan fyrir Eng-
land um miðbik seinni hálfleiks og
Mariner innsiglaði sigurinn skömmu
seinna með skoti sem hafði viðkomu
í varnarmanni Tékka. Bæði mörkin
má skrifa á reikning Seman, mark-
varðar tékkneska liðsins.
Francis og Wilkins voru aðalmenn-
irnir á bakvið sigur enska liðsins,
léku hreint frábærlega vel. Þá fannst
mér kantmaðurinn Steve Coppell
eiga góða spretti i sókninni.
EM/IngH
kokteil i samsulli við franska fánann
og báru loks eld að öllu saman. í
vimunni datt einn Englendinganna
út um glugga og stórslasaðist.
Þá tók annar hópur Englendinga
til hendinni á öðrum stað í bænum,
brutu og brömluðu nokkra tugi
svalablómapotta eftir misheppnaða
innbrotstilraun i hús portkvenna.
EM/IngH
taka stöðu írans Liam Brady i liðinu.
Boniek hefur mörg undanfarin ár
verið máttarstoð félags síns i Pól-
landi, Lodz og með landsliðinu hefur
hann leikið 50 sinnum og skorað 16
mörk.
EM/IngH
Læknirinn Socrates er „aðalsmaður-
inn“ í herbúðum Brassanna, náungi,
sem öfugt á við flesta aðra leikmenn
liðsins, hefur aldrei þurft að upplifa
fátæktina og herthar fylgifiska. Hann er
af miðstéttarfjölskyldu og sýndi snemma
frábæra hæfileika sem knattspyrnumað-
ur, en fjölskyldan lagði áherslu á það
þegar í upphafi að strákur gengi
menntaveginn. Fótboltinn hefur því að
mestu verið einskonar tómstundagaman
hjá Socratesi, ótrúlegt en satt.
Socrates hefur siðustu árin þrætt hinn
gullna meðalveg milli knattspyrnuiðkun-
ar og læknanáms. Honum var gert það
klei-ft frá árinu 1978 er hann fór frá
Botagogo félaginu í Río til Corinthians
i Sao Paulo (fyrir 150 þús. dollara, sem
verða að teljast smápeningar fyrir slikan
knattspyrnumann). Orðstír Socratesar i
fótboltaheiminum hefur vaxið mjög
síðustu 2-3 árin. Barcelona-félagið vildi
fá kappann til liðs við sig og bauð þrjár
milljónir dollara. Socrates deplaði ekki
auga og sagði nei takk.
Frá árinu 1980 hefur knattspyrnan átt
hug Socratesar allan,læknispraksisinn
verður að biða sins tíma. Það er e.t.v.
ekki rétt að segja, að fótboltinn eigi hug
Socratesar allan, þvi hann er mjög fús
að ræða um stjórnmál, bókmenntir,
hagfræði o.þ.h. við blaðamenn.
Arthur Antunes Coimbra eða Zico,
er algjör andstæða læknisins Socratesar.
Hann ólst upp við ákaflega þröngan kost
i einu af verri hverfum Rio de Janeiro,
hvar eina útgönguleiðin íelst i að geta
sparkað bolta betur en allir aðrir
strákarnir í hverfinu.
Þegar Zico var 14 ára vakti hann
athygli útsendara Flamengo og næstu 5
árin fóru i að byggja strák upp sem
knattspyrnumann eftir læknisfræðileg-
um og knattspyrnufræðilegum formúl-
um. Þegar hinni skipulögðu uppbygg-
ingu var hætt vó Zico 67 kíló og var 172
cm á hæð. Hefur þetta tiltæki allt saman
vakið mikla athygli og deilur. En hvað
segir Zico sjálfur? „Ég er ekkert
vélmenni eins og ýmsir virðast halda.
Það er ekki hægt að „búa til“
knattspyrnumann, þvi eina mælistikan á
gæðin er á knattspyrnuvellinum, ekki á
einhverjum tilraunastofum.“
Zico hefur ávallt haldið tryggð við
Flamengo-félagið þó að gylliboðin hafi
streymt til hans frá nær öllum stærstu og
rikustu félögum veraldarinnar. Hann
hefur verið mesti markaskorari félags
síns siðustu 6 árin og verið með í öllum
þeim sigrum sem brasílskur knatt-
spyrnumaður getur látið sig dreyma um.
Og nú er hann farinn að höggva nærri
sjálfum Pelé. Pelé skoraði t.d. yfir 1000
mörk á ferli sinum. Zico hefur þegar
skorað yfír 600 mörk, 2.4 mörk að
meðaltali í leik. Það segir ekki svo lítið.
Nú eru þeir Socrates og Zico og
félagar þeirra i brasilska landsliðinu að
marsera i átt að heimsmeistaratigninni
á Spáni og virðist ekkert geta stöðvað
þá. Jafnvel tölva nokkur itölsk spáði
Brasilíumönum sigur i keppninni, 2-1
gegn Spánverjum í úrslitaleiknum. Og
hver skyldi skora sigurmarkið? Jú,
auðvitað Zico..
(Snarað úr Dagens Nyheter)
Venjunni viðhaldið
Boniek til Juventus