Tíminn - 22.06.1982, Page 17
ÞRIÐJUDAGUR 22.JÚNÍ 1982.
17
Iþróttir
■ Sigurlás Þorieifsson reynir markskot að marki VAIsmanna. Mynd: Guðmundur Sigfússon, Eyjum.
Eyjamenn á
skotskónum
— sigraöu Val í fjörugum leik, 2-0
■ ÍBV sýndi stórgóða knattspymu
þegar liðið lagði V»1 að velli í Eyjum sl.
laugardag, 2-0. Reyndar áttu bæði liðin
mýmörg txkifæri til þess að lagfæra
markatölu sina, en það voro aðeins
framlinumenn Eyjamanna sem voru
klæddir hinum vinsælu skotskóm.
Strax í byrjun leiksins voru heima-
menn komnir með forystuna. Sveinn
Sveinsson skaut fallegu langskoti, sem
hafnaði í Valsmarkinu utariega, 1-0.
Valsmenn reyndu ákaft að jafna leikinn,
en tókst ekki.
Eyjamenn byrjuðu seinni hálfleikinn
einnig mjög frisklega og eftir um 8 mín.
leik hafði Kári Þorleifsson bætt öðru
marki við, 2-0. Aftur reyndu Valsararnir
að rétta sinn hlut, en sú tilraun fór á
sama veginn og áður. Sigur Eyjamanna
var staðreynd.
Páll markvörður Pálmason stóð nokk-
uð uppúr i liði ÍBV, en auk hans voru
aðrir varnarmenn mjög traustir.
Framlinumönnum Vals voru nokkuð
mislagðir „fætur" i þessum leik og fóru
þeir illa með nokkur gullin marktæki-
færi.
-IngH
■ Sigurvegarar á Pierre-Robert golfmótinu með verðlaun sín.
Ragnar öruggur
sigurvegari
■ Pierrre Robert golfmótinu lauk s.l.
laugardag. Þátttaka var geysimikil, eða
samtals 191 þátttakandi og varð að vísa
fjölda manns frá, vegna þess að
völlurinn ber ekki fleiri i keppni.
Keppt var í sjö flokkum og var
keppnin mjög spennandi í þeim öllum.
Sérstaklega vakti athygli hve kvenna-
flokkurinn var fjölmennur að þessu
sinni, og er greinilegt að kvenfólkið er
að sækja i sig veðrið í golfinu.
í meistaraflokki var keppnin geysi-
hörð, og sem dæmi má nefna, að eftir
átján holur voru 6 keppendur jafnir á 72
höggum. Ragnar Ólafsson spilaði af
miklu öryggi, og sigraði glæsilega, en
Björgvin Þorsteinsson setti nýtt 9 holu
vallarmet, eða 30 högg. Björgvin og Jón
Haukur háðu bráðabana um 2. og 3.
sætið, sem lauk með sigri Björgvins.
Keppni var einnig mjög spennandi í
karlaflokki með forgjöf, en þar voru 4
á sama skori og þurftu þvi að leika aðrar
18 holur til að knýja fram úrslit.
Helstu úrslit urðu sem hér segir:
Meistaraflokkur:
1. Ragnar Ólafsson GR, 139
2. Björgvin Þorsteinsson GA, 142
3. Jón Haukur Guðlaugsson NK, 142
Karlaflokkur m. forgjöf:
1. Jóhannes Gunnarsson NK, 66
2. Ágúst í Jónsson NK, 66
3. 'Þorsteinn Geirharðsson GS, 66
Kvennaflokkur m. forgjöf:
1. Elisabet Gunnlaugsdóttir GR, 65
2. Hildur Þorsteinsdóttir GR, 68
3. Hanna Gabriels GR, 70
Kvennaflokkur án forgjafar:
1. Jóhanna Ingólfsdóttir GR, 81
KA nældi f 2 stig
■ Akureyringamir i KA gerðu góða
ferð til Isafjarðar um helgina síðustu
þegar þeir sigroðu heimamenn með 2
mörkum gegn 1 eftir fjörugan leik.
ísfirðingarnir voru mun atgangsharð-
ari i fyrri hálfleiknum og skoruðu gott
mark rétt í lok hans þegar Örnólfur
fyrirliði Oddsson renndi knettinum í
markið af stuttu færi, 1-0.
í seinni hálfleiknum jafnaðist leikur-
inn nokkuð og gerði Hinrik út um
leikinn með tveimur laglegum mörkum
með stuttu millibili, 2-1. Undir lokin
sóttu KA-menn mjög.
Gunnar Gíslason var bestur i liði KA
og eins átti markvörðurinn Aðalsteinn
ágætan leik. Lið ÍBÍ var jafnt að þessu
sinni.
- IngH
Jens í KR
■ Jens Einarsson, landliðsmarkvörður
í handknattleiknum, hefur gengið til liðs
við KR-inga og mun hann leika með
Vesturbæjarliðinu næsta vetur.
Jens hefur lengi verið i hópi bestu
markvarðanna i handboltanum og var
um tima fastur maður i landsliðinu. í
fyrravetur gekk hann til liðs við sína
gömlu félaga í ÍR, en hefur nú ákveðið
að keppa með Vesturbæjarfélaginu.
Mikill hugur er í KR-ingum lýrir
næsta keppnistimabil og hafa þeir sett
stefnuna á íslandsmeistaratitilinn undir
stjórn danska þjálfarans Anders Dahl
Nielsen.
Blikarnir
gáfu eftir
og töpudu ödru stiginu til Víkinga, 1:1
■ Litið greiddist úr flækjunni i 1.
deildinni s.l. sunnudagskvöld þegar tvö
toppliðanna, Víkingur og Breiðablik,
léku í Laugardalnum. Jafntefli varð,
1-1, og má segja að öll lið deildarinnar
séu nú í einum hnapp.
Blikarnir tóku þegar í fyrri hálfleik öll
völd i sinar hendur og skoruðu þeir
mark strax á 6. mín. Sigurður Grétars-
son fékk stungusendingu og aðþrengdur
af Stefáni Halldórssyni, Víkingi, tókst
honum að þruma boltanum í markið,
1-0. Ansi laglega gert hjá Sigurði.
Nokkru seinna var Sigurður aftur á
ferðinni, brunaði i gegnum Víkings-
vörnina, lék á Ögmund markvörð, en
Magnúsi Þorvaldssyni tókst að forða
marki á marklinunni. Um miðbik
hálfleiksins þurftu Víkingar aftur að
gripa til naúðvamar og i þetta sinn var
það Ragnar Gíslason sem bjargaði á
marklínu. Yfirburðir Blikanna vom nær
algjörir og áður en flautað var til leikhlés
höfðu þeir fengið 2 góð færi enn, sem
beim tókst ekki að nvta.
í seinni hálfleik snérist dæmið að
mestu við. Víkingamir tvíefldust jafn-
framt því sem Breiðabliksmenn gáfu
eftir. Afleiðingarnar létu ekki á sér
standa. Sverrir Herbertsson, sem var
nýkominn inn á sem varamaður, sendi
boltann i Blikamarkið með laglegu
bogaskoti utan af kanti, 1-1. Reyndar
deildu menn um það að leikslokum
hvort Sverrir ætlaði að gefa fyrir eða
skora mark, en það er önnur saga. Þetta
var laglega gert hjá honum. Nokkru
seinna brutu Víkingarnir enn upp og
sókninni lauk með þvi að Gunnar
Gunnarsson skallaði rétt framhjá
Breiðabliksmarkinu.
Er líða tók á seinni hálfleik jafnaðist
leikurinn á ný, en barningurinn fór að
mestu fram á miðjunni og engin
vemlega góð marktækifæri litu dagsins
Ijós.
Slakur varnarleikur (einkum framan-
af) varð Víkingunum nær að falli að
bessu sinni. Snjall leikur þjálfarans,
Sedov, bjargaði þó málinu. Hann lét
Jóhannes Bárðarson færa sig fram á
miðjuna og í hans stað sem gæslumaður
Sigurðar Grétarssonar kom Gunnar
Gunnarsson. Annars vakti helsta athygli
hjá Vikingum hve góður leikmaður
Aðalsteinn Aðalsteinsson er að verða.
Framfarir hans i sumar hafa verið með
ólíkindum.
Það var mikill klaufaskapur hjá
Blikunum að tapa öðru stiginu í þessum
leik. Þeir höfðu öll ráð Víkinga í hendi
sér í fyrri hálfleik. Það var einnig
furðulegt hve ragir framlinumenn Blik-
anna eru við að skjóta langskotum að
marki andstæðinganna. Þeir fengu ærin
tækifæri til þess, en alltaf varð það sama
sagan. Leika skyldi með boltann inn að
markteig andstæðinganna áður en mark-
skot skyldi reynt.
Sigurður Grétarsson, Trausti Ómars-
son og Ólafur Björnsson voru atkvæða-
mestir i annars jöfnu og léttleikandi
Blikaliði.
-IngH
■ Hart barist í vitateig Vikings. Gunnar Gunnarsson skallar frá marki.
- IngH