Tíminn - 22.06.1982, Qupperneq 23
ÞRIÐJUDAGUR 22.JUNI 1982.
23
og leikhús - Kvíkmyndir og leikhús
kvikmyndahornið
Allt CIA að kenna
VIÐVANINGURINN (The Amateur). Sýningarstadur: Nýja bió. Leikstjóri:
Charies Jarrott. Aðalhlutverk: John Savage (Charles Heller), Christopher
Plummer (Lakos), Marthe Keller (Elisabet Vaculik), Nicholas Campbell
(Schraeger). Handrít eftir Diönu Maddox og Robert Littell, byggt á skáldsögu
hins siðarnefnda. Myndataka: John Coquillon. Framleiðendur: Joel B.
Micbaels og Garth H. Drabinsky, fyrír Twentieth Century Fox, 1982.
■ Eini gallinn á þeim alþjóðlegu
þrillerum, sem seljast í miklu upplagi
um allan heim, er afleiðing þeirrar
tilhneigingar höfundanna að hafa
söguþráðinn stórkstlegri og óvæntari
en keppinautarnir; sem sé að sögur
þessara metsöluhöfunda eru því
aðeins spennandi aflestrar, að les-
andinn viðurkenni fyrirfram að hið
lygilegasta, sem hægt sé að ímynda
sér, geti gerst.
Rithöfundar geta oft komist upp
með slíkt eins og sölutölur sýna, en
það er öllu erfiðara fyrir kvikmynda-
höfunda að bera á borð söguþráð,
sem reynsla áhorfandans segir að sé
alitof lygilegur til að geta staðist. Ef
kvikmyndaleikstjóri þarf samt sem
áður að gera kvikmynd með slíkum
söguþræði, verður hann að gæta þess
að hafa hraða og spennu myndarinn-
ar slíka, að áhorfandinn hafi yfirleitt
aldrei tíma til þess að velta þvi fyrir
sér, hvort það sem hann sér á hvita
tjaldinu sé sennilegt eða ekki.
Charles Jarrott, sem fyrst á
leikstjóraferli sinum gerði kvik-
myndir um dautt breskt kóngafólk,
svo sem Önnu Boleyn og Maríu
Stuart, en hefur í seinni tíð einkum
fengist við spennumyndir, gefur
áhorfendum sínum alltof oft næði til
þess að velta söguþræðinum i þessari
mynd fyrir sér. Meginþemað er
gamalkunnugt: sem sé sagan um
ungan mann, sem á unnustu sem er
komið fyrir kattarnef í upphafi
myndarinnar, og sem hann vill
sjálfur hefna með þvi að útrýma
þeim, sem að morðinu á stúlkunni
stóðu. Þessi söguþráður er til í
ýmsum útfærslum i tugum ef ekki
hundruðum kvikmynda. Hér er
honum skellt inn i átök við
hryðjuverkamenn og starfsemi
njósnaþjónusta i austri og vestri.
í stuttu máli sagt segir frá
tölvufræðingi (John Savage), sem
starfar hjá bandarísku leyniþjónust-
unni. Hann á vinstúlku, sem er stödd
i bandarísku ræðismannsskrifstof-
unni i Munchen, þegar hryðjuverka-
menn ráðast þar inn, taka gisla og
heimta að tveir félagar þeirra, sem
eru í haldi, fái að sleppa. Til að
leggja áherslu á kröfu sina myrða
þeir einn gislanna, og þar með er
unnustan úr leik. Vestur-þýsk og
bandarisk stjórn láta undan kröfu
hryðjuverkamannanna (liklegt það)
og tékknesk stjórnvöld veita þeim
síðan viðtöku að verkinu loknu
(sennilegt það). Tölvufræðingurinn
vill að CIA geri eitthvað i málinu,
svo sem eins og að senda menn til
Tékkó til að slátra hryðjuverka-
mönnunum, en CIA vill ekkert gera.
Hann hirðir þá úr tölvu þeirra
CIA-manna leynilegar upplýsingar,
sem kæmi sér illa fyrir Bandarikja-
stjórn að birtar yrðu, felur þær og
segir yfirmönnum sinum síðan, að ef
þeir geri ekki allt, sem hann fer fram
á, þá verði leyniskjölin birt. Og það,
sem tölvufræðingurinn vill, er að fá
þjálfun í meðferð manndrápsvopna
og fá siðan far til Tékkó til að ganga
frá hryðjuverkamönnunum sjálfur.
CIA fellst á þetta og leitar að
leyniskjölunum góðu á meðan tölvu-
fræðingurinn er i þjálfun. En þegar
þeir finna loks skjölin er kappinn
hins vegar búinn með þjálfunina og
kominn til Tékkó, en CIA sendir
menn á eftir til að kála tölvufræð-
ingnum áður en hann nær að kála
hryðjuverkamönnunum. Einfaltekki
satt? Sagan á enn eftir að batna, þótt
ástæðulaust sé að upplýsa það allt
saman hér að öðru leyti en þvi, að á
daginn kemur, að þetta er allt saman
CIA að kenna. Hvað annað.
Ýmis atriði myndarinnar eru vel
gerð og spennandi á að horfa, en á
öðrum stöðum eru gloppurnar svo
augljós»r að áhorfandinn fer hjá sér.
Einstaka senur eru fyndnar; þó að
þvi er virðist óvart, svo sem eins og
þegar Christopher Plummer - sem
leikur tékkneskan gagnnjósnafor-
ingja og prófessor - reynir fyrir sér í
tékknesku.
Elias Snæland
Jónsson skrífar
★ Viðvaningurinn
★★★ Lola
0 Skæruliðar
★★ Huldumaðurinn
★★★ Ránið á týndu örkinni
★★★ Fram í sviðsljósið
Stjörnugjöf Tímans
**** frðbær • *** mjög góð ■ * * gód ■ * sæmlleg ■ O léleg